Morgunblaðið - 23.10.1964, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. okt. 1964
Gyða Árnadóttir frá Stóra Hrauni
SVO undarleg eru örlög, að séra
Árni Þórarinsson seigir móður
xnína fyrstu fullvissu hafa gefið
sér um að lífs myndi auðið ellefta
barni hans, en ég er nú að stað-
festa lát þess með fáum og fátæk-
legum orðum. Einkennilegt má
það einnig heita, ef ekki fer svo
fyrir fleirum þeim en mér, sem
lesa í ævisögunni frásögn af
fyrirbærinu í Kolviðarnesi, að
ekki þyki sem þar megi kenna
nokkurn forboða þess, að þetta
sama bam skyldi verða fyrst
þeirra ellefu til að falla úr þeim
hópi, sem séra Árni trúði alltaf
réttilega, að lif-a myndi þau hjón
fcæði tvö.
Furðulega eru cxss örlög gerð.
Vel má vera, að ýmsum hafi
þótt sú skýring nægjanleg, enda
nærtæk, að Gyða yrði frá önd-
verðu eftirlætisbarn vegna þess
eins, að hún var yngst í syst-
kinahópnum frá Stóra-Hrauni, en
ég held, að þessi röksmed hafi
stundum reynzt mjöig blekkjandi
vegna þess að hún skyggði á per-
sónuleik hennar sjálfrar, sem
við vitum nú, að var hin einfalda
ersök þess, að Gyða varð alla
tíð svo hugljúf þeim, sem hana
þekktu. Hún varð eiginlega alltaf
í vitund okkar yngsta og eitt
elskulegasta barnið frá Stóra
Hrauni — eftirlæti, allt frá því
er hún hvíldi þar fyrst við brjóst
móður sinnar miðvikudaigskvöld-
ið 12. maí 1915 og unz saga henn-
ar var orðin ölL
Röð hennar í systkinahópnum
olli því, að okkur fannst alltaf
eðlilegast að tala við hana í þeim
létta oig gamansama tón æsk-
unnar ,sem við mundum frá því
er við kynntumst henni fyrst á
Stóra-Hrauni, og jafnvel þegar
við ræddum við hana hin mestu
alvörumál fengu þau annan svip
en þann, sem þungi þeirra setti á
aðra. Ef unnt var úr þeim að
igreiða var lausnin henni ein-
föld, en væru þau óumflýjanleg
var sjálfsagt að taka þeim mann-
lega og æðrulaust. Þar brá líka
yfir þeirri birtu æskunnar, sem
horfir til fjallsins í leit að leið-
inni yfir það, fullviss þess, að
hinum megin búi eitthvað, sem
gaman verður að mega njóta.
Hin ytri gerð samræmdist faig-
urlega þeim eðliskostum, er
innra bjuggu. Gyða varð snemma
falleg ung stúlka, síðar aðlaðandi
móðir og sköruleg húsfreyja. Á
hinum mangbreytilegu æviskeið-
um var öllum því gott í návist
hennar. Ég veit ekki til þess, að
hún hafi vísvitandi lagt nema
gott eitt til allra þeirra mála, er
hún lét sig varða. Hún var fá-
skiptin um annað en það, sem
hún taldi sig eiga um að dæma.
Þar lagði hún sitt lið af miklum
hyggindum, hófsemd og þeirri
góðviljuðu bjartsýni, sem alltaf
var svo einkennandi fyrir hana.
Sennilega hafa það verið fleiri
en ég, sem áttu örðugt með að
verjast þeirri hugsun, þegar
Gyða hóf búskap, tæplega tví-
tug að lítil reisn myndi nú verða
yfir húsmóðurstörfum þessa umga
og lífsglaða eftirlætisbarns okk-
ar. En þar kom hún okkur á
óvart. Heimili hennar voru, allt
frá því fyrsta til hins síðasta
mikil fyrirmynd, smekkleg,
tandurhrein, hlýleg og ljúf eins
og hin glaða og gestrisna hús-
móðir. Þess vegna var þar alltaf
gott að koma. Og það voru marg-
ir, sem sannreyndu það.
Þegar öllum var augljóst, að
hinn fyrri eiginmaður gekk ekki
heill til skógar var það æsku-
gleðin, sem fékk okkur til að ef-
ast, og við spurðum: Geur hún
Btaðizt þetta?
Svörin eru nú löngu fengin,
Hún gerði það aðdáanlega unz
yfir lauk.
Hennar stríð var að vísu lengra,
en ef einhverju mætti hér helzt
við líkja, þá væri það sú umönn-
un, er síðari eiginmaðurinn auð-
sýndi í veikindum hennar, sama
þolinmæðin og fórnfýsin. Þar
galt lífið henni aftur nokkuð af
því sem hún hafði veitt. Og fyrir
þá umbun þess var hún hjartan-
l'ega þakklát.
Þeir voru margir, er samglödd
ust Gyðu er ástir tókust með
þeim Birni sýslumauni. Bæði
áttu þau að baki langt veikinda-
stríð maka sinna. Enginn efaði,
að Gyða yrði Birni góð kona, og
valmennska hans var alkunn.
Enn voru þau nógu ung til þess
að geta lemgi notið hins mikla
ásríkis, er með þeim var, ekkert
annað fyrirsjáanlegt en löng og
ljúf sambúð. Þess vegna var
bjart í lofti, sól enn í suðrL
Það dimmdi óhugnanlega yfir
þegar það fór að fréttast, að áreið
anlega væri Gyða orðin hættu-
lega veik. Og menn spurðu: Æ,
hversvegna endilega þetta? Mega
þau nú ekki fá að lifa í friði,
þó ekki væri nema einn áratug?
Á nú enn að vega í sama kné-
runninn? Þurfa örlögin áð vera
svona óguðlega grimm?
Enn treystu sumir ekki æsku-
blikinu í auigum Gyðu, og pví
spurðu þeir: Þolir hún líka þessa
raun?
Skyldi þessi kona eiga allt í
senn, unaðsleik æskuáranna,
sæmd eiginkonunnar, óþrotlegan
kærleika og hugprýði Þóris jök-
uls?
Já, hún Gyða Árnadóttir átti
þetta allt.
Ég heimsótti hann eigi alls fyr-
NÝLEGA kom á markaðinn ný
tegund af færiböndum fyrir síld
arsöltun. Færibönd þessi eru smíð
uð í Alúminium & blikksmiðj-
unni, Súðavogi 42.
Færibönd þessi eru frábrugðin
öðrum færiböndum að því leyti,
að þau eru smíðuð í einingum,
sem eru 2 metrar á lengd hver
og er þess vegna hægt að lengja
þau eða stytta eftir vild. Færi-
böndin eru smíðuð úr alumin-
inum og eru þau tiltölulega létt.
Þau eru mjög þægileg í flutning
um þar sem hægt er að taka þau
sundur og setja þau saman á
mjög einfaldan hátt.
Utan á færibandinu eru kass-
ir löngu, og sannfærðist þá um
að það var alveg satt, sem mér
bafði .verið sagt. Hún talaði um
dauðann af sama æðruleysi og
væntanlega ferð austur yfir fjall,
að vísu óþægilega ferð, því að
hana langaði til að mega vera
lengur hjá Birni og öðrum ást-
vinum, en óumflýjanleiga ferð, og
þess vegna óskynsamlegt að æðr-
ast. Hún var alveg áhyggjulaus
um það, sem bíði hennar handan
fjallanna miklu. Um það var
hún bjartsýn, eins og fyrri dag-
inn, sagðist bara verða að fara
á undan til þess að tryggja sæmi
legar móttökur þeim vinum sín-
um, er síðar kæmu, og hló við
mér, dálíið kankvís, svona til
þess að minna á, að mér væri nú
engin vanþörf á sæmilegri leið-
sögn, svona til að byrja með. Nei,
mér veitti áreiðanlega ekki af
því. Og þannig slcigum við þessu
öllu upp í grín, rétt eins og i
gamla daga, þegar við vorum
ung og iglöð frændsystkin vest-
ur á Snæfejlsnesi.
Hún hélt andlegri vöku sinni
alla tíð. Nokkrum mínútum fyrir
andlátið reis hún upp úr svefn-
mókinu, kvaddi alla viðstadda
ástvini sína og bað að heilsa hin-
um með þökkum fyrir samver-
una. Svo lagðist hún aftur á kodd
ann sinn og dó.
Þannig kvaddi hetja þennan
heim.
Þar fór mikil kona og góð.
★
Gyða var dóttir séra séra Árna
Þórarinssonar og konu hans
Elísabetar Sigurðardóttur. Hún
giftist 23. júní 1934 Einari kaup-
manni Eyjólfssyni. Hann dó 2.
sept. 1959. Börn þeirra eru: Elsa,
gift Ólafi fulltrúa Ólafssyni, Eyj-
ólfur, við nám í _ listaháskóla í
Kaupmannahöfn, Árni, verzlunar
námsmaður í Edinborg og Hilm-
ar, sem er í Skógarskóla.
Hinn 8. sept. 1962 giftist Gyða
Birni Fr. Björnssyni,, alþingis-
manni og sýslumanni Rangæinga.
Hún dó 19. þ.m.
Utför hennar verður gerð í
dag frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
ar fyrir síldina, en þá er hægt
að taka af færibandinu á einfald
an hátt og má nota þá til ann-
arra hluta. Færibandið er einfalt
í smíðum og er þess vegna mjög
auðvelt að þvo það.
Endarnir á færiböndum þeim,
sem Aluminium & blikksmiðjan
smíðar, eru sérstaklega smíðað
ir með það fyrir augum að þar
sé hægt að koma fyrir síldar-
flokkunarvél. Blikksmiðjan fram
leiðir einnig bjóðakassa, sem
hægt er að hafa áfasta færi-
bandinu. Áætlað verð á 30 metra
löngu bandi eru 300.000 krónur,
ef allt er innifalið.
Nýjung
NÚ þegar hinir ábyrgustu menn
þjóðarinnar hafa fundið hvöt hjá
sér til að stofna til athugunar-
fundar um áfengismálið, og úr-
bætur á því, ætti hverjum og ein-
um að vera frjálst að leggja þar
sitthvað til mála En það er ekki
einvörðungu um ásókn vínsins,
sem gert verður að íhugunarefni
'heldur einnig tóbaksnautn og
ýmsar skemmtanir, sem vægast
sagt ganga fram úr öllu hófi og
krefjast mikilla fjármuna án
hollustu eða mannbætandi á-
hrifa.
Það sem telja má undirrót að
öllu þéssu lífernisönigþveiti, er
skortur á þeim huglægu eigind-
um sem lífinu eru nauðsynlegar,
eigi það ekki að leiðas^ af vegi og
glata þeu-ri fegurð, sem það raun
verulega á að veröa oss mönnun-
um.
Vér þekkjum mætavel
og viðurkennum þá stað-
reýnd, þegar um íþróttir eða
líkamsrækt er að ræða að þvi
fyrr sem sérhver einstak-
linigur hefst handa um þær iðkan
ir, því betri árangur verður af
þjálfun því hæfari verður hann
í hlutverki því sem hann ætlar
að leggja stund á. Sannast hér
máltækið: „Hvað ungur nemur
gamall temur".
Um líkamsræktina er þarflaust
að ræða. Hún hefir hlotið heiðurs
sessinn um alhangt árabil. Rækt-
un andans, eða hið geðræna og
siðfágaða, hefir aftur á móti orð-
ið hornreka. „Slíkt skeður oft á
sæ“. Á hisminu er kjamsað, en
kjarnanum kastað.
Sú lífsstefnubreyting, sem nú
þarf að opna augun fyrir, og iðka
er innifalin í þessum fimm smá-
orðum: Trú, siögæði, þjóðhollusta
sjálfsagi og viiji. Vilji er alilt sem
þarf, sagði spakur íslendingur.
Vitanlega ef viljann skortir, er
tómt mál að tala um umbætur
á hvaða vettvangi sem er.
Vér íslendinga: eigum til marg
ar stofnanir, sem kendar eru við
sjóði. Er þarflaus um þá að ræða
því að þeir eru alþjóð kunnir.
Þá eru og til staðir og málefni,
sem heitið er á, vegna trúar eða
trausts, sem við þá hefir bundizt.
Tilgangur með áheitum er að vísu
margs konar. Þó mun það sam-
eiginlegt vera, að einstaklingur-
inn sé með áheitum þessum að
styrkja gott málefni. Hann trúir
að áheitið færi hcnum uppfylling
þeirrar óskar eög þrár sem hann
þá og þá ber fyrir brjósti. Og
honum verður að trú sinni.
Aftur. á móti eru til sjóðir, sem
skylda menn til að leggja af mörk
Aðstaða Sovétleið-
toga veik segir
fastaráð NATO
París, 21. okt. (NTB): —
HAFT VAR eftir áreiðanlegum
heimildum, að afloknum fundi
fastaráðs Atlantshafsbandalags-
ins í dag, að fulltrúar í ráðinu
væru allir þeirrar skoðunar, að
aðstaða hinna nýju leiðtoga Sov
étríkjanna væri mjög veik. Full
trúarnir vísuðu á bug hinni op-
inberu skýringu á hvarfi Nikita
Krúsjeffs úr embætti og kváðust
þeirrar skoðunar, að breytinga
tímar færu í hönd í Sovétríkjun
um og þau myndu ekki hafa sig
mikið í frammi í samskiptum við
við aðrar þjóðir á næstunni.
Ingi Ingimundarson
hæstaréttarlögmabui
Klapparstíg 26 IV hæð
Sími 24753
Vagn E. Jónsson
Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9.
um nokikurn hluta launa sinna-
Sitthvað er skylda og dyggð.
Nú fer að líða að kjarna máls- '
ins. Vér ættum að fá lögfest
nafn á stoínun, sem hefði það i;
að markmiði að taka á móti '
hverjum spöruðum eyri sem ann
ars yrði eytt fyrir t. d. eina
flösku áfengis, 1 pakka vindlinga
eina bíósýningu, eða hvaða nöfn-
um sem það tjáir að nefna
Þarna á enginn lögboðinn skyldu
sparnaður að koma til greina.
Þetta likist mjög að því leyti i
áheitum á t. d. Strandaikirkju,
að einstaklingurinn fær ekkert
annað endurgjald, en sigurinn
yfir sínum innra manni. Að ári
hverju liðnu ætti síðan að gefa
út skýrslu. Skemmtilegast væri j:
að geta nafns sigurvegáfans og
hvaða nautmr eða skemmtanir
lutu í lægra haldi fyrir viðleitn-
inni að fegra sitt eigið líferni,
auka manngildi sitt að siðrænum
þroska.
Ségja má að þetta verði ekki
framkvæmanlegt. Þetta þekkist
hvergi innan hins siðmenntaða
heims. Öðru máli væri að gegna
ef þetta hefði komið utan úr
menningunni. (Sbr. t d. sjón-
varpið.)
Við það verður að kannast, að
margt sem vér höfum hlotið með
menningunnL hefir orðið í vorum
höndum að verulega ómenningar
legum atriðum.
Eins og allir sjá, er þetta lítils
háttar viðleitni til að sporna við
því óifremdarástandi, sem talið er
að vofi yfir íslenzikri æsku, ef
fram heldur sem horfir.
Þeir, sem horfa hlýlega til
æsikunnar, og byggja á henni
bjartar vonir, trúa ekki öðru en
-að hún vilji keppa að því miarki
að verða taíjn mætasta æskan í
öllum heiminum, og bera það
nafn með réttu.
Þótt hér hafi verið talað til
æskunnar fer því fjarri að undan
skilja beri þá fuilorðnu. Þeim
ber 1 raun og veru að ganga á
undan. Gefi þeir niðjun sínum
dæmi til eftirbreytni, eru meiri
vonir til að þessi gullvæga setn-
ing beri fyilri árangur: „Kenn
þeim unga þann veg, sem hann
á að ganga, þegar hann eldist,
mun hann ekki af honum víkja“.
Það sannar oss líka, að: „Smekk-
urinn, sem kemst í ker, keim-
inn lengi eftir ber.“
Þótt efni þetta sé borið í tal,
er þess varli að vænta, að hér
verði um stökkbreytingu að
ræða. Hitt er mikilsvert að opin-
bera hugsunina, ef ske kynni, að
samskonar, eða svipaðar, væru
einhversstaðar á sveimi óvitaðar.
Þá mundi mega líkja því við á,
sem við upptök sín, er sem lítil-
fjörlegur lækur, en með öllum
sínum þverám er orðinn að belj-
andi fljóti, þegar það rennur
saman við sæinn.
Nei. „Sígandi lukka er bezt“.
Það kostar enga fjármuni og litla
fyrirhöfn að reyna þetta. Heit-
strengingar geta enn átt fullan
rétt á sér ti1 að ná settu markL
Því fegurra markmið sem þær
þjóna, því meiri lífsfyllingu og
göfuigmensku tiieinka þær sér.
Það er í frásögu fært, að mætur
íslendingur á marga lund hafi
átt að segja, þegar hann kom
út úr brenandi húsi frá því að
gera síðustu tilraun til að bjarga
frá glötun árangri lífsstarfs síns.
„Þessi blöð eru hvergi nokkura
staðar til í Öllum heiminum“.
Tökum upp ábenta lifsstefnu
og segjum: Þessa lífsstefnu hefir
engin önnur þjóð. Minnumst þess
ef frá íslandi á að koma lýsandi
viti inn í áttavillu þjóðanna,
verður hana aðvera siðræns
eðlis.
iEinar Guttormsson
Fiskverkunar-
stöð
á Suðvesturlandi til sölu. —
Þeir sem áhuga hefðu á kaup-
um leggi nafn og heimilisfang
inn til afgr. Mbl. fyrir 1. nóv.,
merkt: „9112“.
Sigurður Magnússon.
Eitt af hinum nýju færiböndum Aluminium & blikksmiðjunnar.
Þetta færiband er 14 metra langt, en hægt er að lengja það eða
stytta eftir vild.
Ný gerð færihands