Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAQÍÐ Miðvikudagur 19. ágúst 1964 Fulltrúar Oslóar í heimsókn í boii Reykjavíkurborgúr Talað við þá um skattamá I ráðhús og fl. í gær var fréttamönnum boðið að hitta borgarfulltrúa frá Osló, sem hingað eru komnir í heim- sókn á vegum Reykjavíkurborg- ar. Gestirnir snæddu hádegis- verð í boði borgarráðs, en á eftir héjdu þeir fund með frétta mönnum og verður hér á eftir litillega sagt frá því, sem þar kom fram. Gestirnir, sem hingað eru komnir eru þessir: Brynjulf Bull, forseti borgar- stjórnarinnar. Hann er hæsta- réttarlögmaður og hefir verið borgarfulltrúi Verkamanna- flokksins frá 1946 og forseti borgarstjórnar Við og við um all langt skeið. Ivar Mathisen, varaforseti borgarstjórnar. Hann hefir ver- ið borgarfulltrúi Verkamanna- flokksins síðan 1956. Rolf Stranger, fyrrum forseti borgarstjórnar. Hann hefir -ver- ið borgarfulltrúi hægri manna frá 1926. John Johansen, hefir verið borgarfulltrúi Verkamanna- flokksins síðan 1936. Albert Nordengen, bankastjóri, sem verið hefir borgarfulltrúi hægri flokksins frá 1952. Egil Storstein, borgarstjóri fjármála í Osló frá 1948. Gunnar Bech, borgarritari í Osló um langt skeið. Eiginkonur sumra borgarfull- trúanna eru einnig með í ís- landsferðinni. Góðir gestir í hádegisverðarboðinu bauð Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, gestina velkomna og sagði að sér væri það sérstök ánægja að ávarpa svo góða fulltrúa frá Osló. Kvaðst hann vona að heim sókn þeirra yrði þeim til gleði og þeir eignuðust góðar minning ar um dvöl sína hér. Borgar- stjóri §agði ennfremur að nor- ræn sámvinna hefði m.a. sett svip á samskipti borga á Norður löndum og nefndi þar til ýmsa málaflokka, s.s. íþróttir, mennta mál ö.fl. Þessi heimsókn væri , hin íyrsta einkaheimsókn Osló- | borgar, og mætti segja að það værj sérstök hátið að bjóða vel- komna hina norsku frændur og vini á ^fmælisdegi Reykjavíkur. Hér væri því um einskonar af- mælisveizlu að ræða. Að vísu ætti afmælið rætur að rekja til þess, þegar Reykjavík fékk rétt- indi kaupstaðar, en hinsvegar væri ekki vitað hvaða dag önd- vegissúlur Ingólfs Arnarsonar hefðu flotið á land við sundin blá. Ef það hefði verið vitað, hefðu hinum norsku frændum okkar verið boðið þann dag. „En tilviljanirnar eru margar'j, sagði borgarstjóri ennfremur, og bætti við að vel mætti segja að súlum ar hefðu flotið á land 18. ágúst 874 og þá væru nú 1090 ár lið- in frá þeim degi, þegar hinn sameiginlegi landi íslendinganna og Norðmannanna nam ísland og 'kveikti þar með örlög Reykja vikur og íslands, ef svo mætti segja. Borgarstjóri sagði að lok um að hann vonaðist til þess að vináttu Reykjavíkur Oig Oslóar, Norðmanna og íslendinga bætt- ist enn eitt lóð á vogarskálina með heimsókn hinna góðu gesta. Þess má geta að norsku gest- irnir staldra hér við í 5 daga og munu kynna sér margvíslega starfsemi, sem rekin er á vegum Reykjavíkurborgar. Þeir munu skoða skóla og menningarstofn- anir, sjúkrahús, atvinnufyrir- tæki, Árbæ o.fl. Brynjulf Bull, forsetí borgar- stjórnar Oslóar þakkaði vinsam- leg orð Geirs Hallgrímssonar. Flutti hann ræðu sína í léttum tóni og sagði brosandi, að það værj íslendinga sjálfra að kom ast að raun um, hvenær önd- vegissúlurnar hefðu flotið að landi. Norðmenn þyrftu við ým is önnur vandamál að glíma. Eitt af því hefði verið að ákveða, hvenær Osló hefði verið stofn- sett „og til að komast á rétt spor“ sagði forseti borgarstjórn- arinnar, „fórum við auðvitað í heimildir Snorra, sem einnig mun vera þekktur hér á landi! Eftir margvíslegar athuganir og umstang var svo ákveðið að Osló hefði verið stofnsett árið 1050 og var síðan unnt að halda góða hátíð í tilefni dagsins, árið 1950.“ Brynjolf Bull sagði enn- fremur að vel væri unnt að hugsa sér að Ingóífur Arnarson hefði valið sér ágúst-mánuð til ferðarinnar norður hingað, því nú væri fallegur árstími, og ef hann hefði átt von á jafn góðri máltíð og þeir Norðmenn hefðu fengið að Sögu, væri ekki að sökum að spyrja. Síðan þakkaði hann góða veizlu og gott boð. • Ósamræmi Það virðist alveg ljóst að við förum yfir tvær milljónir (mála og tn.) á sildarvertíð- inni í suraar. En tiltölulega mjög lítill hluti aflans hefur verið saltaður hingað til — og ■í fljótu 'bragði virðist eitthvað bogið við þetta. En ef síldin hefur þrátt fyrir allt ekki veri hæf til söltunár, hvaða til- raunir hafa verið gerðar til annars konar nýtingar á þess- um fiski nú á vertíðinni? Lítið hefur heyrzt um það. Við hælum okkur af veiði- tækninni, hundruð milljóna eru lagðar í alls kyns tækniút- búnað fyrir skipin — en hvað snertir löndun og vinnslu hef- ur okkur ekki þokað áfram í þrjátíu ár. • Enginn stelur smjöri Nú síðast stálu þeir útsýnis- skífunni á Þingvöllum. Varla getur hún orðið til mikils gagns Skiptingin ( Áður en lengra er haldið má geta þess að í borgarstjórn Osló arbor.gar sitja 85 borgarfulltrú- ar, og mynda jafnaðarmenn meiri hluta ásamt Sósíalska þjóð flokknum og kommúnistum. Jafnaðarmenn hafa 39 fulltrúa, Sósíalski þjóðfiokkurinn 4 og Kommúnistar 1. Hægri menn hafa 35 fulltrúa, kristilegir 3 og vinstri menn 3, en þeir eru allir íulltrúar borgaralegra flokka. Áður en sá meiri hluti, sem nú situr í borgarstjórn Oslóar, var myndaður, var þar meiri hluti hinna borgaralegu flokka. Enn má geta þess, að koná Egils Storstein, borgarstjóra fjármála, er fædd Schram og rakti hún ættir sínar til íslenzkrar formóð- ur sinnar, sem fædd var á Skaga strönd skömmu eftir 1800, en sú víða annars staðar en þar, sem hún var upphaflega sett — og hæpið er, að ætiunin sé að nota hana til skrauts. ,En hún er úr málmi og e.t.v. er hægt að bræða skífuna og selja hana þannig. Þá fengjust sennilega nokkrar krónur fyrir klumpinn. — Annars er hæpið að þessi iðja sé stunduð pen- ingana vegna. Sjálfsagt er það vegna ánægjunnar af að stela, sem fólk hefur útsýnisskífuna á Þingvöllum í brott með sér. Og er þetta ekki allt ósköp eðlilegt? Kaupmenn eru búnir að koma í veg fyrir að smjöri verði framvegis stolið í kjör- búðum. Einhverju verður blessað fólkið að stela. • Hagstæð viðskipti Viðskipti okkar við Grikki ættu að verða okkur hagstæð á þessu ári, ef þeir halda áfram að kaupa af okkur tog- arana í gríð og erg. Virðist var langamma hennar. Af heim- ílisástæðum var þessi langamma hennar send 11 ára gömul til amtmannsins í Stafangri, en hann hafði verið embættismað- ur á fslandi og góður vinur föð- ur hennar. Þá var hún 11 ára gömul. Síðar giftist hún Kjel- land, sem var frændi norska skáldsins fræga og af þeim er hún komin. Sagði frú Stor- stein að sig langaði mikið til að kynnast frændum sínum hér á landi sem bera sama nafn og hún. í ætt hennar sagði hún að hefðu ávallt gengið rómantískar sagnir um þessa norðlægu eyju. Hún virtist ánægð yfir að hafa loksins upplifað þetta róman- tíska ævintýri ættar sinnar og h/ugsaði gott til kynna af skyldmennum sínum. Blaðamannafundurinn Að lokum var haldinn fundur með fréttamönnum og bar marg vísleg efni á góma, Verður hér stiklað á nokkrum atriðum, en auðvitað ekki hægt í stuttri blaðagrein að koma öllu á prent, sem þyrfti. Það upplýstist sem sagt á fundinum, að ávallt þegar forseti borgarstjórnar í Osló og varaforseti fara utan, er tilnefnd ur staðgengill þeirra, og í þetta sinn varð frú Gerhardsen,- kona norska forsætisráðherrans, fyrir hafa náSzt *amkomulag um að selja togarana á tíkall stykkið, eða svo — og þarf þá ekki nema tíu til að hafa hundrað kall út úr Grikkjan- um. Nú ættum við auðvitað að koma því á kreik, að Grikkir ætli að nota skipin í sambandi vi& aðgerðirnar á Kýpur, því þá yrðu Tyrkir líka æstir í að kaupa af okkur togara og þá gætum við lospað við allan okkar flota á einu bretti, jafnvel á fimmtán krónur stykkið, þegar eftirspurnin færi að aukast. • Hver er ástæðan? Ég sá KR og Liverpool síð- ustu mínúturnar af leíknum, en þann tíma spörkuðu KR- ingarnir því miður aldrei í boltann svo að ég sá ekki með eigin augum hve langt þeir geta sparkað. í leikslokin heyrði ég að einn sagði: „Og valinu. Fellur það nú f hennar hlut að taka þær ákvarðanir, sem þurfa þykir, meðan forsvara menn borgarstjórnarinnar eru fjarverandi. Þá leiddi borgarstjóri, Geir Hallgrímsson talið að skattamál urh og sagði að þau væru mjög til umræðu í Reykjavík um, þesa ar mundir. Forráðamenn Osló- borgar upplýstú að aðaltekjulind torgarinnar væri 17% tekjuskatt ur, og væru skattarnir innheimt ir jafnóðum af tekjum eins og nú er ráðgert hér. Ef lesendur hafa áhuga á að bera samati skatta í Osló og Reykjavík má leggja fram eftirfarandi tölur til glöggvunar: Einstaklingur sem hefir 40.000.00 norskar krónur í nettó tekjur greiðir kr. 13.080.00, eC hann er kvæntur greiðir hann kr. 12.310.00 í skatta, ef hann hefir eitt barn í umsjón sinni greiðir hann kr. 11.120.00, en hafi hann 2 börn kr. 10.810.00 o.s.frv. Fréttamenn spurðu, hverjár væru meðaltekjur ófag- lærðra iðnaðarmanna og verka- manna í Osló. Var þeim skýrt írá því að þær næmu um og yfir n. kr. 20.000,00 og af þessum tekj um greiðir verkamaðurinn n. kr. 4.728,00 í skatta, ef hann er ein- hleypur n. kr. 4.006,00 ef hann er kvæntur n. kr. 3.367,00 eí Framh. af bls. 17 ég, sem hélt, að þeir mundu bursta Liverpool úr því að þeir unnu Keflavík!" Og einhver vildi halda þvf fram, að ástæðan til þess að KR hefði ekki unnið þennan leik væri sú, að liðið vantaði skyttur í framlinuna, „kanón- ur“ á kantana, „vegg“ í vörn- ina og segldúk fyrir markið. • Þyrlan Nú crðið kemur það fyrir nær vikulega, stundum oft í viku, að við leitum til varnar liðsins á Keflavíkurflugvelli og biðjum um aðstoð þyril- vængju. Við slíkum óskum er alltaf orðið samstundis og oft á tíðum hafa þyrlurnar orðið okkur til ómetanlegrar hjálp- ar. Efast ég ekki um að þeir varnarliðsmenn geri þetta allt með glöðu geði. Hins veg- ar virðist kominn tími til að farið verði að hreyfa þessu þyrlumáli fyrir alvöru. Eitt sinn var safnað í sjóð til þyrlukaupa, eitt varðskipanna hefur verið búið sérstaklega í þessu skyni og > einn flug- maður landhelgisgæzlunnar hefur lært á þyrlu. — Það er sjálfsagt dýrt að reka slíka flugvél, en hún gaeti sjálfsagt leyst margs konar verkefni önnur en leitar- og björgunar- starf á fljótari og ólýrari hátt en tíðkazt hefur. iimhiuji—■——r- ELDAVÉLAR ELDAVÉLASETT GRILL Sjálfvirkt hita- og tmiaval. • A E G - umboðið Söluumboð: HÚSPRÝDI HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.