Morgunblaðið - 09.06.1964, Page 31
ÞriSjudagur 9. júní 1964
MORGU N BLAÐIÐ
31
Tveir aldraðir sjómenn, sem sæmdir voru gullmerki sjómanna-
dagsins á Akureyri. Frá v.: Þorsteinn Stefánsson, skipstjóri og
Kristján Sigurjónsson, sjómaður.
S jómannadagur-
inn á Akureyri
Akureyri, 8. júní
HÁTlÐAHÖLD sjómannadags-
ráð á Akureyri hófust kl. 20.00
á laugardagskvöld með kapp-
róðri á Akureyrarpolli. Róin var
500 m vegalengd. Þar kepptu
sveitir frá ýmsum félögum og
fyrirtækjum á Akureyri og þar
að auki sveitir sjómanna frá Ár-
skógströnd og Grenivík. Bezt-
an tíma náði sveit sjómanna af
Árskógsströnd, 2.25,7.
Á sunnudagsmorgun söng séra
Pétur Sigurgeirsson sjómanna-
messu í Akureyrarkirkju og flutti
cinnig hátíðaræðu á útisam-
I:omu við Sundlaugina eftir há-
^.egi. Þar fór fram keppni í
sundi. Björgunarsund og stakka-
sund unnu þeir Björn Arason,
Birgir Aðalsteinsson og Smári
Thorarensen, en skyrtuboðsund
sveit Björns Þórissonar, Atla-
stöngina (fyrir bezta sundafrek
dagsins) hlaut Björn Arason.
Að keppninni og verðlauna-
afhendingu lokinni voru tveir
aldraðir sjómenn heiðraðir, þeir
Þorsteinn Stefánsson, hafnar-
vörður og fyrrv. skipstjóri, sem
setið hefur í sjómannadagsráði í
25 ár, og Kristján Sigurjónsson,
sjómaður. Báðir hafa þeir stund-
að sjóinn frá unga aldri og Krist
ján stundar síldveiðar innfjarð-
ar enn.
Þá var til aflhendingar vik-
ingaskip úr silfri, sem fyrrv.
skipverjar af Snæfugli SU 21
sendu Trausta Gestssyni og skips
höfn hans af mb. Guðmundi Pét-
urs, sem þakklætisvott fyrir
björgun úr sjávarháska, er Snæ-
fugl fórst fyrir Austurlandi hinn
30. júlí 1963. Trausti var á leið
til Krossaness með síldarfarm,
er afhendingin skyldi fara fram.
en hann er nú skipstjóri á Snæ-
felli.
Kl. 16.30 fór svo fram björg-
unarsýning á Pollinum, og vakti
hún geysilega athygli bæjarbúa,
sem röðuðu sér unj bryggjur og
brekkur til að horfa á. Þyrla af
Keflavíkurflugvelli sýndi björg-
un úr sjávarháska og lendingar
á þilfari varðskipsins Óðins, sem
kom til Akureyrar gagngert af
þessu tilefni.
Veður var hið bezta og svipur
hátíðahaldanna öllum til hins
mesta sóma.
Formaður Sjómannadagsráðs
Akureyrar er Ottó Snæbjörns-
son, en framkvæmdastjóri er
Stefán Snæbjörnsson. — Sv. P.
— Aukin áhrif
Framh. af bls. 1
góðu verið áorkað fyrir isienzku
þjóðina, sem ekki sízt þess vegna
býr nú við meira frjálsræði bæði
inn á við og gegn öðrum þjóð-
um en fyrr. En frelsið þarf að
styrkja, svo að það verði ekki
stundarfyrirbæri. Til þess þarf
liðveizlu æskunnar, áræði henn-
ar, dug og hugsjónir. Auðvitað
skapa engir aðrir ungum mönn-
um áhugaefni. Þau velja þeir sér
sjálfir. Þó leyfi ég mér að benda
é, hversu aukin þekking, tækni
og vísindi eru nú á dögum nauð-
synleg til velfarnaðar þjóðar-
heildar og einstaklinga og þá
einkanlega æskulýðsins.
Þess vegna leita ég nú til sam-
taka ungra Sjálfstæðismanna,
bæði Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna og öflugasta félags-
ins, Heimdallar, með ósk um að
þessir aðilar skipi nefndir tLl
rannsóknir á tilteknum, afmörk-
uðum viðfangsefnum með það
fyrir augum, að álit þeirra megi
verða til að móta stefnu flokks-
ins í þeim. Ef á þetta verður
fallizt færi vel á, að fyrsta við-
fangsefnið yrði „Mermtun is-
lenzkrar æsku“.
Takist vel til, svo sem vonandi
verður, mundu hinir ungu á-
hugamenn flokksins enn auka á-
hrif æskunnar innan hans, efla
flokkinn og skapa skilyrði vax-
andi velmegunar allrar þjóðar-
innar, sem upprennandi kynslóð
nyti góðs af.
Vinsamlegast
Bjarni Benediktsson".
(sign.)
— Góðor horfur
Framh. af bls. 1
afstöðu til. Þeir eru helztir samn
ingsmenn þessarar stefnuskrár
Nelson Rockefeller, ríkisstjóri í
New York, William Scranton
frá Pennsylvaninu og George
Eomey frá Michigan.
RICHARD M. Nixon, fyrrver-
andi varaforseti Bandaríkjanna,
sagði í dag að yrði Barry Gold-
water fyrir valinu sem forseta-
efni repúblikana, myndi hann
verða að lýsa yfir stuðningi sín-
um við stefnuskrá, er flokkurinn
gæti allur sameinazt um. Stefnu
skrá sú, sem ríkisstjórafundur-
inn í Cleveland er nú að semija,
kemur ekki alls kostar heim við
skoðanir Goldwaters, sem þó hef
ur upp á síðkastið aðlagað skoð-
Verðlaunahafar í sundi á sjómannadaginn á Akureyri. Frá v.: Björn Arason, Smári Thornrensen
og Birgir Aðalsteinsson. (Ljósm. Mbl.: Sv. P.)
anir sínar æ meir skoðunum Eis-
enhowers og Nixons, og er nú
ekki með þeim ágreiningur um
aðalatriði, utan eitt: réttindi
biökkumanna.
Hvort fllokkurinn sundrast á
landsþinginu, fer eftir því, hver
valinn verður forsetaefni, og
hvort sá, sem valinn verður, hef-
ur þá hæfileika, sem til þarf til
að fylkja honum um sig. Nixon
taldi allar horfur á því, að sundr
ung yrði í Repúblikanafllokknum,
ef forsetaefnið lýsti ekki yfir
stuðningi sínum við yfirlýsta,
hefðbundna stefnu repúblikana.
— Laos
Framhald af bls. 7
lega eftilitsnefndin hefði ekki
verið fær um.
Sendiherra Sovétríkjanna og
Breta í Vientiane hafa ákveðið
að fara til fundar við Souvanna
Vong — foringja Pathet Lao á
Krukkusléttu næstkomandi mið-
vikudag. Hefur Souvanna Vong
sjálfur beðið þá að koma og
heyra tillögur, sem hann kveðst
hafa til idumar deilumálunum í
Laos.
★
Af bardagasvæðinu í Laos ber-
ast þær fregnir, að hermenn
hlutlausra haíi á sínu valdi um
það bil nelmxng hæðarinnar Phou
Koutt, sem er 1250 metrar á hæð
og mjög mikilvæg hernaðarlega,
þar sem þaðan er hægt að ráða
öllu um umferðina um veginn
til Muong Suoi, einnar af bæki-
stöðvum hlutlausra u.þ.b. 30 km.
norðvestur af Krukkusléttu. Hin-
um helmingi hæðarinnar halda
hermenn Pathet Lao.
Þá herma fregnir, að her-
mönnum Pathet Lao hafi tekizt
að loka inni í bænum Muong
Kheung, 25 km. norður af slétt-
unni herdeild með u.þ.b. tuttugu
brynvarðar bifreiðir. Komast bif-
reiðarnar ekki leiðar sinnar, þar
sem vegir eru meira eða minna
eyðilagðir utan einn, sem Pathet
Lao hefur á sínu valdi.
Brazzaville, 8. júní AP.
í DAG Kom til Brazzaville í
Kongó (fyrrum franska
Kongó) fyrsti sendiherra
Pekingstjórnarinnar. Er það
Chew Chow Yeh, 51 árs að
aldri, fyrrum ráðgjáfi kín-
verska sendiráðsins i Bel-
grad og sérfræðingur í mál-
um Asíu-ríkja.
Urmið við laxa-
stiga
Valdastöðum, 5. júní.
í SL. ári var unnið við að gera
laxastiga í Brynjudalsá, en því
verki var þá ekki lokið. Nú er
aftur hafin vinna við það verk,
og mun ætlunin að ljúka því nú.
Nýverið heyrði ég, að töluvert
magn af laxaseiðum hafi verið
gengið upp að fossinum, og hafi
nokkuð af þeim verið handsam-
að og flutt upp fyrir fossinn.
Áður var annar ólaxgengur foss
neðar í ánni, og var hann gerður
laxgengur fyrir nokkrum árum,
svo að nú lítur út fyrir, að takast
megi að rækta upp lax í ánni.
Kjósarskarðsvegur
Nú undanfarið hefir verið
unnið að mælingum að Kjósar-
skarð=vegi milli Þingvallasveit-
ar og Kjósar. Nokkuð mun hafa
verið unnið í þeim vegi sl. sum-
ar, og fær mun hann bílum eins
og er. En þó er mönnum ráð-
lagt að fara aðeins á bílum, sem
hafa drif á öllum hjólum á með
an frekari umbætur eru ekki
gerðar á þessari leið. — St. G.
Scra Gunnar
Jóhannesson í
Skarði sextugur
Geldingaholti, 8. júní.
SÉRA Gunnar Jóhannesson, pró-
fastur í Skarði, átti sextugsaf-
mæli í gær. Messaði hann í Skál-
holtskirkju kl. eitt, en kirkjukór
Stóranúpskirkju söng með undir-
leik Kjartans Jóhannessonar á
Stóranúpi.
Fjöldi fólks heimsótti séra
Gunnar á afmælisdaginn, sóknar-
börn úr Stóranúps-, Hrepphóla-
og Ólafsvallasóknum, og margt
annarra vina. Var þar setið í góð-
um fagnaði langt fram á kvöld
við rausnarlegar veitingar. Þá
bárust honum góðar gjafir og
fjöldi heillaóskaskeyta.
Séra Gunnar hefur verið prest-
ur hér í Stóranúpsprestakalli
rúma þrjá áratugi og ex* nú pró-
fastur í Árnesprófastsdæmi. —
Kona hans er Áslaug Gunnlaugs-
dóttir, og eiga þau fjögur upp-
komin böx-n. — J. Ól.
Bonn, 8. júní NTB.
V-ÞÝZKA flugfélagið Luft-
hansa hefur bætt mjög fjár-
hagsaðstöðu sína á síðasta ári
og var nú í fyrsta sinn gróði
á rekstri fyrrtækisins —
u. þ.b. 850.000 ísl. krónur.