Morgunblaðið - 15.01.1964, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 15. Ján. 1964
MORGUNBLADIÐ
23
Fólklnu gafst tíml til aS bera út búslóðina á hæðinni og kjallar-
anum, e.i allt eyðilagðist í risinu. Kona ráðsmannsins athugar
það sem bjargaðist. (Ljósm.: Sv. Þ.)
Hlilljón króna verðlaun
fyrir sýklarannsóknir
Frankfuirt, 14. jan. (NTB)
PAUL EHRLICH stofnunin í
Frankfurt hefur tilkynnt að heið
ursverðlaun stofnunarinnar, sem
nemur 100 þúsund vesturþýzkum
mörkum (um kr. 1.083.000,-)
verði í ár veitt danska sýklafræð
ingnum Fritz Kauffmann pró-
fessor. Samkvæmt reglugerð
verðlaunasjóðsins hlýtur Kauff-
mann sjálfur helming verðlaun-
anna, en hinn helmingurinn renn
ur til einhverrar þeirrar vísinda-
stofnunar, sem verðlaunahafi til-
nefnir.
Fritz Kauffmann prófessor er
65 ára, og fæddur í Þýzkalandi.
Hlýtur hann verðlaunin fyrir
margra ára rannsóknir á svo-
nefndum Salmonella-sýklum, en
þeiir geta m. a. valdið taugaveiki
og taugaveikibróður. Fyrir árið
1933 starfaði Kauffmann við
Robert Kooh stofnunina í Berlin,
en fluttist frá Þýzkalandi eftir
að Hitler komst þar til valda.
Verðlaunaafhendingin f e r
frami í Pálskirkjunni í Franikfurt
hinn 14. marz nk.
Ráðstefna Araba í Kalró
— Eldur
Framhald af 24. síðu.
ónýtt. Á hæðinni og í kjallara
urðu nokkrar skemmdir af reyk
og vatni.
Þegar slökkviliðið kom að Álfs-
nesi var fólk á staðnum búið að
Helsingfors, 14. jan. (NTB)
Á FUNDI mennta- og menningar-
tnálaráðherra Norðurlandanna í
Helsingfors í dag var ákveðið að
háskólapróf frá heimspeki- eða
hagfræðideildum í einu norrænu
landanna skuli gilda á hinum
Norðurlöndunum samkvæmt nán
ar ákveðnum reglum. Leiðir af
þessu að doktorsefni geta vænt-
anlega varið ritgerðir sínar í einu
Norðurlandanna á grundvelli
prófa frá öðru landi.
Þá vasr lögð fram á fundinum
skýrsla varðandi Noiræna hús-
ið í Reykjavik. Bru teikningar
Alvar Aaltos arkitekts tilbúnar,
en margvíslegir útreikningar eft
ir á kostnaði við bygginguna.
Ráðherrarnir samþykktu að
etyðja tillögu menningarmála-
nefndar Norðurlandaráðs um
stofnun tónskáldaverðlauna á
vegum ráðsins. Er ætlunin að
verðlaunin nemi 50 þúsund
dönskum krónum, og þeim út-
hlutað á þriggja ára fresti. Þá
var nokkuð rætt um samvinnu
Norðurlandanna á sviði menn-
ingarmála og kostnað í sambandi
við þá samvinnu. En mál þetta
f —------
13 lukn fiski-
mannaprófi á
Eyrarbakka
Eyrarbakka, 14 .janúar.
í DAG lauk hér námskeiði til
*ninna fiskimannaprófs. Alls luku
13 menn prófi, 7 frá Eyrarbakka,
4 frá Stokkseyri og 2 frá Sel-
fossi.
Forstöðumaður og aðalkennari
é námskeiðinu var Guðmundur
Arason, en námskeiðið var hald-
ið á vegum Sjómanna- og stýri-
mannaskólans. — Óskar.
bera allt út úr íbúðarhæðinni og
kjallaranum, en engu varð bjarg-
að úr risinu. Slökkviliðið var yfir
brunarústunum þar til á fimmta
tímanum um daginn. Talið er, að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
Að Álfsstöðum bjó ráðsmaður
ásamt konu sinni og 4 börnum.
verður tekið fyrir á næsta fundi
Norðurlandaráðs, sem hefst í
StokkhÓLmi um miðjan næsta
mánuð.
Umferðarslys
í Mosfellsdal
Þ A Ð slys varð í gær móts við
Reykjahlíð í Mosfellssveit að 13
ára gamall drengur, Erlingur
Hansson, Hjalla í Kjós, varð fyr-
ir bíl á þjóðveginum og slasaðist,
þó ekki alvarlega.
Nánari atvik urðu þau, að skóla
bíll hafði numið þarna staðar á
þjóðveginum til að hleypa út
börnum. Hafði Erlingur hlaupið
fram fyrir bílinn, en í því bar að
fólksbíl og tókst ökumanninum
ekki að forða slysi.
Lenti Erlingur fyrir bílnum,
kastaðist upp á vélarhlíf hans, en
féll síðan í götuna. Hann var flutt
ur í Slysavarðstofuna í Reykja-
vík, en meiðsli munu ekki hafa
reynzt alvarleg, þar sem hann
fékk að fara heim síðar í gær.
New York, 14. jan (NTB)
Sósíaliski verkamannaflokk-
urinn í Bandaríkjunum, sem
er flokkur Trotski-sinnaður,
hefur ákveðið að bjóða fram
við forsetakosningarnar í
haust. Frambjóðandi flokks-
ins er blökkumaðurinn Clift
on Deberry.
Calrutta, 14. jan (AP):
Tekizt hefur að mestu að fyrir
byggja frekari óeirðir í Cal-
cutta og landamærahéruðum
Indlands og Pakistan, en ó-
eirðir þessar hófust sl. fimmtu
dag. Samkvæmt opinberum
heimildum hafa 160 manns lát
ið lífið í óeirðunum en 264
særzt.
Kaíró, 14. jan. (AP-NTB)
Leiðtogar 13 Arabarikja komu
saman til ráðstefnu í Karió í dag
til að reyna að draga úr inn-
byrðis ágreining ríkjanna og
komast að sameiginlegri niður-
stöðu um aðgerðir varðandi á-
form Gyðinga um að veita vatni
úr ánni Jordan til ræktunartil-
rauna á Negev-eyðimörkinni.
í sambandi við ráðstefnuna
hafa einnig verið haldnir einka-
fundir þeirra Husseins Jórdaniu
konungs og Sallals forseta Jem-
ens, og þeirra Hassans H. kon-
ungs í Marokkó og Ben Bella
forseta Alsír um deilumál ríkj-
anna.
Nasser forseti Egyptalands sat
Hreppamenn sýna
tvö leikrit
Selfossi, 14. janúar.
UNGMENNAFÉLÖGIN í Hrepp-
unum hafa verið starfsöm nú
u<m jólin og hafa þau æft tvö
leikrit, Húrra krak'ka og Gift
eða ógift. Það eru Gnúpverjar,
sem hafa verið með Húrra
krakka. Um síðustu helgi sýndu
þeir leikritið bæði í Hveragerði
og Félagslundi í Gaulverjabæjar
hreppi.
Hrunamenn hafa sýnt Gift eða
ógift og sýndu þeir leikritið hér
á Selfossi á föstudaginn var, á
Laugarvatni á laugardag og á
sunnudag bæði að Brúarlandi i
Landssveit og Þjórsárveri í Vill-
ingaholtshieppi. — Ó.J.
Orsök verk-
smiðjnbrunans
í rannsókn
Siglufirði, 14. janúar.
SAMKVÆMT upplýsingum
frá Einari Ingimundarsyni, bæj-
arfógeta, hófst réttarrannsókn
vegna brunans í Tunnuverk-
smiðjunni kl. 13 í gærdag. Verð-
ur rannsókninni haldið áfram í
dag.
Bæjarfógetinn hefur kvatt sér
til aðstoðar Magnús Eggerts-
son rannsóknarlögreglumann í
Reykjavík, til athugunar á hugs-
anlegum eldsupptökum.
Fógetinn vildi ekki, þar sem
rannsókn er á frumstigi, láta
hafa neitt eftir sér varðandi
málið. — Stefán.
Róðrar að hef jast
frá Eyrarbakka
Eyrarbakka, 14. janúar.
RÓÐRAR munu hefjast héðan
innan skamms, enda eru bátarn-
ir sem óðast að losna úr slippn-
um. Kristján Guðmundsson fór
í fyrsta róðurinn í dag.
Hér kemur til með að skorta
mannafla, bæði á bátana og til
vinnslu aflans. í fyrra réru héð-
an fjórir bátar og Eyrarbakka-
bátur réri frá Þorlákshöfn.
.— Óskar.
fund Hassans og Ben Bella, en
talið er að landamæradeila Alsír
og Marokkó eigi eftir að tefja
mjög störf ráðstefnunnar.
Ráðstefnan í Kaíró er haldin
fyrir luktum dyrum, og fréttist
lítið þaðan annað en opinberar
yfirlýsingar fundarstjórnarinnar.
Aðal málið er að sjálfsögðu sam
staða Araba varðandi aðgerðir
Gyðinga á Negev-eyðimörkinni.
En áður en það kemur til af-
greiðslu er nauðsynlegt að leysa
innbyrðisdeilumálin.
7 þilfarsbátar
fengu 57 tonn
Höfn, Hornafirði, 14. jan.
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ fóru
Hornafjarðarbátar í fyrsta róður
sinn á árinu. Voru það 7 þilfars-
bátar og einn opinn bátur. Heild-
arafli þilfairsbátanna var 57 tonn
eða um 8 tonn að meðaltali.
Trillan fékk 2 tonn. f dag er
gott veður og 9 bátar á sjó.
Fyrstu viku mánaðarins stóð
yfir vinnudeila á bátaflotanum
en ógæftir hafa verið allan fyrri-
hluta mánaðarins svo ekkert
hefði verið hægt að róa þeírra
hluta vegna. Hér var mikið
hvassviðri að vestan sl. laugar-
dag og lagði í fyrsta sinn frá því
gosið hófst mikla brennisteins-
fýlu yfir þorpið. — Gunnar.
Vísindasjóðui
auglýsii styihi
VÍSINDASJÓÐUR hefur aug-
lýst styrki ársins 1964 lausa til
umsóknar. Sjóðurinn skiptist i
tvær deildir: Raunvísindadeild
og Hugvísindadeild. Formaður
stjórnar Raunvísindadeildar er
dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur, en formaður stjórnar
Hugvísindadeildar dr. Jóhannes
Nordal bankastjóri. Formaður yf
irstjórnar sjóðsins er dr. Snorri
Hallgrímsson prófessor.
Raunvísindadeild annast styrk
veitingar á sviði náttúruvísinda,
þar með taldar eðlisfræði og
kjarnorkuvísindi, efnafræði,
stærðfræði, læknisfræði, líffræði,
jarðfræði, dýrafræði, grasafræði,
búvisindi, fiskifræði, verkfræði
og tæknifræði.
Hugvísindadeild annast styrk
veitingar á sviði sagnfræði, bók
menntafræði, málvísinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim-
speki, guðfræði, sálfræði og upp
eldisfræði.
Hlutverk Vísindasjóðs er að
efla íslenzkar vísindarannsóknir,
og í þeim tilgangi styrkir hann:
1) einstaklinga og vísindastofn-
anir vegna tiltekinna rann-
sóknarverkefna
2) kandídata til vísindalegs sér
náms og þjálfunar. Kandídat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum
eða afla sér vísindaþjálfúnar
til þess að koma til greina
við styrkveitingu
3) rannsóknarstofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til
greiðslu á öðrum kostnaði í
sambandi við starfsemi, er
sjóðurinn styrkir.
Umsóknarfrestur er til 10.
marz næstkomandi.
Umsóknareyðublöð ásamt upp-
lýsingum fást hjá deildariturum,
á skrifstofu Háskóla íslands og
hjá sendiráðum íslands erlendis.
Deildaritarar eru Guðmundur
Arnlaugsson menntaskólakenn-
ari fyrir Raunvísindadeild og
Bjarni Vilhjálmsson skjalavörð-
ur fyrir Hugvísindadeild.
(Fréttatilkynning frá
Vísindasjóði).
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar
sýndi leikritið Jólaþyrna 8
sinnum í Bæjarbíói fyrir jólin.
Leikritið hlaut góða dóma —
Nokkrir þekktir leikarar úr
Reykjavík fara með aðalhlut-
verkin, Gestur Pálsson, Emil-
ía Jónasdóttir, Aurora Hall-
dórsdóttir og Jóhanna Norð-
fjörð. Sýningar hefjast aftur
á leiknum i kvöld, en á laug-
ardag verður sýning i Kefla-
vík. Myndin er af Emilíu og
Jóhönnu í hlutverkum sinum.
Samvinna háskólanna
á IMorðurlöndum