Morgunblaðið - 27.08.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.1964, Blaðsíða 2
2 MORGUN BLAÐID Fimmtudagur 27. ágúst 1964 Gengu í 11 tíma úr bilu&um bílum í Ódáðahrauni SEX Svisslendingar lentu í hrakn inguni á öræfum norðan lands í lok siðustu viku, eftir að þeir höfðu orðið að skilja bíla sína eftir. Gengu þeir í 11 tíma í sælu- húsið í Suðurárbotnum og 3 af þeirn niður í Svartárkot í Bárðar- dal daginn eftir. Ekki lentu Sviss- lendingarnir í neinum villum, en voru blautir, hraktir og þreyttir er þeir komu til byggða. Hörður Tryggvason, bóndi i Svartárkoti,sagði Mbl. í símtali, að þarna hefði verið um að ræða svissneska námsmenn, sem höfðu tekið á leigu tvo jeppa hjá bílá- leigu og voru búnir að ferðast mikið um. Höfðu þeir farið norð- ur Kjöl til Akureyrar, haldið til Kaufarhafnar og ferðazt um Brú- aröræfin og í Öskju og þaðan voru þeir að koma þegar þeir lentu í þessum erfiðleikum. í>eir höfðu ætlað að aka niður í Bárðardal, en urðu að skilja bíl- ana eftir suðaustur af Dyngju- * fjöllum, annan bilaðan og hinn olíulausann. Gengu piltarnir af stað. Þeir höfðu áttavita og fóru rétta leið, en krapahríð var og yeður vont. Minningarathöfn um ]ón Þ. Björns- sonfrá Veðramóti t DAG fer fram frá Dómkirkj- unni hér í Reykjavík minningar- athöfn um Jón Þ. Björnsson, fyrrverandi skólastjóra á Sauð- árkróki. Hefst athöfnin í kirkj- unni kl. Í0.30 f.h. Mun sr. Bjarni Jónsson, vígislubiskup, flytja þar minningarræðu. Útför Jóns Þ. Björnssonar verður gerð á morgun, föstudag, frá Sauðárkrókskirkju. Hefur bæjarstjórn Sauðárkróks óskað þess að sjá um útförina, en eins og kunnugt er var Jón Björns- son oddviti byggðarlagsins um fjöldamörg ár og síðar heiðurs- 'borgari Sauðárkrókskaupstaðar. Komu þeir eftir 11 klst. göngu í leitarmannakofa í Suðurárbotn- um. Voru þeir þá blautir og sár- fættir, en þar höfðu þeir hvílu- poka. Daginn eftir lögðu þrír af stað og komu eftir um 10 km göngu að Svartárkoti. Þar var hlynnt að þeim og félagar þeirra sóttir í bíl í leitarmannakofann, og þeir fluttir niður í Mývatns- sveit. Var einn þgirra sem eftir var svo sárfættur orðinn, að hann komst ekki í skó og varð að fara á sokkaleistunum í Mý- vatnssveitina. Sagði Hörður í Svartárkoti að piltarnir hafi ver- ið sárfættir og æði kaldir og hraktir, en að þeir hafi hresstzt fljótlega. Hörður sagði að mjög mikil umferð hefði verið ofan af há- lendinu og upp á fjöllin hjá Svartárkoti í sumar, miklu meira en verið hefur á sumrin. Hefði ferðafólkið verið í jeppum, Land- roverbílum og fjallabílum, en yfirleitt hafi þeir sem ætluðu á litlum bílum snúið við. Fjórir fulltrúar athuga afslátt af opinberum gjöldum SAMKOMULAG hefur orðið um að ríkisstjórnin, Alþýðusam- bandið, Bandalag starfsmanna likis og bæjar tilnefni, ásamt Sambandi ísl. sveitarfélaga sinn manninn hvert til að athuga alla möguleika á því að veita afslátt og frekari greiðslufrest á álögð- um opinberum gjöldum, svo sem skýrt var frá í blaðinu í gær. Nú hafa þessir fulltrúar verið til- nefndir. Þeir eru Jónas Haralz, ráðuneytisstjóri, frá ríkisstjórn- inni, Páll Líndal, skrifstofustjóri frá Bandalagi ísl. sveitarfélaga, Árni Halldórsson, lögfræðingur, frá Alþýðusambandi íslands og Guðmundur In,gvi Sigurðsson, iögfræðingur frá Bandalagi starfs manna ríkis og bæjar. Mbl. barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um þetta: ,,Stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga bárust í gær til- mæli ríkisstjórnarinnar um til- nefningu fulltrúa í nefnd til að athuga möguleika á því að veita afslátt og frekari greiðslufrest á álögðum opinberum gjöldum og kanna nánar önnur þau dttast ekki .fráhvarf' kjósenda sinna Atlantic City, New Jersey, 26. ágúst (AP) LANSÞING Demókrataflokksins keniur saman til fundar klukkan hálf eitt í nótt að íslenzkum tima og er ekki gert ráð fyrir því að dragi til tíðinda fyrr en líður á nóttina. atriði, er fram hafa komið í við- innar við fulltrúa Alþýðusam- bands íslands og Bandalags starfsmanna ríkis ög bæja. Stjórn sambandsins taldi rétt að verða við þessum tilmælum eg tilnefndi á fundi í dag af sinni hálfu í nefndina varafor- mann sambandsins, Pál Líndal, skrif stof us t j óra. Stjórn sambandsins vill þó af þessu tilefni taka mjög greini- iega fram, að hún telur litlar iikur á því að sveitarfélögin í landinu geti almennt dregið úr útgjöldum sínum eða frestað innheimtu útsvara sinna þannig að teljandi áhrif hafi á afkomu gjaldenda á næstu mánuðum. Útgjöld sveitarfélaganna, það, sem eftir er ársins, munu að lang mestu leyti vera lögbundin eða samningsbundin, þannig að ekki verður raskað með einhliða ákvörðun sveitarstjórnanna11. Johnson forseti hefur enn ekki sagt, hvern hann muni hafa í framboði með sér sem varafor- setaefni flokksins, en lét þess þó getið í dag að hann myndi kveðja Hubert Humphrey til fundar við sig í Hvíta húsinu síðdegis. Ge- orge E. Reedy, blaðafulltrúi for- setans, staðfesti í dag móttöku skeytis frá Eugene MacCarthy, öldungadeildarþingmanni frá Minnesota (eins og Humphrey), þar sem MacCarthy biðst undan því að koma til greina við valið og mælir eindregið með Hump- hrey sem varaforsetaefni. o—O—o Leiðtogar demókrata eru flest- ir á einu máli um að þeir óttist ekki neitt „fráhvarf“ hvítra kjós- enda við forsetakosningarnar í nóvember. Aftur á móti telja þeir miklar líkur á því að ýmsir repú- blikanar snúi baki við Barry Goldwater þegar á herði. Létu leiðtogarnir þetta í Ijós við skoðanakönnun AP-frétta- stofunnar á landsþinginu. Var spurt, hvort leiðtogarnir teldu líkur á fráhvarfi kjósenda sinna og hvernig flokkurinn ætti þá að bregðast við. Voru þeir mjög ó- sammála um það hverjum tökum bæri að taka málið, en virtust litlar áhyggjur hafa af því og var á þeim að skilja að meira hefði verið úr því gert en efni stóðu til. Svo sem kunnugt er, er fjöldi Framhald á bls. 27. Blaðamenn ALMENNUR fundur verður í Blaðamannafélagi íslands í dag kl. 3 í Nausti (uppi). Umræðu- efni m.a. eru kjarasamningarnir. ■ -VlXp; Faðirinn stendur á staðnum þa r sem telpan datt niður. Hun var að príla fyrir ofan og kom niður á stéttina og hefur líklega komið við tröppubrúnina. Ljósm. Þráin n Teípa hætt komin ef tir fall af v..inupöllum Akranesi, 26. ágúst í fyrrakvöld var telpa að leika ] sér og klifra upp í vinnupalla við húsið Hjarðarholt 15 hér í bæ. Telpan heitir Guðný og er dótt- ir Guðbjarts Andréssonar, kenn- ara. Telpan er átta ára gömul, ugglaust hefur hún farið eitt- hvað óvarlega eða svimað, því hán féll fram af pöllunum ofan á steypta stéttina, a.m.k. 3 m. Lenti höfuðið á gangstéttarbrún inni og var áverki á gagnaug- anu. Þetta var kl. 7 síðdegis. Li>g- reglubíllinn kom með sjúkra- körfu og kl. 8 hafði stelpan verið flutt á sjúkrahúsið, þar sem hún liggur nú. Um tíma var óttazt um líf hennar. Hún er höfuð- kúpubrotin og meira slösuð, sem enn hefur ekki verið hægt að rannsaka, sagði móðir hennar, Ester Aradóttir. Hún er komin til meðvitundar. Oddur. Páll páfl hvetur til friðar Castel Candolfo, Ítalíu, 26. ágúst, AP. ÞEIR sem sóttu heim Pál páfa í sumardvalarstað hans að Castel Candolfo, skammt sunnan við Rómaborg, undruðust það nokk- uð, að páfi skyldi ekki tala eins og hann var vanur, um safnað- armál og starf kirkjunnar í dag- legu lífi og annað slíkt. En páf- anum var annað og meira í hug. „Alvarleg vandamál sækja nú á hug vorn“ sagði páfi, og valda oss þungum áhyggjum“. Hvatti hann mjög til friðar með mönn- Hákarl ræðst á bát HÖFN, HornafirSi 26. ágúst- Sá óvenjulegi atburður gerð- Lst er m.b. Hafbjörg NK 7, sem stundar humarveiðar frá Höfn, var að enda við að draga inn humartrollið, að mjög harður hnykkur kom á bátinn og hélt skipstjórinn, að bátur hefði sigft á skip sitt. Raunin var önnur. Stór og mikil skepna hafði hlaupið upp á bátinn og brotið rekk- verkið og vantafestingu og gátu skipsmenn ekki greint annað en að þetta mundi vera hákarl. Allt gerðist þetta með leifturhraða og fór hákarlinn út af hinni hlið bátsins. Haf- björg er 25 smálestir. Segir skipstjórinn, Ari Sigurjóns- son, að hefði slíkur atburður gerzt fyrr fairu engar sögur af honum. Humarvciðin er frekar treg, en ir.íkið virðist vera af sild á miðunum og mun hún senni lega vera smá. Gunnar. um og drap á heimsstyrjaldirnar tvær sem ættu hálfrar aldar og aldarfjórðungs-afmæli einmitt um þessar mundir og lagði fast að stórveldunum að hætta víg- búnaðarkapphlaupinu, sem þau ættu í. „Það er eins og menn hafi á ný ánetjast þeirri firru, að frið urinn verði bezt tryggður með hinu ógnvekjandi valdi stór- virkra drápstækja“ sagi páfi. Páfi drap einnig á deilurnar á Kýpur, í Viet-Nam og í Kongó og sagði m.a.: Nú verður aftur vart við sundrung ög deilur þjóða í milli, deilur milli hinna ýmsu kynþátta og mismunandi menningar þeirra. Að baki þess- ari sundrungarupplausn liggur þjóðernisrembingur, sýndar- mennska í stjórnmálum, vígbún- aðarkapphlaupið, þjóðfélags og efnahagsaðstæður. Enda þótt göfugmannlegar tilraunir séu gerðar til að takmarka og af- nema vígbúnaðinn stoðar það lítt gegn síauknum eyðingarmætti nýjustu hergagna, sagði Páll páfi. Friðarhvöt páfa, sem flutt var var við vikulega áheyrn hans í Castel Gandolfo, þar sem slík mál ber sjaldan á góma vakti mikla athygli. Vatíkanið lagði mikið upp úr henni og blaðaskrif stofa páfastóls gaf út þýðingar á henni á öllum helztu tungu- málum heims, en það er alla jafna ekki gert nema um mikil- vægustu yfirlýsingar j>áfa. Páll páíi talaði á ítölsku. Páfi minntist friðarviðleitni fyrirrennara sinna, St. Píus X, og Benedikt XV. fyrir heims- styrjöldina fyrri og meðan á henni stóð og drap á friðar- hvöt Píusar páfa XII. skömmu fyrir heimsstyrjöldina síðarL „Fálæti það sem menn sýndu viðleitni fyrirrennara minna knýr mig til að endurtaka varn- aðarorð þeirra", sagði páfi. Kvað páfi friðinn jafnan óstöð ugan og ótryggan og sagði að allt það sem menn héldu hafa áunnizt í tveimur heimsstyrjöld um væri nú að hrynja í rúst, dómgreind manna á það sem máli skipti væri skeikulli nú en nokkru sinni fyrr, manngildið í litlum metum og horfurnar vá- legar. Olympíueldurínn ú leið uustur Beirut, 26. ágúst, AP. FLUGVÉLIN sem flytur Olympíueldinn frá Grikklandi til Tokíó, lagði af stað frá Béirut í dag áléiðis til Teheran í Pérsíu óg kom þangað skömmu eftir há- degi. Frá Pérsíu er förinni heit- ið Ul Fakistan. »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.