Morgunblaðið - 18.01.1964, Side 3
Laugardagur 18 jan. 1964
MORGUNBLAÐID
3
f G Æ R hafði Eimskipafélag
íslands boð inni í Gullfossi
fyrir vini og velunnara félags-
ins. — Sótti boð þetta fjöldi
manns og stóð það. frá kl.
17.30—18.30.
Einar B. Guðmundsson, for-
maður félagsins, ávarpaði
gesti og Bjarni Jónsson, vígslu
biskup, flutti stutta, hugþekka
hugvekju. Undir lok móttök-
unnar ávarpaði Sigurlaugur
Þorkelsson gesti og þakkaði
komuna.
Myndir þær er hér fylgja eru
teknar í boðinu um borð í
Gullfossi í gær.
A afmælinu bárust félag-
inu margar góðar gjafir
og mikill fjöldi heillaskeyta,
Siglingar og fullveldi
Timinn birtir í gær forystu-
grein um hálfrar aldar afmæli
Eimskipafélags íslands og kemst
þar m.a. aS orði á þessa leiS:
„Stofnun Eimskipafélags Is-
lands fyrir hálfri öld á vordög-
um Lslenzks sjálfstæSis, var þvi
eitthvert mikilvægasta sporiS
sem stigiS var til þess aS renna
stoðum undir fullveldi landsins.
ÞaS er ekki siSur ánægjulegt aS
minnast þess, meS hve táknræn-
um hætti þaS gerSist. Stór hluti
þjóðarinnar lagði þar fram skerf
sinn. Oft var sá skerfur fáar
krónur, en starf hans tiSum í
öfugu hlutfalli meS hliSsjón af
getu og harSri lífsbaráttu þeirra
tíma.
FélagiS var á bernskuárum
kallaS „Óskabarn íslands“. Það
var réttnefni, þegar litið var á
með hvaða hætti og á hvaða úr-
slitastund það var stofnaS. Þetta
óskabarn dafnaði vel fyrir for-
sjá mikilhæfra manna og átti
gildan þátt í framfarasókn þjóð-
arinnar á næstu áratugum. Foss-
unum var hvarvetna vel fagnað
með hreykni í íslenzkum höfn-
um og ferðir þeirra um heims-
höfin greiddust oftast vel. Stríð
og stormar hjuggu að vísu stund
um skörð í skipastólinn, en þau
voru oftast fyllt með meiri stór-
! hug en áður. Eimskipafélagið og
þjóðin stækkuðu og efldust sam-
an“.
Tíminn minnist siðan á þátt
Vestur-Islendinga i stofnun og
starfsemi Eimskipafélagsins og
telur hann „meðal ánægjuleg-
^ ustu bræðrabanda, sem tengt
j liafa þjóðararmana saman yfir
I hafið“.
Fánar blakta við hún við Pósthússtræti á 50 ára afmæli Eimskipafélagsins.
Skattsvikin
og þjóðfélagið
Alþýðublaðið birtir í- dag for-
ystugrein um skattsvikin. Er þar
m.a. komizt að orði á þessa leið:
„Það er á almanna viiorði,'" að
skattsvik eru stunduð hér á landi
í stórum stíl og tilraunir rikis-
valdsins til að stöðva þau hafa
hingað til borið lítinn árangur.
Deila má um upphæðir, en vafa-
laust missa ríki og sveitafélög
mörg hundruð milljónir króna af
tekjum sínum vegna svikinna
framtala. Verður að leggja þá
byrði á þjóðina með hærri skött-
um og útsvörum. Þannig verða
hinir heiðarlegu að greiða það,
sem skattsvikararnir stela.
Núverandi ríkisstjórn hefur lof
að að herða stórlega á eftirliti
með framtölum. Verður að
treysta því, að það verði gert,
ekki með timabundnu skyndi-
áhlaupi heldur með varanlegum
ráðstöfunum, sem tryggja stór-
aukið eftirlit með framtölum og
mun þyngri refsingar fyrir vís-
vitandi skattsvik, en hingað til
hafa tíðkast“.
Alþýðublaðið lýkur hugleið-
ingum sínum um þetta efni með
þessum orðum:
„Allur þorri íslendinga hefur
vafalaust þá barnatrú, að þjóð
okkar sé grandvör og heiðarleg,
enda þótt óþægilega margt bendi
til að svo sé ekki. Fjárhagslegt
misferli, fjárdráttur og þjófnað-
ur, skattsvik og margvísleg önn-
ur spilling blómgast hér á Landi á
óhugnanlegan hátt. Hið unga lýð
veldi okkar er því miður fjár-
hagslega rotið og sú meinsemd
mun fara vaxandi, ef ekki er
tekið í taumana strax.
Sú skylda hvílir á ríkisvaldinu
öðru fremur. Það getur hafið
gagnsókn og gert skattsvikurum
lífið erfitt, sent þá í fangelsi eða
dæmt þá í háar sektir, unz þessi
glæpur, sem almenningsálit ekki
telur neinn glæp, verður upp-
rættur í landinu".
fylgir silfurpeningur, sem
verður eign þess er bikarinn
hlýtur hverju sinnL
í>á hefur verið ákveðin
stofnun minjasafns, er geyma
muni og myndir, skjöl og ann
að, er snertir sögu Eimskipa-
félagsins og siglingar yfirleitt.
Ennfremur hefir félagið ákveð
ið útgáfu sögulegs rits, er
sé framhalds rits þess, er gef
ið var út á 25 ára afmæli
félagsins.
Merki Eimskipafélagsins
hefur verið mótað í gull.
Gullmerkið hljóta þeir, sem
starfað hafa í þjónustu féiags
ins í 25 ár eða lengur.
Ávarpi sínu lauk Einar B.
Guðmimdsson með þessum
orðum:
„Við íslendingar ’ höfum
um aldaraðir deilt um margt
og stundum svo hart, að úr
hófi hefur verið. Fyrir rúm-
um aldarfjórðungi sagði eitt
af góðskáldum okkar, Jón
Magnússon, þessi orð í kvæð-
inu „Frelsi“:
„Litia þjóð, sem átt í vök
að verjast,
vertu ei við sjálfa þig
að berjast".
Við byggjum segifagurt
land, og allir viljum við heill
og heiður hinnar ísienzku
þjóðar. Barátta þjóðarinnar
fyrir bættum lífskjörum hef-
ur verið ströng og erfið, og
svo mun verða um langa
framtíð.
Við erum svo fáir, að við
verðum að gera okkur ljóst,
að samheldni og samhugur er
okkur lífsnauðsyn.' Og íslend
ingar hafa sýnt, að þeir geta
staðið saman sem einn mað-
ur. Þannig var það, er Lýð-
veldið var endurreist 17. júní
1944 og þannig var það, er
Eimskipafélag íslands var
stofnað 17. janúar 1914.
Einar Benediktsson segir í
stórbrotnu kvæði:
„Þegar býður þjóðarsómi,
þá á Bretlandi eina sál“
Það er ósk mín til íslenzku
þjóðarinnar, að við getum
ávailt sagt með sanni:
Þegar hýður þjóðarsómi, þá
á ísland eina sál.
og verður nánar skýrt frá því
síðar.
Ríkisútvarpið sýndi félag-
inu þá miklu vinsemd að
helga því hluta af dagskrá
sinni í gærkvöldi. Blöðin
fluttu rækileigar greinar um
félagið, með mörgum mynd-
um, þar sem þau minntust
með hlýhug stofnunar félags-
ins og starfsemi á liðnum 50
árum. Fánar blöktu við hún
um allan bæinn.
Einar B. Guðmundsson, Óttarr Möller og Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Dagskráin í Ríkisútvarpinu
hófst með því að forseti ís-
lands flutti ávarp. Síðan var
ávarp siglingamálaráðherra,
Emils Jónssonar. Þá flutti for
stjóri félagsins, Óttarr Möll-
er ávarp og dómkirkjukór-
inn söng kvæði er Tómas Guð
mundsson, skáld, hafði ort í
tilefni afmælisins, og hafði
dr. Páll Isólfsson samið lag
við kvæðið og stjórnaði hann
einnig kórsöngnum. Að því
búnu flutti Grettir Eggertson
frá Winnipeg ávarp frá est-
ur-lslendingum.
Að lokum fluttl formaður
stjómar félagsins, Einar Bald
vin Guðmundsson hæstarrétt-
arlögmaður, þakkarorð til
allra þeirra er gert höfðu
þennan dag hátíðlegan og eft
irminnilegan, m.a. póststjóm-
inni „flaggskipi“ félagsins,
m.s. „GULLFOSS".
Jcifnframt skýrði formaður
félagsstjórnarinnar, að stjórn
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, ávarpar gesti um borð í
Gullfossi.
in hefði samþykkt að minnast
afmælisins á þennan hátt:
Ákveðið hefur verið að fé-
lagið færi Slysavarnafélagi
íslands að gjöf eitthundrað og
fimmtíu þúsund krónur.
Ennfremur að Eimskipafé-
lagið gefi silfurbikar til verð-
launa fyrir bezta námsafrek
í farmannadeild Stýrimanna-
“skólans í Reykjavík. Verður
þetta farandbikar, en honum
Afmælisfagnaður Eimskips