Morgunblaðið - 19.08.1964, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 19. ágúst 1964
MORCU N BLAÐBÐ
11
\
Ingi Gunnlaugsson
póstmaður sjötugur
M Ó Ð A timans fellur fram 6-
etöSvandi, kom mér í hug, þegar
athygli mín var á því vakin, að
Ingi Gunniaugsson, póstmaður,
yrði sjötugur í dag. Margir munu
líkt og ég telja hann bera aldur-
inn vel, en hér tjáir eigi um að
deiia, því að skrifað stendur, að
hann hafi litið dagsins ljós 19.
ágúst 1894 á Kiðjabergi í Gríms-
nesi.
Kunnar og merkar ættir standa
að Inga á báðar hendur. Foreldr-
ar hans voru hjónin Gunnlaugur
hreppstjóri og dannebrogsmaður
á Kiðjabergi Þorsteinssonar sýslu
manns í 'Árnessýslu og kancellí-
ráðs Jónssonar, og Soffía Skúla-
dóttir prófasts og þjóðsagnaarit-
ara á Breiðabólsstað Gíslasonar,
en kona séra Skúla og móðir frú
Soffíu var Guðrún Sigríður Þor-
ateinsdóttir prests Helgasonar í
Reykholti, höfðingskona, stjórn-
eöm og ráðsvinn.
Þó að hér séu ættir eigi frekar
raktar, mun öllum ljóst vera, að
afmæiisbarnið er kvistur á traust
um stofni.
Ingi naut í æsku staðgóðrar
menntunar, þó að eigi gengi
hann skólaveginn, sem kallað er.
Hann var t.d. tvö ár við nám í
lýðháskólanum í Askov í Dan-
mörku. Síðan stundaði hann
kennslu nokkur ár við góðan orð-
Btír.
Ungur hreifst hann af hugsjón
um ungmennafélaganna og varð
einn af forystumönnum ung-
mennafélagsins í sinni sveit.
Ingi kvæntist Ingibjörgu Jóns-
dóttur frá Álfhólum í Vestur-
Landeyjum, mikilli manndóms-
konu. Þeim varð fjögurra barna
auðíð, einnar dóttur og þriggja
sona, sem öll eru traustir og virt-
ir þjóðféiagsþegnar.
Ingi er barn sveitarinnar.
Moldin kailaði á huga hans og
þar kaus hann að reyna krafta
6Ína. Ungur mun hann ha’fa
fundið til líkt og skáldið:
Moldin geymir hinn mikla auð.
Moldin gefur þér daglegt brauð.
Uppskeran bætir þinn ytri hag.
Umhyggjan mildar þitt hjartalag.
Átakið skapar afl og þrótt.
í erfiði dagsins skal gæfan sótt.
Hann hóf búskap á Bergþórs-
hvoli og búnaðist þar vel, en bjó
siðan tvo áratugi i Vaðnesi í
Grímsnesi og mun hafa reynzt
bæði hagsýnn og hygginn. Var
hann einn fyrsti bóndinn í sveit
sinni, ef ekki sá fyrsti, sem kom
upp rafstöð á jörð sinni. Þótti
ýmsum það djarft fyrirtæki að
ráðast í slíkt stórræði á kreppu-
tímum, en bóndinn í Vaðnesi hélt
sitt strik. Og áræði hans biessað-
ist og framtak hans bar góðan ár-
angur.
En þótt hugur Inga væri ná-
tengdur íslenzkri mold-og í sveit-
inni yndi hann glaður við sitt,
brá hann búi og fluttist til Reykja
víkur árið 1945. Orsakir liggja til
alls, þó að eigi verÖi hér raktar.
Hann réðst starfsmaður við póst-
þjónustuna hér í borg 1946 og
gegnir síðan starfi póstmanns.
Leiðir okkar Inga lágu saman
fyrir nokkrum árum, en hann
\hefur veitt Áfengisvarnaráði
margvíslega aðstoð öll þau ár,
sem það hefur starfað, eftir því
sem aðstæður hans og tími hefur
leyft.
Kynni min af Inga Gunnlaugs-
syni hafa verið mér til ánæ^ju.
Hollusta hans, samvizkusemi og
traustleiki hafa aldrei brugðizt.
Ég þykist hafa fundið, að þjón-
usta hans öll var ætíð veitt af
gleði og þjónustunnar vegna.
2 nigieiSslustúlkur éskost
í þekkta sérverzlun í Miðbænum. Einnig
óskast afgreiðslustúlkur til næstu ára-
móta. — Upplýsingar gefur verzlunar-
stjórinn i síma 19145.
Slíkum mannkostum er sálubót
að kynnast á atómöld.
En það er ekki síður skemmti-
legt að blanda geði við Inga.
Hann er fróður um marga hluti
og gæddur frásagnarhæfileika
svo sem verið hafa sumir móður-
frændur hans. Og ekki þrýtur um
ræðuefni, þar sem Ingi er nálæg-
ur. En það ætla ég, að fornar bók
menntir og þá einkum íslend-
ingasögurnar, séu honum eitt hið
ljúfasta hugðarefni, en þar er
ekki komið að tómum kofanum.
Ingi er gæfumaður. Hann er
alinn upp á grónu menningar-'
heimili, þar sem fornar erfðir
voru í heiðri hafðar, en þó vel
skyggnzt um og haft það, er sann
ara reyndist. Það uppeldi setur
mót sitt á manninn enn í dag.
Hann eignaðist mikilhæfa konu,
sem staðið hefur trúlega vxð hlið
hans í dagsins önn. Og hann hef-
ur dtt miklu barnaláni að fagna.
En:
Blessúij guðs og bamalán,
það borgar hvað sem er.
Bjart er að horfa um öxl af
merkum sjónarhóli.
Ég óska afmælisbarninu til
hamingju á heiðursdegi, þakka
hið bezta störfin hans og góð
kynni, og bið honum og heimiii
hans framtíðarheiila og guðs
blessunar.
Kristiim Stefánsson.
LE IKARNIR
SKIPULEGGJUM FERÐIR
OG SELJUM
AÐGÖNGUMIÐA A
LEIKANA.
Edvard Slorr 75 ára
G Ó Ð A N gest hefur borið að
garði, er ásamt konu, börnum og
tengdabörnum er hingað kominn
frá heimalandinu, Danmörku, til
þess að minnast 75 ára afmælis
sins norður hér.
Edvard Storr forstjóri er í
fremstu röð iðjuhölda með frænd
þjóð okkar Dönum. Fæddur er
hann 19. ágúst 1889 í Kaup-
mannahöfn, en í ættir fram er
nafníð tengt gleriðnaði, og fyrir-
tæki Edvards Storr nú, eitt meðal
hinna stærri í þeirri grein á
meginlándinu.
Með miklum dugnaði en af litl-
um efnum hefur Edvard Storr
tekizt á hálfri öld að skapa stór-
veldi í gleriðnaði þjóðar sinnar,
viðurkennt og vir( langt úr fyrir
iandamæri hennar. Þeim, er til
þekkja, kemur það engan veginn
á' óvart, því slíkur er maðurinn
og sá stofn, sem að honum stend-
ur.
En hversvegna er þessi maður
að leggja leið sína/á okkar norð-
lægu slóðir til þess að minnast
merkra timamóta á ævi sinni?
Svarið er það, að frá unga aldri
hefur Edvard Storr verið í nán-
um kynnum við ísland, dáð ís-
! lenzka þjóð, átt hér góða vini og
fjölskyldu. Nafnið Storr er einnig
í meira en 40 ár þekkt í viðskipta
lifi okkar íslendinga, og-þá í sam
bandi við arfleifð fjöiskyldunn-
ar, gleriðnað.
Edvard Storr h:fur oft lagt leið
sína til íslands. Fyrstu kynni af
þjóðinni voru á unga aldri, er
hann kynntist íslenzkum náms-
manni, er bjó á heimili foreiekra
hans í Kaupmannahöfn, Magnúsi
Sigurðssyni, síðar bankastjóra
Landsbankans. Með þeim tókst
góð vinátta, og hefur Edvard
Storr á margan hátt sýnt hug
sinn til íslands í verki, og nú síð-
ast, er hann ásamt öðrum vini
sínum, L. F. Foght í Kaupmanna-
höfn, gaf stórgjöf til hinnar nýju
Skálholtskirkju, en það voru allir
hinir steindu gluggar kirkjunnar,
gerðir af íslenzkri listakonu.
Einnig gaf hann ásamt bróður
sínum, Ludvig, eina þeirra
klukkna Norðurlanda, er senda
hljóma sína úr turni þeirrar sömu
kirkju, en segja má um leið, að
þessir tveir bræður hafi beint og
óbeint staðið að öllum meirihátt-
ar gjöfum og vináttuvotti er
Skálholtskirkju og uppbygging
staðarins var sýndur af hálfu
einstaklinga í Danmörku, er á-
huga hafa fengið á landi okkar
og þjóð, fyrir kunningsskap og
vináttutengsl við þá ágætu bræð-
ur.
Vinir Edvards Storr á íslandi
senda honum í dag þakkir og hug
heiíar árnaðaróskir á merkum
tímamótum, og fjölskyidu hans
óska þeir heilla, um leið og góðir
gestir eru boðnir hjartanlega vel-
komnir til landsins í þeim erind-
um að styrkja og varðveita vixx-
áttutengsl, er stofnað var til fyrir
rúmri hálfri öld.
Hörður Bjarnason.
ÞÓRARINN 1ÓNSSON
löggiltur dómtúlkur og
skjoloþýðandi i ensku
KIRK3UHVOLI — SlMI 1296&
Tökum upp í dag:
Skólaskór
Stærðir: 2S—42
Stærðir: 25—35
Stærðir: 25—35
Góðir skór gleðja góð börn.
Skóhúsið
Ilverfisgötu 82 — Sími 11-7-88.
§ ^selur ALLT FYRIR GLUGGANA
Hinar margeftirspurðu tilbúnu terrylene eldhúsgardínur
í mjjag glœsilegu úrvali
Einnig mjög fallegar sœnskar og finnskar dralon gardínur
★ Komið og kvnnið ykkur glæsilegasta og fjölbre yttasta gardinuúrval borgarinnar.
ALLT FYRIR GLUGGANA í T E P P I Hf.
Austurstræti 22. — Sími 14190.
N