Morgunblaðið - 18.01.1964, Blaðsíða 13
Laugardagur 18. jan. 1864
MORGUNBLAÐID
13
Um 50 manns meiddust
vegna flugelda
Sala þeirra talin um
5 milljónir króna
■»— “ HMjng
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gær tillögu tJlfars Þórðarsonar
um, hvernig draga megi úr þeim
slysum, sem undanfarin áramót
hafa orðið fyrir gálauslega með-
ferð sprengiefna.
Flutningsmaður gaf m. a. þær
upplýsingar, að nú um áramótin
hefðu 34 verið fluttir á slysa-
varðstofuna vegna meiðsla af
völdum flugelda og annars þess
háttar, þar af þrír á sjúkrahús
og var einn þeirra með möl-
hrotinn fótlegg. Auk þess munu
fleiri hafa slasazt og leitað ann-
arra lækna, þar af einn, sem
skaddaðist alvarlega í auga af rak
ettu. Alls taldi ræðumaður að
um 50 manns hefðu slasazt af
völdum flugelda nú um áramót-
in. — Gizkað er á, að heildar-
sala flugelda hafi numið um 5
millj. kr. nú um áramótin.
®M ÞRJÁR L'EIÐIR
AÐ VELJA
Úlfar Þórðarson (S) gerði
gein fyrir tillögunni, sem er svo-
hljóðandi: „Borgarstjórn samþykk
ir að fela þriggja manna nefnd
að gera tillögur um það, á hvern
hátt borgaryfirvöldin geti um-
fram það, sem nú er gert, dregið
úr þeim slysum, er orðið hafa
um undanfarin áramót fyrir gá-
lauslega meðferð sprengiefna". —
Skal Slysavarnafélagið tilnefna
formann nefndarinnar, en lög-
reglustjóri og yfirlæknir Slysa-
varðsstofunnar eða fulltrúar
þeirra eiga jafnframt sæti í nefnd
inni, sem á að ljúka störfum inn-
an sex mánaða.
Sagði ræðumaður, að undan-
farin áramót hefði vaxandi
fjöldi manna slasazt af völdum
flugelda og væru andlit og hend
ur manna útsett í þessum til-
fellum. Menn hefðu misst fram-
an af fingrum eða stórskaddast
í andliti og augum. Lögreglan
hefur gengið vel fram í að reyna
að hindra þetta og bannað sölu
á kínverjum. Samt er þaS svo,
að aðalhættan stafar af sterk-
um sprengiflugeldum, oft heima
tilbúnum. Hægt er að benda á
þrjár aðalleiðir í þessu efni:
1. Bann, sem í flestum tilfell-
um er óyndisúrræði, einnig í
• Árekstur
London, 16. jan. NTB:
Árekstur varð í dag, um 101
km utan við Dover, milli
norska olíuskipsins „Promet- I
heus“ og belgíska farþega-1
skipsins „Koning Albert“.
Engan sakaði, en belgíska
skipið laskaðist svo, að far-
þegar, 800 talsins, og áhöfn |
urðu að yfirgefa skipið.
þessu tilfelli. f>ó má benda á,
að í nágrannalöndum er bannað
að hafa þetta um hönd.
2. Upplýsa almenning og vara
hann við gáleysislegri meðferð
á flugeldum og nær þetta fyrst
og fremst til fullorðinna. Skapa
þarf öflugt almenningsálit, sem
fordæmir kæruleysi á þessu
sviði, og herða á refsingum við
brotum á núgildandi löggjöf um
þessi mál.
3. Mjög athugandi er að láta
fara fram í borginni undir stjórn
kunnáttumanna skrautsýningar á
þessum degi, sem viðurkenningu
á að skapazt hafi hefð fyrir því,
að þetta tilheyri hátíðarhöldun-
um líkt og brennurnar. Kvaðst
flutningsmaður helzt þeirrar skoð
unar, að þessi lausn mundi bera
árangur.
ROCKEFELLER ríkis
stjóri og kona hans, frú
„Happy“ hafa gert það heyrin
kunnugt, að þau eigi von á
barni í maímánuði næstkom-
andi. Rookefeller hefur áform
að að halda sjónvarpsræðu í
þessum mánuði, og segir dag-
blaðið „Washington Post“ að
ræðan verði í svipuðum dúr
og hin fræga ræða, sem Ed-
ward VIII, núverandi hertogi
af Windsor, hélt í útvarpið í
desembermánuði 1936, þegar
hann bað ensku þjóðina að
sýna skilning á sambandi
hans við frú Simpson —
„konuna sem ég elska.“
Eins og menn minnast
minnkuðu sigurhorfur Rocke-
Barátta gegn
reykingum
Á SÍÐASTLIÐNU hausti sendi Krabbameinsfélag íslands
eftirfarandi bréf til 60 barnaskóla á landinu:
„í viðleitni vorri til að hamla gegn tóbaksreykingum
barna og unglinga, teljum vér mikilsvert að eiga sam-
viiinu við skólastjóra landsins.
Að þessu sinni sendum vér yður filmræmu, ásamt ís-
lenzkum texta, sem gjöf til skóla yðar, í trausti þess að
þéi notið þessi gögn til að fræða nemendur yður um
skaðsemi reykinga. »
Félag vort er fúst að lána skólum kvikmynd (með ísl.
tali) um tóbaksreykingar. Ennfremur er verið að búa til
prentunar fræðslubækling um þessi efni og er oss ljúft að
scnda ókeypis eintök handa nemendum yðar“.
Sem dæml um undirtektir, leyfum vér oss að birta eftir-
farandi bréf frá skólastjóra á Austurlandi:
„Krabbameinsfélag fslands — Reykjavík.
Hef í dag móttekið filmræmu ásamt ísl. skýringartexta,
og hefi nú þegar kynnt mér hvort tveggja.
Ég er sannfærður um að þetta er hin þarfasta lexia, og
hvort sem fræðslan má nokkuð eður ei, þá er þó ekki hægt
að segja að ekkert sé gert til að vara við hættunni.
Ég þakka yður sendinguna og lofa að kynna minum
nemendum efni hennar.
Neskaupstað 16./12. ’63 — Virðingarfyllst — Gunnar
Ólafsson skólastjóri".
Krabbameinsfélagið hefur nú fengið til umráða þrjú ein-
tök af amerískri kvikmynd um skaðsemi reykinga (með'ísl.
tali), sem það hefur látið sýna í nokkrum framhaldsskólum
hér siðan í haust og er fúst að lána öllum skólum þessar
kvikmyndir.
Verið er að prenta bækling þann, sem minnzt er á í bréfi
félagsins til skólanna, en útkomu hans seinkaði vegna prent-
araverkfallsins.
Krabbameinsfélag fslands og Krabbameinsfélag Reykja-
víkur hafa nú ráðið mann, sem einnig vinnur að öðrum
fræðslumálum fyrir skólana, til þess að sinna útbreiðslu- og
kynningarstarfi á verkefnum krabbameinsfélaganna.
Þá má og geta þess, að í síðasta hefti tímarits krabbameins-
félaganna: „Fréttabréf um heilbrigðismál", eru tvær greinar
um áhrif reykinga á heilsuna: 1. Æðasjúkdómar fara vaxandi
(eftir próf. N. Dungal). 2. Áhrif reykinga á heilsu manna
(eftir ameríska vísindamanninn Cuyler Hammond).
fellers varðandi fraimboð við
næstu forsetakosningar, þeg-
ar hann skildi við konu sína
eftir 31 árs hjónaband og gekk
að eiga Margaretta „Happy“
Murphy, sem er frásiki-lin og
á fjögur böm. Er talið að
væntanleg sjónvarpsræða ráði
framtíð Rookefellers á þess-
um vettvangi. Segir blaðið að
Rookefeller hafi engu að tapa
— en möguleika á að sigra.
IHörg verkefni
bíða ársins nýja
*
Aramótabugleiðing úr Holtum
MYKJUNESI 12. jasn. — Það
mun verða talið, að árið 1963,
sem nýskeð hefur kvatt, hafi á
margan hátt verið erfitt fyrir
landlbúnaðinn. Sumarið kalt og
flest allur jarðargróði fyrir neð-
an meðallag og heyskapur því
með minnsta móti, en á móti
kemur það að nýting heyja varð
mjög góð og varð því ekki eins
mikið áfall og gera hefði mátt
ráð fyrir. Bú manna hér hafa
ekki stækkað og sauðfé jafnvel
heldur fækkað, enda takmarkast
það víðast hér við landstærð og
verður lítt um þokað, þrátt fyrir
það að eftir verðlagningu land-
búnaðarafurða sl. haust mun nú
víða betra að búa við sauðfé en
kýr. Fé reyndist með bezta móti
hér í haust. Framkvæmdir voru
allmiklar hér um slóðir á árinu,
mjög margir bændur eru með
útihús í smíðum, en hér eins og
annars staðar skortir vinnuafl til
ýmiskonar framkvæmda. Ræikt-
unarframkvæmdir eru verulegar
frá ári til árs, en yfirleitt eru
túnin nógu stór. Þetta mætti orða
þannig að búin hefðu víða stækk-
að meira en ræktunin hefur
aukizt. En ég tel að þetta sé að
breytast til batnaðar. Og víða
mun ásetningur vera í sæmilegu
lagi i vetur og þar hefur að
sjálfsögðu bætt mjög úr að sauð-
fé hefur verið mjög létt á heyj-
um það sem af er vetri, þvi að
síðan í byrjun desemiber hefur
verið einmuna veðurblíða. Jörð
er nú mjög klakalítil og sumir
vegir hafa spillzt, því nokkur
klaiki var kominn í jörð' í nóvem
ber. En nú hefur verið unnið
með skurðgröfu hér suður í Holt-
um síðustu vikuna og er það að
sjálfsögðu mjög óvenjulegt um
þetta leyti árs. Undanfarið hefur
borið á lungnapest í sauðfé hér
suður í Holtum og eitthvað af
kindum drepizt. Heimtur á sauð-
fé munu hafa verið sæmilegar
af afréttum hér í haust, enda
þótt nokkuð vanti, en ekki í
stórum stíl.
1 fyrravetur var borað eftir
heitu vatni að Laugalandi hér í
Holtum með allgóðum árangri.
Nú hefur vatnið úr borholunni
verið hagnýtt fyrir skólann, fé-
lagsheiimilið og sundlaugina. Var
þetta mjög þörf framkvæmd.
Enda þótt mikið væri fram-
kvæmt á sl. ári eir þó margt sem
bíðuir framtíðarinnar, því eikki
má nein stöðnun þar á verða, því
það er sama og afturför. Verk-
efnin eru vissulega nóg og taka
aldrei enda. Nú er fyrirhugað
að Búnaðarbankinn stofni útitoú
hér í Rangárvallasýslu á þessu
ári og er það nauðsynleg fram-
kvæmd.
Að sjálfsögðu veit enginn hvað
árið nýja ber í skauti, en allir
vona að sjálfsögðu að það verði
gott ár sem færir landisins böm-
um öllum hagsæld og hamingju.
— M.G.
80 þús. tunnur af
sí/d komið til
Eyja
Bátarnír biðu byrjar I gær
Vestmannaeyjurr^l6. jan.
Á SÍLDARSVÆÐINU við Ing-
ólfshöfða er slæmí veður. Þar eru
einhverjir bátar, en gátu ekki
kastað vegna veðurs. Hluti af
bátunum komu til Eyja og bíða
þar byrjar.
f morgun komu nokkrir bátar
með síld. Hæstur er Bergur með
700 tunnur, Ófeigur með 300,
Halkion með 600, Gulltoppur
með 300, Hafrún með 500 og
Hafþór með 500.
Hér á land í Eyjum er komið,
síðan síldarhrotan kom fyrir
austan, um 80 þús. tunnur. Síldar
verksmiðjan bræðir stanzlaust
og bræðsla gengur yfirleitt mjög
vel. Vinnur hún með fullum af-
köstum. Nokkuð af síldinni hefur
verið tekið í frystingu, eða það
sem hægt er vegna gæða, en
megnið fer í bræðslu.
— Bj. Guðm.
Hugmyndasam-
kepp
mum
merki
Á landsþingi Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga í ágústmán
uði s.l. var ákveðið að láta gera
merki fyrir sambandið.
í framhaldi af því 'hefir stjórn
sambandsins nú boðið út hug-
myndasamkeppni um gerð sliks
merkis. Heitið er tíu þúsund
króna verðlaunum fyrir þá hug
mynd, sem valin verður. Er tal
ið æskilegt að merkið verði að
einhverju leyti táknrænt fyrlr
starfsemi sambandsins. í því
eru allir kaupstaðir á landinu oig
flestir hrepparnir.
Ætlait er tál, að hugmyndum
að merkinu sé skilað til skrif-
stofu sambandsins fyrir 1. febr-
úar n.k.
(Frá Sambandi íslenzkna sveitar
félaga).