Morgunblaðið - 16.03.1965, Blaðsíða 1
28 síður
Moskvu, 14. marz. — AP — Krúsjeff, fyrrv. forsætisráðherra Sovétríkjanna, ræðir við fólk, sem safnazt hafði saman fyrir
utan heimiii hans í Moskvu, er hann lagði af stað til kjörstaðarins.
Perónistar ■
unnu á
— í kosninguiti
í Argentínu
Buenos Aires, 15. marz
— (NTB-AP) —
ÞEGAR 85% atkvæða höföu
verið talin í þingkosningun-
um í Argentínu, sem fram
fóru í gær, varð ljóst, að
Peróhistar hafa unnið mjög á
— meira en nokkru sinni fyrr,
frá því Juano Peron var
steypt úr valdastóli fyrir 1®
árum. — Stjórnarflokkurinn
vann einnig nokkuð á, en
minni stjórnmálaflokkar fóru
halloka.
Hafa 14 sovézkir
geimfarar farizt?
Róm, 15. marz. — (NTB) — segir — heyrt í stöð sinni a'ð
• TVEIR bræður ítalskir, frá því árið 1960 hafi verið
sem hafa komið sér upp hlust- skráðir 14 sovézkir geimfar-
unarstöð skammt frá Torina ar, sem beðið hafa bana við
hafa, — a® því er annar þeirra Framhald á b'ls. 8
Kairo, 14. marz. AP.
verjum.
— Ptanrík ísráðherrar Arabarikjanna ræða hefndarráðslafanir gegn V-J>.
Vestrænir fréttamenn hittu Kriísjeff
Moskvu, 15. marz
— (NTB-AP) —
Á SUNNUDAGINN sáu
vestrænir fréttamenn í
Moskvu Nikita Krúsjeff,
fyrrum forsætisráðherra
Sovétríkjanna, í fyrsta
sinn frá því að honum var
vikið úr embætti fyrir
fimm mánuðum. Kom
Krúsjeff til kjörstaðar í
nágrenni við Kreml, ásamt
konu sinni Nínu, til þess
að greiða atkvæði í kosn-
ingum til borgarstjórnar í
Moskvu.
Krúsjeff var glaðlegur á
svipinn og virtist í góðu
skapi. Þegar hann lagði af
stað frá heimili sínu í
Moskvu til kjörstaðarins,
hafði lítill hópur manna
safnazt saman fyrir utan
og varð Krúsjeff augsýni-
lega hrærður, þegar hópur
þessi fagnaði honum með
lófataki.
Vestrænir fréttamenn, sem
voru saman komnir fyrir utan
kjörstaðinn, spurðu Krúsjeff
hvernig honum liði og hann
svaraði: „Mér líður eins og
Framhald á bls. 8
Yfirlýsing utanrikisráðherrcn undar i Kairó:
Arabar slíta stjórnmála-
sambandi við V-Þýzkaland
— en vninnast ekki á viðurkenn-
ingu á stjórn A-Þýzkalands
Kairó, Bonn, 15. marz
— (AP-NTB) —
STARFSMENN vestur-þýzka
sendiráðsins í Kairó hófu þeg
ar í dag undirbúning að brott
för sinni frá Egyptalandi, sem
þeir vænta síðar í vikunni.
Hófust þeir handa, þegar birt
var tilkynning utanríkisráð-
herrafundar Arabaríkjanna í
Kairó um að sendiherrar
þeirra í Vestur-Þýzkalandi
yrðu kallaðir heim og slitið
stjórnmálasambandi við Vest
ur-Þjóðverja, vegna ákvörð-
unar þeirra og ísraelsmanna
um að taka upp stjórnmála-
samband. Athygli vekur þó
að í yfirlýsingu Arabaríkj-
anna er ekki minnzt á, að þau
ætli að viðurkenna stjórn A-
Þýzkalands.
• Ludwig Erhard, kanzlari
Vestur-býzkalands, er sagður
taka ákvörðun Arabaríkjanna
með mestu ró, enda hafi hann
búizt við henni. Hann hefur lýst
yfir ánægju sinni með hið já-
kvæða svar ísraelsstjórnar við
tilmælum Bonnstjórnarinnar um
að ísrael og Vestur-Þýzkaland
taki upp stjórnmálasamband.
• Fregnir frá Bonn i dag
herma, að' vestrænir stjórnmála-
fréttaritarar geri sér enn ekki
fylliiega grein fyrir því, hversu
háttað hafi verið samkomulagi á
fundinum í Kairó í gær. Stjórn-
ir ríkjanna hvers um sig hafi
ekki fengizt til að skýra nánar,
hvernig þau ætli að framfylgja
samþykkt fundarins. Samkvæmt
sáttmála Arabaríkjanna eru að-
eins þau ríki skuldbundin til að
framfylgja meirihlutasamþykkt
slíks fundar, sem greiða atkvæði
með henni — en ekki er vitað,
Framhald á bls. 21
Perónistar sigruðu í sjö af
sautján kjördæmum, þar á með-
al í því stærsta — héraðinu
Buenos Aires. f borginni Buenos
Aires vann hins vegar stjórnar-
flokkurinn og í fimm kjördæm-
um öðrum. íhaldsflokkurinn
sigraði í þrem kjördæmum.
Kosið var um 99 sæti í fulltrúa
deild þingsins — eða helming
þingsæta þar. Þegar 85% at-
kvæða höfðu verið talin var
reiknað með því, að stjórnar-
flokkurinn, „Róttæki þjóðarfiokk
urinn“, sem hafði 65 þingsæti í
fulltrúadeildinni fyrir kosningar,
muni nú fá þar 71 þingsæti — en
Perónistar, sem buðu fram undir
flokksnafninu „Sameinaði þjóð-
arflokkurinn“ muni fá 45 þing-
sæti. Þeir höfðu áður 17 sæti í
fulltrúadeildinni. Munaði aðeins
80.000 á atkvæðatölum flokk-
anna.
Að sögn AFP-fréttastofunnar
vann stjórnarflokkurinn nauman
sigur í höfuðborginni Buenos
Aires — hlaut þar 556.678 atkv.
en Perónistar 548.163 atkv. í sam
nefndu héraði sigruðu hinir sið-
arnefndu með 1.146.770 atkvæð-
um gegn 832.290 atkv. róttæka
þjóðarfiokksins. Hefur AFP töl-
ur þessar eftir innanríkisráð-
herra landsins, Juan Palmero.