Morgunblaðið - 25.03.1965, Síða 17
Fimmtudagur 25. marz 1965
MORGUNBLAÐIÐ
17
Söngleikurinn Stöðvið heiminn verður sýndur í næstsíðasta sinn
nk. föstudag og er þetta 27. sýning á leiknum. — Síðasta sýning
leiksins verður nk. þriðjudag. — Myndin er af Bessa Bjarnasyni
«g Völu Kristjánsson í aðalhlutverkunum.
— Gufuleiðsla
Framh. af bls. 13
að það sé bara til að standa
ekki uppi alveg orðlaus um
Ihvers kyns sé á svo merkura
stað sem Reykholti, þá spyr ég
hann nánar út í þetta.
Maður veit ýmislegt um not
kun gufunnar áður fyrr, segir
Þorkell. Hún var notuð til
baða. Bæði voru baðofnar inn
an húss og svonefnd þurra-
böð úti. Menn fóru að baða
sig í igufunni, þar sem hún
kom úr jörðu. Slík böð voru
t.d. í Þjórsárholti og við Náma
skarð hjá Mývatni. Það er því
ekki óhugsandi, að gufubað
hafi verið þar sem leiðslan
endaði í brekkunni austan
Reykholtsbæjar. Þar eru ekki
merki um nein hús, en mér
dettur í hug, að menn hafi
tjaldað þar yfir sig. Það var
gert við laugar. Eggert Ólafs-
son og Bjarni Pálsson segja
t.d. frá því í ferðabók sinni, að
hægt hafi verið að tjalda yfir
laugina hjá Leirá í Leirársveit
Og einnig að fólk hafi tjaldað
yfir Marteinslaug í Haukadal.
Þar er líka talað um rennu frá
uppsprettu og frásögnin dálít-
ið skemmtileg um minjastað
þennan, sem kenndur er við
heilagan Martein frá Tours:
„Sú saga er sögð þar í sveit-
inni um Marteinslaug þessa,
að hún hafi með yfirnáttúru-
legum hætti sprottið upp úr
hörðum kletti og fallið síðan
gegnum lokaðan stokk niður í
baðþróna. Þá er og saigt, að
vatnið sé gætt lækningamætti,
og er til nefndur fjöldi manna,
sem þar hafi hlotið heilsubót.
Þessa sögu látum við liggja
milli hluta, en í raun og veru
er það mjög einkennilegt, að
vatnið sprettur hér upp í gegn
um harða og þétta klöpp, sem
er tvær álnir á hæð og þriiggja
álna breið. Vatnið rennur frá
uppgönguauganu í tveggja
þumlunga víðri, opinni rás
eða rennu. Sagt er, að óknytta
piltar nokkrir hafi brotið renn
una upp, en sennilegast er að
hún hafi verið opin frá önd-
verðu, rétt eins og hún er nú
því að hún er úr annars konar
steini en klöppin í kring, en í
hana hefur setzt hrúðurskorpa
úr vatninu. Vatnið í lauginni
er tært og enginn afkeimur af
því. Heilnæmt oig þægilegt er
að fá sér bað i lauginni. Sækja
menn því þangað mikið úr ná-
grenninu í því skyni að tjalda
þá yfir laugina.“
Um fleiri laugar, og hversu
vatninu er veitt að, tala þeir
Eggert og Bjarni, t.d. um bað-
húsið í Hrafnkelsdal, en þar
var byggt yfir laug, laugina í
Laugarási í Biskupstunigum,
sem stokkur lá að, nú og
Snorralaug í Reykholti og
vatnsstokkinn að henni. Um
hana segja þeir:
„Snorralaug er frægust laug
á íslandi vegna aldurs og gerð
ar. Hún dregur nafn af sagna-
ritaranum fræga, Snorra-
Sturlusyni, sem sagnir herma,
að hafi látið gera hana. Eng-
in sönnun er þó fyrir því, en
af Sturlunga-sögu má ráða, að
hann sat Reykholtsstað vel.
ÞRÍFASA IIAFMIÍinilAII
fyrirliggjandi af eftirtöldum stærðum: %, 1, 1,5, 2, 3,
4 og 5,5 HP. Vatnsþéttir (P 33) 220/380 Vött 1450
s/mín. Málsetning mótoranna er samkvæmt I. E. C.
(International Electrotechnical Commission).
3000, 1000 og 750 s/mín. verða til á næstunni.
Söluumboð Véladcild S.Í.S. Ármúla 3; sími 38900.
JÖTUNN H.F., rafvélaverksmiðja
Hringbraut 119. — Sími 20-500.
Hann var hugvitssamur, hafði
gaman af húsagerð og „hafði
beztu forsagnir á því, er gera
skyldi." Laugina notaði hann
mikið, og þá lágu löng undir-
göng milli bæjar og laugar,
svo að hægt var að ganga á
milli, án þess að að manni
slægi. Annars má sjá af Land-
námu, að laug þessi var til
þegar á dögum Tungu-Odds
fyrir 960, áður en byggð hófst
í Reykhotti. Þá var laugin
notuð, og þótti hin bezta laug
í dalnum, og voru þó baðlaug-
ar þar næstum á hverjum
bæ.
Skrifla heitir hver, sem er
í 40 skrefa fjarlægð frá Snorra
laug, og rennur vatnið í laug-
ina úr hvernum eftir hlöðn-
um stokki. í endanum á
stokknum er hella með kringl
óttu gati, sem tappi er í. Hann
er tekinn úr, þegar heitt vatn
á að renna í laugina. Kalduc
lækur rennur einnig þar fram
hjá, svo að hægt er að kæla
baðið, ef mönnum þykir það
of heitt. Snorralaug er hlaðin
úr höggnu grjóti Oig hvera-
hrúðrL Botn laugarinnar er
flatur og bekkir í kringum
hana. Laugin er svo stór, að
50 manns rúmast þar inni.
Vatnið er mjög tært og létt,
en ekki með öllu laust við
hveraslý, ef það fær tíma til
að vaxa. Laugin er mikið not-
uð bæði af heimafólki og ná-
grönnum, og telja menn sig
hafa gott af böðunum."
Þeir Eggert og Bjarni tala
um hlaðinn stokk, sem vatnið
renni eftir, segir Þorkell. En
þetta er þó ekki fyllilega rétt.
Að minnsta kosti er ekki unnt
að greina slíka gerð á stokkn-
um, þar sem til sést. Vatnið
rennur eftir rás, sem virðist
eins og sú, sem við fundum
núna. Hins vegar eru tilhöggn
ar hellur meðal þekjusteina.
Kaldi lækurinn sést heldur
ekki lengur. En Eggert og
Bjarni ferðuðust um landið
1752-57 og því orðið æði langt
síðan.
Hafði Snorri gufubað utan
við bæinn?
— Það eru sem sagt engin
merki um, að gufa hafi verið
leidd í bæinn í Reykholti eftir
rennunni, sem nú fannst?
— Nei, og talsvert bil er
milli rústa bæjarhúsanna og
leiðsluendans. Kannski hefur
verið hentugra að hafa að-
streymi gufu, til að baða sig
við, í brekkunni skammt frá
bænum en að veita henni inn
í bæinn, því að baðigufa flyt-
ur með sér raka inn í hibýlin,
þótt loka magi rásinni. Ekki
skal ég fullyrða þetta.
— Er hugsanlegt að eitt-
hvað fleira sé að finna þarna,
ef haldið verður áfram að
leita?
— Úr því er nú skorið að
ekki liggja fleiri leiðslur
þarna á milli Skriflu og.
Snorralaugar eða bæjarrúst-
anna, svo djúpur er skolp-
leiðsluskurðurinn, sem graf-
inn var frá kennarabústaðn-
um að safnþró og þvert yfir
svæðið. Bústaðurinn er reist-
ur 30 m. austur frá fjóshlöð-
unni í Reykholti og dálítið
norðan hennar. Skrifla er í
mýri austur við túnjaðar og
um 50 m. frá bústaðnum. Þetta
sem fundið er, þarf svo að
rannsaka nánar
— E. Pá.
Fl ugumsjónarmenn
Loftleiðir Keflavík h.f. óska að ráða til sín á
næstunni nokkra aðstoðarmenn í flugumsjón, sem
síðar meir öðlist fullgild réttindi flugumsjónar-
manns. Þeir, sem áhuga hafa á aðstoðarmanns-
starfinu, skulu hafa góða almenna menntun m. a.
gott vald á ensku.
Umsóknareyðublöð fást í aðalskrifstofunni Reykja-
víkurflugvelli, afgreiðslunni Lækjargötu 2, Reykja-
vík og hjá Loftleiðum Keflavík H.F., Keflavíkur-
flugvelli. Umsóknir skulu hafa borizt Ráðningar-
deild félagsins í Reykjavík fyrir 30. þ.m.
Keflavík og Njarðvík
Loftleiðir Keflavik H.F. óska eftir að ráða fólk til
eftirtalinna starfa á næstunni:
1. Fjórar stúlkur eða konur til hreingerninga
á flugvélum félagsins.
2. Nokkrar stúlkur eða konur til starfa í eldhúsi,
búri og í framreiðslusölum veitingahúss fé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli.
Umsóknareyðublöð fást í aðalskrifstofunni Reykja-
víkurflugvelli, afgreiðslunni Lækjargötu 2, Reykja-
vík og í skrifstofu Loftleiða á Keflavíkurflugvelli.
Umsóknir skulu hafa borizt Ráðningardeild félags-
ins í Reykjavík eða skrifstofu Loftleiða Keflavík
h.f., Keflavíkurflugvelli fyrir 30. þ.m.
OFMIDIR
AFGREIÐSLUST JÓRI
á varahlutalager
Vér óskum að ráða sem fyrst og eigi síð ar en í byrjun júní n.k. afgreiðslustjóra
í varahlutaverzlun.—Nauðsynlegt er, að viðkomandi hafi starfsreynslu við
viðgerðir dráttarvéla eða afgreiðslu varahluta.
Nánari upplýsingar veittar af framk væmdastjóra.
Dráttarvélar hf
Sambandshúsinu, Reykjavík — Sími 17080.
ÓDÝIU BÍLAÁKLÆÐI ÓDÝRI
Mjög góð og ódýr ullarefni, hentug í bílaáklæði, verð kr. 55,00,
kr. 75,00 og kr. 98,00 pr. meter. Breidd 140 cm.
Notið þetta sérstaka tækifæri til að klæða sætin í bifreið yðar
ódýrt.
Selt á útsölunni í Aðalstræti 7, bakhús.
(gengið inn frá Hótel íslandslóðinni).