Morgunblaðið - 09.04.1964, Qupperneq 19
A'' Fimmiudagur 9. apríl 1964
MORGUNBLAÐIÐ
19
Arni Ketilbjarnar:
„Hingað og ekki lengra“
Á ÖRL.AGASTUNDU, þegar heið
ur og sómi ættjarðarinnar kallar,
ber öllum Islendingum að standa
saman sem einn maður til varnar
Jieiðri ættjarðarinnar, auðvitað
vita allir að þegar talað er um
íslendinga, eru kommúnistar und
anskildir, sökum þess að þeir eru
fjarstýrðir og föðurland þeirra,
heimkynni heimskommúnismans.
Víxlhækkanir kaupgjalds og
verðlags hafa nú verið í fullum
gangi allt síðastliðið ár, og vald-
ið miklum truflunum á öllu efna
Ihagskerfi þjóðarinnar. Hafa lifs-
kjör almennings síður en svo
Ibatnað við þessa öfugþróun í
efnahagslífi okkar, end.a ekki til
þess ætlast af forsprökkum þeim
sem fyrir þessum skemmdarverk
tun hafa staðið.
Eins og allir vita, sem komnir
eru til vits og ára, vilja ' and-
stöðuflokkar ríkisstjórnarinnar
þessa þróim mála, burt séð frá
Ibúðir óskast
Höfum verið beðnir að
útvega m. a.:
4ra til 5 herb. íbúðarhæð, með
sér inng., helzt á hitaveitu
svæði. Útb. allt að 600 þús.
5 herb. íbúð á 1. hæð. Æski-
legt að bílskúr fylgi. Útb.
allt að 700 þús.
3ja herb. íbúð í Vesturbænum.
Útb. 400 þús.
Tvíbýlishús með 5 herb. íbúð
á hvorri hæð. Þarf að vera
vandað hús en ekki endi-
lega alveg nýtt.
Erum oft beðnir um 5—6 her-
bergja íibúðir með fjórum
svefnherbergjum.
HÖFUM EINNIG KAUPEND-
UR að 3ja—3ja herb. íbúð-
um og tökum að okkur að
selja húseignir af öllum
stærðum. Reynið viðskiptin.
Hringið í síma 32790.
Mátflutningsskrlfstofa:
ÞorvarSur K. Þorsteinsson
Miklubraut 74.
Fasteignaviðsklpti:
GuSmundur Tryggvason
Slmi 22790.
því hvað fólkinu er fyrir beztu,
og ef haldið verður áfram á sömu
braut á komandi ári, þýðir það
óðaverðbólgu í landinu, gengis-
fellingu og versnandi lífskjör ís-
lendinga, sem svo leiðir til al-
mennrar fátæktar, atvinnuleysis,
vöruskorts og þar af leiðandi
skömmtun allrar nauðsynjavara.
Stjórnarflokkarnir verða nú að
spyrna við fótum ef ekki eiga að
skapast vandræðatímar á landi
hér, ríkisstjórnin, sem mikill
meiriihluti íslendinga kaus í síð-
ustu kosníngum, verður augvitað
að hafa forgöngu um þessi björg
unarmál, og duga þá engin vetl-
ingatök. Taka verður fyrir allar
kauplhækkanir, nema til þess að
samræma kaupgjald meðal stétta.
Þá verða verðlagsyfirvöldin að
hafa góða stjórn á öllum verð-
lagsmálum og sjá um’ að vörur
hækki ekki í verði, auka verður
verðlagseftirlitið og afnema með
öllu frjálsa álagningu.
Allir geta séð, sem augun hafa
opin, að þjóðin er nú komin útí
ógöngur, og kann auðsjáanlega
ekki fótum sínum forráð, verður
þvi að grípa til óvenjulegra að-
gerða, enda þótt þær verði ekki
vinsælar í bili. Stöðvunarleiðin
verður örugglega bezta leiðin út
úr þessum ógöngum, og mun
minnst skerða afkomumöguleika
og lífskjör almennings.
Ef haldið verður áfram á sömu
braut ófarnaðar sem við höfum
nú gengið síðustu árin, stöðugar
víxlhækkanir kaupgjalds og verð
lags, og haldið verður áfram að
úthluta okkur. kauphækkunum
sem einskis virði eru og allar
hverfa í hít verðbólgunnar, sgá
allir heilvita menn að íslending-
ar eru ekki færir um að stjórna
málum sínum, þjóðin er því sann
arlega í mikilli hættu stödd um
þessar mimdir, og því þörf
skjótra aðgerða.
Væri nú ekki rétt, vegna hinn-
ar miklu hættu, sem að okkur
steðjar, að taka Framsóknar-
menn inná stjórnarheimilið, og
reyna að kenna þeim, hvernig
ábyrgur stjórnmálaflokkur á að
reynast í samvinnu og samstarfi
við aðra sér betri samstarfs-
flokka. Sannleikurinn er sá, að
fjöldi Framsóknarmanna eru hin
ir beztu þjóðfélagsjr>orgarar, og
ef þeir mættu ráða gang mála
er Iífstíðar úrið.
Ekkert úr er betra
en LONGINES.
Fjölbreytt úrval
hjá
Guðna A. Jónssynl
Öldugötu 11 R.v.k.
innan flokksins, væri málum bet
ur komið, en því er ekki að
heilsa, bæjarradikalar ráða þar
lögum og lofum, og eru vinnu-
brögð þeirra náskyld hreinum
kommúnisma, á þessu þyrfti að
verða breyting hið bráðasta og
skemmdarvörgunum ýtt til hlið
ar. Þetta er verk sem hinir gætn
ari og betri framsóknarmenn
verða að koma í framkvæmd hið
allra fyrsta.
í sannleika sagt, þá held ég
að forystumönnum stjórnarflokk
anna þurfi ekki að bera kvíðboga
fyrir óvinsældum vegna fyrirthug
aðra björgunaraðgerða, að
minnsta kosti yrðu slíkar óvin-
sældir ekki nema til bráðabirgða,
því allir menn með heilbrigða
hugsun sjá og skilja þörf slíkra
aðgerða.
Eins og ég hefi áður minnzt á
í þessari grein minni, telja marg
ir að stöðvunarleiðin skerði
minnst hagsmuni a'mennings. Ef
svo reynist og sýnist að dómi
hinna beztu manna er sjálfsagt
að fara þá leið, en fleiri hliðar-
aðgerða þarf ef vel á að takast
um þessi björgunarmál, svo sem
endurskoðun á vinnulöggjöf okk-
ar, sem lörtgu er orðin úrelt og úr
sér gengin, þá þarf að breyta
ýmsu fleiru, svo sem sveit-
arstjórnarlögum í sambandi við
útsvarsgreiðslur almennings og
fleiru.
Áríðandi er, að Alþingi og rík
isstjóm taki þessi mál föstum
tökum, og hraði afgreiðslu þeirra.
— Stuðningsmenn stjórnar-
flokkanna krefjast skjótra og
raunhæfra aðgerða.
Tímamót eru nú fyrir dyrum
í sögu lands og þjóðar, og ræður
hamingja lands vors hversu fer
um þau mál sem nú eru hæst á
baugi, en farnist okkur vel í sam
bandi við efnahagsmál okkar, og
fyrir margháttaða umbótalöggjöf
síðustu ára, eru miklir möguleik
ar fyrir hendi á fyrirmyndar vel
ferðarriki. Þess vegna er krafan
í dag: „Hingað og ekki lengra“.
Árni Ketilbjarnar.
Ung sópransöngkona syngur
með Sinfóníuhljómsveitinni
í KVÖLD hefur Sinfóníuhljóm-
sveit íslands þrettándu tónleika
starfsársins í Háskólabíói, undir
stjóm Igors Buketoffs. Einsöng-
vari með hljómsveitinni er að
þessu sinni ung dönsk sópran-
söngkona Lone Koppel, sem hér
dvelzt um þessar mundir ásamt
föður sínum, Hermanni Koppel,
prófessor í píanóleik við kon-
unglega tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn. Jafnframt er
prófessor Koppel með þekktari
núlifandi tónskáldum Dana og
mun hann leika fyrir Ríkisút-
varpið píanókonsert sinn nr. 4.
ásamt Sinfóníuhljómsveitinni.
Á efnisskrá hljómleikanna í
kvöld eru eftirfarandi verk; for-
leikur að óperunni „Oberon“ eft-
ir Carl Maria von Weber, aríux
úr óperum eftir Verdi og Pucc-
ini, Fantasia um stef eftir Thom-
as Tallis fyrir strokkvartett og
tvískipta strokhljómsveit eftir
Ralph Vaughan Williams og loks
Symfónía nr. 1 op. 4 eftir Ykhon
Khrennikov. Hafa verk eftir
hins síðasttalda ekki verið flutt
hér fyrr.
Blaðamenn hittu í gær söng-
konuna ungu og föður hennar,
ásamt stjórnandanum Buketoff,
Gunnari Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra og Árni Krist-
jánssyni, forstöðumanni tónlist-
ardeildar Ríkisútvarpsins. Skýrðu
þeir svo frá, að Lone Koppel
væri hin ágætasta söngkona,
þótt ung væri að árum — aðeins
25 ára — og töldu óhætt að
spá því, að nafn hennar yrði
heimsþekkt innan fárra ára.
Lone Koppel er fædd og upp-
alin í Kaupmannahöfn og stund-
aði tónlistarnám við konunglega
tónlistarháskólann í Höfn á ár-
unum 1956 — 1960. Var kennari
hennar þar frú Dóra Sigurðs-
son, sem vart þarf að kynna ís-
lendingum. Fyrstu sjálfstæðu
tónleikana hélt Lone Koppel í
Kaupmannahöfn árið 1961 með
aðsto'ð föður síns, en árið eftir
söng hún í fyrsta sinn í óperu.
Hún hefur verið fastráðin við
konunglegu óperuna í Kaup-
mannahöfn síðustu tvö árin en
jafnframt komið fram víða er-
lendis, m.a. á Þýzkalandi og
Bretlandi auk Norðurlandanna.
Koppel-fjölskyldan er mikil
músik-fjölskylda. Eiga prófessof
Koppel Oig kona hans fjögur
börn sem öll fást við tónlist.
Elzta dóttirin Teresa er píanó-
leikari, og dvelzt um þessar
Lone Koppel
mundir í Bandaríkjunum. Sonur
þeirra Thomas, 19 ára að aldri,
stundar nám í píanóleik og tón-
smíðum við tónlistarháskólann
og hefur nýlega fengið óperu
tekna til flutnings hjá konung-
legu óperunni. Er ópera hans
byggð á ævintýrinu „Historien
om min mor“ eftir H.C. And-
ersen. Loks leikur yngsta bam
þeirra, Andreas á klarinett.
Bróðir prófessorsins Julius,
Koppel, er einmg hljóðfæraleik-
ari, leikur með hljómsveit kon-
unglega leikhússins, — og fleiri
úr fjölskyldunni eru við tónlist--
ina riðnir, meira eða minna.
Þetta er í -fyrsta sinn sem
prófessor Koppel og dóttir hans
koma til íslands og lýstu þau
mikilli ánægju sinni yfir kom-
unni. Þau kváðust eiga vini og
kunningja meðal fslendinga í
Kaupmannahöfn og mjög hafa
hlakkað til að sjá land þeirra.
Hefðu þau sízt orðið fyrir von-
brig'ðum, á leiðinni hefðu þau
m.a. flogið yfir Surtsey — „og
fyrir okkur Dani er það hreint
ævintýri að sjá eldgos", sagði
prófessorinn. Sem fyrr segir
mun hann leika fyrir útvarpið
með sinfóníuhljómsveitinni,
píanókonsert sinn númer 4, sem
frumfluttur var fyrir u.þ.b. ári í
Odense. Eitt kunnasta verk hans
er píanókoncert númer þrjú,
sem hefur víða verið leikinn og
kom m.a. fram á fundinum, að
Buketoff hljómsveitarstjóri átti
af honum segulbandsupptöku,
Koppel, prófessor til augljósrar
og mjög óvæntrar ánægju.
Þess má að lokum geta, að
Buketoff hljómsveitarstjóri er nú
‘senn á förum, en hann kemur
aftur, innan skamms og stjórn-
ar væntanlega tveim síðustu
hljómleikum hljómsveitarinnar.
Þá verða líklega haldnir bafna-
tónleikar aftur í maí, þar sem
hljómleikgrnir í sfðustu viku tók
ust með afbrigðum vel.
Fóstruskóiinn í
fræðslukerfið
Á FUNDI Kvenréttindafélags
fslands í marz flutti Valborg
Sigurðardöttir skólastjóri erindi
um Fóstruskólann.
Ræddi hún nokkuð tildrög og
stofnun s'kólans og starfshætti.
Kom glöggt í ljós, áð betur þarf
að búa að skólanum og mikil
þörf er á fóstrum með fjölgun
barnaheimila víðsvegar um land-
ið.
Urðu allmiklar umræður' að
loknu erindi skólastjórans.
Að lokum var svöhljóðandi til-
laga samþykkt: Fundur haldinn í
K.R.F.f. 17. marz, 1964 beinir
þeim eindregnu tilmælum til-
menntamálaráðherra að hann
beiti sér fyrir að Fóstruskólinn
verði tekinn inn í fræðslu'kerfi
ríkisins, aukinn og endurbættur
svo hann fullnægi þörfum þjóð-
félagsins.
Róm, 7. apríl (NTB) t
Páll páfi VI skýrði frá
því í dag, að sett yrði á fót
nefnd, sem semja ætti reglur
um afstöðu kaþólsku kirkjunn
ar til blaða, útvarps, sjónvarps
og kvikmynda.
fTHRIGE RAHmíUR
Höfum fyrirliggjandi:
200 — 300 — 500 og
1000 kg rafmagnstalíur.
Útvegum með stuttum
fyrirvara allt að 10 tonna
TALÍUR.
" m
1 LUDVIG STORR 1
f
Tæknideild
Sími 1-16-20
THRIGE er heimsþekkt dönsk framleiðsla.