Morgunblaðið - 30.06.1964, Blaðsíða 1
28 siður
51 árgangur
149. tbl. — Þriðjudagur 30. júní 1964
Prentsniiðja Mcrgunblaðsins
Prins Philip, hertogi af Edinborg, og Elizabet drottning er hertoginn var í þann veginn að
leggja af stað í íslandsförina, frá Lossiemouth i Skotlandi. Myndin var tekin um borð í bátn-
um, sem flutti hann um borð í Brittania. — Símamynd: Sco tti&h Daily Mail.
iimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiimiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiu
Aðeins einn sovéskur
fáni á lofti í Oslo —
er Krúsjeff fór um borgina í gær — Skap
hans fer eftir veðri, segja fréttamenn *
Einkaskeyti til Morgunbl.
Osló, 29. júní — Skúli
Skúlason.
HEIMSÓKN Krúsjeffs, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna
til Noregs, hefur gengið eftir
áætlun hingað til. Er Krús-
jeff steig á land í Osló, höfðu
um 3000 manns tekið' sér stöðu
að baki sérstakri girðingu,
sem komið hafði verið upp.
Strangt eftirlit var haft með
öllum, sem nærri komu for-
sætisráðherranum og fylgdar
Xiði hans, og hafði fjöldi lög-
reglumanna verið kvaddur til,
til að gæta þess, að etfir öil-
um öryggisreglum væri farið.
Sérstakt eftirlit var haft
með fréttamönum, sem fengu
að fylgjast með þvi úr nálægð
er Einar Gerhardsen, forsætis
ráðherra, heilsaði Krúsjeff. —
Bryg'gjan, þar sem hann steig
á land, hafði verið sérstaklega
skreytt í tilefni komunnar.
Eftir landgönguna voru
haldnar margar ræður, mun
fleiri, en gert hafði verið ráð
fyrir, og frú Krúséff voru
færð blóm. Þá lék herhljóm-
sveit „Internationalinn“, en
síðan var norski þjóðsöngur-
inn leikinn. Gestirnir virtu't
mjög ánægðir með móttökuin
ar, og Krúsjeff veifaði ákaft
til fólksins.
Er forsætisráðherrann gekk
til sovézka sendiráðsins kváðu
við húrrahróp. Síðan hittu
gestirnir erlenda sendimenn
að máli, en að þeim fundi
loknum var haldið til norska
stórþingsins. Þar tók Lang-
helle, þingforseti, á móti gest
unum erlendu.
Við stríðsminnismerkið við
Akershus lagði Krúsjeff blóm
Framhald á bls. 27
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHU
Styður USSR Kína
ekki í styrjöld?
Sovézka stjórnin lét í dag
að því liggja, að hún muni
ekki leggja Pekingstjórninni
lið með kjarnorkuvopnum,
hefji Alþýðulýðveldið Kína
styrjöld.
Ummælin komu fram, eftir
margháttaðar yfirlýsingar af
sovézkri hálfu, þar sem segir,
að „andstyggileg and-sovézk
afstaða“ kunni að draga úr
4-
Helmsókn hertogans af
Edinborg hefst í dag
Hann leggur að landi
við Loftsbryggju
kl. 5 síðdegis
★ t DAG, kl. 5 síðdegis, hefst íslandsheimsókn Philips
pr.ns, hertogans af Edinborg, eiginmanns Elisabetar Englands
órottningar. Mun hann dveljast hérlendis í þrjá daga í boði
forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgoirssonar.,
-Á Varðskipið „Óðinn“ tekur á móti Konungssnekkjunni
rBritannia“ í Faxaflóa og fylgir henni til Reykjavíkur. Verð-
wr komið á ytri höfnina um kl. 4.30 og kl. 5 kemur hertoginn
í land við Loftsbryggju. Þar taka á móti honum forseti ís-
llands, herra Ásgeir Ásgeirsson; Bjarni Benediktsson. forsæt-
iisráðherra og Guðmundur í. Guðmundsson, utanríkisráð-
herra, auk annarra — en þaðan verður ekið rakleiðts til AI-
þingishússins, þar sem stutt mótökuathöfn fer fram.
★ Á miðvikudag fer hertoginn til Þingvalla og tim
Uxahryggi í Norðurárdal, þar sem hann rennir fyrir lax.
Þiiðan. fer hann flugleiðis til Akureyrar og síðar um kvöldið
að Mývatni. Þar dvelzt hertoginn þar til síðdegis á fimmtu-
dag er hann fer aftur flugleiðis til Reykjavíkur. Á föstudags-
morgun verður hann í Reykjavík — mun litast um í borginni
sækja heim hrezka sendiráðið og Þjóðminjasafnið, og e.t.v.
fleiri staði, ef tími vinnst til. En kl. 12 á hádegi leggur hann
af stað heimleiðis frá Reykjavíkurflugvelli.
-jt Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar virðist út-
lit fyrir, að hertoginn fái að sjá Akureyri og Mývatn í björtu
og góðu veðri. Er spáð, að veður verði svipað og verið hefur
sunnanlands og vestan; suðvestanátt, skýjað en úrkomulítið.
Ilinsvegar muni veður hatna mjög. er norðar dregur og aust-
ar — má búast við, að þurrt verði og léttskýjað á svæðinu
milli Akureyrar og Egilsstaða.
Hertoginn lagði upp frá Lossi-
emouth í Skotlandi s.l. laugar-
dag kl. fjögur síðdegis, að stað-
artima. Kona hans, drottningin,
kom um borð í konungssnekkj-
una „Britannia" nokkru fyrir
hádegið ásanjt syni þeirra, Charl
es prins, og snæddu þau hádegis-
verð með hertoganum. Charles
prins stundar nám í Gordons-
toun skólanum, skammt frá
Lossiemouth en mun næstu
daga dveljast með móður sinni
í orlofi í Skotlandi.
Höfnin í Lossiemouth var fán-
um prýdd og fjöldi fólks, meðal
annars margt ferðamanna, hafði
safnazt saman á hafnarbakkan-
um. Margir klifruðu um borð í
Framhald á bis. 2
vilja Sovétríkjanna til að
verja Kína.
Það var varautanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Valerian
Zorin, sem túlkaði þessa af-
stöðu í stjórnarblaðinu „Iz-
vestia“.
Zorin vék sérstaklega að yfir-
lýsingu sovézku stjórnarinnar,
stm gefin var 21. september sl.
Ein setning — sem lítill gaunvur
var gefin á þeim tíma — segir,
að Kína verði að treysta á eigin
kjarnorkuher, ef stjórn þess
hvggist fylgja eftir þeim stefnu-
málum, sem önnur sósialisk riki
geta ekki sjálf fylgt eftir með
herafli.
Frá því að þetta var ritað hafa
Sovétrikin ásakað Kína fyrir slík
ar aðgerðir.
Grein Zorins víkur að mis-
munandi skoðunum Moskvu og
Peking á afvopnun, og þar er
endurtekin sú gagnrýni sovézku
stjórnarinnar, sem víkur að vilja
kinverskra ráðamanna til að
eignast kjarnorkuvopn.
Vikið er að þeirri hugmynd
Pekingsstjórnarinnar að eignast
kjarnorkuvopn, og um hana sagt,
að „öryggi Kína sé tryggt“, nema
því aðeins, að Kínverjar hafi í
hyggju einhverjar þær aðgerðir,
sem sósíalistaríkin geti ekki stutt
með herafli.
„. . . . en aðeins þeir, sem
hafna alþjóðastefnu öreiganna,
þeir sem víkja frá meginstefnu
sósíalista í utanríkismálum, þeir
sem vilja ekkert hafa með stefnu
Lenins — friðsamlega sambúð,
geta átt sér slíkt stefnumál", seg-
ir Zorin.
Zorin lýsti því loks yfir, að
viiji Pekingstjórnarinnar til að
kjarraorkuvæðast sé í beiniu sam-
bsndi við „frávik" hennar firá
helztu stefnumálum kommún-
istahreyfingarinnar".