Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 2
2 MORGU NBLADID Miðvikudagur 19. Sgúst 1964 Tröllafoss sigl- ir til Rússlands Verði af sölu verður skipið afhent í Leith KL. hálf ellefu í gærmorgun lauk skoðun á ms. TröUafossi vegna fyrirhugaðrar sölu á skip- Þrir gerfihnettir með einni eldilnug Moskvu, 18. ágúst. — AP. • Tass-fréttastofan skýrði frá því í dag, að sovézkir vísinda- menn hefðu skotið á loft þrem gerfihnöttum af gerðinni „Kos- mos“ og hefði aðeins ein eldflaug verið til þess notuð. Var hún sögð af nýrri gerð. Hafa Kússar þá skotið á loft fjörutiu Kosmos hnöttum. / Fyrr á þessru ári skutu Rússar tveim gerfihnöttum á loft með einni eldflaug, en ekki hafa fyrr verið sendir þrír. Að sögn fréttastofunnar kom- ust hnettirnir allir á tilætlaða braut. Fara þeir umhverfis jörðu á 95 mínútum, með jarðnánd 210 km. og jarðfirð 876 km. Séra Jósef J. Hacking /• Séin Hncking lótinn SÉRA Jóáef J. Haeking, sem ver- ið hefur starfandi kaþólskur prestur á íslandi síðastliðin 18 ár, lézt í gærmorgun á Landa- kotsspítala. Banamein hans var bióðsjúkdómur. Séra Hacking var fæddur í Gulpen í Hollandi 11. september 1919. Hann tók prestvígslu 19. marz 1945 og tilheyrði reglunni S. M. M. eða Montfort bræðrum. Haustið 1946 kom séra Hacking til íslands og starfaði fyrstu tvö árin í Stykkishólmi. Síðan hefur hann haft búsetu í Reykjavík, og sinnt preststörfum bæði við Kristskirkjuað Landakoti, í Kefla vík, Hafnarfirði og Stykkishólmi. Hann Jiór nokkrum sinnum til Bandankjanna í erindagerðum Kaþólsku kirkjunnar á íslandi og eitt sinn til Rómar. Séra Hacking var einstaklega vel látinn maður og vinmargur. Þótt hann kæmi útlendingur til íslands eignaðist hann snemma marga vini jafnt utan Kaþólska safnaðarims sem innan. Hann var glaðvær maður, skemmtilegur og viðræðuhlýr. Er hans sárt sakn- ( að af öllum þeim, sem honum kynntust. Gert er ráð fyrir að sálu- messa fari fram frá Kristskirkju á mánudag kl. 10 fyrir hádegi. I inu, en hér á landi eru nú stadd ir umboðsmenn skipafélags, sem siglir undír fána Suður Kóreu, þeirra erinda að athuga um kaup á Tröllofossi. Verða umboðs- menn félagsins að taka ákvörð- un um hvort af kaupum verður innan 48 klukkustunda frá því að skoðun lýkur. Svar hafði ekki borizt í gærkvöldi, að því er Mbl. vissi bezt. Tröllafoss lagði hinsvegar frá bryggju í Reykjavík um hádegis biiið í gær og sigldi til Arkan- gelsk í Rússlandi. Þar tekur skip ið timburfarm og flytur til Leith. Verði af sölu skipsins verður það því afhent í Leith, og mun skips- höfnin þá skilja við skipið þar. iiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniHii Unnið við malbikun á Gullteigi, scm sker Teigahverfið, í gær. Svarta rákin, sem kemur í slóð bilsins og malbikunarvélarinnar, er nýmalbikuð. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). | Mikill hraði í malbikunar- |f ramkvæmdum borgarinnar MALBIKUN gatna í Reykjavík skotgengur þessa dagana, svo að mik- inn mun sér frá degi til dags, enda eru stórvirk og hraðstíg vinnutæki notuð. Á þriðjudagsmorgun var lokið við að malblka Hamra- hlið og tvöfalda akrein á Kringlumýrarbraut milli Hamrahlíðar og Miklubraut- ar. Þá hélt malbikunarflokk- urinn með vélar sínar inn í Teiga. Byrjað var að mal- bika Gultteig, og var ætlunin að ljúka við þá götu á há- degi á miðvikudag. Síðan kemur röðin að Hof- teigi, Laugateiigi, Sigtúni, Hraunteigi, Hrísateigi, Kirkju teigi, Helgateigi og SilfurteigL Ætlunin er að ljúka þessu í gær var lokið við gerð tvöfaldrar akreinar á Kringlumýrarbraut miUi Hamrahlíðar og Miklubrautar. verki á næstu vikum. Hafa þá allir Teigarnir sunnan .i Sundlaugavegar verði malbik- aðir, en hinir verða það á næsta ári. Nú í siumar verða Hallar- múli og Ármúli malíbikaðir, þá Höfðatún oig Hátún. Að því verki loknu verður Miklaibraut malbikuð inn fyrir Grensás- veg og síðan Álfheimar. I Vesturbænum á að mal- bika Hjarðarhaga, Ðunhaga og Pornhaga; einnig bílastæði við Sundlaug Vesturbæjar og við Neskirkju. Breytt hefur verið uim vinnu aðferðir við frágang á könt- um, eins og áður hefiur verlð skýrt frá í Mbl. Fynst eru göt- urnar malbitkaðar, síðan er sagaður fínn kantur og mal- biksbrúnin notuð sem mót fyrir nýju kantvélarnar, Töluvert hefur verið steypt af gangstéttum í sumar, aðal- lega vegna manneklu, þar sem sú aððferð er fljótlegri en hellulagningin. Nokkuð hefur þó verið hellulagt af gangstétt um í 'sumar, einkum í eldxi bæ j arhverf um. Sums staðar hefur verið lok ið við aLlan götufrágang, ganig- stéttarlagningu og hitaveitu- 'lögn, áður en húsin hafa verið fullgerð við göturnar. Er stefnt að þvi, að svo geti sem oftast orðið í framtíðinni, en hinar miklu byggingarfram- kvæmdir ásamt vinnuafls- skorti við götugerð standa í vegi fyrir því enn sem kiomið er. aÍlllMUIIIIIHlllliaHlllllHIIHIIHIinillHlllllltlllMIIIIHIlllUlllllllllMlimillWlimitlllllllHIIIIMHIUIIIUIIHIMIIHllHUHHmilHHIHHniHUHIUIUHEUIIHltlllHlimUlltHIIUIIIUHIIIIIIInnHIIHHmillHHIIHIHHIIIMIHIIHmiHHIIIIIIUlllUllU Keating frambjóðandi republikana í New Y ork Kosningebarátta hans óháð barátlu Goldwaters New York, 18. ág. — AP-NTB. KENNETH Keating, öldungar- deildarþingmaður republikana í New York, lýsti því yfir á blaða mannafundi í dag, að hann muni bjóða sig fram aftur við kosning- arnar í haust. Hins vegar kvaðst hann ætla að reka kosningabar- áUuna óháða baráttu forsetaefnis flokksins, Barry Goldwaters. — Líklegt er talið, að Bobert Kennedy, dómsmálaráðherra, verði í framboði fyrir demokrata og Clare Booth Luce fyrir íhalds flokkinn. Keating boðaðl til fundar með fréttamönnum síðdegis í dag og skýrði frá ákvörðun sinni. Kvað hann íbúum New York vel ljóst, að hann gæti ekki skrifað undir ýmis atriði í stefnuskrá Gold- waters og. því mundi hann reka kosningabaráttu sína án samráðs við forsetaefnið. Hins vegar kvaðst hann aldrei hafa hugsað til þess að segja sig úr republik. anafiokknum — hann tryði á gildi tveggja flokka kerfisins og grundvallarhugsjónir republik- ana. I * Blaðatnannafundur Keatings gaf tilefni til nýrra vangaveltna um framboð demokrata. Robert Kennedy, dómsmálaráðherra, hef Xir enn ekkert sagt um það, hvort hann hyggist bjóða sig fram eður ei. Á hinn bóginn hefur hann átt tíða fundi með Robert Wagner, borgarstjóra, að undanförnu — ræddust þeir við síðast í gær. Var þá haft eftir einum starfsmanna borgarstjórans, að hann mundi væntanlega gefa yfirlýsingu um mál þetta síðar í vikunni. í gær- kveld var hiaft eftr borgarstjór- anum, að kosningabaráttan, sem í hönd fer, verði að öllum líkind um hin harðasta, sem um getur í sögu Bandaríkjanna. „Við mun um þurfa á að halda öllum okkar viljastyrk, skilningi, allri þolin- mæði og rósemi, til þess að kom- ast gegnum þessa baráttu án þess að missa vitið“, sagði borgarstjór inn. Hann fór þeim orðum um Goldwater, að hann væri „fárán legur og húmorlaus Don Quixote“ sem berðist vonlausri baráttu fyrir því að snúa aftur til hins liðna. Ferill hans á þingi sýndi, að hann fylgdi alls ekki rás tínrf' ans, m.a. hefði hann ekki léð stuðning sinn neinum þeim mál- um, sem miðuðu verulega í fram faraátL Utanríkis- ráðherra í Finnlandi ISLENZKU utanríkisráðherra- hjónin komu í opinbera heim- sókn til Helsingfors laust eftir kl. 11 í gær og voru ambassador Árni Tryggvason og frú í fylgd með þeim. Á flugvellinum tóku á móti þeim Hallama, utanríkis- ráðherra og frú ambassador Leivo-Larsson svo og ýmsir hátt- settir embættismenn. Utanríkis- ráðherra íslands átti þar viðtal við fréttamenn útvarps og blaða og eftir hádegi viðtöl við Hallam utanríkisráðherra, Oittinen, vara forsætisráðhera og Mattila, við- skiptamálaáðherra. Síðan var farið hringferð um Helsingfors og loks sátu utanríkisrá(Sherra- hjónin kvöldverðarboð utanríkis ráðherra Finna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.