Morgunblaðið - 27.08.1964, Síða 6
6
MORGUN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. ágúst 1964
ROCCO og bræður hans
(Rocco e i suoi fratelli)
ítölsk, 180 mín., Austurbæjar-
bíó
Leikstjóri: Luchino Visconti.
L U C HI N O Visconti mun sízt
kunnur hér á landi af þeim þrem
meisturum ítölskum (Visconti,
De Sica og Eosselini), sem ný-
realisminn er mest kenndur við,
en sú stefna vaknaði í rústum
semni heimsstyrjaldarinnar, en
varð skammlífari en vonir stóðu
tiL De Sica og Rosselini eru bún-
ir að lifa sitt fegursta og fram-
fjölskyldu til Mílanó. Það er
ekkjan Rósaríó (Katina Paxinou)
sem kemur frá Sikiley með syn-
ina sína fjóra en sá fimmti var
farinn á undan þeim. En í iðn-
aðarborginni er baráttan um
brauðið einnig hörð og vonir
móðurinnar um betra líf handa
sonum sínum eiga erfitt upp-
dráttar. Þau verða að búa í lé-
legustu ibúðum borgarinnar, sem
þykja nógu góðar handa flæk-
ingunum að sunnan. Spilling
heimsins nær fljótt tökum á sum-
Renato Salvatori og Katina Paxinou, sonur og móðir.
leiðslu þeirra í dag er dapurlegt
að sjá í samanburði við fyrri af-
rek. En Visconti er ekki aldeilis
útdauður og hefur nú gert hverja
afbragðsmyndina á fætur ann-
arri, nú seinast Rocco og bræður
hans og Hlébarðann (II Gatte-
pardo). Af fyrri verkum Vis-
contis minnist ég ekki að annað
hafi veiið sýnt hér á landi en
Senso, var sú mynd sýnd fyrir
nokkrum árum í Bæjarhíói, en
bar þá enska nafnið The Wanton
Countess. Frægast af hans fyrri
verkum er hin mikla mynd La
Terra Trema (Jörðin nötrar). í
þeirri mynd lýsir hann þeirri
ógnarhörðu baráttu sem íbúar
Suður-ftalíu verða að heyja við
að erja hrjósturskika sína, lýsir
fátæktinni, sem virðist vera eilíf-
ur fyigifiskur þeirra, í hörðum
sterkum myndum. Myndin hlaut
samt lík örlög og Greed Erics von
Stroheims, hún hefur verið sýnd
mjög takmarkað og þá niður-
skorin.
Rocco á að nokkru rætur í sama
jarðvegi og La ^’erra Trema og
báðar fjalla um fólk sem virðist
vera Visconti hugstæðast: fólk
frá þeim hluta landsins sem mest
hefur orðið útundan í efnahags-
framförum Ítalíu. í Rocco er það
ein slík fjölskylda, sem fetar í
fótspor margra á flóttanum und-
an fátæktinni. Einn staðurinn
sem það leitar tiL er Mílanó, en
íbúarnir líta þessa aðkomufá-
tæklinga óhýru auga. Þótt þeir
lifi betra lífi vilja þeir ekkert
missa af sínum diski og atvinna
er heldur ekki mikil hjá þeim.
Myndin hefst á komu slíkrar
um af hinum einföldu og sak-
lausu sonum. Sá næstelsti, Sim-
one (Renato Salvatori) heimskur
en sterkur, verður atvinnuhnefa-
leikari, en þegar þeim ferli lýkur
fljótt, leggur hann út á braut
þjófnaðar og jafnvel vændis og
myrðir að lokum gleðikonu, sem
hann hefur elskað, en bróðir
hans, Rocco (Alain Delon), hefur
gjörbreytt og gert að betri mann-
eskju með mannkærleika sínum
og hreinlyndi.
Visconti helgar bræðrunum
sinn hvern kaflann í myndinni og
sá síðasti er helgaður Luca
(Rocco Vidolazzi): hann er yngst
ur og þráir heimahagana og ein-
hvemtíma mun hann hverfa þang
að aftur, ef til vill ásamt Rocco,
sem einnig þráir þangað, en hef-
ur orðið að gera samning við
hnefaleikafélag til tíu ára, til að
geta greitt til baka það fé sem
bróðir hans, Simone, hefur stolið
frá hnefaleikamangara, en Sim-
one hefur haft ónáttúru mangar-
ans að féþúfu og komizt áfram
með hans hjálp.
Þannig lýsir myndin hvernig
hver og einn bræðranna bregzt
við siðmenningunni; sumir verða
auðveld bráð spillingarinnar og
læra að notfæra sér hana, eins og
Simone. Aðrir læra að samlagast
hinu nýja umhverfi og nýta það
skársta úr því, eins og Ciro og
Vincenzo, en Rocco, hinn hrein-
hjartaði „dýrlingur“, rómantísk-
ur og blindur á grimmd raun-
veruleikans, gerir sér betri vonir
um fólkið en ástæða er til og
verður einnig undir, brotnar eins
og andstæða hans, Simone. Hann
sem fyrirgefur alltaf og hatar of-
beldi, verður að skrifa undir
samning um tíu ára barsmíðar,
til að bjarga einum bróðurnum.
Þannig verða tilraunir hans til að
halda fjölskyldunni saman, bróð-
urkærleiki og tryggð að nokkru
leyti sökin að falli fjölskyldunn-
ar. Mannkærleiki og hugsjón á
lítið rúm í lífi nútímans og verð-
ur orsökin að niðurlægingu hans
og þá höfum við fengið sömu út-
komu úr þessari mynd og Nazar-
in Bunuels.
Myndin verður ekki talin ann-
að en afar góð, bæði hvað leik-
stjóm snertir, kvikmyndun og
leik. Leikstjórn Viscontis er af-
burða sterk og áhrifamikil og
honum lætur vel að lýsa þeim at-
vikum, sem verða orsök falls og
niðurlægingar og oftast er þetta
temað í myndum hans, nú síðast
í þeirri heimsfrægu mynd, Hlé-
barðanum. Hann stjórnar af hita
og næmi, en þó mætti að því
finna að hann gerist of meló-
dramatískur á köflum og í lokin,
t. d. í áflogum bræðranna, sömu-
leiðis gerir hin víxlaða kafla-
skipting milli bræðrana hana dá-
lítið sundurlausa og ekki nógu
heildarsterka, og stundum er
myndin full hávaðasöm og leik-
urinn yfirdrifinn. Stundum minn
ir hún á La Dolce Vita og stund-
um á grísku harmleikina. Það er
vafasamt að margir kokkar bæti
handritið, en handritshöfundar
munu vera sex ásamt Visconti.
Kvikmyndun Giuseppe Rot-
unno er áhrifmikil og skil birtu
Framhald á bls. 16.
Eitt af málverkum Elvin Eruds á sýningunnL
Donsknr listamaðnr sýnir d
Mokka
Á MOKKA er þessa dagana
sýning á málverkum eftir dansk
an listamann, Elvin Erud að
nafni.
Elvin Erud hefur fengið við-
urkenningu víða. Rekur hann
einkaskóla í Danmörku þar sem
hann kennir keramik og list-
málun. Hefur hann unnið mikið
við skreytingar á veggjum, svo
sem á altarisvegg Hyltebjerg
Kirke, Vanlöse o.fl. Kona hans,
Ingibjörg Erud er af dansk-ís-
lenzkum ættum og er hún hér á
landi nú, til þess að sjá um sýn-
ingu þessa.
Á sýningunni eru 12 myndir,
og eru það allt olíumálverk.
Sannleikurinn
Eftirfarandi bréf fékk ég frá
eir.um Bítla-aðdáandanum:
„Ég las auðvitað þessar upp-
lýsingar, sem gefnar voru um
„The Beatles" í Morgunblaðinu
þann 18. ágúst. Mér til mikillar
undrunar var sagt að hæð Ring
os, Paul's og John's væri 1,93
m. En hæð George's var hins
vegar ekki gefin upp. Þessar
upplýsingar eru hins vegar al-
rangar. Ringo er 1,72 m (Þú
sérð, að það munar nokkru), en
Paul, John og George eru allir
1,80 m. Ég vona að þú birtir
þetta svo að sannleikurinn
komi í ljós. —
— Beatles-imnandi“.
Engar himnalengjur
Ég verð nú að viðurkenna, að
hin óeðlilega líkamslengd
hinna þriggja fyrstnefndu hef
ur ekki haldið fyrir mér yöku
að undanförnu, en feginn er ég
að heyra, að sannleikurinn um
George er kominn í ljós. —
Sem betur fer fór það fram hjá
mér, að Mbl. veitti fyrrgreind-
ar upplýsingar um Bítlana 18.
ágúst, eins og bréfritari segir,
en lengdin á Ringo og félögum
hans getur skolazt til í blöð-
unum alveg eins og tunnufjöld
inn á síldveiðunum. Samt sem
áður er auðvitað mjög æski-
legt að blöðin gefi ekki upp
vitlaus mál á Bítlunum úr því
að verið er að gefa þessar upp-
lýsingar óbeðið á annað borð.
Ég get imyndað mér að þetta
geti haft alvarlegar afleiðingar
í hópi smávaxinna Bítla-aðdá-
enda, sem fara þá auðvitað að
reyna að teygja úr sér óeðli-
lega mikið, þegar Ringo og
hans félagar eru sagðir hærri
en þeir eru.
En eins og bréfritari segir,
þá ætti „sannleikurinn“ að
vera kominn í ljós við birtingu
bréfsins — og svo sannarlega
var kominn tími til að leiðrétta
þetta. Ég vona bara, að þetta
séu endanleg mál.
Goldwater-sýkin
Furðuleg Goldwater-sýki hef
ur gripið um sig hér á nokkr-
um mánuðum — og kommar og
framsóknarmenn nota nú Gold
water-stimpilinn á allt, sem
ekki er samkvæmt þeirra kokka
bókum. Þetta mundi þykja
óskaplega skríngilegt í öllum
löndum öðrum cn íslandi — og
mér finnst þetta svipað og þeg-
ar Tíminn hélt því blákalt fram
á dögunum, að Vísir óskaði þes»
nú heitast að þriðja heimsstyrj
öldin brytist út til þess að
skattamálin yrðu ekki lengur
efst á dagskrá.
Ég segi þetta ekki vegna þes*
að ég sé einhver Goldwater-
sinni, síður en svo. En ég hef
það á tilfinningunni, að þeir.
sem sjá áhrif Goldwaters 1
smáu sem stóru hér uppi á ís-
landi hafi fengið hann á heil-
ann á svipaðan hátt og Bítlam-
ir hafa komizt inn á heilann I
unga fólkinu. Þess verður ekki
langt að bíða, að stjórnarand-
staðan fer að kenna Goldwater
slys og ófarir á íslandi og er ég
viss um að engum yrði betur
skemmt en Goldwater sjálfum,
ef hann heyrði um þessa móð-
ursýki á Sögueyjunni.
Annars verð ég að segja það.
að ef við hér á íslandi eigum
jafn margt sameiginlegt með
Goldwater og Timinn og Þjóð-
viljinn segja, þá hlýtur niður-
staða okkar að verða sú, að
þessi Goldwater sé alls ekki
svo slæmur.
©PIB
C0Pf»IU6t^
BOSCH
KÆLISKÁPAR
frá 4%—8Vfc cubikfet
Ennfremur
FRYSTIKISTUR
Söluumboð:
HÚSPRÝÐI h.f.
Sími 20440 og 20441