Morgunblaðið - 27.08.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.08.1964, Blaðsíða 21
’ Fimmtudagtir 27. ágúst 1994 M O RC UN BLAÐIÐ 21 miHIIIIIMHIttllttlllllWIHilltHHIItllHlillHlllltlUIIIUIIillHltlUIIMtlUllitllMtlllllHllllimilttlillimHJIIIHIMmilllllllinHMtHmiMltllllllllHltUIIIIIIIIIIHItltllHMIItltHltltlHUIIIMHtftHlltlltmiKltliriltlllltllllltlHltlllllllimtimilllllllllllllllltllllltlltltlltimiilllllllllMlitllllllllimillllKliilltlUMIIt* Lútherska heimssamb. Framh. af bls. 10 og komið við í London á leið sinni hingað 'núna til að ná tökum á framburðinum. Tók Lundúnarnámið 5 vikur, og er álit allra nema biskupsins sjálfs, að það hafi borið undraverðan árangur. Auala biskup kvað finnska trúaboða hafa stofnað Ovam- bokavango kirkjuna árið 1883. Finnarnir komu til suð-vestur Afríku 1870 og hófu þegar trúboðsstarfið, en 13 ár liðu, þar til starf þeirra bar árangur og þeir sneru fyrsta heiðingjanum til krist- innar trúar og jusu hann vatni. Nú er Ovambokavanga kirkjan helzta driffjöður menningar í Suð-Vestur Afríku, þar sem hún hefur yfirstjóm flestra skóla og sjúkrahúsa landsins, auk klerklegrar þjónustu. Bisk- upinn kvað 37 söfnuði í kirkju sinni. 72 prestar þjóna söfnuðum, þessum, einn til þrír í hverjum, en í sumum safnaðanna eru allt að átta þúsund manns. bess ber þó að gæta, að fleiri kirkjur starfa í Suð-Vestur Afríku, þótt minni séu. I>egar biskupinn var spurð- ur um ástandið í Suð-Vestur Afríku sagði hann, að þjóð hans berðist mjög fyrir frelsi, menntun og sjálfstæði. „Er mikið um blóðsúthelling- ar?“, spurði blaðamaður Morgunblaðsins: „Nei, ekki Þau hafa sthrfað að undirbúningi að fundum Framkvæmdaráðsins : Helga Cierpinski frá Þýzka- landi, Pastor Cari H. Mau, Jr., frá Bandaríkjunum, Roberta Olgiati frá Sviss og sr. Ólafur Skúla- son. Stúlkurnar starfa báðar hjá aðalbækistöðvum Heimssambandsins í Genf. ennþá", svaraði biskupinn. „Munduð þér segja, að ófriðarástand ríkti í yðar umdæmi?“ „Það er aldrei ófriður í kirkjunni sjálfri, en á svæðinu, sem kirkjan nær yfir, rikir ófriður, enda þótt ekki hafið komið til al- varlegra átaka“. Biskupinn lýsti yfir sér- stakri ánægju sinni að koma til íslands. „Að fljúga yfir nýju eyjuna ykkar er eins og að upplifa sköpunarverk guðs á jörðu. Þið hafið annars nóg af þessum heitu gusum upp úr jörðinni, bæði grjóti og vatni. Það er bæði fróðlegt og skemmtilegt að sjá þetta, en ég og landar mínir hefðum engin not fyrir slík fyrirbæri. Ef einhverjar gusur kæmu upp úr jörðinni heima, þá færi bet- ur áð þau væru köld, því að þar er hiti nógur. Hins vegar er mikill skortur á vatni. Af- koma fólks er næstum ein- göngu undir landbúnaði kom- in, og regnleysi hrjáir okkur oft mánuðum saman. Síðast- liðin 5 ár hefur þurrkur verið óvenju mikill og sannkallað hallæri ríkt í landinu. Yfir- völdin hafa ráðagerðir á prjón unum um að veita nokkrum hluta ár einnar í Angola yfir landamærin og um norður- hltua Su-Vestur-Afríku, Ow- ambo, þar sem mikið er um akurlendi. — Áveituskurður þessi er ráðgerður um 150 mil- ur“. „Að undanförnu höfum við sent margt ungt fólk utan til landbúnaðarnáms“, sagði bisk- upinn að lokum, „landbúnaðar tæki eru enn mjög frumstæð, en þegar áveitur og ný jarð- ræktartækni koma til sögunn- ar vonum við, að þjóð okkar geti komizt til nokkurra þrifa. ÍÍIUIIHHIIIIIIIIIIIIIIIIIItllHIIIIIHHIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIII|IIIHIHHIIIIIHIIIIHIIIHIIIIIIHIIIIlHIIIIHIIIIHIHHIIIIIIIIIIIIIHIIHHllllUHIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIHIHIIIIHIIIIIIIIIIIIIimimillllHIIIIIHIIIIIIIIIIIHHIIIIttlllllllHIIIHIIHIIIIHIIHHIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIHIHHHHIIIIIIHIIIUIIIIIIIIIIHIIIHIHIIIHIU 70 ára í dag: Siprður Gíslason MAÐUR verður víst að trúa því, að hann Siggi Gisla sé orðinn sjötugur. Heimsins ljós leit hann 27. ágúst 1894 að Jarðbrúargerði í Svarfaðardal, sonur hjónanna Kristínar Sigurðardóttur og Gísla Þorvaldssonar. Á fyrsta ári flyzt hann með foreldrum sínum að Ifaga á Árskógsströnd, og á Árskógsströnd dvelst hann til 9 ára aldurs við fátækt og basl, 6em jafnan voru kjör alþýðu- fólks á þeim tímum. En dreng- urinn var harðger og knár og þótti snemma orðhvatur og ær- ingi mikill. Þá er það að hann er sendur af „landi burt“ og er komið í fóstur á heimili Þor- eteins Jörundssonar í Hrísey, og þar er hann við bezta atlæti sín uppvaxtarár, og í Hrísey hefur hans heimili verið síðan, og þar hefur honum farnazt vel. Margar vertíðir var Sigurður I Vestmannaeyjum, að minnsta kosti sex, og leiftur kemur í aug- un þegar hann rifjar upp minn- ingar frá dvöl sinni þar. Árið 1928 kvænist hann Steinunni Valdemarsdóttur, hinni mætustu, konu, og hefur hún verið ljúfur og traustur lífsförunautur hans í 36 ár. Árið eftir ræðst hann í byggingu íbúðarhúss, sem á nú- tíma mælikvarða er bæði stórt og vandað, og nefnir það Hvamm. Þar hefur kona hans búið hon- um sérlega hlýlegt og vistlegt heimili, og þar dveljast þau enn. Ekki varð þeim hjónum barna auðið, en tóku eina kjördóttur, Erlu, sem nú er gift og búsett í Hrísey. Auk þess ólu þau upp þrjú börn önnur, sem nú eru uppkomin. Snemma hóf Sigurður útgerð og rak hana ásamt miklum bú- ekap til margra ára, eða allt til ársins 1939. Grunur minn er sá, að þótt útgerð og fiskverkun væri 6tunduð af kappi, þá hafi bú- ekapurinn, og þó einkum sauð- fjárræktin átti mest ítök í huga hans, því að fjármaður er hann með afbrigðum góður, og enn hefur hann þó nokkrar ær. Gott dæmi um yndi hans af sauðfé er það, þegar hann haust eitt ákvað að hætta öllum búskap. Hóf hann þá allsherjar niður- skurð, byrjaði á lömbunum og síðan yngstu ánum, en er að þeim gömlu kom, þá var eins og eitthvað ætlaði að slitna í brjóst- inu, og endirinn varð sá að hann sat uppi með allar gömlu ærn- ar. Alla tíð hefur Sigurður verið sérlega natinn og varfærinn við skepnur, og ætíð verið boðinn og búinn að veita hjálp og að- stoð ,ef á þurfti að halda við bú- skap þeirra Hríseyinga, og ávallt farnazt vel. Þegar Sigurður hætti útgerð var hann um mörg ár starfsmað- ur hjá Andey h.f. og var verk- stjóri á sumrin við síldarsöltun, og lagði þá oft nótt við dag. Heimili þeirra hjóna er róm- að fyrir gestrisni og hjartahlýju, sem þar er í fyrirrúmi, enda eru þau samhent og elskuleg heim að sækja. Sigurður, sem ávallt hef- ur staðið á eigin fótum, er ör í lund og getur verið kaldranaleg- ur og hrjúfur ef á hans hlut er hallað, en í brjóstinu slær stórt og gott hjarta. Fáa menn þekki ég er reynast betur en hann í erfiðleikum, og hjálpsamur er hann með afbrigðum. Fyrir ári síðan varð hann fyrir alvarlegu slysi, er nærri hafði gengið af honuð dauðum, en skaparinn ætlaði honum lengri lífdaga, svo enn hleypur hann við fót sem unglamb væri. Kæri Siggi, mín ósk þér til handa sjötugum er sú, að þú verð ir alltaf jafn ungur í anda og kvikur á fætur, og þá er víst að við eigum oft eftir að spæna í okkur vænan magál með glitr- andi koníaki. Eins og höfðingja sæmir situr afmælisbarnið í dag á heimili sínu í Hvammi ásamt konu sinni, og veitir á báða bóga. Þorleifsson. Náms- og rann- sóknarstyrkur í Danmörku STJÓRN styrktarsjóðsins „Gene- rallöjtnant Erik Withs Nordiske Fond“ hefur ákveðið að veita íslendingi styrk úr sjóðnum á þessu hausti. Nemur styrkurinn 3 þúsund dönskum krónum og veitist til náms eða rannsókna í Danmörku. Þeir ganga fyrir um styrkveitinguna, er leggja stund á efni, sem eru til þess fsllin að auka samstarf og skiln- ing milli Norðurlandaþjóða. Umsóknir um styrkinn sendist menntamálaráðuneytinu, Stjórn- arráðshúsinu við Lækjartorg, fyrir 3. september n.k. í um- sókn skal greint fcá náms- og | stunda í Danmörku. Staðfest af- starfsferli umsækjanda og hvaða iit prófskírteina skulu fylgja. nám eða rannsóknir hann hyggst I (Frá Menntamálaráðuneytinu) Fjórir íslendingur d nðolfund Alþjóðnbnnknns og gjnldeyris- sjóðsins FJÓRIR fslendingar munu sitja aðalfund Alþjóðabankans og Gjaldeyrissjóðsins, sem haldnir verða í Tokyó í byrjun næsta mánaðar. Gylfi Þ. Gíslason, við- skiptamálaráðherra er aðalfull- trúi íslands í stjórn Gjaldeyris- sjóðsins, en varaformaður Vil- hjálmur Þór, bankastjóri og fara þeir báðir, ásamt Thor Thors sendiherra, sem fer sem aðalfull- trúi íslsnds í stjórn Alþjóða- bankans og Jóhannes Nordal, bankastjóri, sem varamaður þar. Alþjóðabankinn og gjaldeyris- sjóðurinn halda árlega aðal- fundi, og þriðja hvert ár eru þeir haldnir utan Washington. í þetta skipti í Tokyó. Greiða þessar stofnanir ferðakostnað fulltrúanna á fundina. Fundur- inn í Tokyó stendur í viku og eru þar á dagskrá venjuleg aðal- fundarstörf. Sýning á prjónafatnaði nýjustu munstrum og garni frá SÖNDERBORG í dag (fimmtudag) kl. 3—5 verður sýning á nýjustu munstrum á prjónavörum frá Danmörku í Mímis- bar í Hótel Sögu (gengið inn um aðaldyr til vinstri). Frú Nording, sérfræðingur í munstrum og prjón- lesi frá SÖNDERBORG verksmiðjunum, er jafn- framt til viðtals og leiðbeiningar. Allir velkomnir ÞÓRÐIJR SVEIIMSSOIM & CO HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.