Morgunblaðið - 23.12.1964, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. des. 1964
<Cád~.
Áraskip
Jóhann Bárðarson:
Áraskip. Sjósókn og fiskveiðar
í Bolungarvík um aldamót.
Önnur útgáfa. Ægisútgáfan
Rvík 1964.
ÁRIÐ 1940 kom út bókin Áraskip
eftir Jóhann Bárðarson. Jóhann
var á yngri árum formaður á ára-
•kipi frá Bolungarvík, en fékkst
síðar á ævinni við verzlunar-
störf og varð kunnur maður.
Hann fékkst nokkuð við ritstörf
og var mjög vel ritfær, svo sem
þessi bók ber með sér. Fyrri út-
gáfa bókarinnar seldist upp á
skömmum tíma, en nú hefur hún
verið gefin út að nýju. Allur
frágangur bókarinnar er ágætur,
og hún er prýdd mörgum mynd-
um af mönnum, bátum og lands-
lagi. Á þessari öld hefir orðið
gerbreyting í atvinnuháttum hér
á landi, bæði til sjávar og sveita.
Hihir fyrri atvinnuhættir eru
teknir að fyrnast í minningunni
og ýmslegt í sambandi við þá er
í hættu að falla algerlega I
gleymsku. Það er því mikils
virði, þegar þaulkunnugir menn
halda til haga fróðleik um þessa
hluti. Og þessi bók er mikilsvert
tillag til slíkra fræða. Hér eru
ýtarlegar lýsingar á íslenzkum
fiskveiðum áður en vélbátarnir
komu til sögunnar. Hér er sagt
frá áraskipunum gömlu. búnaði
þeirra öllum og veiðarfærum.
Hér er lýst lífi sjómannanna,
bæði á sæ úti og í landlegum.
Hér er sagt frá svaðilförum á
sjó, slysum og afrekum íslenzkra
sjómanna á hættunnar stundum.
Þessar lýsingar og frásatgnir eru
að vísu miðaðar við eina ver-
stöð, Bolungarvík, sem ef til vill
er elzta verstöð íslands, og bókin
er mikilvægur skerfur til
'byiggðasögu Bolungarvíkur. En
flestar lýsingarnar hafa almennt
gildi, svona var í stórum dráttum
bátaútgerð íslendinga á síðari
helming nítjándu aldar. Þessi
bók er í tölu merkustu otg fróð-
legustu rita, sem skrað hafa Verið
um sæfarasögu íslendinga.
Ólafur Hansson.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem heiðruðu mig á
áttræðisafmæli mínu með gjöfum og heillaóskum.
Soffia Jóhannesdóttir.
með merki:
(BLAZERS)
enskir ullarjakkar
TEDD Y-f oam jakkar.
FALLEG JÓLAGJÖF.
Aðalstræti 9.
Sími 18860.
Móðir okkar og tengdamóðir,
JÓNÍNA GUÐNADÓTTIR
Grenimel 5,
lézt mánudaginn 21. desember síðastliðinn.
Börn og tengdabörn.
Móðir okkar
ÓLAFÍA EIRÍKSDÓTTIR
Hverfisgötu 104,
lézt aðfaranótt 22. desember 1964.
Börnin.
Móðir okkar
ELÍN FRIÐRIKSDÓTTIR
Helgamagrasfræti 9, Akureyri,
lézt aðfaranótt 21. des. — Útför hennar verðuT gerð
Margrét Kröyer,
frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. des. kl. 13:30.
Áslaug Guðiaugsdóttir,
Arnaldur Guðlaugsson.
Innilega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og vinarhug við útför
GUÐNA GÍSLASONAR
frá Krossi.
Sérstaklega þökkum við U. M. F. Dagsbrún og öðrum
Landeyingum, sem heiðruðu minningu hans.
Helga Þorbergsdóttir og böm.
Þeim er á einn eða annan hátt sýndu
ÓSKARI ÁRMANNI GUÐMUNDSSYNI
klæðskera,
vináttu og tryggð í veikindum hans og við andlát hans
hinn 9. des., sendum við innilegar þakkir og óskir um
gleðiríka jólahátið.
Vandamenn.
Athugun á tonlistarflutn-
ingi í Hallgrímskirkju
NÝVERIÐ var efnt til ráð-
stefnu hjá Húsameistara rí'kisins
í Borgartúni, þar sem arkiteikt
Hallgrímskirkju í Reykjavík,
Jörundur Plálsson, ráðgaðist við
sérfróða menn um það, hvernig
tryggja megi sem bezt aðstöðu í
Hallgrknskirkju til flutnings þar
á stærri og minni kirkjulegum
tónverkum,
Rætt var um stærð og stað-
setningu á fuUtoomnu orgeli, fyr-
irkomulag á sönglofti og svölum
með tiUiti til áðstöðu og rýmis
fyrir kór og hljómsveit, ýmis atr
iði varðandi hljómburð í kirkj-
unni o.fl. Sérstaklega var feng-
inn hingað til ráðuneytis í þessu
sambandi hr. Fritz Steinmeyer
frá G.F. Steinmeyer & Co Org-
elbau, Oettingen, Bayern.
Mikill áhugi var á þessari ráð-
stafnu fyrir þvi að leysa sem
bezt úr öllum fyrrgreindum atr-
iðum, sem varða söng og tónlist
í framtíðinni í kirkjunni á Skóla
vörðulhælð. Þess mó geta að mönn
um kom saman um það, að í
Hallgrímskirkju þyrfti að koma
a.m.k. 70 radda orgel, en síðar
verða teknar ákvarðanir um
íhvaðan slíkt hljóðfæri verður
fengið. Nú mun yfirleitt vera um
4(4 árs afgreiðslutómi í Þýzka-
landi á stórum kirkjuorgelum.
í þessu sambandi má einnig
upplýsa a'ð HalLgrímskirkja í
Reytojavílk á gamlan orgelsjóð,
sem ber nafnið „HVAMMUR",
og er hann í vörzlu Biskupssfcrif-
stofunnar. Þann sjóð þarf að efla
sem mest á næstu árum svo að
hægt verði að kaupa fullkomið
orgel I Hallgrímsskirkju, strax
og hún verður fullgerð — vænt-
anlega 1974.
(Frá Bygigingamefnd Hall-
grimskirkju).
Jólablað Hamars
HAFNARFIRÐI — Jólablað
Hamars er komið út fjölbreytt
að efni og prýtt fjölda myndia,
nýrra og gamall Forsíðan er
gerð hjá Litmyndum sf. Af efni
blaðsins, sem er 40 s., má nefna:
Séra Sænmmcfcur F. Vigfússon,
Jófriðarstöðum, skrifár um jól-
in. Jón Gestur Vigtfússom um
Hatfnarfjarðarkirkju 50 ára, Sig
urveig Guðmundsdóttir smá-
sögu, sem hún netfnir Dalakof-
ann, frásögn úr bókinni Fomum
skuggum eftir Sigurð Arnaids,
Matthias Á. Matlhiesen alþrn.
um stutta heimsókn í brezka
þingið, Sólveig Eyjóltfsdóttir
garnlar minningar, prédilkun
fiutt í Hafnarfjarðarkirkju 30.
ágúst s.l. af iþrseta Lútherska
heimssambanidsins, dr. Fredrik
A. Schiotz, Þorgeir Ibsen um
Viktoríu Guðmundsdóttur fyrr-
um skólastjóra, og einnig er
stutt frásögn etftir hana, sem
hún nefnir Fyrsta jólatréð mitt.
Auik þessa etfnis ræðir Ámi
Grétar Finnsson um skólama í
Hatfnartfirði og fylgir fjöidi
mynda, jólagetraun, bamasögur,
kvikmyndir, íþróttasíða, myndir
og frásögn atf leik- og föndur-
sikóla St_ Jósepssystra, og ýmis-
legt fleira er í blaðinu.
Útsvör í Kópa-
vogi áætluð 34,5
millj. kr.
FKUMVARP að fjárhagsáætlun
fyrir Bæjarsjóð Kópavogs og önn
ur fyrirtæki bæjarins var lögð
fram til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjórnar 18 þ.m.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar
eru kr. 64,8 millj. en voru á áætl-
un fyrir árið 1964 kr 41.850.000.00
Á áætlun næsta árs koma áætluð
gatnagerðargjöld ekki inn í tekju
lið, en eru færð til frádráttar k
gatna- og holræsalið. Sé tekið
tillit til þessarar breytingar
hækkar áætlunarupphæðin ura
23,65%.
Útsvör auk 5-10% álags fyrir
vanhöldum eru áætluð 34,5 millj-
ónir en voru áætluð á þessu ári
28.5 millj. Hækkunin nemur 21
af hundraði.
Aðstöðugjöld áætlast 2 millj.
Framlag úr jöfnunarsjóði 7.8
millj. Fasteignagjöld áætlast -2,2
millj.
Hæstu gjaldaliðir eru:
Til gatna- og holræsagerðar
kr. 10.25i5.000,— auk áætlaðs
gatnagerðargjalds kr. 2,5 milljóu
ir.
Til félagsmála kr. 9.678.000. —
Til fræðslumála:
1) reksturs kr. 6.375.000,— 2)
skóla'byggingar 4.250.000,— Sam-
tals kr. 10.625.000.00.
(Frá skriistofu bæjarstjóra)
UátíðWtjétííVlÍMSt
'0cmi£6aís
y^VoOgtítíS r Skreyttar 'istertur
Josðar&r/a/s
úr vanillaís og súkkulaðisís
/pö/zÆum Þriár stærðir:
’ 6 manna
9 manna
12 manna
ístertur þarf að panta með
i daga fyrirvara í útsölu-
stöðum á Emmess ís.
Mjólkursamsalan