Morgunblaðið - 29.08.1964, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.08.1964, Qupperneq 6
6 MORGUN BLAÐIÐ Laugardagur 29. ágúst 1964 Eírástjin Ctslason: Togveiöar Eyjabáta ÞAÐ þykir efalaust bæði laerð- um og leikum óviðeigandi, að ég undirritaður, sem er nýfluttur til Vestmannaeyja, hreyfi á opin- berum vettvangi því máli, sem ég hyggst nú fjalla lítillega um í eftirfarandi grein. En fálæti það, sem mér finnst starfandi skip- stjómarmenn hér og hlutaðeig- andi útgerðarmenn sýna málinu. vekur hjá mér lóngun til þess að skrifa um það nokkrar línur, ef það gæti orðið til þess, að fleiri sjómenn létu í ljós skoðanir sín- ar og ekki siður ef einhver okkar ágætu fiskifræðinga fengjust til að birta sitt álit. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þróun sú, sem átt hefur sér stað í útgerð vélbáta af stærðinni 40 til 100 rúmlestir undanfarin ár, er óviðunarxdi. Til landsins hefur verið keyptur fjöldi nýrra og glæsilegra skipa, fullkomnari en jafnframt dýrari en áður. betta hefur að sjálf- sögðu valdið því, að erfiðara er að manna minni og ófullkomnari báta, sem til eru í landinu. — Ómögulegt er að viðurkenna, að bátar þessir hafi lokið hlutverki sínu sem arðberandi atvinnu- tæki. Að minnsta kosti ekki þeir, sem ekki eru orðnir eldri en tíu ára, að ekki sé talað ur~ hina, sem lagt hefur verið fjögurra til sex ára gömlum, vegna þess að ekki var hægt að manna þá. Ekkert er eðlilegra og sjálf- sagðara en að íslenzki fiskiskipa- flotinn sé hverju sinni eins full- kominn og kröfur tímans heimta og vænlegt þykir, svo að starfs- kraftar hinna fáu íslendinga, sem enn gefa sig að sjósókn, nýtist sem bezt. Hitt verður einnig að athuga, hvort við, þessir fáu sjó- menn, og hinir, sem njóta góðs af störfum okkar, höfum efni á því að kaupa ný skip til landsins fyrir hundruð milljóna króna og leggja öðrum — mörgum ágætis- fleytum —• vegna manneklu. Verður ekki að finna þessum bátum starfsgrundvöll, svo að þeir að minnsta kosti fylli ára- tuginn, áður en þeim er lagt? Trúlegt þykir mér það, þótt full- víst sé, að aðrir viti betur og þá bezt þeir, sem landsmálum stjórna og þá um leið bönkum þeim og öðrum lánastofnunum, sem til skipakaupa lána. Hér í Vestmannaeyjum eru nokkrir tugir báta frá 30 til 70 lestir. Margir eru þeir yngri en tíu ára, aðrir litlu eldri og enn aðrir gamlir bátar, en allir nota- legir til veiða við hæfi. Sumir eru afbragðsfleytur, eins og vænta má um nýlega, 50 til 70 rúmlesta báta. Sá er þó hængur á, að síðan nýju og stærri bát- unum fór að fjölga, einkum stærri hringnótarbátunum, er ill- mögulegt að manna marga eldri bátana á vertíðinni og útilokað með öllu á sumrin, nema þá til togveiða, þar sem hægt er að komast af með 5 til 6 manna áhöfn, en við aðrar veiðar þarf allt að helmingi fleiri mettn. Af þessum ástæðum hafa útgerðar- menn og skipstjórar þessara báta freistazt til þess að gera þá út til togveiða og reynt með því að forða sjálfum sér frá fjár- hagslegu tjóni, sem fáir stæðu unlir, um leið og þeir koma í ^ i rMi veg fyrir fjölgun í „íþanghafinu“, sem sýnist mega telja íslending- um svipað vandamál og fólks- fjölgun stórþjóðunum. En eins og fréttir í blöðum og útvarpi bera með sér, eru togveiðar frá Vestmannaeyjum annmörkum háðar, meðan dugmiklir skip- stjórar og góðir aflamenn verða að sætta sig við að vera annan daginn við störf sín á sjónum, en hinn sakborningar í réttarsal bæjarfógetaembættisins hér. Get- ur hver maður séð, sem sjá vill, að slíkt ástand er óviðunandi. Það er ekki að gamni sínu gert að veiða innan landhelgi, heldur vegna þess, að hér er um að tefla lífsafkomu fjölda fólks. Kunnugir vita, að togveiðarnar héðan eru einkum stundaðar út af Vík í Mýrdal, við Reynisdýpi og út af Ingólfshöfða. Út af Vík hagar þannig til, að brattur kantur rís úr hafdijúpinu, og eru 'þarna straumar miklir, sem bera með sér' alls kyns æti, sem fisk- urimn fylgir eftir upp í kantinn og veiðist þá á ýmsu dýpi, en þó mest frá 60 föðmum og upp á 36 til 40 faðma. Þarna eru nær allar tegundir íslenzkra nytja- fiska, og naumast annar en sá, sem nær því stærðarmarki, sem sett er um fisk hérlendis, tii þess að hann nái því að teljast stór- fiskur, þ. e. ýsa yfir 50 sm og þorskur 57 sm og þar yfir. Um annan fisk, sem þarna veiðist, gegnir sama máli. Hann er allur, eða nær allur, ofan þeirra tak- marka, sem sett eru fyrir fisk fyrsta flokks. Hvað veldur göngu þessa stóra fisks þarna, veit ég ekki, en þetta er staðreynd, sem fiskifræðingar okkar og aðrir geta sannfærzt um, séu þeir í vafa, með því að vera með tog- veiðibátunum, sem þarna veiða. Veit ég, að margir skipstjórar hér væru fúsir að bjóða fiskifræð- ingum okkar í veiðiferð, ríkinu að kostnaðarlausu. Nú spyr ég þá vísu menn, sem þessum málum ráða, hvort það sé rányrkja að veiða þennan fisk í botnvörpu, þegar ekki er rányrkja að veiða hann í drag- nót eða snurpunót til dæmis eða hvað amnað veiðarfæri, sem leyft er að nota til fiskveiða innan landhelgi? Ég skil það ekki, og það skilja það ekki margir aðr- ir, Fyrir hönd okkar, sem ekki skiljum, vil ég biðja þá, sem þessu ráða og skilja þetta, að gefa okkur víðhlítandi skýringu á því, hvers vegna verið er að loka þessum svæðum fyrir ís- lenzkum fiskibátum, og gera þessi hafsvæði að alifiskabúri, sem bannað er að nytja á skvij- samlegan hátt. Ég er vel kunn- ugur togveiðum fyrir Norður- landi og veit, eins og raunar allir, sem þar hafa stundað togveiðar, að þar hefur farið fram og fer fram lögvernduð rányrkja, þegar bæði togarar og togbátar veiða inn að fjögurra mílna mörkum, ógrynni af ókyniþroska fiski, bæði þorski ig ýsu, sem engum verður að gagni nema múkka og mávi. Helming aflans er varpað fyrir borð og flýtur dauður fisk- ur oft um allatt sjó. Þetta vita kunnugir, og séu fiskifræðingar í vafa, þá er auðvelt að sýna þeim þetta. Ekki er hægt að á- fellast norðlenzka skipstjóra. Þetta er lögum samkvæmt. En verða menn ekki þrátt fyrir þetta að viðurkenna, að lög eiga að vera þegnum þjóðfélagsins til heilla? Er ekki tímabært, að lög um verndun fiskimiða við ísland verði lagfærð, svo að þau beri tilætlaðan árangur? Ég tel það brýna nauðsyn, og fleiri eru sama sinnis. Ekki get ég skilizt svo við þetta mál, að geta ekki þess, sem ég tel skipta meginmáli. Sé það satt, sem fróðir menn halda fram, að botinvörpur spilli svo botngróðri, þar sem þær fara yfir, að líkast sé akri eftir engi- sprettufaraldur, og hafi í för með sér eyðileggingu uppeldisstöðva, væri bæði óráðlegt og skaðlegt að leyfa slíkar veiðar á hrygn- ingar- og uppeldisstöðvum nytja- fiska. Hins ber að geta hér, að á aðalveiðisvæðum Eyjabáta er nær einvörðungu sandbotn, sem lítill sem enginn botngróður þrifst á, enda er sandurinn á sí- felldri hreyfingu bæði vegna sjávarfalla og strauma og vegna framburðar stórfljóta. Yíðast hvar annars staðar við suður- strönd landsins er þessu á annan veg farið. Þar er botn fastari og gróður stöðugur. Þar gæti verið stórskaði af því að veiða með botnvörpur og jafnvel dragnót. Að þessu athuguðu sést, að skaði ætti enginn að vera af þvi að opna umrædd veiðisvæði fyrir botnvörpubátum Eyjamanna og ef til vill víðar við landið, þar sem svipaðar eru aðstæður, enda er hér um mikið hagsmunamál að ræða. Núverandi ástand er óviðun- andi. Lagfæring verður að fást. svo að hægt sé að gera fyrr nefnda báta út, báta sem ekki verða gerðir út á aðrar veiðar vegna manneklu, en gætu fært björg í bú. Kristján Gíslason. Eftir að grein þessi var rituð, hef ég talað við fiskifræðing, sem lýsir sig hlynntan skoðunum þeim, sem ég hefi í lijós látið. K. G. * -í Eins og fram hefur komið í auglýsingu er Hafskip hf. að hefja reglubundnar siglingar frá Kaup- mannahöfn til íslands einu sinni í mánuði. Fyrsta ferðin er fyrrihluta september frá Kaupmanna- höfn. Skipið, sem þessar ferðir fer er ms. Rangá, seð einnig hleður vörur í Gdynia og Gautaborg í sömu ferð. Umboðsmenn félagsins í Kaupmannahöfn eru E. A. Bendix & Co., A/S, Store Kongens- gade 47, Kaupmannahöfn. Sjónvarp og samkeppni Þá ætla þeir að hefja undir- búning að stofnun íslenzks sjón varps, ráða skrifstofustjóra — og sennilega fleira starfslið. Það er útvarpið, sem undirbýr mál- ið og manni skilst, að þessi tvö fyrirtæki verði nátengd í fram- tíðinni. Sjálfur efast ég um að heppilegt sé að hafa bæði fyrir tækin undir sama hatti og ég hef heyrt marga lýsa sömu skoð un. Sennilegt er, að útvarpið geti á margan hátt aðsoðað við að byggja undir væntanlegt sjón- varp, en æskilegast væri vafa- laust að láta þessar tvær stofn- anir keppa um hylli almennings. Þau eru harla fá opinberu fyrir- tækin, sem eiga kost á hylli al- mennings. Og samkeppnin held ég að auki möguleika beggja stofnanna. Tæknin — aðalatriðið Sjónvarpið þarf nýja starfs- krafta, nýtt blóð, nýjar hug- myndir. Það þarf að byrja á að senda lítinn hóp ungra og á- hugasamra tæknimanna út af örkinni, senda þá til náms er- lendis. Oig það þarf að gera hið bráðasta ásamt mörgu öðru, ef sjónvarpið á að hefjast eftir tvö ár. Nokkrir íslenzkir sjón varpsmenn starfa við stöðina á Keflavíkurflugvelli og þætti varla óeðlilegt að notfæra sér þeir eru fúsir til starfa. Annars ætla ég ekki að fara að segja sjónvarpsstjórninni fyr ir verkum . En óg óttast, að þekkingu þeirra og reynslu, ef tæknimálin, sem eru í raun- inni aðalatriðið, falli í skugig- ann fyrir „stóru“ embættunum hjá væntanlegu sjónvarpi. Siglufjörður Nú flykkist fólkið heim aft- ir síldarvertíðina og margir hafa haft fremur rýrar tekjur, einkum þeir, sem ekki gerðu annað en salta síld. Ef nú kæmi aflahrota og allt fylltist af söltunarhæfri síld, yrði megn ið af henni sennilega að fara til bræðslu eins og fyrri dag- inn, því á höfnunum fyrlr aust an eru heimamenn víða einir eftir til að verka aflann. Illa hefur síldarbærinn, sjálf ur Siglufjörður, farið á mis við allt gamanið í sumar — og mun þar umhorfs eins og í hálf yfirgefnum gullgrafabæ. Það er enginn ný reynsla á íslandi, að erfitt sé að treysta á síld- ina, hvað þá heldur að byggja allt á henni. En frekari nýting á aflanum mundi hins vegar skapa mikla atvinnu á þessum útgerðarstöðum. Ég segi ekki, að slíkum atvinnurekstri sé, hægt að koma á fót á svip- stundu. En einhvern tíma verð ur að byrja. Kraf taverkaf æðan í rauninni er síldarmarkaður inn mjög þröngur, því að síld- ar er neytt á tiltölulega mjög litlu landsvæði og mér er sagt, að neyzlan fari minnkandi með betri efnahag viðkomandi þjóða. Sjálfir ættum við ekki að undrast þetta, þótt hér sé orðin venja að tala um ,,ís- lenzku síldina“ eins og ein- hverja kraftaverkafæðu — i gæðaflokki, sem hafinn sé yfir allt annað. Við skulum bara líta í eigin barm. Háma Islend íngar þetta „sælgæti" í sig? Nei, ekki aldeilis. En þeir borða enskt súkkulaði-kex þótt dýrt sé. Spurningin er hins vagar sú. hvort hægt sé að framleiða einhvern annan mat úr síldinni — mat, sem hægt sé að finna markað fyrir utan þessa alda- gamla síldarneyzlusvæðis. Með- an íslendingar gera engar at- huganir á þá átt er óhætt að segja, að margt sé ógert. Leiðrétting í gær féll niður hluti af tveimxir setningum úr síðustu klausunni hér í dálkunum. Þar átti að standa: ....ég tel það skyldu hvers og eins gagnvart samfélaginu að vara við öku- föntum, sem ekki stofna að- eins sjálfum sér í hættu, held- ur líka lífi og limum allra þeirra, sem um götur borgarinn ar aka. Það þýðir lítið að góna upp í loftið og vandræðast yfir ört fjölgandi slysum, snúa sér síðan á hina hliðina og halda á- fram að sofa. ELDAVÉLAR ELDAVÉLASETT GRILL Sjálfvirkt hita- og timaval. A E G - umboðið Söluumboð: HÚSPRÝÐI HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.