Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 19. águst 1964 MORCU NBLAÐIÐ 23 — Forsæfis ráhherra Framh. af bls. 1 með honum í ferðinni í dag, — ásamt ísienzka sendiherranum í Washington, Thor Thors —, komu aftur til New York með flugvél handaríska hersins kl. 16:53, að Btaðartima (20:53 GMT). Hér fer á eftir frásögn AP- fréttastofunnar af heimsókn Bjarna Benediktssonar í IJvíta húsið (Douglas B. Cornell). í garðinum umhverfis Hvíta húsið tók Lyndon B. Johnson for Beti upp nýja háttu í móttöku er- lendra ráðamanna. Hann gekk |>ar um góða stund ásamt gesti BÍnum, forsætisráðherra íslands, Bjarna Benediktssyni. Með þeim fylgdust sendiherra íslands í Washington Thor Thors; sonur forsætisráöherrans og einkaritari Björn Bjarnason, og fjöldi frétta- xnanna og ljósmyndara. Bjarni Benediktsson kom i morgun til Washington í boði Johnsons forseta. Hafði verið til- kynnt, að heimsóknin yrði óform leg — og það var hún sannar- lega. I>eir ræddust við einslega í skrifstofu forsetans þegar göng unni um garðinn var lokið, og skiptust á gjöfum áður en heim- 6Ókninni lauk. Johnson, forseti, lék á alls oddi og spjallaði vi,ð gest sinn um heima og geima. Við suðaustur hlið garðsins voru saman komnir fjölmargir ferðamenn er létu í Ijós áhuga á að sjá forsetann og forsætisráðherrann. Gengu þeir til fólksins og heilsuðu því, og Johnson sagði: „Hér er sumt af því fólki, sem ég starfa fyrir“. Kyanti forsetinn Bjarna Bene- diktsson sem mikinn vin Banda- ríkjanna og Atlantshafsbanda- lagsins. Meðal þeirra, sem réttu út hönd til að heilsa forsetanum, var maður nokkur, sem'var með handlegginn í gibsi. Brá forset- inn skjótt við og skrifaði upp- hafsstafi sína á gibsið og varð eigandF þess, Ernest Sobitaille frá New York, hinn glaðasti við. t>egar þeir Johnson og Bjami Benediktsson sneru frá fólkinu, voru þar komnir hundar forset- ans, sem eru systkin og heita „Him“ og „Her“. Lék Johnson við þá smástund og lét þá rísa upp á afturfæturna. „Þetta eru beztu hundar“, sagði forsetinn, „og í dag haga þeir sér bara vel, |þeir eru að læra að standa“. -— Og hann bætti við: „Ég ætla að sýna fólkinu þá“ og lyfti þeim upp fyrir ferðamennina, sem klö'ppuðu þeim. Forsetinn sagði að „Him“ væri dálítið þrjóskur og hefði stundum valdið honum vandræðum. „En nú er hann þægur — hann kann vel að meta forsætisráðherra". f samræðunum var drepið lítil- lega á persónulegar venjur for- 6etans og íbúa Hvíta hússins. — Kvaðst forsetinn hafa það fyrir venju að taka sér síðdegisblund, þar sem hann vaknaði snemma á morgnana og ynni oft eftir kvöldmat. — Ég vakna venjulega um kl. Ihálf sjö, en fer þó ekki strax á fætur, heldur les og lít á sjón- varpið — hef allar þrjár stöðv- arnar á. Forsætisráðherrann kvaðst hafa heyrt, að, Johnson gengi um Hvíta húsið og slökkti ljósin, og svaraði Johnson því játandi V- 6agði það öruggara, þar sem börn væru í húsinu!! Síðan sýndi forsetinn gestun- Um sundlaugina og benti þeim é svalir hússins, þar sem hann sagði að þau hjónin sætu oft á kvöldin og nytu útsýnisins. Einn ig benti hann gestunum á að- Betur fjármálaráðuneytisns, sem gHtti í nxilli trjánna og sagði: „Þarna geymum við fjármunina, í umsjón repubhkana“, — og vísaði þar með til fjármálaráð- herrans Douglas Dillons, — og annar republikani, Robert Mc Namara ber ábyrgð á vörnum okkar“. Næstu spurningu forsætisráð- herrans svaraði Johnson svo hátt ®ð viðstaddir mættu glöggt heyra og sagði: „Ég hef ekki rætt við Öituff vegaþjón usta á vegum F.I.B. Tyrkneskir á Kýpur fá matvæli og vatn Ltanríkisráðherranai á förum til IVioskvu VEGAÞJóNUSTUBfLAR Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, hafa komið mikið við sögu undanfar- ið. Þeir aðstoðuðu um 160 bíla á vegum úti yfir verzlunar- mannahelgina eina, þar af drógu og fluttu kranabílar á vegum FÍB um 30 bíla. í fyrsta skipti starfrækti FÍB slysahjálp og flutti sjúkrabíll FÍB 14 manns á sjúkrahús á Selfossi eða á Slysa varðstofuna í Reykjavík. Mörg vðgerðarverkstæði voru opin fyr ir tilstilli félagsins og veittu þau mörgum ökumönnum aðstoð. Hefur því vegaiþjónusta FÍB aldrei verið jafn víðtæk og nú. FÍB starfrækti á gegum úti alls 15 bíla yfir verzlunarmanna helgna, þar af voru 3 kranabílar og einn sjúkrabíll. í fyrsta skipti hafði félagið vegaþjónustutoíl á Austurlandi og hafði hann mikið að gera. Kranabílar FÍB fluttu um 30 bíla á verkstæði úti á landi og til Reykjavíkur. Allt voru það bílar, sem lent höfðu Veghefill Akur- eyrar skemmdist af eldi Akureyri, 18. ágúst. VEGHEFTLL bæjarins skemmd- ist allmikið af eldi síðdegis í dag þar sem hann stóð á göt- unni við saltfiskverkunarhús Útgerðarfélagsins á Oddeyrar- tanga. Veghefilsstjórinn hafði brugðið sér í kaffi inn í húsið og skilið hefilinn eftir í gangi á meðan. Eldurinn kom upp í mælaborðí hefilsins og varð af mikið bál, þar sem olía lak nið- ur á eldinn. Slökkviliðið kom nær sam- stundis og slökkti eldinn, en all- miklar skemmdir urðu á veg- heflinum, þannig að hann er ónothæfur um sinn. Þetta er eini veghefillinn í eigu Akur- eyrarþæjar. — Sv. P. þá hvernig þeir ætli að kjósa, en við þurfum að ná í þau at- kvæði, sem við getum“. Aðspurður hvort hann hyggði ekki á kosningaferðalag um Bandarikin, svaraði forsetinn því játandi og upplýsti, að kona sín væri nýkomin úr kosningaferð um sex ríki og dætur hans hefðu heimsótt þrjú ríki hvor. Að svo búnu héldu þeir Johnson og Bjarni Benediktsson inn í skrifstofu forsetans — en fréttamaður sagði við íslenzka sendiherrann, að sennilega gæf- ist þeim lítill tími til viðræðna um vandamál Atlantshafshanda- lagsins úr þessu. Sendiherrann yppti öxlum og svaraði glaðlega: „Ailt á sér stað og stund“. í umferðaróhöppum, eða þá bilað það mikið að ekki reyndist unnt að gera við úti á vegunum. FÍB starfrækti nú í fyrsta skipti slysahjálp á vegum úti. Á vegunum \hér sunnanlands var sjúkrabíll, með tveimur sjúkra- körfum. í bílnum var skáti úr hjálparsveit skáta í Reykjavík og hafði hann allan útbúnað til iþess að veita fyrstu hjálp. Sjúkra bíllinn flutti 14 sjúklinga nær alla frá Stóru-Mörk, en þangað hafði þeim verið ekið innan úr Þórsmörk. Flutti bíllinn sjúkling ana síðan á sjúkrahúsið á Sel- fossi eða á Slysavarðstofuna í Reykjavík. Ef félagið hefur bol- magn til, hyggst það auka þessa slysahjálp næsta sumar. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda vill þakka Póst- og símamála- stjórninni og sérstaklega þó starfsmönnum Gufunesradíó sem veittu félaginu ómetanlega að- stoð. Þá vill FÍB einnig þakka lögreglunni og skátum fyrir góða samvinnu. — Bruninn Framhald af síðu 24 Húsið féll kl. 3.30, 20 mín. eftír að slökkvistarfið hófst. Þótt um hánótt væri, dreif að fjölda fólks, bílandi, hjólandi og gang- andi til að horfa á. Lögreglan stöðvaði fólksstrauminn efst á Skagabraut af ótta við að tank- amir á planinu spryngju. í öðr- um var olía, en í hinum benzín. Tankarnir gereyðilögðust, eru undnir og snúnir, þótt ekki spryngju þeir. Vörubílastöðin hefur starfað þarna í tæpt eitt ár. Eldsupptök voru út frá hita- blásara, bakatil í húsinu. Stöðvar stjóri er Agnar Jónsson, Höfða- braut 6. Engir bílar brunnu og enginn meiddist við slökkvistarfið. — Oddur. Árekstur við Vatnsvík Á tólfta tímanum í gærmorg- un varð harður árekstur milli Volkswagenbíl frá bílaleigu í Reýkjavík, ekið af útlendingi, og Chervolet-fólksibíl úr Kópavogi, við Vatnsvík á Þingvölltun. Þrennt var í Volkswagenibílnum meiddist lítillega, en hinsvegar skemmdust báðir bílarnir mikið. Nicosía, 18. ágúst. — (AP-NTB) — • SAMKOMULAG tókst um það í dag á Kýpur, milli fulltrúa Sameinuðu þjóðanna og Makariosar, erkibiskups, að aflétt verði banni á vista- flutningum til tyrkneskra íbúa eyjarinnar og vatns- leiðslur verði opnaðar að nýju. Munu liðsmenn S. Þ. og starfsmenn Rauða kross- ins hafa eftirlit með nauð- synjaflutningum. Hins vegar munu hermenn Kýpurstjórn- ar áfram hafa strangt eftirlit með því, að tyrkneskum ber- ist ekki vopn. 0 Utanríkisráðherra Kýp- ur, Syros Kyprianou, hef- senn á förum til Moskvu til þess að ræða við Sovétstjórn- ina um boð hennar um hern- aðaraðstoð við Kýpurstjórn. Kveðst Kyprianou fara beint Moskvu frá Aþenu, þar sem hann hefur rætt við Papan- dreu, forsætisráðherra Grikk- lands í dag. 0 í Genf halda aðstoðar- menn finnska sáttasemjarans, Sakari Tuomioja, áfram sátta viðleitni. Tuomioja er enn lífshættulega veikur, þótt að- eins hafi honum létt eftir að hann var skorinn upp. • Hörkudeilur Samkomulagið um visitaflutn- inga til tyrkneskra manná náðist fyrst eftir langan og harðan fund með Makaríosi, erkibiskupi. — Ræddu þeir við hann K. S. Thim ayya, hershöfðingi, yfirmaður herliðs SÞ á eynni og sérlegur sendimaður U Thants, Galo Plaza. Lét forsetinn undan að loknum hörkudeilum. Verður nú leyft að flytja vatn, matvæli og helztu nauðsynjar aðrar til tyrkneskra manna. Hins vegar munu hermenn Kýpur- stjórnar ekki hverfa frá umsátri um bústaði tyrkneskra og gæta þess að þeim berist hvorki vopn né efni, er þeir geta notað til vopnagerðar. Þá samdist um að starfsmenn Rauða krossins og liðsmenn Sameinuðu þjóðanna hefðu eftirlit með þvi að sam- komulagi þessu yrði hlýtt. Enn- fremur verður hermönnum S.þ. leyft að flytja konur og börn frá bardagasvæðinu við Kokkina á norðvestur ströndinni. Eru nokkur hundruð kvenna og barna af tyrknesku bergi saman komin í hellum og bíða þess að komast burt. Fulltrúar S.þ. benda á, að sam komulag þetta geti orðið til að bæta ástandið á eynni, en þó sé eftir að sjá hvernig við það verði staðið af hálfu grískra manna. • Vonlítil afstaða. Hans Hækkerup, dómsmálaráð herra Dana, kom í dag heim til' Kaupmannahafnar frá Nicosíu. Sagði hann við heimkomuna, að vandfundin yrði lausn á Kýpur- cieilunni, að óbreyttu ástandi mál anna. Hann kvað flesta hinna dönsku hermanna í liðj S.þ., sem eru um þúsund talsins, vera þess fýsandi að koma heim, og yfir- maður herliðs S.þ. Thymayya væri harla vondaufur um lausn. Varðandi dönsku hermennina sagði hann þá telja starfsemi S.þ. á Kýpur harla vonlausa. Liðið skorti umboð til að grípa til á- kveðnari aðgerða og sú skoðun væri almenn meðal liðsmanna, að héldist afstaða Kýpurstjórnar óbreytt væri vonlaust fyrir liðið að gegna hlutverki sínu'. Hækkerup kvaðst hafa sent stjórnum Tyrklands og Grikk- lands tilmæli um að samþykkja, að liðið fengi meira athafna- frelsi.Undir þessi tilmæli hefur sænska stjórnin tekið. Gekk aðal fulltrúi Svía hjá S.þ. á fund U Thants í dag og ræddi við hann um málið. • Áhyggjur innan NATO Tilkynning grísku stjórnaran- ar í gær, um að hún hygðist taka hluta hers síns undan stjóm NATO vegna Kýpurdeilunnar, hefur valdið verulegum áhyggj- um inhan bandalagsins. Skoraði Lyman Lemmitzer, hershöfðingi, yfirmaður alls herafla bandalags ins, á stjómir Grikkja og Tyrkja að endurskoða afstöðu sína í þessu máli og leitast við að jafna deilurnar án frekari beitingar hervalds. Johnson, Bandaríkjaforseti hef ur sent hinum stríðandi aðilum Kýpurdeilunnar orðsendingu. og hvatt enn á ný til friðsamlegrar lausnar hennar. Þá lýsti Dean Rusk utanríkisráðherra því yfir í dag, að Kýþurdeilan væri hættu' legasta vandamál, sem upp hefði komið innan NATO um árabil. Frá OttawSN berst sú fregn, að stjórn Kanada hafi tilkynnt stjórnum Tyrklands og Grikk- lands, að orrustuþoturnar af gerð inni „Sabre“, Sem smíðaðar hafa verið í Kanada, meg ekki nota í hernaðaraðgerðum vegna Kýp- urmálsins. Utanríkisráðherra landsins, Paul Martin, skýrði neðri deild þingsins svo frá í dag, að löndin tvö hafi fengið 107 orrustuþotur af þessar gerð í samræmi við áætlanir NATO, en þau skilyrði hafi verið sett af hálfu Kanada, að þær yrðu ein- ungis notaðar til þess að styrkja mátt bandalagsins sjálfs gegn utanaðkomandí árás. Þá upp- lýsti Lester Pearson, forsætisráð herra, eftir fyrirspurn frá John Diefenbaker, fyrrverandi forsæt- isráðherra, að Kanadastjórn hafi lagt til að efnt yrði til fundar utanríkisráðherra NATO-ríkj- anna til að ræða ástandið með tilliti til Kýpurmálsins. Hins veg ar hefði meiri hluti aðildarríkj- anna verið því andvígur að halda siíkan fund einmitt nú, réttaura væri að bíða átekta. Vantaði bíl til Hafnarfjarðar UM kl. hálf þrjú í fyrrinótt vöknuðu húsráðendur í húsi einu við Mánagötu við að verið var að ræsa Volkswagenbíl þeirra fyrir utan húsið, og bílnum síð- an ekið af stað. Lögreglunni var þegar gert aðvart, og skömmu siðar máetti eftilitsbíll hinum stolna bíl á Suðurlandsbraut. Sneri lögreglubíllinn þegar við og náði bíínum á Miklubraut. í honum voru þrír tvítugir pilt- ar, allir undir áhrifum áfengis. Við yfirheyrslu hjá rannsóknar- lögreglunni í gær gáfu þeir þá skýringu að þá hefði vantað bíl til að fara tii Hafnarfjarðar. t, Séra JOSEF J. HACKING S.M.M. sóknarprestur í Landakoti, andaðist 18. þ.m. Hann verður jarðsunginn frá Landa- kotskirkju mánudaginn 24. þ.m. kl. 10 árdegis. Jóhannes Gunnarsson, biskup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.