Morgunblaðið - 09.04.1964, Blaðsíða 28
100 þús. kr. í hjálp-
arsjóö æskufólks
100 þús. lcr. í hjálparsjóð — 111
HJÁLPARSJÓBI æskufólks
hafa borizt eitt hundrað þúsund
krónur frá Magnúsi Sigurðssyni,
skóiastjóra. Fé þetta er ágóði af
sýningnm kvikmyndarinnar „Úr
dagbók lífsins“ og gjafafé þeirra,
sem hafa skrifað í styrktarbók
sjóðsins, ,Réttið hjálparhönd“.
Fé þetta hefur komið inn við
Kvöldvaka
Norræna
félagsins
NORRÆNA félagið í Reykjavík
efnir til kvöldvöku í Þjóðleik-
húskjallaranum föstudaginn 10.
apríl nk. Samkoman hefst kl.
20,30.
Laurs Djörup, sendikennari við
Háskóla íslands, les smásögu, er
nefnist „Vi havde en hane . . .“
eftir danska rithöfundinn Sven
Holm.
Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari, syngur nokkur norræn
lög. Dr. Páll Isólfsson leikur und
ir á píanó.
Ennfremur verður sýnd
skemmtileg dönsk litkvikmynd,
er nefnist: „Hest pá sommer-
ferie“. Og að lokum verður stig
inn dans.
Aðgangur er ókeypis fyrir fé-
lagsmenn og gesti þeirra. Þetta
er önnur kynningarvaka Nor-
ræna félagsins í Reykjavik á
þessu ári. Á fyrsta skemmtifundi
félagsins, sem haldinn var 2.
febrúar sl., var sænska skáldið
Gustaf Fröding kynnt og sýnd
sænks litkvikmynd.
Félagsmenn eru hvattir til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
Ennfremur býður félagið Norð
urlandabúa, sem hér dveljast
um lengri eða skemmri tíma, vel
komna á kvöldvökuna.
sýningar á Reykjanesi og um
Suðurland, en Magnps Sigurðs-
son hefur varið öllum frítíma sín
um um páska og helgar til að
sýna myndina og flytja erindi
um vandamál æskunnar.
Allan ágóða af sýningum gef
ur hann Hjálparsjóði æskufólks
til minningar um foreldra sina,
Sigurð Magnússon, lækni, og
konu hans, Helgu Esther Magnús
son. Alls hefur Magnús Sigurðs
son nú afhent kr. 200.000,00 til
sjóðsins.
Aðsókn að þessari sérstæðu,
og athyglisverðu mynd hefur
verið mjög góð.
Vegna þeirra, sem gátu ekki
komið því við að sjá myndina, er
hún var sýnd hér í Reykjavik
fyrir hátíðar, verður hún sýnd
í Nýja bíói nk. laugardag 11. þ.m.
en aðeins þann eina dag. Þar mun
áskriftarbókin einnig liggja
frammi.
Skiplagsskrá hefur nú verið
samin fyrir sjóðinn.
Stjórn sjóðsins hefur einnig
verið ákveðin, en hana skipa:
Magnús Sigurðsson, skólastjóri,
séra Ingólfur Ástmarsson, til-
nefndur af biskupi og Gunnar
Guðmundsson, yfirkennari, til-
nefndur af Sambandi íslenzkra
barnakennara.
Stjórn sjóðsins er skipuð til
fjögurra ára.
HALDIÐ er áfram vinnu við
endurbætur á þjóðveginum í
Hvalfirði og er nú verið að
leggja nýjan vegarkafla við
Þyril.
Vegurinn verður þar m.un
neðar en áður í hliðinni og
mun stóra brekkan sem þarna
er minnka til muna þegar þess
um framkvæmdum er lokið.
Ljósm.: Ól.K.M.
Atta sækja um
sveitarstjóra-
starf
Stykkishólmi, 8. apríl.
HINN 1. apríl sl. var útrunninn
umsóknarfrestur um starf sveit-
arstjóra í Stykkishólmi, og höfðu
þá alls borizt átta umsóknir. Er
ráðning sveitarstjóra nú til at-
hugunar hjá hreppsnefnd.
Þessir sendu umsókn: Haukur
Haraldsson, Reykjavík, Ágúst
Pétursson, sveitarstjóri á Pat-
reksfirði, Sigurður Árnason,
sveitarstjóri í Hornafirði, Cesil
Haraldsson, Stykkishólmi, Jenni
R. Ólafsson, Stykkishólmi, Berg-
sveinn Breiðfjörð, Kópavogi, Þór
Þorbergsson, Reykjavík, Björn
Emilsson, Reykjavík.
— Fréttaritari.
I I „
Mynd þessi var tekin á öðrum degi hraunrennslisins í nýju eynni, eða sl. sunnudag. Eftir rúman
sólarhring hafði gigkraginn þá hækkað verulega. Væri þetta litmynd, sæist að hraunslettan mikla
er rauðglóandi og sömuleiðis gígbarmarnir. Upp af nýja hrauninu rjúka hvitir gufumekkir, þar
seni brimið skellur á því. (Ljósm. Mbl.: Sigurgeir Jónasson)
50 Selfyssingar
við fiskvinnslu
Selfossi, 8. apríl: —
Síðastliðið haust hóf hér á’ Sel
fossi starfsemi sína fisk-
vinnslustöð, sem Leó Árna-
son frá Víkum rekur. Nú á
vertíðinni í vetur hefur stöð
in tekið á móti 10—15 tonnura
af fiski á dag, en í gær bárust
henni um 80 tonn. Um 50
manns var hér við fiskvinnslu
í dag. Má telja það nýmæli
fyrir Selfossbúa að vinna við
fiskverkun hér á staðnum.
— Ó. J.
Góð aflabrögð
við Breiðafjörð
Stykkishólmi, 8. apríl.
ÁGÆTIS afli hefur að undan-
förnu verið í Stykkishólmi, svo
sem í öðrum verstöðvum við
Breiðafjörð. Þrír bátar eru nú
komnir yfir 500 lestir frá vertíð-
arbyrjun, og hefur fiskurinn yfir
leitt verið góður.
— Fréttaritari.
Fljótandi veiðihót-
el á Hlíðarvatni
\ að taka til starfa í júní
f REYKJAVÍK hefur verið
hleypt af stokkunum nýstárlegu
fyrirtæki, Knerrir h.f., en fyrir-
tækið hyggst i sumar reka fljót-
andi hótel á Hlíðarvatni í
Hnappadal. Verður þetta 12 her
bergja far með matsal og eld-
húsi, og á að geta rúmað 22
gesti í senn. Geta gestir ýmist
spókað sig í sólbaði á þaki hót-
elsins, rennt fyrir silung í vatn-
inu eða brugðið sér á hestbak
um nágrennið. Ráðgert er að
hótelið taki til starfa 1. júní n.k.
Fyrir um 10 dögum var hafizt
handa um að byggja umrætt
hótel, en það er smíðað bæði í
Reykjavík og Borgarnesi, en
síðan flutt að Hlíðarvatni og
sett saman þar. Eru herbergin
sjálf smíðuð í Rvík, en það sem
þyngra er og erfiðara í flutn-
Annar dó
EINS og Mbl. skýrði frá í gær,
flaug Björn Pálsson í fyrradag
með nýfædda tvíbura, sem fædd-
ust tveimur mánuðum fyrir tím-
ann, vestan frá Reykhólum og til
Reykjavíkur. Annar tvíburinn,
stúlka, lézt í fyrrakvöld, en
hinn, drengur, er við sæmilega
heilsu.
Fyrsta ferðin
til Norðf jarðar
UM hádegi í dag fer hin nýja
Beechcraft-flugvél Flugsýnar í
fyrstu ferð sína frá Reykjavík til
Norðfjarðar. Ferðin mun taka
rúma klukkustund. Ekki hefur
enn verið gengið frá áætlun flug
vélarinnar á þessari leið.
ingum er smíðað í Borgarnesi.
Teikningar að hinu fljótandi
hóteli hegur gert Ormar Guð-
mundsson, arkitekt. Verður það
á einni hæð og mun hafa lögun
svipaða og víkingaskip.
Skipið vefður allt vandlega
klætt innan ljósum viði og plasti,
og húsgögn verða hin vönduð-
ustu. Verður það staðsett við
land um nætur, en heldur út á
vatn á morgnana og verður þar
til kvölds. Einn veiðiréttareig-
enda í Hlíðarvatni er meðeig-
andi í fyrirtækinu. Veiði í Hlíð-
arvatni hefur verð talin góð, og
hefur þar veiðst bæði urriði og
bleikja.
Þá er þess að geta að við
skipið verða smábátar til af-
nota handa gestum við veiði-
skapinn.
í fyrstunni er áætla'ð að selja
fólki 3 daga gistingar í einu, og
er ráðgert að dagurinn muni
þá kosta um 600 — 700 krónur.
Er þá innifalin gisting, veiði-
leyfi og matur. — Loks er þess
að geta að í landi getur fólk
fengið hesta til að skreppa x
ferðir um nágrennið, en hið feg-
ursta umhverfi er við Hlíðar-
vatn.
Allsberjarat-
kvæðagreiðsla
iá farmöniium
hj
Sýslumannsembætti
Barðastrandarsýslu
auglýst laust til
umsóknar
SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ í
Barðastrandarsýslu var fyrir
nokkru auglýst laust til umsókn-
ar og er umsóknarfrestur til 20.
apríl næstkomandi.
ALLSHERJARATKVÆÐA-
GREIÐSLA fer nú fram hjá
þeim farmönnum, sem háðir eru
samningum Sjómannafélags
Reykjavíkur. Pétur Sigurðsson,
ritari félagsins, sagði Mbl. i
gær, að atkvæðagreiðslan fjall
aði um það, hvort veita skuli
stjórn félagsins heimild til að
boða verkfall á verzlunarflot-
anum. Atkvæðagreiðslunni mun
ljúka fyrir helgi. Pétur kvað
samninga hafa runnið út 1.
marz, og gerði félagið þá kröfu,
að farmenn fengju sambærilega
hækkun og verkamenn fengu
í desember síðastliðnum. Allir
aðrir en farmenn hefðu fengið
kauphækkun á síðasta á ri, og
væru þeir því seinast.ir i þess-
ur kauipkröfuihrinig.