Morgunblaðið - 29.04.1964, Blaðsíða 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 29. april 1964
KR vann verðskufdað 2:0
— en Valsmenn hættulegir
KR líklegasti
KR og VAI.l'R mættust í Reykja
víkurmótinu í fyrrakvöld og
lauk leiknum með sigri KR 2
mörk gegn 0 og má ætla að eftir
þetta geti fátt komið í veg fyrir
að KR hljóti enn einu sinni
Reykjavíkurtitilinn. Liðið er lika
vel að slíkum titli komið nú eftir
þessa tvo leiki sína, sem báðir
hafa einkennzt af óvenjulega já-
kvæðu spili og fallegum samleik
á köflum. Enginn skyldi þó ætla
að loksins hefðu ísl. knattspyrnu
menn náð fullkomnun. Á það
vantar mikið og margt, en þakka
má hverja tilraun og hvern anga
árangurs í þá átt og slíkt sást í
þessum leik, mun meira hjá KR
en einnig hjá Val, sem sannarlega
er á réttri braut þó skipulag
leiks skorti.
sigurvegarinn
er æfingum nær alveg hætt. —
Kappleikirnir eru svo tíðir og
ruglingslega uppstillt að æfinga-
kerfi ruglast allt, enda er reynsl-
an sú--og getur þó var kallast
einleikið — hve ísl. knattspyrnu-
mönnum fer lítið fram sumar
hevrt, frá því þeir fyrst sjást á
vorin unz komið er fram á haust.
Sumarið í sumar verður engin
undantekning hvað kappleikja-
fjölda snertir. Nú hafa verið 3
leikir á 4 dögum, það verður
leikið á fimmtudag, föstudag,
sunnudag og mánudag, fimmtu-
dag, sunnudag, mánudag o.s.frv.
— allt í belg og biðu og enginn
má bæði-vera að því að æfa og
keppa — og þá keppa ménn bara
æfingalausir, þ.e.a.s. láta kapp-
leikina nægja líka sem æfingar.
•Á Of ruglingsleg keppni
Það er ætlun mín að leik-
irnir í sgmar verði sízt betri en
þessi . lyrrakvöld, sem bauð upp
á spennu og skemmtilega keppni
og oft skemmtilega leikkafla. Það
hefur löngum verið þannig að
eftir að keppnistímabil hefst, þá
Á Samleikur — hættuleg
tækifæri
En gleðjumst á meðan við
getum. Leikur KR og Vals var
gleðiefni. KR lék mun betri
knattspyrnu, oft ágætur samleik-
ur, hröð upphlaup upp kantana,
en vörn Vals lokaði markinu
samfara því að KR-ingar voru
seinir og óákveðnir þegar að
lokaátakinu kom.
Valsmenn áttu ekki skipulagð-
an leik en harðsnúna einstakl-
iniga og allir stefndu beint að
markinu án rósafþúrs og allra
slaufa og þetta skapaði oft mikla
hættu við. KR-markið. Þó KR
„ætti leikinn" eins og Strákarn-
ir segja, var Valur nær því að
skora í fyrri hálfleik. En leik-
menn gengu til hvílar án þess að
hafa skorað nokkurt mark og
spenningurinn hélzt í þúsundum
áhorfenda.
Á Forysta KR
Baráttan helzt með sama
svip og áður.
Á 11. mín. nær KR forystunni.
Upphlaupið hófst við vallarmiðju
— Örn Steinsen gaf fram hægri
akntinn þar sem Gunnar Felix-
son tók við kantinum og lék allt
að endamörkum, gaf fyrir og
hitti vel á Gunnar Guð.mannsson,
sem skoraði með þrumuskoti af
stuttu færi.
Nú æstist leikurinn. Valsmenn
Framh. á bls. 27
ÍR keppir um
Evrópubikor
í körfuknott-
leik
Á FUNDI stjórnar K.K.Í.,
sem haldinn var ’laugard. 25.
þ.m., var samþykkt að veita
íslandsmeisturum Í.R., leyfi
til að tilkynna þátttöku sína í
Evrópukeppni meistaraliða
1964. Keppnin fer fram á tíma
bilinu 1. nóv. 1964 til 31. marz
1965.
Um 30 meistaralið taka ár-
lega þátt í keppni þessari,
sem er útsláttarkeppni,
þannig að leikið er heima og
heiman og það lið er sigrar
eða hefir hagstæðara h-lut-
fall, heldur áfram. Sovét-
meistararnir hafa • unnið
keppnina undanfarin ár, en
Real Madrid verið í öðru
sæti.
(I.jósm.: Sv, Þorm.)
Tveir bandarískir körfu-
knattleiksþjálfarartilKR
Afmælismót haldið 5. maí
f TILEFNI af 65 ára afmæli K.R.,
heldur körfuknattleiksdeild fé-
lagsins hraðmót að Hálogalandi
þriðjudaginn 5. maí. Öllum. körfu
knattleiksfélögum er heimil þátt-
taka í mótinu, en þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizt'
í síðasta lagi þann 2. maí n.k.
Samvinnutryggingar hafa gefið
vandaðan verðlaunagrip, sem sig
urvegari mótsins hlýtur til eign-
ar.
Eins og allir körfuknatt-
leiksunnendur vita, hefur
verig mikill skortur á hæf
uik. körfuknattleiksþjálfur-
um hérlendis, og hafa
K.R.-ingar, ekki síður en
önnur féiög farið varhluta í
þeim málum.
Nú hefur rætzt úr þessum
má.lum hjá K.R. Tveir
Bandaríkjarr.jnn hafa tekið
að sér þjálfun hjá körfu-
knattleiksdeild félagsins,
þeir Mr. Robinson og Mr.
Sutphin. Mr. Robinson hefur
um árabil starfað sem
íþróttakennari og körfu-
knattleiksþjálfari við banda
riska skóla og er hann tví-
mælalaust reyndasti körfu-
knattleiksþjálfari sem starf-
að hefur hérlendis hjá einu
félagi.
Ráðgert er að halda áfram í
sumar tvisvar til þrisvar í viku
og nýta sem bezt þetta tækifæri,
sem nú gefst.
Innan skamms munu hefjast
hjá deildinni æfingar undir
tækniþrautir Körfuknattleiks-
sambands íslands, sem eru í fjór
um stiguim, og munu nánari upp-
lýsingar gefnar á æfingum deild-
arinnar. Allir eldri meðlimir
deildarinnar eru bvattir til að
mæta vel á æfingar og einnig
ehu byrjendur og nýir félagar
vel'komnir.
Harðvítug körfuknattleikskeppni :
Heimdallur-SUS 28:4
í FYRRAKVÖLD mættust til
keppni í körfuboltaleik stjórnir
Saimlbánds ungra Sjálfstæðis
manna og Heimdallar FUS. Til-
efni leiksins var ás'korun stjórn-
ar Heimdallar.
Það voru vasklegar sveitir,
sem mættust til leiks, þótt tækni
og þjálfun ýmissa leikmanna
væri ef til vill ábótavant.
Úrslit leiiksins urðu þau, að
stjórn Heimdallar vann frægan
sigur og hafði ’hent boltanum of-
an í körfu Samibandsstjórnarinn-
ar alls fjórtán sinnum, en Sam-
bandsstjórnin hafði þá látið
nægja að varpa knettinum alls
tvisvar sinnum í körfu stjórnar
Heimdallar. Það s'kal tekið fram,
að stjórn Heityidallar kom til
leiks með tíu leikmenn þar af
eina stúlku og gátu því leyst
hvern annan af hólrni, en stjórn
Sambandsins hafði aðeins einn
mann til skiptanna, þar af hné
einn leikmaður Sambandsstjórn-
arinnar í valinn í miðjum leik og
var borinn út af leikvelli.
Dómari í keppninni var Þór
Viihjálmsson, borgardómari sem
dæmdi eftir meginreglum íþrótt
anna. Voru dómar hans endan-
legir og verður ekiki áfrýjað.
Ármonn, KR og
Hnuhnr féllu
í GÆRKVÖLDI hófst hraðkeppn
ismót Ármanns í handknattleik
sem haldið er í tilefni af 75 ára
afmæli félagsins. Úrslit leikja
urðu þessi:
ÍR — Ármann 13—11 .
Vík. — Haukar 14—13
FH — KR 14—7
í kvöld verða úrslit mótsins.
Þá leika saman ÍR—Fram, FH—.
Haukar og síðan verður úrslita-
leikur. Auk þess fer fram Old
Boys leikur milli Ármanns og
Fram.
Enska knattspyrnan
URSLIT leikja í ensku deildar-
keppninni sl. laugardag urðu
þessi:
1. deild
Birmingham — Sheffield U. 3-0
Bolton — Wolverhampton 0-4
Everton — West Ham 2-0
Fulham — Stoke 3-3
Ipswich — Blackpool 4-3
Leicester — Tottenham 0-1
Manchester U. — N. Forest 3-1
W. B. A. — Liverpool 2-2
2. deild
Charlton — Leeds 0-2
Derby — Portsmouth 3-1
Grimsby — Sunderland 2-2
Huddersfield — Scunthorpe 3-2
Leyt^n O. — Bury 1-1
Newcastle — Norwich 2-0
Plymouth — Rorherham 0-0
Preston — Northampton 2-1
Southampton — Swindon 5-1
Swansea — Manchester City 3-3
Rangers sigruðu Dundee með
3 mörkum gegn 1 í úrslitum
skozku bikarkeppninnar. Þetta er
þriðja árið í röð sem Rangers
sigra í bikarkeppninni. .— St.
Mirren og Queen of the South
gerðu jafntefli, 1-1, í deildar-
keppninni.
Röð efstu liða er þessi:
1. deild
1. Liverpool 57 st
2. Manchester U. 53 —
3. Everton 52 —
4. Tottenham 51 —•
2. deild
1. Leeds 63 —
2. Sunderland 61 —
3. Preston 56 —
4. Charlton 48 —
Ipswich og Bolton féllu niður
í 2. deild og Grimsby og Scun-
thorpe féllu niður í 3. deild.