Morgunblaðið - 23.10.1964, Qupperneq 21
Föstudagur 23. okt. 1964
MORCU NBLAÐIÐ
21
Herranótt siglir upp mei
gamanleik eftir Holberg
Blómlegt félagslíf mentaskólanema:
FÉLAGSHEIMILI menntaskóla-
nema heitir íþaka. Sérkennilegt
bvítmálað' steinhús við hlið
CTÖmlu skólabyggingarinnar.
Þetta hús á sér merkilega sögu,
cem ekki verður rakin hér, en
þess má geta, að á neðri hæð
bússins er tafla með latneskri
áletrun þar sem segir, að húsið
bafi gefið skólanum maður að
nafni William Fiske.
I Fyrir nokkrum árum voru
gerðar miklar endurbætur á fé-
lagsheimilinu — bókaskápar i
Guðmundur Björnsson,
formaður leiknefndar.
•alnum voru fjarlæ.gðir og saiur-
inn þannig úr garði gerður, að
balda má þar dansæfingar og
tnálfundi. Inn af salnum er eld-
hús og þar kaupa nemendur í
frímínútum mjólk og brauð við
vægu verði .Á efri hæðinni var
Innréttuð einkar vistleg setustofa
i fornum íslenzkum baðstofustíl
•g hefur sú vstarvera reynst
mjög vinsæl. Inn af setustofunni
er bókasafn nemenda.
Félagsstarfsemi menntaskóla-
nema er mjög fjölþætt. Þar eru
gömul og rótgróin félög, eins ag
t.d. málfundafélagið Framtíðin,
sem minntist áttræðisafmælis
sins, ekki alls fyrir löngu. Merki-
legust þykir þó leikstarfsemin,
en leiksýningar menntaskóla-
nema eru beint framhald af
Herranæturhaldi skólasveina í
Skálholti fyrir 200 árum, en
þangað er rakið upphaf íslenzkr-
ar leiklistar. Þá má nefna Lista-
félagið, sem hefur starfað með
miklum blóma undanfarin ár og
beitt sér fyrir listkynningum af
ýmsu tagi. Ýmsir valinkunnir
fyrirlesarar, listamenn og skáld
hafa komið fram í skólanum á
vegum félagsins. Skólablað
menntaskólanema, sem heitir ein
faldlega Skólablaðið, hefur kom
ið út í 40 ár. í þeim andans Eden
garði kenhir jafnan margra
grasa, en blekiðjumenn eru marg
ir í skólanum meira að segja
skáld. Er sjaldan þröngt í búi
hjá þeim smáfuglum, sem að
blaSinu standa. íþróttafélagið er
hið sprækasta; en innan veggja
skólans eru margir kunnir
íþróttagarpar. Hafa lið skólans
jafnan getið sér góðan orðstír í
boltaleikjum.
MEST kveður þó að íþróttafé-
laginu í ganghildum. Slíkar orust
ur eru yfirleitt háðar tvisvar á
vetri, en þetta er sú tradisjón,
sem menntaskólanemum er
einna kærust. Ganghildir fara
þannig fram, að neðri bekkingar
(4. og 5. bekkur fyrir hádagi)
varna inspector platearum, klukk
ara, aðgangs að bjöllu á neðra
gangi. Klukkarinn, — eða bjöllu
sauðurinn — sem er ætíð úr 6.
bekk, fær þá allan karlpening 6.
bekkjar í lið með sér til þess að
geta hringt bjöllunni. Vígvöllur-
inn er neðri gangur og stiginn
upp á efra gang. Þar sem bjall-
an er nálægt stiganum, hoppa 6.
bekkingar af stigahandriðinu og
láta sig fljúga í áttina til bjöll-
unnar. Neðri bekkingar mynda
varnargarð umhverfis bjölluna
og góma 6. bekkinga á fluginu,
og reyna síðan að bera þá út
og læsa þá úti. Ef það tekst,
reyna 6. bekkingar óðara að ráð
ast til inngöngu á ný — og er
þá farið inn um næsta glugga,
sem er opinn. Yfirleitt tekst ein-
hverjum 6. bekkinga um síðir að
hringja bjöllunni, og má þá heyra
fagnaðarópin alla leið niður á
torg.
Önnur vinsæl tradisjón eru
tolleringarnar. Allir vita, hvern
ig þær fara fram — og enginn
busi kemst undan því að vera
tolleraður. Áður fyrr var frem-
ur róstusamt, þegar tolleringar
fóru fram og þess voru dæmi,
að táragasi var varpað í kennslu
stofu, þegar busar höfðu læst sig
þar inni. Nú fara tolleringar
hins vagar mjög skipulega fram,
Eftir skólatima þykir þeim gott a3 hreiðra um sig á íþökulofti
og spila bridge.
tolleringarnar muni fara fram
— til þess að meybusar geti
mætt til leiks í viðeigandi fatn-
aðL
INSPECTOR scholae hefur
yfirumsjón með allri félagsstarf-
seminni, en miðstöð hennar er í
íþöku, eins og að ofan getur.
Þangað lögðum við leið okkar á
ingar Oig þeir dispúteruðu uaa
matematik og físik. Á næsta
leyti sátu tvær stúlkur og
glugguðu í lærdómsbækurnar.
Þær reyndu að láta umræður
piltanna ekki raska ró sinni, en
þó var sýnt, að það var nokkr-
um erfiðleikum bundið. Latneska
málfræðin lá opin fyrr framan
þær og þar blasti við sú óhaggan
Rætt um námsefni morgundagsins.
busarnir eru leiddir út hver á
fætur öðrum, undir umsjón
kennara og stympingar sjást
varla. Eitt sinn var það siðvenja,
að engin busi fékk skólapassa
nema hann hefði verið tolleraður
og líklegt má telja, að svo sé
enn. Yfirumsjón með framkvæmd
verksins hefur inspector scholae,
en því embætti gegnir í vetur
Markús Örn Antonsson. Toller-
ingar fara alltaf fram á önd-
verðu skólaárinu, en að þessu
sinni hefur athöfnin dregist á
langinn vegna viðgerðar á skóla-
lóðinni. En einhvern næstu daga
mun Markús tilkynna, hvenær
dögunum í því skyni að hitta að
máli einhverja framlega menn
i félagslífinu. Á baðstofuloftinu
var margt um manninn, þegar
okkur bar þar að garði. í einu
horninu sátu fjörlegir piltar og
iðkuðu spilamennsku. Þeir sögð-
ust vera að spila bridge. Á
næsta bás var rætt um námsefni
morgundagsins af mikilli alvöru.
Þetta voru spekingslegir ungl-
lega staðreynd, að fleirtalan af
mos er mores skv. reglunni um
beygingu nafnorða eftir s-stofnL
Inn gekk nú ungur maður og
bar með sér greinilegan em-
bættismannasvip. Okkur var
tjáð, að hér færi Guðmundur
Björnsson, formaður leiknefndar.
Við inntum. Guðmund tíðinda
Framhald á bls. 31.
Tvær broshýrar menntaskóladömur með latneska byeygingaírædi fyrir framan sig — Kristjana
Kristjánsdóttir og Guðríður Þorsteinsdóttir. (Ljósm. Mbl.: ÓI.K.M.)
OSTA* OG SMJORSALAN s.f.
smior
*
A BRAUÐIÐ