Morgunblaðið - 23.10.1964, Blaðsíða 28
28
MORGU N BLAÐIÐ
r
Fðstudagur 23. okt. 1964
r
JENNIFER AMES:
Hættuleg forvitni
V.
— Ég á ekki við að þér séuð
beinlínis líkur honum, flýtti
Gail sér að segja. — En það er
eitthvað í skapgerð ykkar, sem
er eins. Þér eruð líka innhverfur
og þurfið ekki á öðrum að halda,
að því er mér sýnist.
— Mér þykir leitt að þér lítið
þessum augum á mig, sagði
hann stutt. Og hún fann að hann
tók sér þetta nærri, sem hún
hafði sagt.
Grant lét færa sér hádegisverð
inn, en Bobby fór með Gail upp
í matstofu starfsfólksins. Þau
sátu hvort á móti öðru og horfðu
út á höfnina. Svo leit Bobby
íhugandi á hana og sagði:
— Þú ert ekki sama stúlkan
sem ég skildi við í London, Gail.
Ég veit ekki hvernig ég á að
koma orðum að því, en þú lítur
öðruvísi út og hagar þér öðru-
vísi líka. Áður varstu eins og
viðfeldin stelpa, en þú ert áreið-
anlega orðin þroskaðri núna.
— Finnst þér það? Það kemur
kannske af því, að mér finnst ég
vera orðin þroskaðri?
— Heldurðu að það stafi af
flugslysinu?
— Að vissu leyti er það lík-
lega rétt, sagði hún. Svo hélt
hún áfram og brosti: — Það er
ekki tíminn sem þroskar okkur,
Bobby. Ekki andlega. Þetta get-
ur komið á einni einustu nóttu.
Bobby tók í aðra höndina á
henni undir borðinu og þrýsti
hana. — Þú mátt ekki breytast
of fljótt, Gail. Þú varst ágæt
eins og þú varst. Þú mátt aldrei
verða svo þroskuð, að þú viljir
ekki vera vinur minn!
Hún sá hlýtt brosið á honum
og gat ekki annað en roðnað. —
Nei, ég lofa þér því, Bobby, sagði
hún.
— Það vona ég. Annars mundi
mér finnast að ég hefði misst
eitthvað mjög dýrmætt.
— Góði, væni Bobby, muldr-
aði hún og hann hló.
— Ég vildi óska að þú talaðir
ekki eins og þú værir eldri syst-
ir mín, sagði hann. — Lítur þú
þannig á mig Er ég ekki annað
en hann litli bróðir þinn
— Þú er einn af allra beztu
vinum mínum.
— Bara einn af þeim? Röddin
var öðruvísi en vant var. Hún
var áköf og alvarleg. Gail komst
í vandræði.
— Góði Bobby..........
— Ég er sjálfsagt flón að vera
að þreyta þig svona, sagði hann
og roðnaði. — Fyrirgefðu mér
Gail. Ég lofa bót og betrun.
Áhrifin sem Gail varð fyrir
voru bæði töfrandi og hryllileg.
Gail vissi að í Hong Kong var
miklu fleira fólk en hægt var að
hýsa, og að þar var um þrem
milljónum fleira en rúm var
fyrir. En hana hafði ekki órað
fyrir, að ástandið væri svona
slæmt í sjúkrahúsunum. Gail
J
fór með Grant í sjúkravitjan-
irnar. Hún var grönn og falleg
í hvíta einkennisbúningnum, en
þó að hún hefði séð mikið af
mannlegri eymd áður, fór hroll-
ur um hana núna. Hún dáðist
að leikni Grants, eins og hún
var vön. Hann fljótur, vingjarn-
legur og snar í snúningum. Hann
var aldrei hikandi, eins og marg-
ir læknar eru, þegar um erfið
sjúkdómstilfelli er að ræða. Bið
stofan var troðfull, og Gail
kenndi sárt í brjósti um veslings
sjúklingana.
12
— Þegar þau óku til baka í
stofnunina spurði hann:
— Jæja, systir Gail, segið mér
nú svolítið frá áhrifunum, sem
þér hafið orðið fyrir í dag.
— Mér fannst þetta hræðilegt
— en ég dáðist að öllu því, sem
gert var þarna, sagði hún lágt.
— Sama finnst mér, sagði
hann. — Og þegar ég hugsa til
þess hvernig læknarnir þræla
þarna og hve miklu þeir koma
af, þá finnst mér ég verða eymd-
arlega smár.
Grant gat ekki minnzt á neitt
á, að hann hafði boðið Gail með
sér út um kvöldið, og hún hélt
að hann hefði líklega gleymt
því. En hann var aldrei vanur
að gleyma neinu. Hún vildi ekki
minnast á það, en hinsvegar
hafði hann ekki minnzt neitt á
hvar þau ættu að hittast. Ef til
vill ætlaði hann að síma til
hennar. Þau voru að fara úr
stofnuninni þegar hann studdi
laust á handlegginn á henni og
sagði:
— Ég kem og sæki yður
klukkan hálfátta, sagði hann. —
Er það ekki hæfilegur tími?
Hún brosti og sagði að það
væri ágætt.
Mildred sat reykjandi á rúm-
stokknum meðan Gail var að
hafa kjólaskipti.
— Hvað gengur eiginlega að
þér? sagði hún. — Varla þarftu
að skipta um föt til þess að
borða héma? Þó að ég játi að
fólkið hérna í húsinu sé fríður
hópur, — hér eru unglingar, sem
eru innan við sextugt! Kína-trú
boðar á eftirlaunum, sem eru
orðnir að hérvillum og hafa
ekki hugmynd um hvar þeir eiga
heima. Og afdankaðir forstjórar.
Allt dótið á eftirlaunum! .
Gail hafði farið í kaffibrúnan
kjól, sem hún hafði keypt á út-
sölu. Hún hefði helst viljað
strauja hann, en vannst ekki
tími tími til þess. Og hún heafði
ekki ennþá vanist að rétta ú.t
fingurinn og hringja á þjón, sem
hefði getað gert þetta á svip-
stundu. Þetta var fallegasti
kjóllinn sem hún átti, og Milred
góndi á hana.
— Þú munt ekki ætla út?
sagði hún.
©PIB
COPENNAGEH
■ Hvenær ætli við höfum ráð á að halda upp á
demantsbrúðkaupið okkar?
— Jú, það er einmitt það sem
ég ætla.
Gail hafði ekki ætlað sér að
vera stutt í spuna, en svarið var
þó dálítið út í hött. Mildred
hristi öskuna af vindlingnum.
— Leyfist mér að vera svo
forvitin að spyrja, hverjum þú
ætlar að fara út með?
— Það er velkomið, svaraði
Gail og fór með greiðuna gegn-
um hárið. — Raeburn læknir
bauð mér að koma út með sér
í kvöld. Hann ætlar að sýna mér
eitthvað af borginni.
Nú varð þögn og Mildred
slökkti í vindlingnum.
— Jæja, þú ætlar út með
Grant, sagði hún meinlega, og
Gail sneri sér að henni og varð
kafrjóð.
— Er það kannske óvðieig-
andi?
— Nei öðru nær, sagði Milred
þurrlega. — En hann hefur
aldiei spurt mig, hvort ég vildi
koma út með sér og sjá bæinn.
Gail svaraði ékki, af því að
hún vissi blátt áfram ekki hvað
hún ætti að segja.
— En hann hefur oft ekið mér
um borgina að degi til, og mundi
eflaust hafa boðið mér út eitt-
hvert kvöldið, ef ég hefði verið
nógu áleitin við hann. En ég
kann ekki við það. Ég býð þang-
að til herrann kemur að sjálfs-
dáðum.
Nokkur atriði úr Warren-skýrslunni
Tilgátur: Sovétyfirvöld til-
kynntu Oswald með hálfs annars
mánaðar fyrirvara, að þau hefðu
gefið honum brottfararleyfi, og
slíkt var einsdæmi hjá sovét-
stjórninni.
Nefndin: Oswaldhjónunum
var tilkynnt 25. desember 1961,
að umsókn þeirra um brottfarar-
leyfi hafi verið' veitt af sovézk-
um yfirvöldum. Marina Oswald
hirti ekki sitt leyfi, sem
gilti til desember 1962 eða 17
dögum eftir að það var fáanlegt.
Oswald hirti ekki sitt fyrr en
22. maí. Sovétyfírvöldin gáfu
ekki Oswaldhjónunum neiha
fyrirfram-tilkynningu: leyfin
hefði mátt hirða samstundis
hefði Oswaldhjónunum svo þókn
azt. Þar eð leyfi Lee Oswalds
var ógilt eftir 45 daga frá út-
gáfudegi, dró hann að sækja það
þangað til hann vissi, hvenær
hann gæti farið. Og brottfarar-
daginn gat hann ekki ákveðið
fyrr en hann fékk leyfi frá ráðu
neytinu í maí, til að flytjast
aftur til Bandaríkjanna.
För Oswalds til Mexico City.
För Oswalds til Mexico City
seint í september og snemma í
október 1963, tæpum tveim mán-
uðum áður en hann myrti
Kennedy forseta, hefur valdið
vangaveltum um það, að förin
hafi staðið í einhverju sambandi
við samsæri til að myrða for-
setann. í kviksögum er það full-
yrt, að hann hafi flogið á laun
til Kúbu frá Mexico og til baka
og að hann hafi tekið við mik-
illi fjárupphæð — venjulega
talið $5000 — sem hann hafi
haft með sér til Dallas. Nefndin
hefur engar trúanlegar upplýs-
ingar um, að Oswald hafi farið
til Mexico, í sambandi við neina
fyrirætlun um að myrða
12
Kennedy forseta, eða að hann
hafi fengið fyrirmæli um nema
slíka athöfn meðan hann var
þar, eða hafi tekið við neinum
fjárupphæðum neinsstaðar frá í
Mexico.
Tilgátur: Oswald hefði ekki
getað fengið Bandaríkja-vega-
bréf í júni 1963, nema gengið
hefði verið sérstaklega í málið
fyrir hann.
Nefndin: Umsókn Oswalds um
vegabréf gekk sinn venjulega
gang gegnum ráðuneytið. Eng-
inn maður eða stofnun gekk sér-
staklega í málið hans vegna,
til þess að hraða útgáfu vega-
bréfsis. Vegabréf 24 annarra
manna, í sömu skrá, send frá
New Orleans til Washington,
voru samþykkt samtímis. Vega-
bréfaskrifstofa ráðuneytisins
hafði engin fyrirmæli um að
draga á langinn eða neita sam-
þykki vegabréfs handa Oswald.
Tilgátur: Walter-McCarran-
lögin fyrirskipa sérstaklega
hverjum þeim, sem reynt hefur
að afsala sér borgararétti í
Bandaríkjunum að láta fylgja
yfirlýsingu um, hversvegna
hann þurfi að fá Bandaríkja-
vegabréf. Því hefði Oswald þurft
að gefa slíka yfirlýsingu áður
en hann fékk vegabréf sitt í júní
1963.
Nefndin: Ríkislögin frá 1950
(Walter-McCarran-lögin) nefna
ekki neina yfirlýsingu, sem
Bandaríkjaborgari þurfi að gefa,
sem hefur reynt að afsala sér
borgararétti.
Tilgátur: Oswald hafði ekkert
fé til Mexíkóferðar sinnar í sept
ember 1963.
Nefndin: Rannsókn á efnahag
Oswalds, framin af nefndinni,
Sýnir, að hann átti nægt fé til
ferðarinnar til Mexco City og
heim aftur. Engar upplýsingar
liggja fyrir um það, að hann
hafi hlotið neinn fjárstyrk til
Mexíkóferðarinnar. Heildar-
kosnaðurinn við þessa 7 daga
ferð hefur verið trúverðuglega
metinn innan við $85.
Tilgátur: í þessari ferð voru
í för með Oswald einn karlmað-
ur og tvær konur.
KALLI KUREKI
—->f— — -K— — *■
Teiknari; J. MORA
FRAMKIETOLPYA,
NOW i’LLTELLYA'
YOU TAW&LE WITH
ONEOF.US, AW’ YOU
&OTUSBOTM T’ "
1. I eitt skipti fyrir öll segi ég
ykkur, fíflin ykkar ........
3. Frikki sagði þér það og nú segi ég þér það .... ráðstu á annan okkar
og þú þarft að eiga við báða.
Nefndin: Rannsókn hefur
leitt í Ijós, að Oswald var einn
á ferð í almenningsvagni. Sam-
ferðamenn hans frá Houston til
Mexico City hafa borið það, að
hann virtist einn á ferð og að
þeir hafi ekki þekkt hann áður.
Tilgátur: Meðan Oswald var 1
Mexíkó, flaug hann á laun til
Havana og til baka.
Nefndin: Nefndin hefur ekki
getað orðið þess vísari, að Os-
wald hafi farið neina flugferð til
Kúbu meðan hann var í Mexíkó.
Hann fékk aldrei leyfi hjá yfir-
völdum Kúbu til að koma til
landsins né heldur frá yfirvö,d-
um Mexíkó til að fara þaðan til
Kúbu. Trúnaðarrannsókn hjá
Kúbu-flugfélaginu í Mexico
City bendir til þess, að Oswald
hafi aldrei komið þar í afgreiðsl-
una.
Tilgátur: Oswald kom aftur
frá Kúbu með 5000 dali í fórum
sínum.
Nefndin: Ekkert hefur enn
fram komið til að styðja þessa
fullyrðingu. Athafnir Oswalds í
Mexico City og eftir heimkom-
una til Dallas renna engum stoð-
um undir þessa tilgátu.
Tilgátur: Hinn 27. nóvember
1963, flutti Fidel Castro ræðu i
háskólanum í Havana, undir
áhrifum áfengis, og sagði: „í
fyrsta sinn sem Oswald var á
Kúbu. . . .“. Þessvegna hefur
Castro vitað, að Oswald hafði
farið leyniferðir til Kúbu.
,1
Kópavogur
Afgreiösla Morgunblaösins
Kópavogi er aö HlíÖarvegi 61,4
sími 40748.
Garðahreppur |
AfgreiÖsla MorgunblaÖsins
fyrir GarÖahrepp er að Hof-
) túni við Vífilsstaðaveg, sími
l 51247.
Hafnarfjörður
1 Afgreiðsla Morgunblaðsinsl
I fyrir Hafnarfjarðarkaupstað \
er að Arnarhrauni 14, símij
50374.
Keflavík
:
Afgreiðsla Morgunblaðsins
' fyrir Keflavíkurbæ er að
Hafnargötu 48.