Morgunblaðið - 19.03.1965, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.03.1965, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 19. marz 1965 Útgefandi: Framkvæmdastj óri: Ritstjórar: Ritstjórnarfuiltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. OSKA EKKI SÉRRÉTTINDA Tt/fiklar umræður hafa að^ -‘■^* undanförnu verið um stöðu iðnaðarins og hversu mikillar tollverndar hann skuli njóta. Um þetta mál er eðlilega fjallað á ársþingi iðn- rekenda, sem nú stendur yfir. í setningarræðu sinnimarkaði Gunnar J. Friðriksson, for- maður Félags ísl. iðnrekenda, þá stefnu, sem heilbrigð er og eðlileg. Hann segir í niður- lagi ræðu sinnar: „Ég hef þá bjargföstu trú, að íslenzkur iðnaður standi svo föstum fótum í íslenzku þjóðlífi og að kunnátta hans og verkmenning sé slík, að hann standist alla sanngjarna og eðlilega samkeppni, fái hann þeim sjálfsögðu kröfum framgengt, sem hér hafa ver- ið settar fram og skýrðar að nokkru. Við, sem iðnaðarvörur fram leiðum í þessu landi, gerum ekki kröfur til neinna sérrétt- inda, gerum einungis þá sjálf sögðu kröfu, að njóta sömu réttinda og viðurkenninga sem aðrir atvinnuvegir þjóð- arinnar. Til þess að fá þess- ari sjálfsögðu kröfu fram- gengt er okkur iðnrekendum nauðsynlegt að standa fast saman innan vébanda F.Í.I.“ STUÐNINGUR VIÐ STÚDENTA ur upp fjandskapur við stúd- enta og æðri menntun. Staðreyndir hvers máls hljóta að vera forsendur þess og það er engu máli til fram- dráttar að framhjá þeim sé gengið eða þær sagðar aðrar, en raun ber vitni. Það verður ekki um það deilt, að um- mæli forsætisráðherra eru rétt. Hér á landi geta flestir, ef ekki allir, stundað háskóla nám af fjárhagsástæðum. — Kennslan er án endurgjalds. Þá koma til námslán, eigin atvinna og stuðningur vanda- manna. Stuðningur við stúd- enta er hér meiri en í mörg- um öðrum Evrópuríkjum. Af þessu má hinsvegar ekki draga þá ályktun, að stúdentar við háskólann búi við einhver sældarkjör og að endurbóta sé ekki þörf. Flest um stúdentum er fjárhags- lega kleift að stunda nám sitt, en margir verða að leggja mjög hart að sér. Það má um það deila, hvort sanngjarnt sé að ætla þeim, sem stunda langskólanám í eigin þágu, og um leið þjóðfélagsins, að búa við rýran kost fram eftir aldri. Það má um það deila, hvort opinber stuðningur skuli vera í formi námslána eða námsstyrkja eða hvort- tveggja, upphæðir slíks stuðn ings og hlutfall milli lána og styrkja. TVTokkrar umræður hafa orð- ið nýlega um hag og námsaðstöðu stúdenta við Há skóla íslands. Þessar umræð- ur hafa sprottið af ýmsum ummælum þingmanna og ráð herra við meðferð frumvarps til laga um læknaskipan landsins á Alþingi. Talsverða athygli hafa vakið ummæli Einars Olgeirssonar um læknanám við háskólann og krafa hans um námslaun, og ummæli dr. Bjarna Bene- diktssonar, forsætisráðherra, sem hann lét falla í umræð- um á Alþingi, en hann sagði, að flestir gætu nú stundað háskólanám hérlendis og kæmust vandræðalaust af með lánum, styrkjum og þeirri sumarvinnu stúdenta, sem hér hefur tíðkast frá upp hafi. Taldi forsætisráðherra þessa sumaratvinnu merkan þátt í uppeldi menntamanna landsins. Þá sagði dr. Bjarni, að íslenzkir stúdentar nytu nú þegar meiri fyrirgreiðslu en víða annarsstaðar. Heynt hefur verið að snúa út úr þessum ummælum for- sætisráðherra og honum gerð Nú eru það næstum ein- göngu lán, sem stúdentum hérlendis gefst kostur á tvisv ar árlega, frá u.þ.b. 8—16 þús. kr. í hvert skipti. Fyrstu lög- in um lánasjóð stúdenta eru frá 1952, en það var fyrst með setningu núgildandi laga 1961 að eitthvað gagn varð að lán- veitingum sjóðsins. Frá 1961 hefur sjóðurinn verið efldur verulega og nú'mun standa fyrir dyrum endurskoðun á lögunum með eflingu sjóðs- ins fyrir augum. Styrkir til stúdenta við háskólann eru hinsvegar litlir sem engir og er spurning, hvort ekki beri að veita styrki samhliða lán- um til samvizkusamari og hæfari stúdenta og stúdenta í fjárfrekara námi. Sumarvinnan hefur reynzt námsmönnum drjúg tekjulind og verið þeim þjóðfélagslega holl, einnig aukastörf jafn- hliða náminu, sem þá kemur að vísu niður á námshraða og einbeitingu. En nú er það svo, að stúdentar í hinúm ýmsu deildum hafa ólíka aðstöðu til slíkrar tekjuöflunar. Hug- dsindin, sem veita meiri yýZzzp' : rHr * '9 ’m ■* ~ X?’4* - \ jr Ber er hver að baki. Tiygg- ustu „aðstoðarmenn“ austur- þýzku landamæravarðanna eru sérþjálfaðir varðhundar, eins og sá á myndinni, sem þarna fær mat'<rskammtinn sinn. Umhverfið er ömurle^t og minnir á fangabúðir, djúpur skurður, varnarveggir á báða bóga, gaddavír, grimmur hundur og gæzlumaðurinn ungi grár fyrir járnum. En ekki mun af veita — í fyrra hættu 3155 Austur- Þjóðverjar lífi og limum til þess að komast til Vestur- Berlínar. Og nú eru landa- mæraverðirnir' hættir að skjóta viðvörunarskotum, verði þeir varir mannaferða á sínu umsjónarsvæði. Það er skipun yfirvaldanna eystra að nú skuli hver sá feigur er í augsýn þeirra komi. Varðhundurinn viö múrinn möguleika á sjálfsnámi, gefa frjálsari hendur til tekjuöfl- unar með aukastörfum. Raun vísindin verður að stunda með öðrum hætti. Þessi sjón- armið verður að hafa í huga og einnig þá staðreynd, að eftirspurnin á vinnumarkað- inum er forsenda þessa tekju- stofns. Það hefur jafnan þótt sjálf- sagt, að vandamenn styrki stúdenta til náms og í sumum löndum er hann nauðsynleg forsenda háskólanáms, eins og hér var í gamla daga. — Fæstir eru svo settir hér- lendis, að þeir geti ekki veitt afkomendum sínum og skyld mennum nokkurn stuðning. En efnahagur manna er mis- jafn og sé hlutur þessarar tekjulindar stúdenta gerður’ of mikill, þá er íslenzkri æsku mismunað um tækifæri til þroska og menntunac. Hér eru því mörg athugun- arefni, sem bezt verða rædd og afgreidd af einlægni og réttsýni. Útúrsnúningar, eins og átt hafa sér stað á um- mælum forsætisráðherra, eru hæpinn stuðningur við stúd- enta og æðri menntun. KRAFA UM NÁMSLAUN |7" rafa Einars Olgeirssonar ■*■*• um námslaun frá ríkinu, er kommúnistakenning, sem stúdentum mun kunn. Þetta kerfi tíðkast í kommúnista- ríkjunum og fylgir þar sá böggull skammrifi, að eftir að stúdentarnir hafa verið laun- þegar ríkisins á námsárum sínum, þá eru þeir eign ríkis- ins til frjálsrar ráðstöfunar þess. Þettá er ekki kerfi, sem frjálshuga menn sækjast eft- ir. — Þá gagnrýndi Einar þær kröfur, sem gerðar eru í einni deild háskólans um ástundun og námskröfur. Þessi skoðun Einars er þvert ofan í skoðan ir stúdentanna sjálfra. Það hefur oftlega komið fram með stúdentum undanfarin ár, að þeir vilja síður en sva að dregið verði úr gæðum námsins og óska fremur eftir auknum kröfum um ástund- un og að háskólanum verði gert kleift að auka námshrað- ann, sem hérlendis er hægari en annarsstaðar, gegn því að þeim verði veittur aukinn fjárhagslegur stuðningur svo þetta verði mögulegt. Þetta er mjög einörð afstaða stúd- entanna og ber vissulega að gefa málefnum þeirra mikion og meiri gaum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.