Morgunblaðið - 29.04.1964, Síða 18

Morgunblaðið - 29.04.1964, Síða 18
18 MOR CUNB L A^Ð /Ú JU&ttvnrááéi crirr 59 fipfíl ■ 1964 Sveinn Jóhannsson Fædður 31. október 1893. Dáinn 23. apríl 1964. Í>EGAR ég frétti á sumardaginn íyrsta að Sveinn Jóhannsson, kaupmaður á Baldursgötu 39, hefði látizt þá um morguninn k«m andlátsfregn hans mér á óvart. Að vísu vissi ég vel að Sveinn hafði átt við heilsuleysi að stríða í 5 ár eða lengur, því um langan tíma hafði hann staðið einn allan daginn í búð sinni við afgreiðslu, enda þótt kraftar hans og heilsa væri svo bil,uð, að hann kæmist ekki upp til sín óstuddur, vegna þreytu, að dagsverki loknu. Ég hafði vanizt því, að líta á þennan harðgerða mann, sem svo oft hafði háð orustur við margs- konar erfiðleika á sjó og iandi, og sigrazt á þeim, með þeirri trú að honum mundi auðnast enn um hríð, að halda uppi vörn í sinni lokaorustu. En enginn má sköpum renna og endalyktin hlaut að verða þessi, og er mikils virði að þurfa ekki að heyja langt þjáningaríkt dauðastríð. Sveinn Jóhannesson var fædd- ur að Hlíð í Hörðudal í Dala- sýslu. — Foreldrar hans voru Magðalena Jónsdóttir, greind og hagmæit kona, og maður hennar, Jéhann Eyjólfsson. Vegna fátæktar varð Sveinn að fara ungur að vinna fyrir sér og 13 ára gamall fór hann til sjós, fyrst á seglskip, sem stunduðu handfæraveiðar, síðar var hann á togurum. — Á handfæraveiðum reyndi á kapp og dugnað hvers roanns, því þar bar hver úr být- um eftir því sem hann aflaði eða helming þess fisks er hann dró úr sjó og varð kaup það sem menn báru frá borði þar af leið- andi mjög misjafnt. Kom fljótt í ljós að Sveinn vildi ekki láta sinn hlut eftir liggja, þótt ungur væri og varð hann brátt með þeim hæstu í drætti, og síðar oftast með hæst- an hlut á sínu skipi, enda hlífði hánn sér ekki við að standa „frí- vagt“ sem kallað var, þegar sá „guli“ (þorskurinn) gaf sig til. Ekki mun Sveini hafa fundizt fljóttekinn gróði með þessari veiðiaðferð og þegar togararnir komu til sögunnar hjá okkur réði hann sig á þá. Var það engum heiglum hent að vinna á þeim áður en vökulögin voru sam- þykkt. Árið 1920 hætti Sveinn sjó- mennsku um langt skeið. og setti á stofn nýlenduvöruverzlun, sem hann rak næstum óslitið af mikl- um dugnaði þar til hann varð að hætta fyrir ca. 5 árum vegna heilsubrests, eins og ég hef áður minnzt á. Sveinn var skapmikill maður og hafði nokkuð óþjála lund, en hann var fyrst og fremst harður við sjálfan sig og hlífði sér hvergi. Hann var traustur og á- reiðanlegur í viðskiptum, snyrti- menni í sambandi við sín búðar- störf, hann var sérstaklega heimilisrækinn og hafði yndi af að þar væri allt í röð og reglu, enda naut hann þar sinnar ágætu konu, Ingibjargar Kortsdóttur, sem bjó honum fallegt heimili og notalegt. Sveinn var tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Friðsemd Guðjónsdótt ur, missti hann eftir stutta sam- búð, en seinni kona hans, Ingi- björg Kortsdóttir, er enn á lífi. Með henni átti hann 6 mannvæn- leg börn og eru 4 á lífi: Svein- fríður, Jón Björgvin, Gunnar Reynir og Þór., en 2 þeirra: Stella og Kort Sævar, drukknuðu í Álftavatni 1935 og mun sá sofgar atburður hafa orðið þungbærast- ur í lífi þeirra hjóna. Kom þá í ljós á hinn aðdáunarverðasta hátt hvernig Ingibjörg bar sem hetja ekki aðeins sína eigin sorg, heldur studdi mann sinn á allan hátt og létti honum byrðarnar, þegar svo virtist að hann ætlaði að bugast. Sveinn var greindur maður, eins og hann átti kyn til, sagði skemmtilega frá, var glaður og hressilegur í vinahópi. Hann var ekki sérlega mannblendinn, en var því tryggari vinur vina sinna sem hann átti þá færri, en marg- ir aðrir. Ég votta konu hans og börnum inniiegustu samúð mína og fjöl- skyldu minnar og óska hinum framliðna velfarnaðar yfir hið ó- þekkta haf til nýrra lifsstöðva. Ólafur Jóhannesson. Nú eru aðelns eftir tvær sýningar á leikritinu Hamlet, sem sýnt hefur verið við mikla -hrifningu í Þjóðleik- húsinu að undanförnu. Leik- ritið hefur nú verið sýnt 36 sinnum og hefur ekkert verka Shakespeare verið sýnt jafn oft hér á landi. Næsta sýn- ing verður annað kvöld en síðasta sýningin á sunnudags- kvöld. — Myndin er af Gunn- ari Eyjólfssyni í titilhlttt- verkinu. lormaður Félags ísl. iðnrekenda (2T). Félag sjónvarpsáhugamanna stoln- að. Formaður Hreínn Pálsson, for- stjóri (22:,). Þóra Einarsdóttir kjörin formað- ur Verndar (24). Hermann Guðmundsson endurkjör- lnn íormaður Hlífar í Hafnarfirði (24). Matthías Johannesson kosinn for- maður Biaðamannaféiags íslands (25). AFMÆLI. Lágafellsk irkja 75 ára (1). Leikíélag Dalvikur 20 ára (3). Knattspyrnufélag Reykjavíkur 65 Framtíð íslands er fólgin í fjöl- Hafnarfjarðarbió 50 ára (6). Krabbabeinsfélag Reykjavíkur 15 ára (8). Doftleiðir 20 ára (10,). Þórbergur Þórðarson, rithöfundur, 75 ára (12). Barðstrendíngafélagið 20 ára (14). Austiirðingaféiagið í Reykjavik 60 ára (19). Hagstofa islands 5C ára (24). ÍÞRÓTTIR. Þorbergur Eysteinsson, ÍR og Marta B. Guðmundsdóttir, KR, Reykjavíkur- meistarar í svigi (3). ípróttasamband isiands fær nýjan tekjulið, ákveðið gjaid af vindlinga- sölu (6). Hrafnhildur Guðmundsdóttir, sund- kona og Jón Þ. Ólaísson, hástökkvari, hljóta Gullmerki ÍSt fyrir 10 islands- met sett á s.l. ári (6). Heimsmeistaramóiið í handknatt- leik: Ísland — Egyptaland 16:8 (7). ísiand — Svíþjóð 12:10. — ísland — Ungverjaland 12:21 (10). Sveit Mikaels Jónssonar Akureyrar- meistari í bridge (12). Lárus Lárusson, Á, sigraði i þyngsta flokki flokkaglimu Reykjavíkur (13). ÍR-ingar unnu á afmælismóti Skiða- ráðs Reykjavíkur (17). Jón Þ. Ólafsson vann í hástökki á fyrsta innanhússmótinu, sem hann tók þátt í USA, stökk rúma 2 m. (17). island i 3. sæti á Norðurlandamóti - i körfuknattleik (24). ísland í 4. sæti á Norðurlandamóti unglinga i handknattleik (24). Þróttur vann á afmælismóti KR í lnnanhússknattspyrnu (25). Skiðamot. íslands haldið á ísafirði. Gunnar Guðmundsson, S.f. varð Ls- landsmeistari í 15 km. göngu (25). ÝMISLEGT. Landtoúnaðarvórur hækka um 8,3% (1). Reykingabann sett í áætlunarvögn- um Steindórs (3). Verðlagsnefnd ákvður nýjar álgn- ingarreglur (4). Gljáfaxi, flugvél Fiugfélags íslands 1 skiðafiugi til Austur-Grænlands (5) Sígarettusalan minnkar um 7 millj. kr. á 2 mánuðum (5). Ný íjársöfnun með „gjafahlutabréf- um'1 hafin vegna byggingar Hail- grimskirkju á Skólavörðuholti (6). Sig í Vatnajökli vestan Grímsvatna og hiaup komið í Skaftá (6). Þyrla lendir á varðskipinu Óðni (6). ísland hefur vei ið veitt bráðatoirgða- aðild að Alþjóða tollmáiastofnuninni — GATT (7). 82 islenzkir hestar fluttir flugleið- is til Sviss (7). Rotary-klúbbur Isafjarðar gefur Tón listarféiaginu þar fiygil (10). Smyglað áfengi og tóbak tekið í Drángajökii (10). Úrelt að sami maður rannsaki og dæmi, segir forsætisráðherra í Biaða- mannakiúbbnum (11). ÍR selur eignir sínar f Tivol' (11). Hafskip h.f. kaupir (12). Eimskipafélag Islands bárust má,rg- ar gjafir í tilefni 50 ára afmælisins (12). Alþingi samþykkir tillögu um auk- inn stuðning við innlendar skipa- smíðar (13). 5 telpur uppvísar að peningaþjófn- uðum (13). Sextíu alþingískjósendur senda for- seta alþingis áskorun um sjónvarps- mál (14). Mjóikurmagnið til mjólkurbúanna jókst um 7,39% árið 1963 (14). Frakkar munu skjóta tveimur eld- flaugum af Mýrdalssandi í júlí n.k. til rannsókna á rafiögum i Van- Alien beltínu (14). Farþegi réðist á leigubílstjóra og tók af honum bfiinn (14). Jarðskjálftar og drunur norðan ísa- fjarðardjúps (15, 17). Kanadískt fiugfélag gerir ráð fyrir 50 miililendingum í Kefiavik í sum- ar (17). Nýtt Tryggingafélag að hefja starf- semi sína I Reykjavík (17). Forseti íslands fiytur ræðuna við minningarguðsþjónustu um Hadgrím Pétursson (17). íslenzkur togaraskipstjóri hlaut 125 punda sekt, þar sem olía lak Ur skipi hans í höfninm í Grimsbý (18). 19 nýjar hjúkrunarkonur brautskráð ar (19). Ásprestakalli berast góðar fjarðir (20). Duiarfullir atburðir gerast að Saur- um í Kálshamarsvík (20, 21, 22). 23,6% reykvískra mæðra ógiftar 122). Eimskipafélagið hyggst selja Reykja foss (22). Gæsluvélin tók tvo báta í landheigi (22). Citroen-biiar hlutskarpastir í „spar- askturs-keppni'1 (24). Samkeppni meðal unglinga um tákn- mynd af skaðsemi tóbaksreykinga (24). Borað niður á heitt vatn i Vestmanna eyjum (24). Heimiiisiðnaðarfélag ísiands efnir til samkeppni um isienzkan heimiiis- og listiðnað (25). Fiugvallarstjórar Norðurlanda ná samkomulagi um íaraiöld Loftieiða eftir 1. april (26). ÝMSAR GREINAR. Samtal við Tómas MacAnna ]eik- stjóra (1). í árslok, eftir dr. Jóhannes Nordal, bankastjóra (1). Eru framfarir í prentun til óþurftar ísl. iðnaði, eftir Kr. Jóh. Kristjánsson (1). Formaður SVFR ræðir afstöðu Veiði félags Árnesinga (1). Enn um leiklistarskóla Þjóðleikhúss- iras, ftir Sigurð A. Magnússon (3). Reykingavandamálið, eftir Jón Þ. Björnsson frá Veðramóti (3). Frásögn af fjölmennum borgara- fundi um Hallgrímskirkjumálið (3). Fiskiþing og skólamál, eftir Sigur- jón Einarsson, skipstjóra (3). Davíð Olafsson, fiskimálastjóri skrif ar um fiskimálaráðstefnuna í Lond- on (4). Hugleiðingar úr sveitinni, eftir Gunnar Gunnarsson Syðra-VaíHioiti (4). Beit eyrnarsnepil al kunningja sin- um í ryskingum (4). ára (5). þættri framleiðslu, eftir Jóhann Haf- stein, iðnaðarmálaráðherra (5). Hallgrímsjdrkja á Skólavörðuholti, eftir Pétur Sigurðsson (5). Svar til Kristjáns Albertssonar, efi- ir dr. Benjamín Eiríksson (7). Hvað er framundan 1 kirkjunni, eítir sr. Helga Tryggvason (7J. Gildi sjálfgræðslu fyrir túnræktina, eftir Lúðvík Jónsson (8). Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (8). Samtal við fiskifræðingana Ingvar HaJlgrímsson og Aðalstein Sigurðsson um rækjurannsóknir (8). Veggmálverk mexilanskra mcistara, eftir Magnús Á. Arnason (8). Landheigi — Landgrunn, eftir Jó- hann Hafstein (10). Stutt samtal við Kjartan L. Magn- ússon frá Hjörleifshöfða (13). Hvað á pretverk skylt við öskju- gerð? eftir Braga Hinriksson (13). Brjóstkrabbi á íslandi, eftir Gunn- laug Snædal, lækni (14). Þátttaka íslendinga í Vetrar-Olym- píuleikunum, eftir Valdimar Örnólfs- son (15). Farið eftir fyrirmælum eftir dr. Benjamín Eiríksson (17). Hugleiðingar um Hallgrípifikirkju, eftir Kristínu Sigfúsdóttur frá Syðri- Völlum (17). Heldri menn á ferð, eftir Sigríði Björnsdóttur (18). Þjónusta og drottnun, eftir Stefán Bjarnason, verkfræðing (19). Hvað til lausnar í húsnæðismálun- um?, eftir Þorvald Garðar Kristjáns- son (19). Þjóðmetnaður Islendinga, eftir dr. Alexander Jóhannesson (19). Verkefni, sem bíða íslenzks iðnað- ar eru óþrjótandi, eftir Gunnar J. Friðriksson, formann FÍI (21). Tunnuverksmiðja 1 Höfðakaupstað, eftir Þorfinn Bjarnason (21). Alþjóðlegi veðurfræðidagurinn 1964 (22). Samtal við Sigfús Blöndahl, stór- kaupmann (22). Viðreisaiarajóður Evrópuróös og jafnvægi 1 byggð landsins, eftir Þor- vald G. Kristjánsson (24). Samtal við frú Irmu Weile-Jónsson (24). Samtal við Ásgeir Pétursson, sýslu- mann, um náttúruverndarráð (24). Fáein orð til leikara Þjóðleikhúss- ins, eftir Njörð P. Njarðvík (25). Hundstrýni og skötubörð, eftir Þóri H. Einarsson (25). „Síminn 1909**, eftir Eðvarð Árna- son (25). Páskablað með fjölmörgum grein- um eftir blaðamenn Mbl. (26). Stóriðja(26). Baráttan gegn sannleikanum, eftir Kristján Albertsson (26). Vettvangur um sjónvarp, eftir Ragn ar Jónsson (26). MANNALÁT Matthiídur Hólmfríður Jóhannes- dóttir frá Hofsstóðum. Þorsteinn Örn Ingólfsson, Heiðar- gerði 38. Kjartan Reynisson, Borgarholtsbraut 21E, Kópavogi. Sigmundur Halldórsjson, byggingar- fulltrúi. Davíð Stefánsson skáld frá Fagra- skógi. Jónina Ingibjörg Jónsdóttir, Hring- braut 39. Halldór G. Gunnarsson, kaupmaður. Sigurður Sumarliðason, skipstjóri frá Akureyri. Ármann Björnsson, Greniteig 4, Keflavík. Árni Teitsson, Hverfisgötu 46, Hafn- arfirði. Valdimar Haraldsson, forstjóri, Akur eyri. Garðar Kristjánsson, Nýborg, Fá- skrúðsfirði. Ingimundur Árnason, söngstjóri, Akureyri. Vermundur Eiríksson, húsasmíða- meistari, Litlagerði 1. Guðmundur Sigurðsson, bifreiðar- stjóri, Laugateigi 5 Gunnar Jónsson frá Arnórsstöðum. Þorgeir Sigurðsson, Kársnesbraut 63, Kópavogi. Guðrún Guðmundsdóttir fró Hvammi Dýrafirði. Kristján Júlíus Halldórsson frá Vöðlum. Gamaliel Jónsson bóndi á Stað á Reykjanesi. Sigriður Guðnadóttir, Breiðabliki, Höfðakaupstað. Kristján Kjartansson, Björnshúsi, Grímstaðaholti. Anna Einarsdóttir, Vestmannaeyjum Friðrik Sigurðsson, veggfóðrari. Guðmundur Kristjánsson, Bjarkar- lundi, Vestmannaeyjum. Guðríður Einarsdóttir, Laugarvegi 42 Björg Björgúlfsdóttir. Selvogsgötu 5, Hafnarfirði. Valdimar Óskar Kristmundsson, bílstjóri, Háteigsvegi 25. Oddur Valgeir Guðmundsson, Faxa- braut 26, Keflavík. Guðrún Felixdóttir, Baldursgötu 37 Elín ísaksdóttir, Hvítanesi, Vestur- Landeyjum. Þorbjörg Sigurhar.sdóttir, Brimnesi, Vestmannaeyjum. Sólveig Jónsdóttir, Vindási, Rangár- vallasýslu. Agnes Þorláksdottir frá Arnardrangi Magnús Jónasson, iögregluþjónn, Akureyri. Guðríður Ottadóttir, Stýrimannastíg 2. Sigurður Jónsson, múrarameistari, Fjölnesvegi 16. Margrét Guðmundsdóttir, Norður- braut 17, Hafnarfirði. Kristrún Jónsdóttir, Brúnastöðum, Fíjótum. Sigurður Jónsson, Syðri-Brekkum. Steinunn Guðrún Eiriksdóttir, Gler- árgötu 2, Akureyri. Stefanía Þorsteinsdóttir frá Breiðu- mýrarholti. Anna Halldóra Bjarnadóttir, Skóla- vörðustíg 26A. Pétur Jóhannesson, bílstjóri, Eski- hlíð 15. Jónas G. Halldórsson, Fossagötu 10. Ólafur Jónsson, Kvistliaga 29. Steinar Guðmundsson frá Stykkis- hólmi. Ársæll Jónsson, Bakkakoti, Rangár- völlum. Valgeir Sigurðsson, húsgagnasmiður. Guðbjörg Andrésdóttir, Njarðargötu 5. Halldór Gunnlögsson, Bló-mvalía* götu 10. Jón Friðriksson frá Bakkakoti i Víðidal. Eyjólfur Guðbrandsson, Smyrils- V€RÍ 26. Júiíana Jónsdóttir, Mófellsstöðum, Skorradal. Jón Svavar Karlsson, skipstjóri frá Stokkseyri. Jóhanna Þorgrímsdóttir, Freyjugötu 34. Kristín Jónsdóttir, Miklubraut 72. Hólmfríður Guðrún Jónsdóttir frá Mávahlíð. Jón Ólafsson frá Söðulsholti. t Óli Olsen, Máfahiíð 11. Margrét Sigríður Tómasdóttir, prð- fastsfrú á Seyðisfirði. Nathanael Mósesson, kaupmaður frá Þingeyri. Guðmundur Guðjónsson, bóndi að Melum í Melasveit. Valgeir Jónsson, Kirkjuvegi 30, Keflavík. Júlíana Jónsdóttir, Mófelísstöðum, Skorradal. Friðrik Guðjónsson, Holtsgötu 7. Ebeneser Sivertsen, trésmíðameistari Guðmundur Guömundsson lrá Brekkum. Sigríður Guðnadóttir, FlekkudaL / Jóhanna Ðjarnaoóttir, Seiiosai. j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.