Morgunblaðið - 09.06.1964, Síða 23
r ÞriSJuflafur 9. júní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
23
MIKILL. mannfjöldi horfði á
kappróður, sem fram fór í
Reykjavíkurhöfn siðdegis á
sjómannadaginn. Kappróðrar-
bátarnir komu í mark við
Faxagarð, og var þar fjöldi
áhorfenda, svo og um borð í
nærliggjandi skipum. Sveit
mb. Guðmundar Þórðarsonar
frá Reykjavík fór með sigur
af hólmi, og er betta í fimmta
sinn, s»m sú sveit vinnur lár-
viðarsveig Sjómannadagsins
fyrir róður.
Að loknum hátíðahöldum á
Austurvelli lá leið manna nið
ur að höfn, þar sem róðrar-
keppnin hóÆst kl. ijögur. Róin
var um 500 metra vegalengd,
úr Örfirisey inn að Faxagarði,
Mikill mannfjöldi fylgdist með kappróðrinum. Þarna
koma fyrst að markinu.
sést sveit m.s. Guðmundar Þórðarsonar
(jósm. Mbl.: Sv. Þormóðsson)
Cveit m.s. Guðm. Þórðarsonar
sigraði í kappróðri í 5. sinn
þar sem togararnir liggja,
þegar þeir eru í höfn.
í róðrinum tóku þátt átta
sveitir, þar af fjórar frá skips
höfnum, tvær í kvennaflokki
og tvær unglingasveitir. Fleiri
skipshafnir höfðu tilkynnt
þátttöku sína en voru fjarver
andi, þar sem mörg fiskiskip-
anna eru á leið norður til síld
veiða. Róið var í þremur riðl-
um, og fer hér á eftir skrá yf-
fr sveitir og árangur þeira.
1. riðill:
Róðrarsveit kvenna fisk-
iðjuversins Isbjarnarins 2:12,8
mínútur.
Róðrarsveit kvenna fiskiðju
vers Bæjarútgerðar Reykja-
víkur 3:33,6 mín.
Róðrarsveit sjóskátasveitar
innar Hákarls 2,56,5 mín.
2. riðill:
Róðrarsveit mto. Guðmund-
ar Þórðarsonar 2:39,4 mín.
Róðrarsveit mto. Sólrúnar
frá Bolungarvík 2:48,1 mín.
3. riðill:
Róðrarsveit ms. Lundeyjar,
Reykjavík, 3:00,6 mín.
Róðrarsveit björgunarbáts-
ins Gísla J. Johnsen, 2:40,5.
Róðrarsveit sjóvinnunám-
skeiðs Reykjavíkur 2:54,5.
Sigurvegari varð sveit Guð
mundar Þórðarsonar, stýri-
maður Haraldur Ágústsson.
Hlaut hún að verðlaunum lár
viðarsveig Sjómannadagsins
fyrir róður og auk þess Fiski-
mann Morgunblaðsins. — Er
þetta í fimmta sinn, sem
sveit Guðmundar Þórðarsonar
sigrar í kappróðrinum. Hver
keppandi sveitarinnar var
heiðraður með verðlaunapen-
ingi úr gulli.
Önnur varð sveit björgunar
bátsins Gísla J. Johnsen og
hlutu keppendur hennar silf-
urpening auk June Munktall
bikarsins, sem Gísli J. John-
sen gaf á fyrstu árum Sjó-
mannadagsins. — Stýrimaður
sveitarinnar var Jóhannes
Briem.
í kvennaflokki sigraði sveit
fiskiðjuversins ísbjarnarins,
undir forystu Ásgerðar Ás-
mundsdóttur. Hlaut sveitin að
verðlaunum bikar, sem ís-
björninn gaf til keppni í
kvennaflokki í fyrra.
í unglingaflokki sigraði
sveit sjóvinnunámskeiðsins,
stýrimaður Hörður Þorsteins-
son. Hlutu meðlimir hennar
verðlaunapeninga.
Árangur sveitar Guðmund-
ar Þórðarsonar er einn hinn
bezti, sem náðst hefur, en erf
itt er samt að dæma um slíkt,
þar sem veður og sjávar-
straumar hafa sitt að segja í
keppni sem þessari.
Sigursveit in.s. Guðmundar Þórðarsonar.
Byrjað á Kötlugörðum
Vík, 3. júní 1964: —
EINS OG kunnugt er, hefur tals
vert verið um það rætt, að ýta
upp varnargörðum á Mýrdals-
sandi. Tveir þeirra eiga að vera
austur í Álftaveri og einn til
tveir skammt frá Vík í Mýrdal.
Ætlunin er að sjá, hvort þessir
varnargarðar geti hindrað skaða
af vatnsflóðum, sem fylgja Kötlu
gosum. Ragnar Jónsson, alþing-
ismaður bar þetta mál fram á
alþingi, þar sem það hefur hlot-
ið afgreiðslu.
' Fyrir rúmum mánuði var svo
byrjað á varnargörðunum í Álfta
veri. Við þetta verk eru nær ein-
göngu notaðar jarðýtur. Þessir
garðar verða samtals um 500 m.
að lengd og upp í rúma 3 m. að
hæð. Þeim er fyrst og fremst ætl
að að verja flugvöllinn í Álfta
yeri og aðkeyrsluna að honum.
við Vík verða mun stærri og á
þeim verður byrjað fijótlsga í
sumar. Aðalgarðurinn verður
hér um bil 300 m. langur og um
6 m. á hæð. Honum er ætlað að
kom í veg fyrir að vatnsflóð frá
Kötlugosi skelli á Víkurkauptúni.
Þjóðvegurinn verður svo lagður
yfir þennan garð miðjan eða þar
sem garðurinn endar að sunnan
verðu.
Það er Brandur Stefánsson,
vegavinnuverkstjóri í Vík, sem
stjórnar þessum framkvæmdum
og þegar ég spurði hann frekar
um þetta mál og þörfina á þess-
um framkvæmdum, sagði hunn:
„Aðstæður eru það gjörbreytt-
ar frá 1918, að ég tel hættuna á
vatnsflóði frá Kötlu miklu meiri
núna en þá. Það er því mjög þýð
ingarmikið fyrir Víkurkauptún,
að alþingi hefur nú heimilað fjár
veitingu til þessa“.
| Varnargarðarnir rétt austan
— Fréttaritari.
Stéttarfélag bænda:
Gunnar Guðbjartsson flytur skýrslu stjómarinnar. Á myndinni
Bjást m.a. úr stjórn Stéttarsambandsins Einar Ólafsson Lækjar-
hvatnmi, Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrv. alþm. Bjarni Halldórs-
Mo á Uppsölum, forseti fundarins og fleiri .
A fundinum í gœr ríkti
einhugur og góður andi
Aðalfundur Stéttarsamtoands
bænda er haldinn um þessar
mundir í Reykjavík.
Er það í fyrsta skipti sem
fundurinn er haldinn á þessum
árstíma, Venjulega hefur hann
verið haldinn að hausti til, en
í þetta skipti er hann haldinn
í byrjun sumars.
Fulltrúar eru margir, 2 úr
hverri sýslu, en auk þess sitja
fundinn meðlimir framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins auk margra
gesta.
Fundurinn hófst í gærmorgun
kl. 10 með því að kosnir voru
embættismenn. Forseti fundar-
ins var kjörinn Bjarni Halldórs-
son frá Uppsöluim og til vara
Sigurður Snorrason frá Gils-
bakka.
Ritarar voru kjörni Guðmund-
ur Ingi Kristjánsson frá Kirkju-
bóli og Einar Halldórsson, Set-
bergi í Garðahreppi.
Kristján Thorlacius frá Sam-
bandi starfsmanna ríkis og bæja
ávarpaði fundinn, en Sæmund-
ur Friðriksson lagði fram reikn-
inga stéttarfélagsins.
Þá flutti forseti Stéttarfélags
bænda, Gunnar Guðbjartsson á
Hjarðarfelli skýrslu stjórnarinn-
ar, sem var mjög ýtarleg og var
þar komið víða við.
í samtali við blaðamann Mbl.
seinni hluta dagsins sagði Gunn
ar, að í umræðunum um málefni
bændastéttarinnar hefði ríkt
einhugur og góður andi. Hann
kvaðst vonast eftir, að störf fund
arins yrðu árangursrík og til
heilla bændastéttinni.
Eftir framsöguræðurnar hófust
fjörugar umræður, sem stóðu
lenigi dags. Voru þar mest til
umræðu verðlagsmál og verð-
lagsgrundvöllur bændastéttar-
innar. Fulltrúarnir snæddu sam
an hádegisverð og druikku kaffi
saman í húsakynnum bændahafi-
arinnar.
Kosið var í nefndir og munu
þær starfa fyrir hádegið á morg-
un, en fundur hefst aftur á morg
un um kaffileytið. Búizt er við
að fundinum ljúki aðra nótt.
Egsjataka
Akranesi, 8. júní.
MAÐUR einn á miðjum aldri fór
í Akrafjall í gær og tíndi - '^i-
bjölluegg og skyggndi þ i-
óðum. Henti hann 20—t j-
um, sem unguð voru. Hei. m
hann með tvær töskur og poka
á baki, sem höfðu að geyma 130
nýorpin veiðibjölluegg. Ekki
veit ég, hvort hann keypti sór
eggjatínsluleyfi. — Oddur.