Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.09.1964, Qupperneq 3
Föstudagur 4. sept. 1964 MOHGUNBLADIÐ 3 EKKI eru allir jafn ernir og fullir af vinnuþreki og Hage- rup Isaksen, 77 ára gamall maður, sem vinnur þessa dag- ana að því að gera við þak Herkastalans í Reykjavík. Hagerup stendur daglangt uppi á þakinu og skiptir á gömlum þakhellum og nýjum, horfir öðru hverju niður á götuna fram af þakskegginu og lætur sér hvergi bregða. Um lærið hefur hann bund- inn vað, sem gæti haldið hon- um ef honum kynni að skrika fótur, en til lofthræðslu kveðst Hagerup aldrei hafa fundið. Ókunnugir mundu sennilega telja hann milli 55 ára og sextugs. „Hvernig datt þér í hug að flytja frá Noregi til íslands?“ spurði blaðamaður Morgun- blaðsins, er hann hitti Hage- rup í gær. „Það gerir konan. Hún er sko íslenzk. Ég kom til Siglu- fjarðar á síldarbáti fyrir löngu. Jacobsen útgerðarmað- ur stóð á bryggjunni, þegar við vorum að landa. Jacobsen var skrambi góður fýr. Hann sagði við okkur, þegar búið var að landa, viljið þið ekki koma og líta á stelpurnar Hagerup Isakseu skiptir um þakhellur á Herkastalanum. starfað við lagningu þak- hellna á sumrin síðan og við höfnina á veturna. Þó var ég tvisvar skamman tíma á tog- urum, fyrst á Braga, sem sökk í stríðinu og svo á Draupni gamla." „Hefurðu aldrei séð eftir því að hafa flutzt til íslands?" „Nei, aldrei. Mér hefur lík- að prýðilega hér í Reykjavík allt frá fyrstu tíð. Ég hef ekki kynnzt nema góðu fólki og hér er alltaf nóg vinna, fyrir þá, sem á annað borð nenna' að vinria. Systkini mín reyndu að fá mig aftur til eftir stríð- ið, en mér datt ekki í hug að fara héðan. Ég á heima á ís- landi.“ „Varstu alltaf til sjós, áður en þú komst til íslands?" „Já, ég var í allskonar sjó- mennsku. Á fiskibátum, sel- föngurum, hvalföngurum og flutningaskipum. Ég þvældist til Grænlands, Spitzbergen og um allt. Svo réðist ég til Sam einaða danska gufuskipafé- , lagsins og var í siglingum milli Bandaríkjanna, Suður Ameríku, Frakklands, Spánar og fleiri landa. Þá var maður ungur og var óskaplega skemmtilegt, en við skulum alls ekki fara að segja neitt nánar frá því.“ „Hvernig ferðu að því að vera svona unglegur? Hefurðu aldrei orðið veikur?" „Jú, ég var veikur fyrir nokkrum árum, þegar ég var að vinna suður í Hafnarfirði. Þá fékk ég snert af hjarta- slagi og datt niður á stein- gólf í húsi, sem var í bygg- 77 ára gamall- og klífur þök SpjáHað við Hagerup Isakseai mínar? Við gerðum það. Svo sagði hann við mig, viltu ekki fá þér eina? Og ég gerði það. Konan mín heitir Margrét Markúsdóttir og er ættuð úr Fljótshlíð. Hún fór út með mér um haustið heim til Tromsö. Þetta gerðist fyrir 42 árum og elzti sonur minn, Óskar, leigubílstjóri í Reykja vík, er 41 árs.“ „Hvenær ákvaðstu svo að flytjast til íslands?" „Það var fimm árum seinna og fyrir 37 árum fluttumst við hjónin til Reykjavíkur. Við höfum búið að Ásvalla- götu 63 síðan og þar hafa börn in okkar sjö alizt upp. „Hvaða vinnu stundaðir þú fyrst?“ „Ég var svolítið á togurum. Fýrst á Júpíter. Svo lenti ég í voðalegum sjávarháska skammt norðan við Hull. Það voru fjörutíU skip á þessum slóðum á leiðinni með fisk til Hull. öll leituðu vars, nema Júpiter og enskur togari, sem komust alla leið, en við mjög illan leik. Sjórinn gekk yfir skipið frá stafni og aftur fyr- ir skut. Ég hafði aldrei séð neitt þessu líkt, þótt ég hefði siglt um allt Atlantshaf frá því að ég var 12 ára. Mér varð svo mikið um þetta, að ég fékk hálfgert taugaáfall. Þegar heim kom leitaði ég læknis, sem ráðlagði mér að leggja sjómennskuna á hill- una, þar til ég hefði jafnað mig eftir áfallið.“ „Hvað fórstu þá að gera?“ „Ég réði mig i vinnu hjá Nikulási Friðrikssyni og fór að fást við steinlagningu, einkum á þök. Fyrst vann ég við byggingu Herkastalans og hef síðan séð um viðgerðir á þaki hans. Ég hef að mestu — Togliatti Framh. af bls. 1 — að skortur sé á frjáls- ræði í kommúnistaflokkunum í Rússlandi og mörgum öðr- um löndum undir stjórn kommúnista og þar eimi enn eftir af áhrifum Stalin-tím- anna. — ný tillaga Togliattis um fund allra kommúnistaflokka heims sem með völd fari til þess að ræða sambúð sósíal- isma og lýðræðis „til þess að eyða öllu því sem eftir er úr fortiðinni án ótta eða hræðslu við að taka upp nýja báttu, ingu. Þarna lá ég í 4% klukku stund, þangað til kunningi minn kom að mér. Ertu nú loksins orðinn veikur, spurði hann. Já, nú er ég veikur, sagði ég. Það stóð heima, því að ég var frá vinnu 1 tvö ár. Annars hef ég bara fengið kvef eins og gerist og gengur. Núna hef ég það gott, eh mað- ur verður dálítið þyngri með aldrinum." „Smakkar þú áfengi?" „Já, mér þykir ágætt að bragða vín, en ég hef aldrei verið neitt mikið fyrir að drekka of mikið af því.“ „Þú reykir ekki, en hefurðu nokkurn tíma reykt?“ „Reykt!“ n'ú skellur Hage- rup upp úr. „Ég reykti 3 pakka af sígarettum á dag með pipu og munntóbaki, þar til Björn Gunnlaugsson, lækn ir taldi mig á að hætta, fyrir tíu eða tólf árum. Það er ein- hver versta raun, sem ég hef þurft að þola. Mig langaði' í sígarettur í 2 ár, en lét aldrei eftir mér að taka neina, því að ein hefði nægt til að koma mér á sama sporið aftur. Sennilega hefði ég farið að reykja 4 pakka á dag ásamt pípunni, til þess að vinna upp tímann, sem ég tapaði úr. — Uoks leggur Togliatti til, að kommúnistaflokkar Vest- ur-Evrópu skuli látnir alger- lega sjálfráðir gerða sinna og verði þeir einungis ábyrgir gagnvart verkalýð síns eigin lands og mælir með ráð- stefnu kommúnistaflokka Evrópu og Afríku, sem ekki fari með völd í löndum sínum til þess að ræða þetta nánar. í minnisblöðum þessum leggur Togliatti því til, segir I/Espresso, tvær alþjóðlegar ráðstefnur, aðra fyrir komm- únistaflokka þá sem með völd fari og hina fyrir þá sem ekki sitji í stjórn. Hagerup segist aldrei vera lofthræddur. (Ljósm. Stefán Nikulásson). STAKSIEINAR Þegar Tíminn fjallar um siðgæði Tíminn ræðst í gær á Mbl. með miklu offorsi og segir Mbl. „hafa lagzt lægst allra blaða á íslandi" og hvorki meira né minna en „reist siðgæðinu þá níðstöng, sem það hafði eitt blaða innræti til að gera“. Hvað hefur svo Mbl. til saka unnið, að Tíminn skuli nú velja því þær nafngiftir, sem blaða- lesendur hafa fyrir löngu tengt nafni Tímans? Undanfarna mánuði hafa sum blöð fjallað nokkuð um mála- ferli nokkur og hafa þau skrif ekki verið blóm í hnappagati sannarar blaðamennsku né vand- aðs fréttaflutnings. Hefur Mbl. því ekki þótt ástæða til þess að taka þátt í slíkum skrifum, sem að mestu hafa verið endurprent- anir upp úr sjaldséðu vikublaði. Hefur ýmsa jafnvel grunað, að vikublað þetta væri að bjarga fjárhag sínum með þessum „fréttaflutningi“, enda er nú sýnt að tilgangurinn átti að helga meðalið hjá þeim fínu mönnum, sem að þessum blaðaskrifum stóðu. Þá er það, að á dögunum er Morgunblaðið beðið fyrir birt- fc)gu á yfirlýsingu um málið. Mbl. birtir síðan yfirlýsingu þessa athugasemdalaust, enda er hún undirrituð af aðila í málinu. Níðstöng íslenzkrar blaðamennsku Tíminn er ekki spar á óhugn- anleg lýsingarorð. Það skal blað- ið þó vita, að það þarf meira til þess að vera niðstöng íslenzkri blaðamennsku. Það þarf þó ekki nema lesa einn árgang af Tím- anum til þess að sjá, að sam- keppnin er hörð um þann titil! Jafnvel þessi smáklausa og árás á Mbl. í Tímanum í gær sýnir, að þar eru slíkir rógsfræðingar á ferð, að vonlaust má telja, að önnur blöð ræni titli Tímans í bráð, níðstöng íslenzkrar blaða- mennsku. Ekki er þess heldur að vænta, að baráttan harðni, fyrr en helzti hælbítur kommúnista- blaðsins snýr aftur úr pílagríms- för sinni til Kína, þar sem „ó- sannsögli", „ábyrgðarleysi“ og „óheiðarleiki" ráða ríkjum, að sögn sendiráðs Sovétríkjanna hér. Greinir ábyrg blöð frá sorpblöðum Eitt virðulegasta og áreiðan- legasta blað heimsins er banda- ríska dagblaðið The New York Times. Ritstjórum Timans þyk- ir oft henta, að þýða upp úr Times í blað sitt og ber það efni af öðru því, sem ritað er í Tím- ann. Ritstjórum Tímans virðist hins vegar hafa sézt yfir kjörorð N. Y. Times, en það stendur dag- lega skráð við hlið nafns blaðs- ins á forsíðu. Kjörorðið er: „All the News That’s Fit to Print“: Allar fréttir, sem hæfa þykir að prenta. Þetta er merkt takmark, enda greinir það sauðina frá höfrunum, greinir ábyrg blöð frá sorpblöðum. Tíminn ætti að kynna sér þetta kjörorð og tileinka sér. Það er ekki ábyrg blaðamennska, að prenta hvers konar sorp, níð og árásir. Það er ekki ábyrg blaða- mennska að prenta hvers konar dylgjur og aðdróttanir að ein- stökum borgurum, það eru ekki „fréttir, sem hæfa þykir að prenta“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.