Morgunblaðið - 22.10.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.10.1964, Blaðsíða 14
14 MORCUNBLAÐIÚ Fimmtudagur 22. okt. 1964 Útgefandi: F ramkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslust j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. SAMKOMULA G í L OFTLEIÐAMÁLINU ■jslendingar fagna heilbrigðri * lausn Loftleiðamálsins ekkí einungis vegna þess að aliir óska Loftleiðum vel- farþaðar, heldur einnig og ekki síður af þeirri ástæðu, að lausn málsins treystir nor- ræna samvinnu, en hefði deil- an harðnað og slitnað upp úr samningaviðræðum hefði það getað leitt til margháttaðra erfiðleika í samskiptum okk- ar við frændþjóðirnar. Eins og margsinnis hefur verið bent á, eru öflug flug- félög íslendingum lífsnauð- syn. Við þurfum að brúa fjar- lægðirnar og búa við örar og traustar samgöngur við um- heiminn. Án þeirra eru úti- lokaðar þær framfarir, sem við erum staðráðnir í að búa við í framtíðinni. Þess vegna þarf enn að efla íslenzku flugfélögin stórum, og það er síður en svo fjar- stæða að hugsa sér að íslend- ingar geti orðið mikil flug- þjóð, sem annist flug á al- þjóðlegum markaði víða um heim. Norðmenn hafa keppt að því að efla kaupskipaflota sinn til að annast siglingar fyrir aðra; hví skyldum við íslendingar ekki efla flug- flota okkar til að keppa um flug á alþjóðlegum flugleið- um. EIGIN IBÚÐIR EÐA LEIGUIBÚÐIR C jálfstæðisflokkurinn hefur ^ um langt skeið lagt á það megináherzlu, að sem allra flestir gætu eignazt eigin íbúðir. Fjárhagslegt sjálf- stæði einstaklinganna er einn af hyrningarsteinum sjálf- stæðisstefnunnar og þess vegna er eðlilegt að flokkur- inn hafi barizt fyrir því, að sem flestir ættu íbúðarhús- næði sitt. Aðrir flokkar hafa að vísu í orði kveðnu oft stutt þessa stefnu, en þó bryddir alltaf öðru hvoru á óskum um stefnubreytingu í húsnæðis- málum, þannig að ríki og bæj- arfélög byggi leiguíbúðir og hin og þessi höft séu lögð á einstaka húsbyggjendur. Eftirminnilegust er hin svonefnda „Gula bók“, sem samin var á tímum vinstri stjórnarinnar og gerði ráð fyrir því að skammta íbúð- arhúsnæði, takmarka hús- byggingar einstaklinga og fela ríkinu allsherjarforsjá hús- næðismála. Hafði þegar verið prentað frumvarp til laga um þetta efni, en vinstri menn gugnuðu á lögfestingu þess, þegar þeir fundu andúð al- mennings. Nú eru kommúnistar enn komnir á stúfana og flytja um það fjálglegar ræður að nauð- synlegt sé að ríkið hef ji bygg- ingu leiguhúsnæðis. Fjárhags legt sjálfstæði einstakling- anna er að sjálfsögðu eitur í beinum kommúnista. Þeirra stefna er sú, að enginn megi neitt eiga, heldur eigi ríkið að vera eini atvinnurekand- inn og eigandi alls þjóðar- auðsins. Þess vegna er það auðvitað í fullu samræmi við þeirra stefnu að reyna að hindra það að menn eignist íbúðarhúsnæði og láta ríkið eitt standá í húsbyggingum. HRINGVEGUR UM LANDIÐ ¥ gær birtist hér í blaðinu viðtal við Jónas Péturs- son, alþingismann, þar sem hann vekur athygli á nauðsyn þess að hraðað sé fram- kvæmdum við að tengja Aust uiland vegasambandinu á Suðurlandi, með því að sigra þann þröskuld sem er í Skaftafellssýslu. Án efa eru miklir erfiðleik- ar því samfara að leggja veg um Skeiðarársand og án efa yrði sú vegagerð kostnaðar- söm, en vafalaust er hins veg- ar unnt að leggja slíkan veg og vafalaust verður slíkur vegur lagður áður en langt um líður. Þessi samgöngubót yrði einhver hin mikilvægasta fyrir landsmenn alla, en þó auðvitað fyrst og fremst Skaftfellinga og Austfirðinga. Það er eðlilegt að þeir berjist fyrir þessu mikla framfara- máli og aðrir eiga að veita því stuðning. ÆSTARI KOMMÚNISTAR Fnn virðast Framsóknar- foringjarnir ætla að halda áfram þeirri stefnu sinni að yfirbjóða kommún- ista og vera enn óábyrgari og æstari en þeir. Efnilegasti liðsmaðurinn á þessu sviði er Þórarinn Þór- arinsson, Tímaritstjóri, enda voru þingstörf vart byrjuð er hann tók til við stóryrðavað- alinn þar sem frá var horfið sl. vor. Nú er hann hinn argasti yfir því að samkomulag Jariarbúar 6 milljarðar árii 2000 varlega áætlað Fréttir trá sam.þjóðunum Apartheid, alþjóðáviðskipti og fjárhagur S.Þ. eru á dagskrá Allsherjarþingrsins. EINS og stendur eru 83 mál Páll páfi. Páll páfi heimsækir litdland PÁLIi páfi hefur skýrt frá þvi, hann hyggist heirn- sækja Indland í nóvember n.k. í tilefni af ráðstefnu, sem kristnir menn halda þá í Bombay. Páfinn sagðist ekki ætla að heimsækja fleiri staði í Indlandi en þessa einu borg. Gert er ráð fyrir að páfinn ferðist með flugvél og verður þetta lengsta ferð, sem páfi hefur lekizt á hendur tii þessa. I tilkynningu sinni um ferðina sagði páfinn m.a., að ferðalag hefðu til þessa ekki fallið undir hið postullega starf, en hann teldi, að bæði hin fyrirhugaða ferð og ferð- in, sem farin var til „Landsins helga“, gætu samrýmzt þeim kröfum, sem gerðar væru til starísins. - á bráðabirgðadagskrá 19. AUs herjarþings Sameinuðu þjóð- anna, sem hefst á Aðalstöðv- unum i New York þriðjudag- inn 10. nóvember, nálega tveimur mánuðum seinna en venjulega. Meðal þeirra eru hin miklu alþjóðlegu vanda- mál eins og afvopnun, apart- heid-stefna stjórnarinnar í Suður-Afriku, breytingar á al þjóðlegutn verzlunarviðskipt- um og hlutfall fólksfjölgunar við efnahagslegar framfarir — en þar verða líka rædd vanda mál Sameinuðu þjóðanna sjálfra: allt frá uppsetningu sérstakra véla til að telja at- kvæði í fundarsalnum til hinna miktu efnahagserfið- leika samtakanna. Meðal hinna 83 mála eru tíu pólitísk vandamál, meðal þeirra almenn ag algier afvopnun, spurni-ngin um ráðstefnu til að ganga frá sátt mála um bann við notkun kjarnavopna og spurningin um algera stöðvun á tilraun- um með kjarnavopn. Þessi vandamál verða rædd með hliðsjón af skýrslum frá ráð- stefnu 18 ríkja í Genf, sem fjallað hefur um afvopnunar- máþð. Nokkur ríki í Afríku hafa lagt til, að Sameinuðu þjóðirnar kveðji saman allþjóð leg ráðstefnu í því skyni að komast að samkomulagi um, að Afríka skuli vera laus við kjarnorkuvopn. Meðal efnahagsmála sem rædd verða á Allsherjarþing- inu er eitt efni sem vekja mun sérstáka athygli: skýrsla frá verzlunarmálaráðstefnu í vor og sumar, þar sem lagt var til að tekinn yrði upp nýr háttur á alþjóðaviðskiptum til að létt undir með vanþróuðu löndun um. Meðal annarra umræðu- efna má nefna spurninguna um hlutverk einkaleyfa þegar flytja þarf tækninýjungar til vanþróaðra landa, dýrtíð og efnahagsþróun, fóiksfjöLgun og efnahagsþróun o.s.frv. Meðal félagslegra umræðu- efna má nefna tillögu um sáttmála gegn kynþáttamis- rétti, tillögu um yfirlýsingu gegn rúarlegu umburðarleysi ag tillögu um sáttmála og yfir lýsingu varðandi frelsi til að afla upplýsinga og dreifa þeim. Gæzluverndarmálin á Allsherjarþinginu . taka til efna eins og skóla- og mennta- mála meðal íbúa Suðvestur- Afriku og svæða sem Portú- galar ráða. Eins og stendur liggur fyrir ein upptökubeiðni í Samem- uðu þjóðirnar frá Malawí (sem áður hét Njasaland). Jarðarbúar 6 miUjarðar árið 20Ö0, varlega áætlað. Jarðarbúar, sem voru kring um 3 milljarðar árið 1960, verða komnir upp í 5,3—6,8 milljarða árið 2000, samkvæmt „varanlegum framtíðarútreikn ingum“ í skýrsiu frá Sani- einuðu þjóðunum sem fjallar um horfurnar í fólksfjölgun- armálum heimsins. Er þar tal ið að 6 mílljarðar sé sennileg- asta tatan, þ.e.aa. helmingi fleíri jarðarbúar en árið 1960. í skýrslunni, sem ber heit- ið „Provisional Report on World Population Prospects, as Assessed in 1963“, segir hins vegar að ekki sé útilokað að fólksfjöldinn í heiminum verði kominn upp í 7,4 milljarða, ef fæðingatalan frá 1960 verði óbreytt, og ef dánartalan lækk ar jafnört og á sjötta tug ald- arinnar. f»ó er tekið fram, að ek'ki megi búast við að fram- tíðarþróiunin verði þannig, að bæði þessi skilyrði verði fyrir hendi, „Mjög er sennilegt, að þeir viðburðir gerist sem breyti núverandi þróun í fólks fjölgunarmálum", segir í skýrslunni. „Greina má á- kveðnar tilhneigingar, sem hafa munu ótvíraeðar afleiðing ar í náinni framtíð, og það er líka unnt að reikna út af- leiðingarnar með meiri eða minni nákvæmni lengra fram í tímann.“ Meðal annarra athugasemda í skýrslunni má nefna þessar: í nálega öllum vanþróuðum löndum eru mikiir möiguleik- ar á að lækka dánartöluna með skjótum hætti, þannig að þar er tilhneiging til mjög aukinnar fólksfjölgunar. Fólksfjölgunin í flestum vanþróuðum löndum nemiur nú 1 til 3,5 af hundraði ár- lega, en aukningin í flestum háþróuðu iöndum liggur milli 0,5 og 1,7 af hundraði. Hlutdeild vanþróaðra landa í fólksfjölda heimsins mun aukast úr 71 af hundraði árið 1960 upp í 81 af hundraði árið 2000. Austanverð og sunnan- verð Asía verður ákaflega þéttbýl, mun þéttbýlli en Evrópa. Ný flóttamannaplata meS heim.skunnum pianóleikurum. Sex af kunnustu pianóleik- urum samtimans munu leika inn á hljómplötu, sem Sam- einuðu þjóðirnar senda á mark aðinn haust til styrktar flótta mannasartinu. Hljómplatan ber heitið „International Pi- ano Festival“ og á henni verð- ur tónlist eftir Mozart, Schu- bert, Schumann, Beethoven, Chopin og Liszt. Þeir sem leika inn á plötuna verða Claudio Arrau, Wilhelm Bao- haus, Alexander Brailowsky, Robert Casadesus, Byron Jan- is og Wilhelm Keinpff. Platan verður stór ag hæg- Framhald á bls. 17. skyldi nást í sumar í vinnu- deilunum og segist „lýsa yfir óánægju með það að ríkis- stjórnin skyldi ekki fallast á sjálfsagða aðalkröfu verka- lýðsfélaganna um lífvænleg kjör fyrir 8 stunda vinnu- dag“, eins og hann kemst að orði. Leynir sér ekki, að Þór- arinn er með þessum orðum að reyna að spilla fyrir eðli- legum samskiptum milli vinnuveitenda og launþega og æsa hina síðarnefndu til þess að gera óraunhæfar kaup- kröfur. Er hér vakin athygli í þessu svo það fari ekki frara hjá mönnum, að Framsóknar- leiðtogarnir eru enn óábyrg- ari en jafnvel kommúnistar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.