Morgunblaðið - 21.02.1964, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21, febr. 1964
ÞaS varð uppi fótur og fit í mánuðum, þegar frú Andrew mynd þessi tekin nýlega. Talið rew, Mary Catlierine og Mary
borginni Aberdeen, South-Da- Fisher eignaðist fimmbura. — frá vinstri eru: Mary Margaret, Ann.
kota í Bandaríkjunum fyrir 4 JJörnin döfnuðu vel, og var Mary Magdalene, James And-
Mynd þessi er af dr. Werner
Heyde, stríðsglæpamanninum
þýzka, sem sakaður var um
morð á um 100 þúsund manns
á dögum Hitlers. Réttarhöld i
máli hans og fjögurra annarra
glæpamanna hófust sl. þriðju-
dag. Dr. Heyde mætti ekki við
réttarhöldin. Hann hengdi sig i
fangaklefa sinum í síðustu
viku.
Rússneskur skurðlæknir, dr. Anastas Lapchinsky, græddi ný-
lega Iöpp á hund með góðum árangri. Sést læknirinn hér skoða
sjúklinginn, sem heitir Bratki, eftir aðgerðina. Virðist hundin-
um ekki hafa mislíkað meðferðin. Með á myndinn> er ein af
hjúkrunarkonum sjúkrahússins í Moskvu.
Þetta er finnskur hafnarverkamaður, Toivo Siivo, 52 ára, og var myndin tekin þegar hann setti nýtt
heimsmet, þ.e. heimsmet í að halda sér vakandi. Fyrra heimsmetið átti italskur húsamálari, og var
það ellefu dagar og sex stundir. Silvo sló metið sl. laugardag, og ætlaði þá að halda áfram. Þegar
hann syfjaði fór hann i gönguferð í snjónum til að halda sér vakandi.
Þetta er rannsóknarnenfdin, sem Johnson forseti skipaði til að kanna morðið á Kennedy forseta.
1 nefndinni eru, talið frá vinstri: Allen Dulles, fyrrum yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar
(CID), Hale Boggs, fuiltrúadeildar-þingmaður, John Sherman Cooper, öldungadeildar-þingmaður,
Earl Warren, forseti hæstaréttar, sem er formaður nefndarinnar, Richard Russel, öldungadeildar-
þingmaður, John McCloy, fyrrv. hernámsstjóri Bandaríkjanna í V-Þýzkalandi, og Gerald Ford,
f ulltrúadeildar-þingmað ur.
Kosningar fóru fram í Grikklandi um síðustu helgi, og lauk
þeim með miklum sigri Fapandreous, leiðtoga Miðflokkasam-
bandsins. Hér sést vel þekktur kjósandi á leið á kjörstað, en það
er leikkonan Melina Mercouri.