Morgunblaðið - 29.04.1964, Page 3

Morgunblaðið - 29.04.1964, Page 3
r .Miðvikudagúr 29. apríl 1964 MO kfi U N BI JÍDIÐ SVO er nú komið, að fleiri hafa fest kaup á sjónvarps- tækjum en íbúar Reykjavík- ur og Suðurnesja. í Borgar- nesi og á Mýrum eru nokkr- ir sjónvarpseigendur og þegar blaðamaður Morgunblaðsins var á ferð austur á Eyrar- bakka fyrir skemmstu, komst hann að því, að sjónvarp er í £inu húsi á Bakkanum og bændabýlinu Borg í Eyrar- bakkahreppi. Fór hann því í heimsókn að Borg og hitti að máli húsfreyju, Helgu Kára- dóttur, og heimasætu, önnu Þórðardóttur. Bóndinu, Þórð- ur Ársælsson, var ekki heima. „Við höfum haft mjög mikia ánægju af sjónvarpinu, þennan mánuð, sem við höf- um haft það, einkum við gömlu hjónin“, sagði frú Mæðgurnar Helga og Anna við sjónvarpið. Kötturinn er mjög áhugasamur 'og stekkur stund- um á menn og dýr, sem hann sér á skerminum. Sjönvarp á Eyrarbakka spjalBað við heimilisfólkið að Borcj í Eyrarbakkahreppi Helga“. Mest finnst mér gam an af bíómyndum, en við horf um á allt mögulegt annað. Þeir hafa verið með margs- konar fræðslumyndir, til dæmis um lönd, sem okkur eru framandi. Svo eru ýmsir þættir í sjónvarpinu, sem við njótum ekki sem skyldi, vegna þess að við skiljum ekki nóg í málinu. Ekkert er um við gefin fyrir kúreka- V »<*• > <• « ■•■.•XS'íw ■■ ■>.. > ■■■ <.»v. v » myndirnar." Anna opnaði nú sjónvarpið og var verið-að sýnda kvik- mynd frá fimleikasýningu. „Ekki getur þetta eyðilagt íslenzka menningu,“ sagði Anna og brosti kankvíslega. „En þó skal ég viðurkenna, að fjölbragðaglíman, sem þeir sýna öðru hverju, er alveg fyrir neðan allar hell- ur. Mennirnir sparka í and- litið hvor á öðrum og nota fantabrögð, sem engin leið er að lýsa. Ég horfi oft á sjón- varpið og hef mjög gaman af því. Það er ekki mjög margt til skemmtunar hér á Eyrar- bakka, að minnsta kosti ekki svona í miðri viku, og þá er gott að hafa einkakvikmynda hús heima hjá sér.“ „Það er alltaf verið að berj ast fyrir því að halda ungl- ingunum inni á heimilunum,“ sagði Helga'. „Ég fæ ekki séð annað en að sjónvarpið stuðli að því. Þessvegna finnst mér það heldur mótsagnakennt, þegar sömu mennirnir og beita sér fyrir frelsun ungl- inganna frá sollinum í sjopp- um og öðrum óæskilegum verustöðum þeirra, vilja banna fólki sjónvarpið.“ Ibúðarhúsið að Borg. Vilju lunnnverh- smiðju n Skngnströnd EFTIRFARANDI tillaga var sam þykkt á fundi landverkafólks- deildar Verkalýðsfélags Skaga- strandar: FJÖLMENNUR fundur haldinn 16. apríl 1964 ,í landverkafólks- deild Verkalýðsfélags Skaga- strandar, lýsir ánægju sinni yfir framkominni þingsályktunartil- lögu þeirra Björns Pálssonar, Gunnars Gíslasonar og Jóns Þorsteinssonar um tunnu- verksmiðju á Skdgaströnd. Fundurinn leggur sérstaka á- herzlu 'á, að málið nái fram að ganga nú á þessu þingi, í sam- ráði við breytingartillögu frá Ragnari Arnalds. Ennfremur tel- ur fundurinn að eðlilegt hefði verið að allir þingmenn kjör- dæmisins hefðu verið meðflutn- ingsmenn tillögunnar, þar sem ljóst er, að verði ekkert að gert af Alþingi og ríkisstjórn til úrbóta nú á næstu mánuðum, á því at- vinnuástandi, sem hér ríkir, þá er fyrirsjáanlegur fólksflótti héð- an af staðnum, þegar á þessu ári. Fun’durinn skorar því eindreg- ið á þingmenn kjördæmisins að vinna ötullega að því að málið nái fram að ganga nú á þessu þingið og væntir þess að hæstvirt ríkisstjórn sjái sér fært að styðja byggðarlagið í þessu nauðsynja- máli. Tillaga þessi var samþykkt með öllum atKvæoum lunaarmanna. £ NA 15 hnútor SV 50 hnútor K Snjókoma f ÚÍi 17 Skúrir E Þri/mur W:ii KuUoM >> Hitíiká H Hmí 1 L Lsti II og suðaustan ísland en hæð á miðum norðvestan lands og yfir Grænlandi breiðist suður annesjum var slydda og áð- á bóginn og veldur vaxandi eins 2—3 st. hiti. Er helzt NA-átt hér um slóðir. Kl. 15 útlit fyrir N-átt hér á landi var NA-stormur á Æðey og næstu dægur. STMSTEIMR Deilurnar barðna Deilurnar milli Moskvu og Beking, Mao Tse-tung og Nikita Krúsjeffs, fara nú stöðugt harðn- andi. Sérstaklega halda kínversk- ir kommúnistar uppi ofsafengn- um árásum á Krúsjeff, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna. Er nú svo komið, að margir álita að kínverskir kommúnistaleiðtogar stefni beinlínis að vinslitum við kommúnistaforingjana í Moskv.u. Aðalmálgagn kínverskra komm únista kemst m.a. þannig að orði fyrir nokkrum dögum, að Krús- jeff og aðrir leiðtogar Sovétríkj- anna séu „lygarar og hræsnarar". Blaðið líkir þeim ennfrefnur við strút, sem stingi höfðinu í sand- inn, í stað þess að horfast í augu við vandamálin. Krúsjeff muni ganga í félag með „bandarískum heimsvaldasinnum", óvinum allra þjóða héims, og gerast hand- bendi Ameríkuroanna. Ljótt er að heyra! Hafnarframkvæmdir. Alþýðublaðið birtir í gær for- ystugrein um hafnarframkvæmd- ir. Kemst blaðið m.a. þannig að brði, að ekki sé nóg að eignast glæsileg skip, það verði að búa skipunum þá aðstöðu í höfnum, að þau geti verið þar óhult í ill- viðrum og að þar þurfi að vera hentug aðstaða til löndunar, svo ekki verði tímatafir að óþörfu. Alþýðublaðið kemst síðan að orði á þessa leið: „í hafnarmálum hefur ekki tekizt með öllu að fylgja eftir hinum öru breytingum fiskiskip- anna. Aldrei hefur þó verið veitt meira fé til hafnagerða en í tíð núverandi ríkisstjórnar. Stjórnin hefur tekið stórlán erlendis og veitt fé til hafnaframkvæmda á ýmsum stöðum. Þetta hafa ríkis- stjórnir hér á landi ekki áður gert, heldur aðeins notað til hafn argerðar fé veitt á fjárlögum. í núverandi ríkisstjórn er skilning- ur á því Grettistaki, sem hér þarf að lyfta, og þess vegna hefur lánsfjár verið leitað erlendis til að flýta framkvæmdum, sem ekki mega dragast á langinn“. Framsókn kyndir eldana Það er nu augljóst orðið, að Framsóknarmenn freista þess enn að kynda elda nýrrar verð- bólguskriðu, nýs kapphlaups milli kaupgjalds og verðlags. — Verður þetta einkar ljóst af for- ystugrein Tímans í gær. Þar er því haldið fram, að Viðreisnar- stjórnin hafi jafnan haft mikinn áhuga á því að „verðhækkanir yrðu alltaf að verða mun meiri en kauphækkanir, því ella yrði kaupgeta almennings of mikil“. Hér er staðreyndunum gersam- lega snúið við. Ríkisstjórnin hefur eftir fremsta megni reynt að tryggja kauptnátt launanna, en hinar stöðugu víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags og óhóf- legar kröfur á hendur fram- leiðslunni hafa étið launahækk- anirnar upp jafnharðan. Fram- sóknarmenn hafa staðið í órofa fylkingu með kommúnistum í baráttunni fyrir hverskonar kröf- um á hendur atvinnuvegunum. Þeir hafa ekkert skeytt um það, hvort fyrir hendi hefur verið grundvöllur fyrir kauphækkun- um og stórauknum rekstrárkostn- aði framleiðslutækjanna. Leiðtogar Framsóknarflokksins koma nú enn einu sinni fram sem ábyrgðarlausir loddarar, sem einskins svífast í pólitísku valda- braski sínu. En íslenzkur almenningur er búinn að fá nóg af þessum skrípa leik. Kjörorð alls almennings l landinu um þessar mundir er: Hingað og ekki lengra. Látum dýrtíðarkapphlaupinu verða lok- ið. Treystum grundvöll krónunn- ar í stað þess að fella hana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.