Morgunblaðið - 29.04.1964, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.04.1964, Qupperneq 17
Miðvikudagur 29. apríl 1964 17 MORGU N BLAÐIO Jósafat Jónsson frá Brandsstöðum í Laugardal r 10. 8. 1871. — 17. 4. 1964. Á SÍÐASTA vetrardag var til xnoldar borinn gamall góðkunn- ingi minn, Jósafat • á Brands- stöðum. Vil ég verða við þeirri ósk hans að mæla eftir hann, enda var maðurinn svo merki- legur og sérstæður að ýmsu leyti, að feriíl hans má ekki falla með öllu í gleymsku. Hann var fæddur að Króki í Norðurárdal 10. ’ágúst 1871 og voru foreldrar hans Jón Helgason bóndi þar og kona hans, Þórlaug Jónsdóttir. Ekki veit ég frekari deili á þeirri ætt nema það, að þeir voru syst- kinasynir og á líku reki, Jósafat heitinn, Guðmúndur Daníelsson bóndi í Svignaskarði og Steinn Dofri ættfræðingur. Sextán ára gamall fór Jósafat sem vinnumað ur að Hvammi í Norðurárdal til síra Jóns Ól. Magnússonar, föður þeirra Magnúsar prófessors og Þorsteins rithöfundar, fluttist með honum að Mælifelli í Skaga- firði vorið 1888 og var þar vinnu- maður næstu fjögur ár. Mun sú vist hafa orðið honum farsæl, því «ð síra Jón var ágætur og athug- ull búmaður, en prestskonan hið mesta valkvendi. Eftir það var Jósafat á ýmsum stöðum, ýmist sem lausamaður eða í vistum, þ.á.m. eitt ár ráðsmaður á Skíða- stöðum hjá Ingibjörgu Jónsdótt- ur, móður Pálma rektors, en .1908 keypti Hann Brandsstaði í Blöndudal og bjó þar til 1942. Fluttist hann árið eftir að Blöndu ósi og frá hausti 1948 var hann vikamaður í Kvennaskólanum og átti þar heimili til dauðadags. . Þau voru fyrstu kynni mín af Jósafat, að sumarið 1919 var ég staðgengill Jóns læknis á Blöndu ósi í nokkrar vikur og sótti Jósa- fat mig þá að Bollastöðum í lífs- nauðsyn, en það er um 45 km og þriðjungur leiðar slæmur vegur eftir miklar rigningar. Riðum við hana á þremur klukkustundum og er það mesta fantareið, sem ég hef farið, en svo var ferðin vel undirbúin, að hestar voru reiðubúnir til skipta á 2—3 stöð- um og aldrei nein viðstaða. Fékk ég þá mætur á þessum röska og úrræðagóða fylgdarmanni og jukust þær, ér ég tók við hérað- inu 15 árum síðar og kynntist bú- skap Jósafats, því að enginn bóndi í öllu héraðinu bar af hon- um að snyrtimennsku og um- gengni allri í búskap sínum. Þar var burstabær að miklu leyti úr timbri, reistur í stríðslokin fyrri, og útihús úr torfi og grjóti, en veggir allir hlaðnir af snilld, tré- verk allt málað og hvergi lá torfusnepill, steinvala eða spýta í óreiðu, hlöð og stígar voru eins og nýsópuð. Túnið var bratt á allstórum kafla, en víðlent og rennislétt. Mest dáðist ég þó að því, að bakkar bæjarlækjarins voru skáhlaðnir úr grasi gróinni snyddu, svo að ekki sást rof eða mold í þeim. Jósafat var mikill jarðabóta- maður á gamla vísu, verkhygg- inn og verkla'ginn við að beita hestum til jarðvinnslu, enda bar túnið þess merki. Það hafði verið óslétt og grýtt, svo að teknir höfðu verið upp úr því um 70 rúmmetrar af grjóti, en auk þess jarðvegur verið fluttur til með hestaskóflum til þess að fá það sem jafnsléttast. Það var í ágætri rækt og hafði töðufall ferfaldazt í búskapartíð Jósafats. Þegar Jósafat seldi Brands- staði, átti hann miklar töðufyrn- ingar í þeim hæsta heystakki, sem ég hef séð á ævi minni, enda var hann þar til heimilis næsta ár, hafði þá 130 ær á fóðrum, en átti enn næsta vor 500 töðuhesta eftir af Heyjum. Aðeins eitt hart vor hafði hann gefið hey sxn öll upp, enda hjálpað þá öðrum um fóðrun. Jósafat var dulur maður og fá- skiptinn um arinarra hagi, nema helzt ef hjálpar þurfti með, ekki mikill að vallarsýn og mjóróma, en hugprúður í hverri raun, hlekktist aldrei á í ferðalögum og kunni ekki að villast, hvorki í byggð né óbyggðum. Magnús Björnsson á Syðra-Hóli hefur skráð eftir honum frásögn um fjárrekstur milli landsfjórðunga vorið 1888 í bók sinni Mannaferð- ir og fornar slóðir. Jósafat var léttur á fæti fram á háan aldur og sporaviljugur fyrir kennslukonur og námsmeyj- ar •Kvennaskólans, eftir að hann kom þangað, ekki sízt ef sækja þurfti eða flytja bréf í pósthúsið inn fyrir Blöndu og blöskraði þá sumum, hvað hann fór oft ána á veikum ísi og vart manngengum, gamall maðurinn, en lánið fylgdi honum þar sem oftar. Margar skólameyjar munu minnast hans með þakklæti og frú Hulda Stefánsdóttir vottaði þær þakk- ir, er • hún skrifaði afmælisgrein í Mbl. um hann níræðan. Var.og öll umgengni hans á skólalóðinni með sömu snyrtimennsku og bú- skapur hans hafði verið. Hann var heilsugóður alla ævi, en þurfti þó að ganga undir allstóra skurðaðgerð, er hann var níræð- ur, og tók fljótlega eftir það við sínum fyrri störfum. Aldrei hafði hann látið taka mynd af sér, en gerði það þá fyrir lækni sinn að sitja fyrir, þegar hánn kom aftur á fætur, og birtist sú mynd hér. Sást þá varla grátt hár í höfði þessa níræða manns. Hann hélt vel sálarkröftum sínum, • en er hann fann líkamskraftana þverra snemma á þessu vori, ráðstafaði hann eignum sinum, beiddist inngöngu í héraðsspítalann, kvaðst þó ekki þurfa að vera þar nema nokkra daga, enda varð dvöl hans þar ekki nema ein vika. Fótavist hafði hann hvern dag, en síðasta daginn hallaði hann sér aftur á bak í rúm sitt og var örendur innan stundar. Muri honum hafa verið það að skapi að hafa ekki mikið umstang við dánarbeð sinn frekar en við ní- ræðisafmælið, því að þá brá hann sér norður í Sléttuhlíð til gamals kunningja, til þess að láta ekki gera neitt veður með afmælið. Á yngri árum sínum í Skaga- firði eignaðist Jósafat son með Steinunni Jónsdóttur, sem veir honum þar samtíma í vist, ea ekki -varð úr frekari sambúð þeirra. Þessi sonur er Guðmund- ur, er bjó í Austurhlíð og var um tíma héraðsráðunautur Búnaðar- sambands Húnvetninga. Á Brandsstöðum var lengst af ráðs- kona hjá honum Guðrún Þor- finnsdóttir og ól hann að miklu leyti upp tvær ungmeyjar henni venzlaðar, enda var hann" maður barngóður. Jósafat var bæði hagsýnn bú- maður og fór vel með fé sitt, enda efnaðist hann vel. Gestris- inn var hann og ósinkur. Þegar bygging héraðsspítalans á Blöndu ósi hófst 1951, gaf- hann til henn- ar 10 þúsund krónur. Hann fylgd ist .vel með í landsmálum, þótt- hann hefði sig ekki mikið í frammi. . Fimm eða sex vikurii fyrir dauða sinri hlýddi hann á útvarpserindi, þar sem haft var á móti byggingu Hallgrímskirkjxi, labbaði sig litlu síðar inn í bank- ann, tók þar út 10 þúsurid krónur og gaf til kirkjubyggingarinnar. Hann lifði lengst af ævi sinnar í Norðurlandi, eða í 76 ár en bar þá tryggð til átthaga sinna, að á níræðisafmælinu gaf hann 50 þúsund krónur til trjáræktar í Norðtunguskógi og skyldi lund- urinn vera kenndur við foreldra hans. Þá lagði hann svo fyrir, áð lík sitt skyldi færa til greftrunar að Hvammi í Norðurárdal, þar sem hann hafði verið fermdur og notið síðan þroska á góðu prests- heimili. Var svo gert og hann lagður þar til hinztu hvíldar í þann mund er birkikiarrið í hlíð- um fæðingarsveitar hans var að byrja að anga af nýju vori. P. V. G. Kolka. ÞETTA GERDIST 11. ma-rz runnu út heii.iildir brezkra og þýzkra togara til veiða á takmörkuðu svæði innan 12 mílna fiskveiðilögsögunnar við ísland sam kvæmt samningi frá 1961. Hafa fs- lendingar nú óskoruð yfirráð yfir 12 mílna fiskveiðilögs-ögunni í sátt og samlyndi við allar þjóð- ir (11). VEÐUR OG FÆRÐ. Janúar og febrúar hlýjustu mánuðir hér á landi síðan mælingar hófust (1). Skaftá í örum vexti (7). Þjóðvegurinn við Eldvatn ófær vegna hlaups í Skaftá (8). Mikil veðurbreyting ósennileg í bili (10). Veðurhlýjindi það mikil að blóm epringa út (12). Runnar allaufgaðir á Akureyri vegna blíðviðris (15). Útsprungnir fíflar í Reykjavík (15). Botnsheiði miili ísafjarðar og Súg- •ndafjarðar fær bílum (19). Kólnandi veður og víðast tekið að •njóa á landinu (25). ÚTGERÐIN. Fimm bátar gerðir út frá Flateyri 1 vetur (4). Sveinbjörn Jakobsson SH-10, nýr 109 lesta bátur kemur til Ólafsvíkur (5). Margir bátar afla vel I nót (5). Nýtt fiskiskip, Höfrungur III AK #50, kemur til landsins. Er það búið tveimur aukaskrúfum, annarri í •tefni. Eigandi Haraldur Böðvarsson & Co. (6). Útgerðarmenn óánægðir með starfs- grandvöll útgerðarinnar (6). Nýr 235 lesta fiskibátur, Guðrún CK 37, kemur til Hafnarfjarðar. Eig- •ndi Ásar h.f. (6). Afli að giæðast hjá Vestfjarðabát- Um (10). Afli orðinn sæmiiegur Suðvestan- lands (10). Stóraukin sala á íslenzkri skreið á Itaiíu veldur umboðsmönnum Norð- manna áhyggjum (11). Verðlagsráð ákveður síldarverðið (12). Treg línuvertíð hjá Ólafsvíkurbát- Um (12). Löndunarstopp í Vestmannaeyjum vegna mikils afla (12). Vertíð sæmiieg í Ólafsvík (15). Góður afii Akranesbáta (15). Nýr 252 lesta stáibatur, Snæfugl SU tO, kemur til Reyðarfjarðar (17). Afli Vestmannaeyjabáta 30% meiri en í fyrra á sama tíma (18). Loðna veiðist í Keflavíkurhöfn (18). Mikil vinna í hraðfrystihúsi Eski- fjarðar (19). Siglfirðingar láta smíða fyrsta ís- lenzka skuttogarann (19). Nýtt fiskiskip, Eldborg GK 13, 220 lestir, kemur til Hafnarfjarðar (20). Nýr togbátur, Jörundur II, 267 lest- ir, kemur til Rvíkur (21). Vikukaup kvenna kemst upp í 4000 kr. með bónuskeríinu í frystihúsi í Ólafsvík (24). Útgerðarráð Reykjavíkur vill að tog arnir fái að veiða innan 12 mílna á vissum svæðum og tímum (24). „Viðey“, nýtt 230 lesta fiskiskip, kemur til Reykjavikur (25). Nýjum báti, Gullberg NS 11, 162 lestir, hleypt af stokkunum í Vest- manna-eyjum (25). FRAMKVÆMDIR. Ný mjólkurvinnslustöð verður reist á Akureyri næsta sumar (3). Iðnaðarmenn í Hafnarfirði eignast félagsheimili (3). Karlakór Reykjavíkur opnar félags heimili (3). Nýtt fiskverkunarhús reist í í»or- lákshöfn (4). íslendingar áttu 54 skip í smíðum um s.l. áramót (5). Skipastóllinn var þá 144.254 brúttólestir (5). Smíði 170 lesta stálskips langt kom- ið í Stálvík h.f. (5). Lóðum úthlutað i Reykjavík fyrir 900 íbúðir (6). Ný flugbraut, sem lögð hefur verið þvert á fyrri brautina, tekin i notk- un í Vestmannaeyjum (7). Pólskur dráttarbatur kominn til landsins til þess að reyna að draga togarann Wislok á flot (7). Hárgreiðslustofa tekur til starfa í kjallara Hótel Sögu (13). Samkeppni um lausn umferðavanda mála Kopavogs boðuð (14). Ný hafskipabryggja gerð á Vopna- firði (17). Stöðugt unnið að stækkun heilsu- hælis NFLÍ í Hveragerði (17). Malbikaðir verða um 14 km. af götum Reykjavíkur í sumar (18). Jöklar h.f. láta smíða 2500 lesta kæliskip, Hofsjokul, í Skotlandi (18). MjólkursTöð tekur til starfa í Búð- ardal (18). Landsbankinn opr.ar útibú að Hvols velli (19). Meðaltalsaukning I iðnaði 4—5% á sl. ári (19). ítarleg rannsókn á Strákum við Siglufjörð vegna væntanlegra jarð- gangna (20). Síldarnætur fluttar út frá Eski- firði (20). Nýr vínbar opnaður í Hótel Sögu (21). Sokkaverksmiðjan á Akranesi kaup ir 15 sokkavélar til viðbótar fyrri vélum (21). Búnaðarbankinn opnar útibú á Hellu (26). I.O.G.T. reisir veitingastofu á Akur- eyrarflugvelli (26). SLYSFARIR OG SKAÐAR. 78 ára gömul kona, Símonía Jóns- dóttir, Hverfisgötu 91, bíður bana 1 bílslysi (3, 5). Húsið Grundargata 9 á Dalvík brennur <3). Vermundur Eiriksson, trésmiður, fellur í nýbyggingu og býður bana (5). Leki kom að vélbátnum Jónasi Jón- assyni GK 101 eftir árekstur við brezka togarann Sisapan frá Grims- by (7). Vélbáturinn Merkúr frá Grinda- vík hætt kominn út af Skarðsfjöru (7). Varðskipið Ægir stórskemmist, þegar verið var að taka skipið í slipp í Reykjavík (10). Tveir menn slasast í hörðum bíla- árekstri á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar. Gamalt íbúðarhús að Þorvaldsstöð- um í Breiðadal brennur til kaldra kola (11). Millidekk í lest Fjallfoss seig, er stoð lét undan þverbita (13). Jón Sveinbjörnsson, Húsavík, 50 Járnfleygur rekinn i 6000 volta há- spennustreng (13). ára, fellur af bíipalli o.g stórslasast (15). Vélbáturjnn Gunnfaxi frá Keflavík sekkur. Mannbjörg (17). Ungur maður, Björn Þór Ólafsson, slasast á Ólafsfirði, er dráttarvél, velt- ur ofan á hann (17). Miklar skemmdir á húsinu nr. 2A við Laufásveg af eldi (17). Bærinn að Sólbergi á Svalbarðs- strönd eyðileggst í eidi (18). Fullorðin kona, Jóhanna Þorgríms- dóttir, Freyjugötu 34, fellur af svöl- um og bíður bana (21). Vélbáturinn Sigurfari frá Horna- firði skemmist nokkuð í eldi (26). BÓKMENNTIR OG LISTIR. 17 ára stúlka, Anna Aslaug Ragn- ■ marz arsdóttir, leikur einleik á píanó með Sinfóníuhljómsveit islands (3). Edda-film hyggst gera kvikmynd eftir skáldsögunni ,,Útnesjamenn“ eftir sr. Jón Thorarensen (3). Þjóðieikhúsið fær tilraunaleiksvið (4) . Norski söngvarinn Olav Eriksen syngur með Sinfóníuhljómsveitinni (5) . Leikfélag Akureyrar sýnir gaman- leikinn ..Góðir eiginmenn sofa heima“ eftir Walter Ellis. Leikstjóri Jóhann Ögmundsson (5). Sýningar á mexikanskri list í Rvík. (10). Leikfélag Reykjavíkur sýnir Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Leikstjóri Thomas Mac Anna (12). Leikfélag Siglufjarðar sýnir sjón- leikinn „A útleið‘‘ eftir Stutton Vane. Leikstjóri Regnhildur Steingrímsdótt- ir (13). Bandaríski hljómsveitarstjórinn Igor Buketoff stjórnar Sinfóníuhljóm- sveitinni, en Alfred Brendel frá Vín- arborg verður einleikari (19). Eiríkur Smith, listmálari, heldur sýningu í Vestmannaeyjum (24). Leikfélag Blönduóss sýnir Mann og konu eftir Emil Thoroddsen (26). Halldór Laxness boðin dvöl að Rungstedlund, landareign Karenar Blixen (4). MENN OG MÁLEFNI. Erlendar flugfreyjur til íslands — íslenzkar- vestur um haf (4). Valgarð Thoroddsen, verkfræðing- ur, ráðinn slökkviiiðsstjóri i Reykja- vík (6). Bandaríski Ieikarinn Gregory Peck á Keflavíkurflugvelli (7). Armendariz sendiherra Mexico hér á landi í heimsókn (11). , Lárus Jónhannesson, hæstaréttar- dómari, segir af sér embætti til þess að hafa frjálsari hendur til að verja heiður sinn og sóma vegna blaðaár- ása (11). Dr. Jóhann Axelsson, lífeðlisfræð- ingur, hlýtur 250 þús. kr. (ísl.) styrk frá raunvisindadeild sænska rann- sóknarráðsins til visindalegra rann- sókna (12). Magnús V. Magnússon, sendiherra fulltrúi forseta íslands við útföt Páls Grikkjakonungs (12). Sr. Páll Pállsson kjörinn prestur í Víkurprestakalli ' (14). Verk eftir Magnús BI. Jóhannsson flutt á tóniistarhátið í Los Angeles (17). íslenzk kona búsett á Trinidad, Ásta Guðmundsióttir Wright, gefur Þjóðminjasafninu ýmsa muni (18). Prófessor Johs. Andenæs flytur há- skólafyrirlestra hér (19). Hertoginn af Edinborg verður gest- ur forseta íslands í sumar (19). Alþingi kýs úthlutunarnefnd lista- mannalauna (21). Ungur arkitekt, Ormar Þór Guð- mundsson, hlaut 135 þús. kr. verð- laun í samkeppni um gagnfræða- skólá á Selfossi (22) Árni Tryggvason, hæstaréttardómarl, skipaður sendiherra íslands í Stokk- hólmi (24). Dr. Þórður Eyjólfsson kjörinn for- seti Hæstaréttar (25). FÉLAGSMÁL. Samband ísl. sveitafélaga ákveður kaup húsnæðis (1). Árni Grétar Finnsson kosinn fdr- maður Sambands ungra Sjálfstæðia- mánna (3). Vörubílstjórar í Árnessýslu og Reykijaviík d-eila um fiskifluijninga frá Þorlákshöfn (4) FulRrúar flugmálastjóra Norður- landa ræðast við i Reykjavík (4). Fundur skógræktarstjóra, fulltrúa og skógarvarða haldinn í Reykjavík (5). Stéttarfélag félagsráðgjafa stofnað. Formaður Margrét Margeirsdóttir (5). Golfklúbbur stofnaður á Suður- nesjum. Formaður Asgrímur Ragn- ars (6). Góð aðsókn að Hólaskóla næsta vet- ur (6). Einar B. Pálsson kjörinn formaður Verkfræðingafélags lslands (7). Stofnað fiskiræktar- og veiðifélag á Elliðavatnssvæðinu (8). Sjálfstæðiskvennafélag stofnað i Dalasýslu. Formaóur Herdís Guð- mundsdóttir, Sauðhúsum (8). Gerðardómur kveður upp úrskurð í kjaradeilu sérleyfisbílstjóra (12). Sigurður Greipsson, Haukadal, end- urkjörinn formaður Héraðssambands- ins Skarphéðins (13). Frú Lára Arnadóttir íormaður Minn ingargjafasjóðs Landspixtila Islandn (14). Lífleyrissjóóur verkstjóra stofnað- ur (15). Guðmundur Kjartansson, jarðfræð- ingur, kjörinn fonnaöur Hins islenzkn náttúrufræðifélags (17). Ráðstefna stúdentaleiðtoga á Norð- urlöndum haldin héi (19). Gunnar Friðríksson endurkjörinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.