Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 1
24 síðtifr
61 árgangur
192. tbl. — Miðvikudagmr 19. ágúst 1964
Prentsmiðia Morgunblaðsins
Forsætisráöherra hitti
Johnson í Washington í gær
Brugðu á glens I garði Hvíta hússins
Washington, 18. ágúst. — AP
0 BJARNI Benediktsson,
forsætisráðherra íslands,
kom til Washington laust fyr-
ir hádegi í dag með sérstakri
flugvél bandaríska hersins.
Heimsótti hann fyrst Lyndon
B. Johnson, forseta Banda-
ríkjanna, en sat síðan hádeg-
isverðarboð, er Dean Rusk,
utanríkisráðherra, hélt hon-
um til heiðurs í utanríkis-
ráðuneytinu. Að því loknu
hélt hann til Arlington-
kirkjugarðsins og lagði blóm-
sveig að leiði hins látna for-
seta, Johns F. Kennedys.
Q Heimsóknin í Hvíta hús-
ið var með öllu óformleg og
afar frjálsleg. Vakti það at-
hygli fréttamanna, að John-
son, forseti gekk með íslenzka
forsætisráðherranum um garð
forsetabústaðarins og sýndi
honum íunhverfið. Lék for-
setinn á als oddi og brugðu
báðir á glens. Einnig kynnti
hann gest sinn fyrir stórum
hópi ferðamanna, er þar var
var staddur.
• Að loknum hádegisverðinum
hjá Rusk, utanríkisráðherra, sem
stóð yfir í tvær klst. skýrði ís-
lenzki forsætisráðherrann svo
frá, að hann hefði rætt þar við
Rusk ýmis vandamál Atlantshafs-
bandalagsins. „Ég er Rusk, utan-
Skógar-
eldar í
Nevada
Nevada 18. ágúst. — AP.
• Um tvö þúsund manns berjast
iiú við mikla skógarelda, er geis-
að hafa í Nevada í nokkra daga.
Eru eldarnir mestir á sex stöðum
i norðausturhluta landsins og
iést bjarminn frá þeim nálægt
500 km. fjarlægð. All hvasst er
i eldasvæðinu og slökkvistarfið
erfiðleikum háð.
Óttast er um bæinn Elko, þar
lem búa rúmlega sex þúsund
manns, því að hann er umkringd
ar brennandi skógi á þrjá vegu.
Nýr forseti
í Líbanon
Beirut, Líbanon, 18. ág. — AP.
• í dag kaus þingið í Líbanon
nýjan forseta landsins. Var kjör-
inn Charles Helou, 51 árs að aldri
með 90 atkvæðum gegn 5. Tveir
þingmenn sátu hjá. Helou tekur
við embætti 23. sept. n.k. af Fuad
Chehab, sem gengt hefur embætt
inu frá því 1958. Hann neitaði
að verða í framboði aftur.
ríkisráðherra, sammála um, að
mjög sé mikllvægt, að aðildar-
ríki NATO leysi sjálf sín í milli
þau ágreiningsmál, er uPP kunna
að koma innan bandalagsins,"
sagði forsætisráðherrann. Hann
bætti við, að það kæmi öllu
meira í hlut Bandaríkjanna en
íslands að veita aðstoð við lausn
vandamála, — en hann og stjórn
hans hefðu af því ánægju og
teldu sér heiður af því að hon-
um hefði gefizt tækifæri til að
ræða ástand heimsmálanna við
ráðherrann. m
„Viðræðurnar voru mjög fróð-
legar“, sagði hann og bætti við,
að hann hefði haft mikla ánægju
af að hitta Johnson og Rusk.
• Forstætisráðherrann sagði, að
hin óformlega heimsókn hans í
Hvíta húsið hefði verið „mjög
vinsamleg". Kvað hann forsetann
hafa sagt sér frá ýmsum störfum
sínum og rætt um hið góða sam-
band hans við Bandaríkjaþing.
Ennfremur hafði hann látið í
’ljósi ánægju yfir þeirri vinsemd,
er ríkti milli ríkja þeirra.
• Forsætisirátðherrann og Björn
Bjarnason, sonur hans, sem var
Framhald á bls. 23.
Mynd þessi (símamynd frá AP) var tekin síðdegis í gær, eftir að
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra íslands hafði lagt blóm-
sveig á leiði John F. Kennedys, fyrrum forseta, í Arlington.
kirkjugarðinum. Við hlið forsætisráðherra stendur Frank W.
Norris, hershcfðingi.
íslenzki foi’sætisráðherrann gaf Johnson Guðbrandsbibhu
Lagði blcmsveig frá íslenzku
þjóðinni á leiii Kennedys
Samtal við dr. Bjarna Benediktsson um
heimsóknina í Hvita húsið
FRETTAMAÐUR Morgun-
blaðsins átti í gær símtal
við dr. Bjarna Benedikts-
son, forsætisráðherra,
skömmu eftir að hann kom
af fundi Johnsons, Banda-
ríkjaforseta, en eins og
kunnugt er hitti hann for-
seta Bandaríkjanna að máli
í Hvíta húsinu í gærmorg-
un. Fréttamaðurinn spurði
Lyndon B. Johnson, Bandaríkja forseti sýnir forsætisráðherra garðinn umhverfis forsetabústaði nn. Hvíta húsið í baksýn.
(Símamynd frá Ar).|
forsætisráðherra um fund
þeirra Johnsons, og sagði
hann að þeir hefðu átt al-
mennar viðræður um ýmis
mál og yrði síðar gefin út
tilkynning um viðræðurn-
ar. Ekki sagði forsætisráð-
herra að sérstaklega hefði
verið rætt um nein vanda-
mál milli íslands og Banda
ríkjanna. „Við þurfum ekki
að tala um þau“, sagði for-
sætisráðherra, „því þau
eru ekki fyrir hendi“.
Fréttamaður Mbl. spurði
hvort Johnson Bandaríkjafor
seti, hefði minnzt á ferðalagið
til íslands og svaraði forsæt-
isráðherra því játandi. Hann
sagði að Johnsön hefði m. a.
minnzt með góðlátlegri kímni
á mótmælaaðgerðirnar gegn
sér í Reykjavík og spurt,
hvort slíkir hlutir gerðust oft
á íslandi.
Dr. Bjami Benediktsson
sagði ennfremur, að Johnson
hefði lýst sérstakri ánægju
sinni yfir íslandsferðinni.
I*egar dr. Bjarni Benedikts-
son kom að Hvita húsinu var
Johnson Bandarikjaforseti úti
í garðinum og tók hann með
sér í gönguför um garðinn,
sýndi honum umhverfið og
lýsti fyrirkomulagi öllu.
Þegar þeir komu að hliði
H-víta hússins, sá forsetinn
Framhald á bls. 17.