Morgunblaðið - 25.04.1964, Síða 10

Morgunblaðið - 25.04.1964, Síða 10
MORCUNBLADIÐ 10 Laugardagur 25. apríl 1964 Byrjað að draga inn, og fiskur sprettur upp í nótinni. Þorsknótaveiðar í myndum VERTÍÐIN er nú í algleymingi, og nær daglega berast fréttir af nýjum metafla. Ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyj- um og fréttaritari, Sigurgeir Jón- asson, fór fyrir nokkru í þorsk- nótaróður, og tók við það tafcti- færi þær myndir, sem hér birt- ast. Þann dag, sem Sigurgeir fór í róðurinn, var fyrsta metið á ver- tíðinni sett; aflinn var 95 tonn, og hásetahluturinn um 11.500 kr. þann daginn. Sá bátur er nær öruggur að verða aflahæstur, sem getur landað hvern dag. Nú er ástand- ið hins vegar búið að vera þannig í Vestmannaeyjum, að löndunarskömmtun hefur verið dag eftir dag, og undanfarna 2 daga hefur varla verið nema einn nótabátur á veiðum, og afli hans venjulega 60—90 tonn, eftir nokkurra tíma útivist. Á meðan erú hinir allir í löndunarstoppi. Þó afii hafi verið mikill og góður í næiturnar, hefur hann einnig verið ágætur í net. Nú er svo komið, að margir bátar í Eyjum eru komnir með um og yfir 1000 tonn. Á síðustu afla- skýrslum í bæjarblöðunum sást, að 40 bátar voru komnir yfir 500 tonn af „slægðum fiski“. Til samanburðar má nefna, að 1958 var afli mjög góður. f vertíðar- lok komust þá 25 bátar í 500 tonn, og voru þó mun fleiri bátar á sjó þá en nú. Lokið við að þurrka upp, og tilbúið til háfunar. Tveir stórir. — 30—35 Pólýfónkórinn heimsækir Akureyri PÓLÝTÓNKÓRINN hefur hald- ið 4 samsöngva í Kristskirkju í Reykjavík að undanfömu. Næst- komandi sunnudag, 26. apríl, fer kórinn fyrstu söngför sína til Norðurlands og heldur tónleika í Akureyrarkirkju kl. 5 síðdegis. Á efnisskrá þeirra tónleika verða verk eftir Orlando di Lassso, P. Palestrina, C. Gesualdo, J. S. Bach og nútímaverk eftir sviss- neska tónskáldið Willy Burk- hard, auk nokkurra laga eftir íslenZka höfunda. Aðeins verða haldnir þessir Montevideo, 22. apríl. NTB: Joao Goulart fyrrverandi forseti Barzilíu hefur form- lega verið veitt hæli í Uru- guya, sem pólitLskum flótta- manni. Mun hann nú geta ferð azt um landið að vild. kg. þorskur, nýblóðgaður. -----------------:----------<Þ einu tónleikar Norðanlands að þessu sinni, og kemur kórinn aft-. ur flugleiðis til Reykjavíkur á sunnudagskvöld. 484 tonn til Akrancss Akranesi 24. apríl. í FYRSTA sumardagslotunni bárust hér á land alls 484 tonn. Aflahæstur var Höfrungur III. með 126 tonn, þá Höfrungur IÍ. með 76 tonn, Sigurður 56 tonn, Skírnir 45 tonn, Kristján Valgeir GK 37 tonn og Haraldur 26 tonn. Hjá Haraldi bilaði vökvadælan í kraftblökkinni. Viðgerð tók 3 klst. Sumardagurinn fyrsti flytur björg í bú. Þá komu 350 ton.n til Haraldar Böðvarssonar & Co. — Var allur þessi fiskur unninn í einni lotu, þ. e. flakaður og hrað- frystur, flattur og saltaður, spyrt ur og hengdur upv. Hingað kom Sigurpáll í nótt og landaði hjá H.F. Heimaskaga 55 tonnum. Byrjað að háfa. Svona stórir og gamlir eru réttdræpi r, hvar og hvenær sem er.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.