Morgunblaðið - 29.04.1964, Síða 4
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 29. apríl 1964
Búðarstúlka
óskast hálfan daginn í
bakaríisbúð. Uppl. í síma
33435.
Jarðýta til leigu
D-6 jarðýta til leigu, vanur
ýtumaður. Símar 41376 og
15541.
Herbergi
Stúlka með 3ja ára barn
óskar eftir herbergi og eld-
húsi eða aðgang að eldhúsi
helzt í Austurbænum. —
Sími 35439.
Miðstöðvarketill
3V4—4 ferm. notaður mið-
stöðvarketill með sjálf-
virkri olíukyndingu óskast.
Uppl. í síma 25 Þorlákshöfn
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa í mat-
vöruverzlun (ekki kjöt).
Uppl. í síma 36702 kl.
1—3 e. h.
Aga eldavél
til sölu í mjög góðu lagi og
útliti. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 22437.
Stúika óskast
til sængurfatasauma. Uppl.
ekki í skna.
Verið
Njálsgata 86.
Þýzk bók með myndum
eftir Bellmer (heitir DIE
PUPPE) týndist í Vestur-
baenum. Finnandi snúi sér
vinsaml. til Ðiter Rot, Ás-
vallagötu 7. (Sími 17114).
Atvinna óskast
Reglusamur 18 ára verzlun
arskólanemi, óskar eftir
velborgaðri atvinnu í sum-
ar. Hefur bílpróf. Uppl. í
síma 13640.
Notaður tveggja manna
rvefnsófi til sölu. Verð 800
kr. — Sími 41234.
Miðaldra hjón
óeka eftir 2—3 herbergjum
og eldlhiúsi. Sími 20574.
Góður upphitaður bílskúr
til leigu. Uppl. í sima
16545.
Rvík — Hafnarf jörður
Óska að taka á leigu 3—4 j
berbergja íbúð 14. maí. — |
Upplýsingar í síma 40630.
Kisugarn
í miklu úrvalL
Búðin min
Víðlmel 35.
Pelsaviðg'erðir
Pelsum breytt í herðaslá.
Herðaslár til sölu.
Kristinn KrLstjánsson
Laufiásveg 19.
Simx 15644.
I dag er miðvikudagur 29. apríl og
er það 120. dagur ársins 1964. Eftir
lifa 246 dagar. Árdegisháflæði kl. 7.53
Því að ekki er guðsríki matur og
drykkur, heldur réttlæti og friður
og fögnuður í Heilögura Anda
(Róm. 14, 17).
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Simi 24361
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörður er í Vesturbæjar
apóteki 25. apríl til 2. maí.
Slysavarðstofkn 1 Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — simi 2-12-30.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapotek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 eJt. Simi 40101.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga fra kl. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
Næturlæknir i Hafnarfirði frá
29. — 30. apríJ Kristján Jó-
hannesson.
30. apríl — 1. mai Ólafur Ein-
arsson.
1. — 2. maí Eiríkur Björnsson
(helgid.)
I.O.O.F. S =1464298H = Ft.
RMR - 29 - 4 - 2B - VS - FR - HV.
I.O.O.F. 7 = 146429*! 2 = Fl.
Orð lifsins svara f slma lOfldi.
FRETTIR
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur aðalfund sinn fimmtu-
daginn 30. apríl kl. 8.30 í Iðn-
skólanum, gengið inn frá Vita-
stíg. Dagskrá: Venjúleg aðalfund
arstörf. Önnur mál. Kaffidrykkja
— Áriðandi að félagskonur mæti
stundvíslega. Stjórnin.
Húnvetningafélagið i Reykjavík
heldur bazar 3. ma‘ að Laufásvegi 25
kl. 2 e.h. Góðfúslega komið munum
til bazarnefndar.
Kvenfélagið Hrönn. Spilakvöld verð
ur haldið miðvikudaginn 29. apríl kl.
8.30 í Breiðfirðingabúð. Félagskonur
fjölmennið og takið með ykkur gestl.
Stjórnin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins. Félags
konur eru góðfOuolega minntar á bazar
inn sem verður 1 enduðum maí.
Kvenfélag Langholtssóknar heldur
sinn árlega bazar t Safnaðarheimilinu
við Sólheima, þriðjudaginn 5. maí.
Allir velunnarar eru vinsamlega
beðnir að gefa muni á bazarinn. Mun-
um er veitt mótttaka á eftirtöldum
stöðum: Skipasund’ 67, sími 34064,
Sólheimum 17, 33580, Langholtsvegi
194 símí 32565. Munirnir eru einmg
sóttir heim, ef óskað er.
Kaffisala
Kristniboðsfélag kvenna efnir til
kaffisölu föstudaginn 1. maí kl. 3 í
kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásveg
13 Allur ágóði rennur til kristniboðs-
stöðvarinnar í Konsó. Góðir Reyk-
víkingar! Styrkið hið góða mál-
efni með því að drekka síðdegis og
kvöldkaffið hjá okkur.
Kvenfélag Háteigssóknar hefur
kaffisölu í Sjómannaskólanum sunnu-
daginn 3. maí n k. Félagskonur og
aðrar safnaðarkonur, sem hugsa sér
að gefa kökur eða annað til kaffi-
sölunnar, eru vinsamlega beðnar að
koma því 1 Sjómannaskólann á laugar
dag milli kl. 4—6 eða fyrir hádegi á
sunnudag. Upplýsingar 1 síma 17659
og 19272
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins
heldur basar og kaffisölu í Breiðfirð-
ingabúð, sunnudaginn 3. maí. Munum
á basarinn sé skilað sem allra fyrst
til frú Stefönu Guðmundsdóttur. Ás-
vallagötu 20, sími 15836, frú Margrétar
Margeirsdóttur, Grettisgötu 90, sími
18864 og frú Ingibjargar Gunnarsdótt-
ur, Goðheimum 23, sími 33877.
Skátasveit fatlaðra og lamaðra
Kaffisala til ágóða fyrir skáta-
starf fyrir vanheil börn verður í
Skátaheimilinu (gamla salnum)
föstudaginn 1. maí kl. 2—6 Skát-
ar og aðrir vinir eru beðnir um
að gefa kökur og koma þeim í
Skátaheimilið kl. 10—12 s.d. Kök
ur verða einnig sóttar, ef þess
er óskað. Gjörið þið sva vel að
hringja í síma 15484 frá kl. 10
f.h. sama dag.
LEIÐRETTING
Við minnmgargrein um Nath-
anael Mósesson 28. apríl Misritað
var nafn á barni hans Ólafía, í
stað Kristínar Ágústu.
60 ára verður á morgun, 30.
apríl, Anna Guðmundsdóttir. Hún
dvelst á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, Langholtsveg 101.
Á laugardaginn opinberuðu trú
lofun sína ungfrú Guðrún Ólafs-
dóttir, Laugarteig 7, Reykjavík
og Hersir Oddsson, Hellisgötu 1
Hafnarfirði.
60 ára er í dag Sveinn Sigurðs
son, verkamaður, Bakkagerði 8
Hann verður að heiman í dag.
Á sumaröaginn fyrsta opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sig-
urbjörg Björgvinsdóttir frá Fyrir
barði í Fljótum og Haukur Hanni
balsson frá Hanhóli í Bolunga-
vík.
GAIMALT og Gon
Hér um daginn heimsótti Mbl.
gamall þulur og dró eftirfarandi
upp úr pússi sínu. Hann kvaðst
heita Þorsteinn Jakobsson og eiga
lögheimili að Húsafelli í Borgar-
firði. Annars væri hann fæddur
að Hreðavatni og hefði alizt þar
upp. Hann verður 80 ára á þessu
ári. Á sumrin stundar hann lax-
veiði í net í Hvítá, og býr >á á
Þinganesi. En á veturna er hann
til heimilis að Skólagerði 5 í Kópa
vogi. Svo sem fram kemur í
þessu hér að neðan, hefur
Magnús prestur Andrésson á
Gilsbakka kennt Þorsteini vís-
una seinni hér að neðan.
Kaffið er uppsett, en kóngur er
dáinn,
Prestar
athugið!
Messutilkynningar þurfa að
berast dagbókinni fimmtu-
daginn 30. april.
STORKURINN sagði!
komið í Danmörku beljandi stríð,
fiskar í netunum, sagt er við
sjáinn
samt er á nesjunum. hágindatíð:
marz bæði og apríl sagt er með
sönnu
sextán og tuttugu dánir í sjó,
póstskipið ókomið ennþá, tvö
önnur
akkerum bundin við Reykjavík
þó
Það er víst ein öld síðan Jónas
Guðmundsson á ölvaldsstöðum
orkti betta erindi um atburði,
sem þá voru „efst á baugL“
Hefir vald i vinum stáls
viður kvaldar dróttir:
landið faldar hér til hálfs
Herborg Skjaldardóttir.
Þessi vísa er í veraldarsögu
Péturs H. Sa'.ómonssonar („Þér
að segja“) með lítilskáttar orða
mun: „Ég á fyrir hefir og kaldar
fyrir kvaldar." Segist Pétur hafa
lesið hana í bók og langaði mik-
ið til að vita, hvaða bók þetta
væri og hvernig fleiri vísur væru
í samhengi við hana, ef til voru.
Að vísu veit ég ekki, hvar visan
er prentuð, en Magnús prestur
Andrésson á Gilsbakka kenndi
mér hana, og sagði að hún væri
draumvísa.
Hefði einhvern dreymt hana
fyrir frostaveturinn 1880—1881.
Sé þetta rétt eru tæplega fleiri
í samhengi.
Þorsteinn Jakobsson,
Borgfirðingur.
VISIJKORN
Lífs ei rötum leiðirnar
láns er glötun bjargar.
Verða á fótum veraldar
villigötur margar.
Einar Þórðarson frá
Skeljabrekku.
Miðvikudagsskrítlan
Þú ert dökkhærður, en Jón
bróðir þinn er með mjög ljóst
hár.
Það er ekkert undarlegt. Jón
fæddist ekki fyrr en eftir að
mamma lét lýsa á sér hárið.
Spakmœli dagsins
Hamra tungu þína á steðja
sannleikans. — Pindar.
H O R N I Ð
Nútímaskáldin blanda miklu
vatni í blekið. — Goethe.
VISUKORIM
Að vestan
Það er langur, strangur gangur,
fyrir hann svanga Manga
að bera þang í fangi
fram á langa tanga.
Skip siglir á hús
að hann hefði svo sannarlega
komizt í sumai*skap, þegar hana
var að fljúga yfir bænum 1 morg
un snemma. Allt hefði verið að
komast í sumarskap og skrúð,
trén öll útsprurgin og fuglar
sungu á hverri grein.
Allir vita nú, hvað ég er mikið
fyrir fuglasöng, sagði storkurinn
og klúkkaði í honum.
En svo ég vendi mínu kvæði 1
kross, eins og skáldið sagði, sagði
storkurinn, þá hitti óg mann niðri
í Hljómskálagarði, og hann var
að skoða endurnar eins og ég.
Maðurinn sagði mér frá
skemmtilegri mynd, sem hann
hefði séð í Laugarásbíó um dag-
inn, og hát Mondo cane. Myndin
væri alveg í sérflokki, og hann
sagðist halda, að hann gerði hin-
um kvikmyndahúsunum ekki
rangt til, þótt hann maaiti með
henni.
En það var eitt, **<•! ttorkur-
inn, sem manmnum fannst skrýt
ið, að mynd þessi skyldi vera
bönnuð börnum yngri en 16 árau
Þetta væri svo stórmerkileg heim
ildarmynd, að í það minnsta ætfci
að leyfa unglingum allt að 12 ára
aldri að sjá hana. Tæpast væri
í henni ð finna atriði, sem bæru
skaðlegri ungiingum heldur en í
venjulegum kúrekamyndum.
Maðurinn siakk m.a.s. upp á
því, að framhaldsskólar efndu til
sameiginlegrar bíóferðar til að
sjá hana.
Fjrrst myndin er svona góð
eins og maðurinn heldur fram,
þá finnst mér, sagði storkurinn,
að kvikmyndaeftirlitið ætti að
endurskoða afstöðu sína, og með
það flaug hann upp á Hljómskál-
ann og blakaði vængjunum þris-
var um leið og hann settist.
íslenzk oiðtök
Hvað merkir orðtakið: Nú
stendur hnífurinn í kúnni?
Orðtakið merkir „nú gerir
hvorki að ganga né reka, nú er
tvísýnt um málið (úrslitin)“. Það
er kunnugt frá 17. öld: Nú stend-
ur hnífurinn í kúnni. G. O. Thes.
117. Líkingin er runnin frá slátr
un kúa.
(Úr íslenzk orðtök eftir dr. Hall-
dór Halldórsson)
+ Gengið ♦
Reykjavík 24-
1 Enskt pund .......
1 Bandarikiadollar
1 Kanadadollar —-
100 Austurr. sch. «.
100 Danskar kr.....
100 Norskar kr......
100 Sænskar kr.....
100 Finnsk mörk
100 Er. frankl —
100 Svíssn. frankar
1000 ítalsk. lirur .
100 V-þýzk mörk
100 Gyllini ------
100 Belg. franki -
marz 1964
Kaup
___ 120,20
42.95
39.80
___ 166,18
622.80
.... 600,93
... 834,45
_ 1.335,72 1
___ 874,08
— 993.53
68,80
1.080,86 1
L.191 81 1
86,17
Sala
120,50
43.00
39.91
166,60
624,40
602,47
836,60
.339.14
876,32
996 08
68,98
.083.62
194,87
86.31
Þessa mynd tók Ólafur K. Magnússon niður við Slipp í gær, þegar danskt skip sigldi beint inn
í húsið. Það má segja, að þar lágu Danir í því. Að hugsa sér, að anuað eins skuli geta gerzt á
tslaudi á 20. öldinni!
Öfugmœlavísa
Fljúgandi ég sauðinn sá,
saltarann hjá tröllum,
hesta sigla hafinu á,
hoppa skip á fjöllum.