Morgunblaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 9. júní 1964 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjorar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ötbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. SJÁLFSTÆÐISFL OKK- URINN OG UNGA FÓLKIÐ CMálfstæðisflokkurinn hefur ^ jafnan átt traustu fylgi að fagna meðal íslenzkra æskumanna og forystumenn hans hafa ætíð haft ríkan skilning á óskum unga fólks- ins um aukin og bætt mennt- unarskilyrði og frjálsræði til ^thafna á hinum ýmsu svið- um þjóðlífsins. Þetta viðhorf forystumanna Sjálfstæðis- flokksins kemur skýrt fram í bréfi því, sem Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur sent ungum Sjálfstæðismönnum og birt er í Morgunblaðinu í dag. Þar segir Bjarni Benediktsson, að „ungir Sjálfstæðismenn hafi frá upphafi lagt af mörkum ómetanlegan skerf til eflingar flokki okkar, í senn með því að móta stefnu flokksins í ýms um mikilvægum málum og með ötúlu starfi til að afla henni fylgis. Með þessu hafi miklu góðu verið áorkað fyr- ir íslenzku þjóðina, sem ekki sízt þéás vegna búi nú við meira frjálsræði bæði inn á -við og gegn öðrum þjóðum en fyrr.“ Bjarni Benediktsson bendir á, að frelsið þurfi að styrkja svo að það verði ekki stund- arfyrirbæri og til þess þurfi liðveizlu æskunnar, áræði hennar, dug og hugsjónir. Ungir menn skapi sér sjálfir áhugaefni en þó megi benda á hversu aukin þekking, tækni og vísindi eru nauðsynleg til velfarnaðar þjóðarheild og einstaklingum og þó sérstak- lega unga fólkinu. í bréfi sínu fer formaður Sjálfstæðisflokksins þess á leit við unga Sjálfstæðismenn, að þeir skipi „nefndir til rann sóknar á tilteknum, afmörk- uðum viðfangsefnum með það fyrir augum að álit þeirra megi verða til að móta stefnu flokksins í þeim“. Hann legg- ur til að fyrsta viðfangsefnið verði: „Menntun íslenzkrar æsku.“ í heimi örra breytinga og sívaxandi tækniþróunar er aukin og bætt menntun upp- rennandi kynslóðar sá grund- völlur, sem velmegun þjóðar- ínnar í framtíðinni byggist á. Þeim fjármunum, sem til hennar renna er vel varið og engin önnur fjárfesting ber ríkulepri ávöxt. Það er nauð- synlegt, að íslendingar geri sér Ijóst að núverandi ástand í þessum efnum er ekki full- nægjandi. Það kom einmitt skýrt fram í ræðum margra þekktra skólamanna á ráð- stefnu, sem Frjáls menning efndi til um þessi mál fyrir alllöngu. — Vel menntuð æska eru mestu auðæfi hverr- ar þjóðar og þess er knýjandi þörf, að fylgzt sé vandlega með því, að menntunarskil- yrði íslenzkrar æsku séu jafn- an aðhæfð nýjum og breytt- um tímum. Nú fyrir nokkrum dögum náðist samkomulag milli að- ila vinnumarkaðarins, sem mun skapa frið í landinu Um a.m.k. eins árs skeið. Með þessu samkomulagi, sem vafalaust er einn merk- asti atburður í tuttugu ára lýð veldissögu íslands, skapast nú tækifæri til að sinna í ríkari mæli öðrum viðfangsefnum, sem hingað til hafa orðið að sitja á hakanum. Eitt þeirra mála er mennt- un unga fólksins á íslandi og það er því vissulega gleðilegt, að formaður Sjálfstæðisflokks ins hefur nú snúið sér til ungra Sjálfstæðismanna með ósk um, að þeir rannsaki á- stand þessara mála til grunna. Ungir Sjálfstæðismenn hafa á að skipa innan sinna vé- banda fjölda vel menntaðra ungra manna og kvenna, sem eru góðum hæfileikum búin til þess að fjalla um þessi mál. Þess er að vænta að vel muni til takast og „ungir á- hugamenn innan flokksins muni enn auka áhrif æskunn- ar innan hans, efla flokkinn og skapa skilyrði vaxandi vel- megunar allrar þjóðarinnar, sem upprennandi kynslóð nyti góðs af,“ eins og Bjarni Benediktsson segir í bréfi sínu að lokum. BÆTTAR FRIDARHORFUR fjess hafa sézt merki um nokkurt skeið, að tals- verðar breytingar eru að verða á vettvangi alþjóða- mála. Samskipti Bandaríkjanna og Sovétríkjanna eru nú mun vinsamlegri en áður og frá því að samningurinn um til- raunabannið var gerður í Moskvu á sl. sumri hefur stöðugt þokast í rétta átt þótt hægt fari og samningar tek- izt um ýms veigamikil mál á öðrum sviðum, jafnframt því sem almenn samskipti þjóða vestan og austan járncjalds hafa aukizt til muna. Boðar „Pravda" alger vinslit? „Hættan á klofningi er staðreynd, sem heimshreyíing kommúnista hlýan að viðurkenna" Moskvu, 4. júní (AP-NTB) • Moskvublaðið „Pravda“ gefur til kynna í dag, að Sovétsjórnin kunni innan tíð- ar slíta að verulegu leyti tengslin milli kommúnista- flokkanna í Sovétríkjunum og Kína. Er tekið svo til orða í blaðinu, að „hættan á klofn- ingi er staðreynd, sem heims- hreyfing kommúnista hlýtur að viðurkenna . . . “ og síðar: „Marxist-Lenínistar óska ekki eftir klofningi, en óhugsandi er að slaka til í grundvallar- kenningum til þess að koma í veg fyrir að hann — og eining næst ekki sjálfkrafa“. • Ennfremur staðhæfir blað ið í dag, að meirihluti kommúnistaflokka h e i m s styðji hugmynd Sovétríkj- anna um að kalla saman ráð- stefnu, er taki afstöðu til hug- myndaágreinings Kína og Sovétríkjanna. — Vísar það meðal annars til lista er í gær birtist í tímaritinu „Kommún istinn“, hinu hugmyndafræði- Iega málgagni flokksins, yfir þá flokka, er fordæmt hefðu stefnu kínversku flokksbræðr anna, en lýst stuðningi við Rússa. Flokkarnir, sem þar eru taldir, eru 53, en á skrána vantar m.a. nöfn flokka sjö kommúnískra ríkja: N-Kóreu, N-Vietnam, Alabaníu, Kúbu, Rúmeníu, Júgóslavíu og að sjálfsögðu Kínverska alþýðu- lýðveldisins. „Izvestija" og „Pravda" reif- uðu mál þetta bæði í gær og í dag. Saka þau Kínverja meðal annars um, að hafa rofið vináttu samning Sovétríkjanna og Kína frá 1950, m.a. með þvi að láta hjá líða að veita Sovétstjórninni upplýsingar um utanríkismái, t.d. viðræður, er þeir hafi átt við er lendar sendinefndir o. s. frv. en ákvæði er um það í vináttusamn ingnum. Þá saka blöðin Kín- verja um að beita mútum og öðr um óheiðarlegum aðferðum til þess að fá kommúnista erlendis á sitt band. Einnig beiti þeir hótunum og þvingunum til að fá menn á sitt mál og ráði ýmsa ævintýramenn og svikara til þess að dreifa áróðursritum og hleypa upp fundum, þar sem stuðningsmenn Sovétríkjanna séu í meirihluta. Á Ættu að sjá að sér . , . í dag segir Pravda augljóst, að klofningur kommúnistahreyf- ingarinnar muni veikja mjög á- hrif hennar á alþjóðavettvangi. Því ættu Kínverjar að sjá að sér og hætta baráttu sinni gegn kommúnistahreyfingunni, hætta að látast vera leiðtogar hennar. Vita mættu þeir að meirihluti kommúnistaflokka heims for- dæmdu framferði þeirra. „Komm únistar annarra ríkja líta rétti- lega svo á að kommúnistaflokk ur Sovétríkjanna og miðstjórn hans séu hinir réttu og sönnu leiðtogar hagsmunabaráttu heimskommúnismans“, segir Pravda. Fréttamenn í Moskvu telja ó- BORGARST J ÓRI New York, Robert Wagner, gaf í dag skipun um að 1000 lögreglumenn, til við bótar venjulegum liðstyrk, yrðu á vakt á götum borgarinnar og í neðanjarðarbrautum næstu daga. Ástæðan eru auknar árásir þel- dökkra manna á hvíta menn und anfarna daga. Með efldum lög- regluverði, verður reynt að líklegt, að Sovétstjórnin slíti stjórnmálasambandi við Peking- stjórnina — hún muni vilja halda opinni viðræðuleið. Á hioci bóginn muni það skoðun hennar að sættir geti ekki tekizt úr þvi sem komið er — a.m.k. ekki i nánustu framtíð. Varðandi listann yfir flokkana 53 sem „Kommúnistinn“ birti í gær benda þeir á, að fyrir rúm- um mánuði birtist í sama tíma- riti svipaður listi, nema hvað þá voru taldir flokkar sjötíu ríkja, er tekið höfðu afstöðu gegn Pek ingstjórninni. Vist er talið, að Krúsjeff sé mjög í mun að alþjóðleg komm- únistaráðsdefna vefði haldin þegar í haust, en af hálfu ýmissa flokka, m.a. hins pólska og ítalska hefur verið hvatt til lengri frests til undirbúnings. Og af hálfu Pekingstjórnarinnar hefur verið staðhæft, að taka muni minnst fimm ár að undirbúa slíka ráð- stefnu. Er líklegt talið, að Pek- ingstjórnin geri því skóna, að kínverski kommúnistaflokkurmn og e.t.v. einnig stuðningsflokkar hans verði reknir úr heimshreyf- ingunni. Kommúnistaflokkarnir, sem lýst hafa opinberlega stuðningi við kommúnistaflokk Sovétríkj- anna að sögn tímaritsins „Komm únistinn" eru í eftirfarandi lönd um: S-Afríku, Ástraliu, Austur- ríki, Argentínu, Búlgaríu, Bras iliu, Bólivíu, Bretlandi, Belgiu, Bandaríkjunum, Colombíu, Costa Rica, Chile, Ceylon, Dóminí- kanska lýðveldinu, Danmörku, Frakklandi, Finnlandi, Grtkk- landi, Guatemala, Haiti, Hondur as, ítaliu, írlandi, N-írlandi, Ind landi, ísrael, frak, Jórdaniu, Kýp ur, Kanada, Luxemburg, Líban- on, Mongólíu, Martinque, Mexi- kó, Noregi, Póllandi, Portúgal, Paraguay, Austur-Pakistan, Perú Sviss, Sýrlandi, Salvador, Svi- þjóð, Spáni, Tékkóslóvakíu, Tyrk landi, Ungverjalandi, Uruguy, A- og V-Þýzkalandi. stemma stigu við árásum þess- um. Um helgina réðust þeldökkir á hvíta menn í fjórum neðanjarðar brautum, börðu þá og rændu. Robert Wagner segist staðráðinn í því að kóma á lögum og reglu í borginni, og leggur áherzlu á, að það séu ekki aðeins þeldökk ir, sem sök eigi á ofbeldisverkun um. Hvítir menn hafi einnig gerzt sekir um mörg fólskuverk. Ráðstofonir til að hamla gegn ölda ofbeldisverka í New York New York, 3. júní (NTB): Fyrstu merki þessarar þró- unar verða á stjórnartímum Kennedys hins látna forseta Bandaríkjanna, en hann beitti sér fyrir því á hinum stutta en merka stjórnarferli sínum, að hernaðarstyrkur Banda- ríkjanna var aukinn til muna jafnframt því sem gert var verulegt átak í því að bæta sambúðina við kommúnista- ríkin, með þeim árangri sem nú má sjá. Ástæður þess, að svo vel hefur til tekizt, eru vafalaust margar og er þeirra ekki sízt að leita í erfiðleikum í innan- landsmálum Sovétríkjanna, sem telja sér nauðsynlegt að fá nokkurn tíma til þess að takast á við erfiðleikana inn- anlands og í hinum kommún- íska heimi, sem logar nú í sundurlyndi og deilum. Ýmsir eru þó þeirrar skoð- unar að samkomulagsvilji Sovétstjórnarinnar eigi sér dýpri rætur, nefnilega þann að ráðamenn austur þar sjái fram á sxvaxandi erfiðleika í sambúðinni við Pekingsstjórn ina og telji sér nauðsynlegt að halda sæmilegum friði við hin vestrænu ríki, af þeim sökum. Alla vega virðist ljóst, að í ýmsum heimshlutum fari hagsmunir vestrænna ríkja og Sovétríkjanna nú meira saman en hagsmunir stjórn- anna í Moskvu og Peking. — Þannig er t.d. um málefni landanna í Suðaustur-Asíu en þar virðast áhrif Sovétríkj- anna fara síþverrandi um leið og áhrif Kínverja aukast þar að sama skapi og þeir reka þar mun árásarsinnaðri stefnu en Sovétstjórnin virðist hafa áhuga á. Þrátt fyrir það, að sambúð vestrænna þjóða og komm- únistaríkjanna hefur batnað svo til muna, verða vestræn- ar þjóðir þó að halda vöku sinni og styrkleika, því að enginn skyldi efast um það, að sjáist merki veikleika munu ráðamennirnir í Moskvu umsvifalaust notfæra sér það út í yztu æsar. Stefna vestrænna þjóða á þessum tímum mikilla breyt- inga í alþjóðamálum hlýtur því að verða sú, sem John F, Kennedy markaði í upphafi stjórnarferils síns, að við- halda og auka styrkleika sinn eftir því sem þörf krefur, jafnframt því sem leitast er við af fullri festu og einurð að bæta sambúðina við komm únistaríkin í austrL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.