Morgunblaðið - 09.06.1964, Qupperneq 5
Þriðjudagur 9. jSní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
5
Garðeigendur
Vélskomar túnþökur, á-
vallt fyrirliggjandi. Send-
um heim alla daga. Sími
35225.
Klæðum húsgögn
Svefnbekkir, svefnsófar
sófasett. Vegghúsgögn o.fl
Valhúsgögn, Skólavörðu-
stíg 23, sími 23375.
Traktor til leigu
með ámoksturtæki. Tilboð
séndist Mbl. fyrir föstudag,
merkt: „Vinna — 4498“.
Keflavík
Nýkomnir kven- og karl-
mannainniskór, einnig ung-
barna-, telpu- og drengja-
skór.
SKÓBÚÐIN, Keflavík.
*
Presto
Offset fjölritun, vélritun,
kopiering og prentun.
PRESTO
Klapparstíg 16. Sími 21990.
Blý
Kaupi blý hæsta verði. —
Málmsteypa Ámunda Sig-
urðssonar, Skipholti 23,
Sími 16812.
Keflavík
Barnavagn til sölu, vel með
farinn. Uppl. í síma 2311
á Faxabraut 11.
Ódýrt — ódýrt
Amerískir brjóstahaldarar,
verð kr. 75.—.
Verzlunin ÁSA,
Skólavörðustíg 17,
sími 15188.
ÞRENGSLI HJÁ SLÖKKVILIÐINU
UM daginn var frá því greint
hér í dagbókinni, hve þröngar
væru dyrnar á útkeyrslu slökkvi
liðsins í Reykjavík. Er það allra
manna mál, að þetta sé til stór-
baga, og beinlínis tefji slökkvi-
liðið oft um dýrmætar mínútur,
þegar það þeysist út til bruna-
staðarins.
Sveinn Þormóðsson tók um
daginn mynd af því, þegar verið
var að bakka einum slökkviliðs-
bílnum inn í bílgeymsluna eftir
eð hann kom úr útkalli, og sést
glögglega, hvíiík þrengsli eru
þarna á ferðinni.
Á hinni myndinni sést svo
grunnurinn á hinum nýju bíl-
geymslum Slökkviliðsins við
Reykjanesbraut Svo sem sjá má,
er mikið verk eftir, en vonandi
verður þessu flýtt eftir föngum.
satjði!
að hann hefði verið að fljúga um
miðbæinn í gær í rigningunni,
og þá hefði hann komið auga á
nýtt umferðarvandamál, sem sé
þetta með regnhlífarnar.
Þarna hefðu hver kona og
nokkrir karlmenn að auki dregið
upp regnhlífsrnar, sem er svo
sem ekki nema góðra gjalda vert,
en gangstéttirnar við Austur-
stræti eru mjóar og ekki á öng
þveitið þar bætandi.
Þarna var sem sagt ekki þver-
fótað fyrir regnhlífum. Storkur-
inn sagði, að konurnar yrðu að
sýna lipurð i umferðinni, því
að það væri ekki umferðarslysið
að fá regnhlífartein upp í augað.
Svo lagði hann til að bæta við
hvort ekki væri heppilegt, að
eetja rennur á regnhlífarnar, svo
að menn fengju þá bara einn
vatnsstraum á herðarnar, sem
þeir gætu máski forðast heldur,
en að fá bununa allt í kring um
regnhlífina.
Spurningin er svo bara sú, sagði
storkurinn um ieið og hann flaug
í skjól upp í Morgunblaðshöll,
hvort sá straumur ætti að vera
að framan eða aftan.
Þriðjudagsskrítla
Ungur maður kom heim að af-
loknu námi í héraðsskóla. Gömul
kona spurði hann, hvað hann
hefði nú lært þar. Pilturinn taldi
upp ósköpin öil og endaði á nátt-
úrufræði.
„Náttúrufræði!“ dæsti sú
gamla alveg undrandi og bætti
við: „Það hélt ég að væri nú
nokkuð, sem kæmi af sjálfu sér”.
Kaupskip h.f.: Hvítanes er í Rvík
Eimskipafélag Keykjavíkur h.f. —
Katla er á leið tU Raufarhafnar frá
Torreveija. Askja er á leið til Napoli.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell losar á
Eyjafjarðarhöfnum. Jökulfell fór í
gær frá Hamborg til Haugasund og
Austfjarða. Dísarfell fer væntanlega
11. þ.m. frá Mántyluoto til Homafjarð
ar. Litlafell er i Rvík. Helgafell fer
væntanlega frá Stettin 10. þm. til
Riga, Ventspils og íslands. Hamrafell
er i Batumi. Stapafell er væntanlegt
til Rvikur 11. þm Mælifell er væntan-
legt 12. þm. til Seyðisfjarðar.
H.f. Jöklar: Drangajökull kemur tii
Leningrad í dag, fer þaðan til Finn-
lands og Hamborgar, Hofsjökuli fór frá
London 7 þm. áleiðis til Rvíkur. Lang-
jökull fór frá Vestmannaeyjum 3. þm.
áleiðis til Cambridge. Vatnajökull er
í Vestmannaeyjum.
H.f. Skallagrimur: Akraborg fer í
dag frá Rvík. Kl. 7.45 frá Akranesi kl.
9 Reykjavík kl. 13 Borgarnesi kl. 19
frá Akranesi kl. 20:45
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka-
foss er í Valerjtia Marina, fer þaðan
til Piraeus og Cagliari. Brúarfoss fer
frá Hull i dag 8. 6. til Rvíkur Detti-
foss kom til Reykjavíkur 3. 6. frá
NY. Fjallfoss fór frá Belfast 6. 6. til
Ventspils, Kotka og Leningrad. Goða-
foss fer frá Hamborg 9. 6. til Antwerp-
en, Rotterdam og Hull. Gullfoss fór
frá Rvík 6. 6. til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Lagarfoss fer frá Akranesi í
akvöld til Vestmannaeyja Fáskrúðs-
fjarðar Reyðarfjarðar og Eskifjarðar
Mánafoss kom til Rvíkur 5. 6. frá Hull
Reykjafoss fer fiá Nörresundby 9. 6.
til Kaupmannahafnar, Kristiansand og
Hamborgar. Selfoss fór frá Vest-
mannaeyjum 1. 6 til Gloucester og NY
Tröllafoss fór fiá Stettin 3. 6. væntan
Iegur til Rvíkur kl. 15,00 á morgun
9. 6. Tungufoss fer frá Gautaborg á
morgun 9 6 til Austfjarðahafna
Pan American þota kom til
Keflavíkur kl. 07:30 í morgun.
Fór til Glasgow og Berlínar kl.
08:15. Væntanieg frá Berlín o,g
Glasgow kl. 19:50 í kvöld. Fer
til New Yourk kl. 20:45 í kvöld.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er
í Reykjavík. Esja fór frá Rvík í
gærkvöldi austur um land i hring
ferð. Herjólfur fer frá Vestmanna
eyjum kl. 21:00'í kvöld til Rvík-
ur. Þyrill er væntanlegur til Rvík
ur í dag. Skjaldbreið fór frá
Rvík í gærkvöldi vestur um land
til ísafjarðar. Herðubreið er í
Rvík.
Hafskip h.f.: Laxá lestar á aust
fjarðahöfnum. Rangá er væntan-
leg til Gdynia í dag. Selá er í
Rotterdam. Axel sif er á Húsa-
vík. Tjerkhiddes fór frá Stettin
5. þm. til Rvíkur. Urker Singel
fór frá Hamborg 5. þm. til Vest-
mannaeyja og Rvíkur. Lise Jörg
losar á austfjarðahöfnum.
Richard Beck
Afmæliskveðja
Svo fagurt er ísland í
vorskrúði vænu,
að varma þess nýtur hver
einasta sál,
við geislanna bros, þar moldin
á mál,
þú minnist við hlíðina
iðjagrænu.
Þú lifðir svo oft í huganum
heima
og hjartkæru ströndina lézt
þig dreyma,
er kraupstu við daganna
dvínandi bál.
Nú finnurðu dulblíðu
draumana rætast,
í daganna skini með vor yfir
strönd,
hér vefja þig ættjarðar
ásthlýju bönd
í æskunnar heimi svo megirðu
kætast.
Því geymum við upprunans
eilífu glóð
með orku og dyggð fyrir land
vort og þjóð,
það bróðerni er sættir og
sameinar lönd.
Kjartan Ólafsson.
Spakmœli dagsins
Fegurst allra hljóða er rödd
þeirrar konu, sem vér unnum.
La Bruyére
Ofugmœlavísa
Fiskurinn hefur fögur hljóð,
finnst hann oft á heiðum,
ærnar renna eina slóð
eftir sjónum breiðum.
Sveit
Dugleg og barngóð telpa,
11—12 ára, óskast á sveita-
heimili í sumar Uppl. á
Skeiðarvogi 7, kjallara, í
dag og næstu daga.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunbiaðinu en öðrum
blöðum.
Tækifærisverð
Til sölu sem ný General
Electric þvottavél m/
klukku, kr. 8.000.—. Einnig
lítil straujpressa, kr. 2.500.
Uppl. síma 10261 eftir kl. 7.
Ljósprent s.f.
Brautarholti 4.
Ljósprentum (koperum) —.
hvers konar teikningar. —
Fljót afgreiðsla. Bílastæði.
Sími 21440.
Steindór vill selja
Chevrolet fólksbifreiðar, model 1954, í prýðilegu ásig
komulagi. — Upplýsingar í síma 18585.
2 skrifstofuherbergi
til leigu
Upplýsingar í Fiskhöllinni.
íbúð óskast
Til leigu
í þrjá mánuði. — Þarf að vera laus um miðjan
júní. — Æskilegt að húsgögn fylgi. — Tilboð sendist
afgr. Mbl., fyrir 14. þ.m., merkt: „4515“.
Lokað
kl. 1—3 í dag vegna minningarathafnár
um Guttorm Pálsson, fyrrverandi skógar-
vörð á Hallormsstað.
Skógrækt ríkisins.
*
Ibúðar- og verzlunarhús
úr steini á hornlóð við Baldursgötu, skammt frá
Skólavörðustíg, til sölu. — Húsið er 2 hæðir, 110
ferm. og fylgir því 280 ferm. eignarlóð. — Verzl-
unin er á næðri hæð en á efri hæð er 5 herb. íbúð.
Yfir húsinu er manngengt geymsluris. — Húsið er
mjög hentugt til núverandi noktunar en einnig
sem iðnaðar- og íbúðarhús eða sem skrifstofu- og
verzlunarhús, t.d. fyrir heildsölu.
IMýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546.