Morgunblaðið - 27.08.1964, Side 28

Morgunblaðið - 27.08.1964, Side 28
.ELEKTROLUX UMBOÐIÐ LAUGAVEGI 6? si'mi 21800 Geymsluvörur Eimskips og skemma Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar brunnu til kaldra kola MIL.L.JÓNATJÓN varð í gær í Reykjavík, er mjölskemma við fyrir- hugaða síldarverksmiðju Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar á Giandagarði áður Faxaverksmiðjan, gjöreyðiiagðist í eldsvoða. — Hafði Eimskipatelag íslands hluta af skemmunni á leigu undir ýmsan varning, m.a. plastefni, hamp, pappír og hjólharða, en i hin- um hlutanum voru vélar úr síldarverksmiðjunni. Talið er, að neisti úr útblástursröri vörulyftu hafi tendrað eldinn, sem magnaðist óð- fluga. Lagði mikinn, kolsvartan reykjarmökk yfir Reykjavík og átti slökkviliðið í erfiðleikum með að athafna sig sakir reyks og hita. Stóð slökkvistarfið yfir i sex tíma og tóku þátt í þvi milli 50 og 60 slökkviliðsmenn. Standa gaflar skemmunnar enn uppi, en segja má að allt annað hafi brunnið til kaldra kola. Eldsins varðt vart skömmu fyr- ir klukkan hálf þrjú í gær. Voru þá starfsmenn Eimskips að störf- um í vörulagernum, en menn frá Landssmiðjunni unnu að viðgerð á vélum í öðrum hluta hússins. Hafði Eimskip þarna til geymslu ýmsan varning, svo sem hamp, hjólbarða, plastefni, þilplötur og ýmislegt annað, sem mörg fyrir- tæki í bænum höfðu flutt inn. Eimskipafélagið hefur haft um 800 fermetra af skemmunni, sem er um 2000 fermetrar, á leigu síð- an 1962, en áður hafði Sölunefnd varnarliðseigna þar geymslur sín- ar. Stóð til að Eimskip flytti úr húsnæðinu í haust, þar sem Síld- ar- og fiskifjölsverksmiðjan ætl- aði að hefja síldarvinnslu í verk- kvatt á staðinn og mættu þar 50—60 menn með fjóra dælubíla og tvær dælur. Voru tvær dælur og einn bíll notuð til að dæla sjó, en það gekk erfiðlega í fyrstu vegna þess hve lágsjávað var, er eldurinn gaus upp. Beindist starf slökkviliðsins að því að verja tvo tóma geyma sunnan vöruskemm- unnar, og svo sjálft verksmiðju- húsið, sem stendur norðan henn- ar. Urðu og engar skemmdir á þeim. f>að kvisaðist út, að bensín- geymir með 1400 lítrum af bens- íni væri staðsettur í suðaustur- horni skemmunnar og var því mikið kapp á það lagt að halda eldinum þar í skefjum. En þeg- ar til kom var geymirinn grafinn. niður og engin hætta af honum. Olíuleiðslur liggja um skemm- una út á bryggjur og var þegar skrúfað fyrir rennsli í þeim, en önnur þeirra mun hafa skemmzt nokkuð í eldinum. Háspennustöð í suðvesturhorni skemmunar tókst að verja svo og báta, sem lágu þarna við bryggjur. Engin hætta var á, að eldurinn bærist í olíugeyma, sem eru handan götunnar, enda var vindur hvass af norðvestri og lagði eld og reyk því í átt að Framhald á bls. 27. Fundu þjófunu ú stolnu bútnnm í gærmorgun urðu menn þess varir að stórum trillubát, Rúnu, hafði verið stolið frá bryggju í Hafnarfirði. Var hvarfið tilkynnt lögreglunni, og fór eigandinn, ásamt öðrum manni og lögreglu- þjóni á öðrum báti til að leita. Fundu þeir bátinn út af Kálfa- tjörn, sem er suður á Vatnsleysu strönd, og voru þar tveir menn á hönum. Voru þeir teknir fastir. Kolsvartan reykjarmökkinn leggur ut yfir höfnina. (Ljósm. Sv. Þ.) í slökkvistarfinu var áherzla á það lögð, að verja geymana tvo, sem standa sunnan skemmunnar. Hestur lengi tjóít- raður við staur Týndist fyrir 10 dögum TVEIR drengir í Mosfellssveit fundu á mánudagskvöldið rauð- skjóttan hest fastan við girðingu í landi Markholts. Var hann með beizli og taumurinn svo vafinn um girðingarstaurinn að hann gat ekki hreyft höfuðið. Var hann sýnilega búinn að vera þar lengi. því túnið var traðkað flag kringum staurinn, tveim skeifum hafði hesturinn sparkað undan sér og staurinn var nagaður. — Losuðu drengirnir hestinn, sem var feginn frelsinu og einkum að fá að drckka. Mun þarna hafa verið hesfur Benedikts Árnasonar, leikara, sem hann tapaði frá sér fyrir 10 dögum, og leitað hefur verið að Framhald á bls. 27 smiðjunni í nóvember og átti þá að nota skemmuna sem mjöl- geymslu. Valtýr Hákonarson, skrifstofu- stjóri Eimskipafélagsins, tjáði blaðinu í gær, að tjónið á varn- ingnum skipti milljónum, þó að ma4 hefði enn ekki farið fram. Er ekki vitað nákvæmlega hve mikið magn af hverri vörutegumd eyðilagðist, en fylgiskjöl náðust öll og tjón hvers aðila mun því liggja ljóst fyrir, er rannsókn hefur farið fram. Slökkviliðið kom á vettvang þegar er eldsins varð vart. Kom- ust fyrstu mennirnir inn i hús- ið með vatnsslöngu og beindu henni að hampinum, en mínútu síðar magnaðist eldurinn mjög skyndilega og urðu slökkviliðs- menn að flýia húsið. Hafði öll- xwn mönhunum, sem ummu í hús- i»u, tekizt að forða sér, en einni vörulyflu varð ekki bjargað. Var eidhafið gífurlegt, húsið logaði alH að innan og fékk slökkviliðið lítt ráðið við eldinn. Lagði kol- cvartan reykjarmökk af plast- efmim og hjóltoörðum yfir höfn-- ina ög austur yfir bæinn. AiH lið slökkviliðsins var 5 drengir björguðust naumlega á Kópavogi er bát þeirra hvolfdi í gærkvöldi í GÆRKV oLDI munaði litlu að 5 strákar úr Kópavogi yrðu allir úti á voginum, er bát þeirra hvolfdi. Var það brein tilviljun að fólk í húsi á ströndinni hafði verið að horfa á þá og varð þess vart er þeir voru horfnir. Hengu strákarnir á kili bátsins í meira en 15 mínútur og voru svo að fram komnir er þeim var bjargað, að þeir gátu varla gengið og einn var sendur á Slysavarðstofuna. Þeir voru þó allir að ná sér eftir volkið eftir að þeir komu á land. M>bl. spurði Ingólf Hannesson, Sunnubraut 5*1 nánar um þetta, en það var hann og tveir menn aðrir sem björguðu drengjunum. Þetta gerðist um ki.8 um kvöldið. Fjölskylda Ingólfs hafði verið að horfa á stráka, sem voru á sjó, en talsvert rok stóð eftir voginum þegar út kom. Sigurður Kjartans- son, Þiingholtsbraut 40, kom þá inn og leit fóikið því »f drengjunum. En allt í einu tóku menn eftir að þeir voru horfnir. Var þá farið út á svaiir með kíki og horfzt eftir þeim og sáust þá hófuðm á þeim upp úr sjónum. Hengu þeir á kili bátsins. Þeir Ingólfur, Grimur sonur bans og Sigurður hlupu til og tóku bát og reru út eftir drengjunum, en það var 16 mínútna róður. Á meðan héldu drengirnir sér allir á kiiirrum. Þeir yoru ekki f björguinarbeltum, en munu hafa haft þau með sér laus í bátnum. Sagði Im.gólfur, að nauðsynlegt væri að brýna það fyrir drengjum að ekkert gagn er í að hafa björgunar- belt-i Jaus hjá sér ef iila fer. Sæmi'iege gekk að ná örengj unum upp. Tveir héldu bátn- um í horfinu, en sá þriðji tíndi strákama upp í hamn, einn og einn í einu. Strákarnir, sem eni 14—15 ára gamlir, voru þá að vonum illa á sig komnir. Þeir gátu tæplega gengið einir. — Það var ekki að furða, sagði Ingr ólfur. Éinn var í galla og var harm fullur af vatni, og stíg- véíin full, svo hann var helm- ingi þyngri en hann átti að vera. Ég fann það þegar ég bár hann i land. En þeir gengu sæmiiega þegar þeir Framhald á t. síðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.