Morgunblaðið - 16.03.1965, Side 24

Morgunblaðið - 16.03.1965, Side 24
24 MORCU NBLAÐIÐ Þriðjudagur 16. marz 1965 ANN PETRY: STRÆTID , 1. KAFLI Kaldur nóvembernæðingurinn blés gegn um 116.-götu. Það skrölti í lokunum á ruslatunnun um, gluggatjöld soguðust út um eíri rúðugötin, sem höfðu verið opnuð, og slógust svo utan á rúð urnar, og flestir íbúar samstæð- unnar milli sjöundu og áttundu- traðar, hypjuðu sig inn, en að- eins nokkrir fótgangandi, sem þurftu að flýta sér, hleyptu sér í keng móti vindinum, til þess að taka sem minnst á sig í för SÍnnL Stormurinn náði í hvert papp- írssnifsL sem á götunni fannst — bréfarusl frá leikhúsunum, auglýsingar um dansieiki og stúkufundi, þykkan vaxpappír utan af brauðpökkum og þynnri vaxpappír, sem hafður hafði ver ið milli brauðsneiða, gömul um slög og dagblöð. Hann þræddi eftir gangstéttarbrúninnL þeysti hverri pappírsögn hátt í loft upp, svo að fólkið var undir stöðugri skothríð á föt og andlit. Hann gerði sér jafnvel það ómak að smjúga inn í útidyr og húsa- garða og finna þar kjúklinga- bein og steikarbein, til að þeyta eftir gangstéttinni. Stormurinn gerði yfirleitt það, sem hann gat til að aftra fólki frá að ganga á götunni. Hann fann öll óhreinindi, ryk og for, sem til var, og þeytti því í loft upp, svo að fólk fékk það í vitin og því varð erfitt um andardrátt — rykið fór í augun á fólkinu og blindaði það, og sandkornin stungu hörundið. Dagblöðin vöðl uðust um fæturna á þvL þar til loksins fólkið bölvaði og reyndi að sparka þeim burt. En þá feykti vindurinn bara blöðun- um að því aftur, svo að loks varð það neytt til að losa þau með höndunum. Og þá náði stormurinn í höfuðfötin, losaði klútana af hálsinum, smeygði sér undir frakkakragana og losaði yf irhafnirnar af fólkinu. . Vindurinn lyfti hárinu á Lutie Johnson að aftan, svo að henni fannst snögglega hún vera orðin nakin og sköllótt, því að hárið hafði hingað til hangið niður og hlýjað henni. Hana hryllti þegar vindurinn snerti hálsinn á henni að aftan, köldum fingrum, og leit aði á kinnarnar á henni. Hann blés meira að segja augnahár- unum frá augunum, svo að kulda gjósturinn fór um þau, og hún varð að depla þeim aftur og aft- ur, til þess að geta lesið letrið á skiltinu, sem sveiflaðist fram og aftur uppi yfir henni. í hvert skipti, sem hún hélt að nú væri hún að geta fest augað á því, blés vindurinn því frá henni aftur, svo að hún gat aldrei greint, hvort á því stóð tvö her- bergi eða þrjú herbergi. Ef það væru þrjú, ætlaði hún að fara inn og fá að líta á þau, en væri það tvö, átti hún ekkert erindi. En jafnvel þótt vindurinn væri á sífelldri ferð með skiltið, gat hún greint, að það hafði verið þarna lengi, því að hvíta málningin upp runalega var alsett ryðrákum, þar sem veður og vindur höfðu étið málninguna burt og járnið var orðið ryðgað, og dökku blett irnir voru líkastir blóðblettum. Þetta reyndist ver þrjú her- bergi. Hún flýtti sér að lesa það áður en það færi af stað aftur. Þrjú herbergi, gufuhitun, park- etgólf, siðsamir leigjendur. — Sanngarnt verð. Hún skoðaði húsið að utan. Hér þýddi parket gólf, það að tréð var orðið svo gamalt og upplitað, að enginn gólfáburður gat hulið sprungurnar í viðnum, sem stöf- uðu af illri meðferð leigjend- anna og hamarshöggum barna. Gufuhitun þýddi hávaða og djöf ulgang í ofnum, snemma morg uns og síðan suðu, sem stóð all an daginn. 1 Siðsamir leigjendur þýddi i svona húsum þar sem negrum var leigt, hvern þann, sem stóð í skilum með húsaleiguna, og auð- vitað voru sumir þeirra drykk- felldir, áflogagjarnir og háværir, fengu stundum þunglyndisköst og bölvuðu þá og rögnuðu, en hitt veifið voru þeir álika kátir og há- værir. Og henni datt í hug, að þar sem veggir voru þunnir og úr sér gengnir, yrði þarna allt í einum hrærigraut: gott fólk, vont fólk, börn, hundar og óþef ur — hrærigraut, sem hét sam- eiginlegu nafni: siðsamir leigj- endur. Vindurinn smaug undir rauðu kollhúfuna, sem hún var með á höfðinu, og það var eins og hann yrði vondur af því að geta ekki losað hana alveg, svo að held ur en ekki neitt þeytti hann heilu skýi af ryki og ösku og pappírs snifsum framan í hana, og í augu og nasir. Hann hamaðist á eyrun um á henni, rétt eins og hann væri að gefa henni lokasönnun- ina um vonbrigði sín, að hann skyldi ekki geta stöðvað ferð hennar fyrir alvöru. Lutie brauzt gegn öllum þess um árásum stormsins, og einsetti sér að ljúka við að hugsa um íbúð ina áður en hún færi inn að líta á hana. Sanngjarnt verð — jú, það gat nú þýtt næstum hvað sem var. Að minnsta kosti í þess ari götu gaf það heldur litlar upplýsingar. Hún sneri sér upp í vindinn til þess að geta athugað götuna dálítið betur. Húsin voru gömul og með gluggum, sem voru lík- astir mjóum rifum, en það þýddi aftur, að herbergin væru bæði lítil og dimm. í götu, sem sneri í þessa átt mundi ekki verða um að ræða neitt skólskin í íbúðunum. Aldrei. Þær mundu verða eins.og bakara ofn á sumrum og níðkaldar að vetrum. „Sanngjarnt verð“ I þessari götu mundi verða um 28 dalir, ef það væri á þakhæðinni. Gangarnir mundu verða dimm- ir og þröngir. En þá yppti hún öxlum við tilhugsunina, því að fá íbúð út fyrir sig, handa sjálfri sér og Bub var mikilvægara en dimmir gangar. Aðalatriðið var að losa sig burt frá pabba og þessari máluðu kvensnipt hans, og til þess var hvað sem vera skyldi vinnandi — dimmir gang- ar, óhreinir stigar, jafnvel kaka- lakar á veggjunum. Hvað sem væri var betra. Hvað sem væri? Já, næstum hvað sem væri. Hún sneri því að dyrunum á húsinu og um leið og hún gerði það, heyrði hún ein- hvern ræskja sig. Þetta var svo hraustlega gert, að hún heyrði það greinilega gegn um storm- inn. Það var rétt eins og einhver hefði verið að hóa í hana, og hún leit upp í gluggann, sem var beint uppi yfir henni. Það var dauf birta í herberginu sem hún var að horfa inn í og heljarmikinn kvenmannsskrokk bar við ljósið. Hún kipraði sam an augun til þess að sjá betur. Konan var kolsvört og hafði klút vafinn um hárið, og Lutie sá nú sér til undrunar, að glugginn yar opinn. Hún fór að velt því fyrir sér, hvernig konan gæti setið við opinn glugga í svona foráttu veðri. Og hún var ekki einu sinni í kápu, heldur bara í þunnum bómullarkjól — það hlaut að minnsta kosti að vera bómullar- kjólL svo kruklaðúr og ólánleg ur var hann. — Þetta er allra bezta hús, væna mín.'Hringdu bara upp á hjá húsverðinum ög þá sýnir hann þér það. Rödd konunnar var sterk og viðkunnanleg. En samt var það svo að því lengur sem Lutie horfði á hana, því verr leizt henni á hana. Það var ekki af því, að konan hafði verið að horfa á hana allan tímann og lesa hugs anir hennar — Það var ekki nema óviðkunnanlegt. En fullkomlega skiljanlegt. Líklega hafði hún ekki annað þarfara að gera, kannski var hún veik og eina á- nægjan hennar að horfa á það, sem fram fór úti á götunni, und ir glugganum hennar. Það var ekki það, heldur augun í kon- unni. Þau voru stjörf og illsku- leg, rétt eins og í höggormi. Hún gat vel séð þau — starandi á hana og mælandi hana frá hvirfli til ilja, vega hana og meta. — Hringdu bara upp á hjá hús verðinum, væna mín, endurtók konan. Lutie sneri sér að útidyrunum á húsinu, án þess að svara, en var alltaf að hugsa um augun í konunni og gekk inn og stóð þar grafkyrr. Forstofan var í myrkri. Daufa peran, sem þar var, gaf aðeins nægilegt ljós til þess að maður þurfti ekki að detta um slaghörpu, sem einhver hafði skil ið eftir í reiðileysi fyrir neðan stigann — eða kannski fíl, sem einhver framtakssamur leigjandi hefði dregið inn með sér utan af götunni. Hinsvegar, ef maður miissti skilding á gólfið, hefði þurft að skríða um það allt og þreifa fyr ir sér, til þess að hafa nokkra von um að finna hann. Og henni skjátlaðist, að hægt væri að sjá þarna fíl eða slaghörpu, einfald lega vegna þess, að hvorugt hefði komizt fyrir þarna í forstofunni. Og svo reis stiginn snarbrattur, dimmur og þröngur. Hún starði á hann, eins og frá sér nurnin. Það var víst dglaglegur verustað ur, sem tók við, þegar búið var að klifra upp svona stiga upp undir þak í þessu húsi. Hún laut fram til að kynna sér nöfnin á pöstkössunum. Hér bjó Henry Lincoln Johnson, rétt eins og í öllum öðrum húsum, sem hún hafði komið í. Annað- hvort hann eða skilgetinn bróðir hans. Það var meiri kynsældin hjá þessum Jackson- og Johnson fjölskyjdum- En svo datt henni í hug: Ég get nú varla frómt um talað, þar sem ég er sjálf af hini voldugu Johnsonætt! Við dyrabjölluna mátti sjá, að John soníjölskyldan hafði leigjendur — Smith, Roach, Ánderson — og, hjálpi oss vel! — Rosenberg! Flest nöfnin voru skrifuð með bleki og sjálfandi hönd yfir |>óst kössunum, en á sumum var stafa gerðin stórkarlaleg og hressileg. Enn önnur voru skrifuð með blý anti, sum með skjálfandi prent- stöfum, þar sem eitt nafn hafði verið þurrkað út og annað skrif að ofan L Á fyrstu hæð voru tvær íbúð ir. Og ef húsvörðurinn átti ekki heima í kjallaranum, þá hlaut hann að vera á fyrstu hæð. Og þarna var nafnið vélritað uppi yfir merkinu 1A. 1A hlaut að vera dimmasta íbúðin, og sú minnsta og óútgengilegasta, en húseigandinn mundi stæra sig af því að hafa látið húsvörðinn fá íbúð á fyrstu hæð. Hún stóð þarna stundakorn og fór að hugsa um, hvað það væri leiðinlegt, að þeir skyldu ekki líka geta leigt gangana út. Ein- föld rúm? Nei. Hermannabeddar mundu duga. Það gæti gefið af sér tekjur. Ef hún væri húseig- andL skyldi hún líka leigja út alla ganga. Það yrði svo miklu skemmfilegra fyrir leigjendurna. Hr. Jones og frú gætu haft bedda númer eitt og tvö, Jackson og viðhaldið hans gæti haft númer þrjú. Og RinaldL sem ók leigu bíl á nóttinni gæti svo haft bedd ann í framleigu hjá Jackson. Hún skyldi fylla alla beddana — langar raðir af þeim. Og þegar leigjendurnir, sem höfðu íbúðir, kæmu seint heim á kvöldin gætu þeir haft gaman af því að telja og athuga hinr /eigjendurna: Jackson ekki kominn heim, en stelpan hringuð upp í beddan- um. En svo væri betur að gáð, því að þarna var svo dimmt, að ekki var allt séð í einu — ha, hvað var þetta Hvað var Rinaldi að gera að vera heima ð nætur lagi? Já, svei mér ef hann er ekki þarna í beddanum með stelp unni hans Jacksons og lætur fara vel um sig. Það var engin furða þó að hann væri ánægður á svip inn! Og íbúðaleigjendurnir mundu setjast niður á tröppurnar og bíða eins og leikhúsgestir, eftir þvL að sýningin hæfist — þeir mundu bíða þangað til Jackson kæmi hejm, bara til að sjá hvern ig viðbrögð hans yrði, þegar hann fyndi Rinaldi í rúminu hjá kær- ustunni! Rinaldi mundi halda því fram, að hann hefði beddann á leigu til þess að sofa í honum, og ef teppi væru í beddanum — væri hann kannski ekki vanur að sofa við teppL og stélpa væri í honum, hví skyldi hann þá ekki bara sofa hjá stelpunni? Hún fann, að hún var farin að syngja, í stað þess að hlæja. En þá datt henni í hug, að ef aðeins tvær íbúðir væru á fyrstu hæð og húsvörðurinn hefði aðra, þá hlaut konan með höggormsaugun að hafa hina. Hún leit á nöfnin á póstkössunum. Jú, einhver frú Hogges átti heima í 1B. Nafnið var vélritað á kort — mjög vand að kort. Sýnilega merkileg kona, með klútinn um höfuðið og þessa mildu rödd. Kannski var hún slöngutemjari og sæti í gluggan um sínum til þess að töfra burt höggormana, refina og birnina, sem voru á flakki og hoppi eða skriðu á maganum í fenjaskógi 116. strætis. Lutie rétti út hönd og hringdi hjá húsverðinum. Bjallan var hvell og hljómur hennar berg- málaði aftur og aftur um íbúð- ina og barst svo þaðan aftur út á ganginn. Jafnskjótt byrjaði hund ur inni fyrir að hamast og gelta Carðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, simi 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunbl.aðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- landi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Eyjaf jörð og víðar. KALLI KUREKI ■X~ Teiknari: J. MORA — Þarna fékkstu það sem þú þurft- ir með. — Heyrðu strákur. Hvað viltu hafa íærið langt á milli ykkar Skröggs. Fimm fet eða fimmtíu? segja að þú hafir ekki íæri. — Jæja, segðu til. Þú færð að ráða. — Þið eruð allir á móti mér. Senda mig á móti svona skyttu og þó er ég aðeins stráklingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.