Morgunblaðið - 25.04.1964, Qupperneq 10
MORCUNBLADIÐ
10
Laugardagur 25. apríl 1964
Byrjað að draga inn, og fiskur sprettur upp í nótinni.
Þorsknótaveiðar í myndum
VERTÍÐIN er nú í algleymingi,
og nær daglega berast fréttir af
nýjum metafla. Ljósmyndari
Morgunblaðsins í Vestmannaeyj-
um og fréttaritari, Sigurgeir Jón-
asson, fór fyrir nokkru í þorsk-
nótaróður, og tók við það tafcti-
færi þær myndir, sem hér birt-
ast.
Þann dag, sem Sigurgeir fór í
róðurinn, var fyrsta metið á ver-
tíðinni sett; aflinn var 95 tonn,
og hásetahluturinn um 11.500 kr.
þann daginn.
Sá bátur er nær öruggur að
verða aflahæstur, sem getur
landað hvern dag. Nú er ástand-
ið hins vegar búið að vera
þannig í Vestmannaeyjum, að
löndunarskömmtun hefur verið
dag eftir dag, og undanfarna 2
daga hefur varla verið nema
einn nótabátur á veiðum, og afli
hans venjulega 60—90 tonn, eftir
nokkurra tíma útivist. Á meðan
erú hinir allir í löndunarstoppi.
Þó afii hafi verið mikill og
góður í næiturnar, hefur hann
einnig verið ágætur í net. Nú er
svo komið, að margir bátar í
Eyjum eru komnir með um og
yfir 1000 tonn. Á síðustu afla-
skýrslum í bæjarblöðunum sást,
að 40 bátar voru komnir yfir
500 tonn af „slægðum fiski“. Til
samanburðar má nefna, að 1958
var afli mjög góður. f vertíðar-
lok komust þá 25 bátar í 500
tonn, og voru þó mun fleiri bátar
á sjó þá en nú.
Lokið við að þurrka upp, og tilbúið til háfunar.
Tveir stórir. — 30—35
Pólýfónkórinn
heimsækir
Akureyri
PÓLÝTÓNKÓRINN hefur hald-
ið 4 samsöngva í Kristskirkju í
Reykjavík að undanfömu. Næst-
komandi sunnudag, 26. apríl, fer
kórinn fyrstu söngför sína til
Norðurlands og heldur tónleika
í Akureyrarkirkju kl. 5 síðdegis.
Á efnisskrá þeirra tónleika verða
verk eftir Orlando di Lassso, P.
Palestrina, C. Gesualdo, J. S.
Bach og nútímaverk eftir sviss-
neska tónskáldið Willy Burk-
hard, auk nokkurra laga eftir
íslenZka höfunda.
Aðeins verða haldnir þessir
Montevideo, 22. apríl. NTB:
Joao Goulart fyrrverandi
forseti Barzilíu hefur form-
lega verið veitt hæli í Uru-
guya, sem pólitLskum flótta-
manni. Mun hann nú geta ferð
azt um landið að vild.
kg. þorskur, nýblóðgaður.
-----------------:----------<Þ
einu tónleikar Norðanlands að
þessu sinni, og kemur kórinn aft-.
ur flugleiðis til Reykjavíkur á
sunnudagskvöld.
484 tonn til
Akrancss
Akranesi 24. apríl.
í FYRSTA sumardagslotunni
bárust hér á land alls 484 tonn.
Aflahæstur var Höfrungur III.
með 126 tonn, þá Höfrungur IÍ.
með 76 tonn, Sigurður 56 tonn,
Skírnir 45 tonn, Kristján Valgeir
GK 37 tonn og Haraldur 26 tonn.
Hjá Haraldi bilaði vökvadælan í
kraftblökkinni. Viðgerð tók 3
klst.
Sumardagurinn fyrsti flytur
björg í bú. Þá komu 350 ton.n til
Haraldar Böðvarssonar & Co. —
Var allur þessi fiskur unninn í
einni lotu, þ. e. flakaður og hrað-
frystur, flattur og saltaður, spyrt
ur og hengdur upv.
Hingað kom Sigurpáll í nótt og
landaði hjá H.F. Heimaskaga 55
tonnum.
Byrjað að háfa.
Svona stórir og gamlir eru réttdræpi r, hvar og hvenær sem er.