Morgunblaðið - 18.01.1964, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.01.1964, Blaðsíða 5
Laufrardagur 18. ian. 1964 MORGUNBIAÐIÐ 5 Carl Sondburg Bandaríska ljóðskáldið, Carl Sandburg, átti nýlega 86 ára afmæli og li-ér birtist mynd af honum og konu hans. Kvæðið hér fyrir neðan er eftir Carl Sandburg og þýtt af Magnúsi Ásgeirssyni. Þess mætti geta, að Steinn Steinar hafði mikið dálæti á Carli Sandburg. STÁLBÆNIB (Carl Sandburg) Legg mig á steðja, ó, sterki Guð! Slá mig harðlega og hamra úr mér járnkarl. Lát mig rjúfa gamla, gróna veggi. Lát mig Iosa og hefja forna hornsteina. Legg mig á steðja, ó, sterki Guð. Slá mig harðlega og hamra úr mér stálflein. Kek mig í bita, sem binda skýjakljúf saman. Tak glóandi hnoðnagla og hnita mig fast í hans berandi bjálka. Lát mig verða hnitfleyginn mikla, sem skýjakljúfinn tengir og treystir gegnum bláar nætur til blikandi stjarna! hvv^rt að íramhjáhald sé frádráttarhæft sem viðhaldskostnaður HVAf) ER KLUKKl? Þegar klukkan er 12 á hádegi í Reykjavík er hún í: Kaupmannahöfn 2 e.h. London 1 e.h. Wien 3 e.h. Moskva 4 e.h. New York 8 f.h. París 1 e.h. Læknar fjarverandi Fyþór Gunnarsson fjarverandi óákveðið. Staðgenglar: Björn Þ. þórðarson, Guðm. Eyjólfsson, Erling- ur Þorsteinsson, Stefán Olafsson og Viktor Gestsson. Jón Hannesson verður fjarverandi #0.—30. þm. Staðgengill: Ragnar Arin- bjarnar. Kristjana Helgadóttir læknir fjar- ▼erandi um óákveðinntíma. Stað- gengill: Ragnar Arinbjarnar. Páll Sigurðsson eldn fjarverandi nm óákveðinn tíma. Staðg. Hulda Sveinsson. Ólafur Þorsteinsson fjarverandi 6. til 18. janúar. Staðgengill Stefán Olafs- *on. Ólafur Ólafsson læknir Klappar- ▼tíg 25 sími 11228 verður fjarverandi um óákveðinn tíma. Staðgengill: Bjöm Önundarson laéknir á sama •tað. Tekið á móti * tilkynningum trá kl. 10-12 f.h. VÍSIKORM Flaska viti eyðir enn, engir vitar brenna, raskar gliti sjónar senn, saman litir renna. Kristján Ingi Sveinsson. Sættir tókust. Stefán Vagnsson frá Hjaltastöð- um orti um samhúð hjóna: Stríddu þrátt, við strit og bags stundum máttu glíma. En urðu sátt af erjum dags eftir háttatíma. Laugardagsskrítlan — Trúir þú, að maður geti örð ið brjálaður af ást? — Já, auðvitað. Annars myndi enginn gifta sig. Orð spekinnar Menn verða það, sem þeir elska. Jóhannes Jörgensen. GAIVIALT oc gött Við skulum ekki hafa hátt, hér maður a glugganum, hann er vanur að henda smátt j og hylja sig i skugganum. sá NÆST beztS Pétur Benediktsson hafði nýlega verið skipaður sendiherra í Moskvu, þegar þessi saga varð til. Verkamenn á Eskifnði voru að skeggræða skipun þessa og lögðu misjafnt til um málið. Loks segir einn kommúnisti: „Ekki lízt mér á þessa ráðstöfun, |>ví að Pétur er svo heitur sjálfstæðismaður, en ég vona nú samt, «ð Stalin iáti hann ekki haía ahrif á sig.“ Múrari óskast Til að múra að innan ein- býlisihús í Garðahreppi. — Einangrun og hleðslu lok- ið. Uppl. í dag að Garða- flöt 11. Til sölu Brúðarkjóll. Stærð 42. — Uppl. í síma 36242. Vil kaupa bús af Chevrolet-vörubif- ' reið eða Pich-up, árgerð 1951—’53. — Axel Magnús son, Selfossi, sími 277. Einbýlishús til leigu í nágrenni Keflavíkur. 3 herb. og oldhús, með eða án húsgagna (sími og ís- skápur). Uppl. í síma 2120. H.f. Jöklar: Drangjökull er í Camd- en, fer þaðan til Rvíkur. Langjökull j er í Rvík. Vatnajökull er í Rvík. Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug: j Gullfaxi fer til Giasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08.15 í dag. Vélin er væntanleg aftur ti’ Rvíkur kl. 15:15. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Húsa- víkur, Vestmannaeyja, ísafjarðar og | Egilsstaða. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar og Vestmanna- eyja. Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er | væntanlegur frá NY kl. 07:30. Fer til Luxemborgar kl. 09.00. Eiríkur rauði | er væntanlegur frá- Luxemborg kl. 23:00. Leifur Eiríksson er væntanleg- I ur frá Kaupmannahöfn, Gautaborg og | Osló kl. 23:00. Fer til NY kl. 00:30. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: | Katla er á Akureyri. Askja er í Ham- borg. llafskip. hf.: Laxá er í Hamborg. Rangá fór frá Gautaborg í gær til Rvíkur. Selá fór frá Hull í gær til Hamborgar. Spurven fór frá Hull í I gær til Rvíkur. Lise Jörg fór frá Hals- j ingborg 15. þm. til Rvíkur. Skipadeild: SÍS; Hvassafell er á | Akureyri. Arnarfell er á Akureyri. Jökulfell er væntanlegt til Camden á | morgun. Dísarfell fór í gær frá Rvík til Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar og Vopnafjarðar. Litlafell er væntanlegt | til Rvíkur á morgun. Helgafell er í Riga, fer þaðan til Ventspils og Rvík- ur. Hamrafell kemur til Aruba í j dag, fer þaðan á morgun til Hafnar- fjarðar. Stapafell fór í gær frá Hval firði til Bergen. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá | Rvík kl. 13:00 í dag austur um land í hringferð Esja er væntanleg til Rvíkur í dag að austan úr hringferð. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21:00 1 kvöld til Rvíkur. Þyrill var við Shetlandseyjar í gærkvöldi á lið til Raufarhafnar Skjaldbreið fór frá Rvík í gær vestur um land til Akureyrar. Herðubreið er á Austfjörð. um á norðurleið. Aðstoðarstúlka óskast á tannlækningastofu Efstasundi 84, frá 1. eða 15. febrúar. Uppl. á staðnum í dag kl. 2-—3. — Hallur Hallsson. Ibúð óskast Ung barnlaus hjón óska að taka á leigu litla íbúð. Fyrirfraamgreiðsla gæti komið til greina. Upplýsing ar í síma 16797, eða 38246. Frá Bókinni h.f. Klapparstíg 26. Kaupum og seljuim lesnar bækur. BÓKIN, sími 10680 ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Lífið eftir dauðann nefnist efnið, sem Svein B. Johansen talar um í Aðventkirkjunni sunnudaginn 19. jan. kl. 5 s.d. Kirkjukórinn syngur, einsöngvari Anna Johansen. Tvísöngur: Anna Johansen og Jón Hj. Jónsson. Allir velkomnir. HafnMingar Jón Hj. Jónsson flytur erindi í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld 19. janúar kl. 20,30. E f n i : Kristur — Fræðarinn. Einsöngur: Reynir Guðmundsson. Allir velkomnir. Jörðin Kambshóll í Strandarhreppi, Borgarfjarðarsýslu fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Hús jarðarinnar eru í sæmilegu standi. Túnstærð 12 ha. 2 ha. í ræktun. Ræktunarskilyrði góð. Gott beitiland. Laxveiði- hlunnindi. Semja ber við Sigurjón Guðjónsson Saurbæ Hvalfjarðarströnd er veitir allar frekari upplýsingar. Sími um Akranes. Smáíbúða og Bústaðahverfi Óskum eftir herbergi með húsgögnum í Smáíbúða eða Bústaðahverfi, fyrir erlendan þjálfara, frá 1. feb. Æskilegt fæði á sama stað. Upplýsingar í sima 36212 eftir kl. 6 á kvöldin. Knattsþyrnudeild Víkings. Telpa óskast til sendiferða á skrifstofu vora. Vinnutími kl. 1 — 6 e.h. $ripittf>WSri§>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.