Morgunblaðið - 06.04.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 06.04.1965, Síða 6
6 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 6. apríl 1965 ÚTVARP REYKJAVÍK HANNES Jónsson, félagsfræðing- ur, lauk erindaflokki sínum um fjölskyldu- og hjúskaparmál sunnudag 21. marz. Ég held, að margir hafi fylgzt með þeim flokki og vafalaust ýmsir sér til nokkurs gagns. Oig það jafnt fyrir því, þótt einstakar kenningar hafi vakið óónægju hjá vissum aldursflokkum og kunni jafnvel að orka tvímælis, eins og svo margar kennisetningar. — Þátt- urinn „Hvað er svo glatt", sem fluttur er annað hvert sunnu- dagskvöld, er greinilega í fram- för. Verst, ef hann verður felldur niður mitt í vorbröigguninni, eins og svo margir skemmtiþættir vetrardagskrárinnar verða að þola. Njörður P. Njarðvík, cand. mag. talaði um daginn og veginn á mánudagskvöld. Skólamál og kjaramál menntamanna voru honum efst í huga. Hann taldi óþarft að reisa nýjan háskóla, á meðan útskrifaðir stúdentar væru innan við 5000 á ári. Hins vegar væri þörf nokkurra nýrra menntaskóla, en þess yrði að gæta, að þeir væru reistir á stöð- um þar sem þeirra væri mest þörf. T.d. væri vafasamt, hvort rétt væri, veigna fólksfæðar, að reisa menntaskóla á ísafirði og Eiðum. Virtist- hann því hafna þeirri hugmynd að beita mennta- skólum til að draga úr fólksflótta úr strjálbýlum landshlutum. Njörður ræddi hinn mikla kennaraskort í gagnfræðaskólum landsins. Víða yrði þar að notast Finnskir námsstyrkir FINNSK stjórnarvöld hafa á- kveðið að veita íslendingi styrk til háskólanáms eða rannsóknar starfa í Finnlandi námsárið 1965 —66. Styrkurinn veitist til 8 mán áða dvalar og nemur 450 eða 550 finnskum mörkuim á mánuði, eft ir því hvort um er að ræða há- skólastúdent eða fræðimann, sem lokið hefur háskólaprófi. Þá munu finnsk stjórnarvöld veita þrjá samskonar styrki til framhaldsnáms, er íslendingum við kennara, sem hefðu ekki tilskilda mennt un í sinni ^ kennslugrein. Þetta kenndi hann lélegum launakjörum há- skólamenntaðra | manna, sem * kenndu í gagn- Njörður P. fræðaskólum. — Njarðvík Þannig fengju norrænufræðinigar, sem kenndu í gagnfræðaskólum ekki nema 9930.00 kr. á mánuði í byrjunar- laun, en kæmust í 12300.00 eftir 10 ár. Hann taldi óréttlátt, að sá möguleiki væri fyrir hendi, að menn með háskólrapróf hlytu lægri „æfitekjur“ en þeir, sem ekki hefðu slíkt próf. Það er ekki mjög langt síðan orðið æfitekjur var tekið í not- kun, að ég held. Þetta er ekki ljótt orð áferðar, stafafjöldinn myndar meira að segja kvaðrat- tölu. — Ég hefi þó aldrei getað fellt mig vel við hugtakið. Því hefur mjög verið beitt upp á síð- kastið, m.a. til að afsaka útflutn- ing sérmenntaðra fslendinga til starfa erlendis. En í því sambandi er margs að gæta. Háskólamenntaður maður, sem flytur til annars larids í von um hærri æfitekjur þar en á fóstur- jörð sinni, verður fyrst að hafa grandskoðað að hann eigi ekki kost á lífvænlegum tekjum heima. Þá verður hann einnig að líta á það, hve miklar „æfitekjur" þjóðin í heild kann að hafa af starfi hans. Það veltur á þeim tekjum, hvort ríkinu tekst í framtíðinni, að byggja þegnunum grundvöll hærri æfitekna. Kannske ættu allir íslendinigar kost á hærri tekjum einhvers staðar annars staðar. En þá verða þeir að greiða á milli æfi sína sem íslendingar. „Æfitekjur“ þjóðarinanr yrðu eftir í ófullnýtt- um auðlindum landsins. í heild var erindi Njarðar at- hyglisvert og rétt stefna hjá út- varpinu að útjaska ekki um of þröngum hóp manna í dags og vegs rabbi. Síðar um kvöldið ræddust þeir við í „Tveggja manna tali“ Bjarni Jónsson vígslubiskup og Matthías Johannessen, ritstjóri. Kunni Bjarni frá mörgu að segja af sínum langa og starfsama æfiferli. Séra Bjarni er fæddur íReykja- vík árið 1881. Faðir hann var ættaður úr Kjósinni, en móðir hans úr Engey. Ekki fór Bjarni varhluta af sjúkdómum í bernsku. Fékk hann t.d. taugaveiki, misl- inga, lungnabólgu og barnaveiki. Barnaveikin hafði næstum riðið honum að fullu, en Jónassen, landlæknir, bjargaði honum á síðustu stundu með skurðaðgerð. Það gerðist 26. júní 1886. Sama mánaðardag, 24 árum síðar, var hann vígur prestur í Reykja- vík. Stúdentsprófi hafði Bjarni lokið 1902. Foreldrar hans voru raunar of fátækir, til gð geta styrkt hann til náms, en hann hlaut námsstyrk og fyringreiðslu góðra manna, sem gerði honum kleift að legigja út á mennta- brautina. Að stúdentsprófi loknu hélt hann til Kaupmannahafnar, í fyrstu óráðinn í því, hvað hann skyldi leggja stund á, en þó varð það úr, að hann nam guðfræði. Áttu þeir Jón Helgason, síðar biskup, og séra Friðrik Friðriks- son drjúgan þátt að því, að hann lagði þá námsgrein fyrir siig. En þó kvaðst séra Bjarni aldrei mundu hafa lagt fyrir sig prests- skap, ef hann hefði ekki trúað og treyst Guði. Sú trú var honum aflgjafi í öllum erfiðleikum lífs- ins. Sem áður get- ur var séra |Bjarni vigður prestur í Reykja- vík 1910. Áður hafði hann verið jskólastjóri á ísa- firði um hríð. Hfefur Bjarni þannig stundað prestsstörf hér í borg í 55 ár. Séra Bjarni Jónsson. Matthías minnti séra Bjarna á, að eitt sinn hefði ekki munað nema einu atkvæði, að hann yrði kjörinn biskup yfir íslandi, og öðru sinni hefði munað tiltölu- leiga litlu atkvæðamagni, að hann yrði kjörinn forseti. Bjarni taldi, að báðar þær kosningar hefðu vel ráðizt. Hann kvaðst ávallt frem- ur hafa kviðið fyrir, að takast á við stór verkefni. Prestsstörfin hefðu stundum reynzt nógu erfið, einkum er hann stóð andspænis sjúkdómum og þungbærum sorg- um sóknarbarna sinna. f spænsku veikinni 1918 varð hann t.d. að jarðsetja 115 manns á þremur vikum. Hér eru ekki tök á að rekja náið þetta fróðlega viðtal. — Séra Bjarni er einn þekktasti humoristi íslenzkur. Aðspurður sagði hann að vísu, að margt af því tagi væri ranglega eignað sér, oig væri slíkt meinlaust, en annað bar hann ekki af sér. Það er um að gera að segja alvarlega fyndni og fyndna alvöru sagði séra Bjarni. Að lokum sagði hann, að menn skyldu ávallt vera viðbúnir að mæta Guði sínum. Óttinn hreki oss ekki af braut, orkan vaxi í hverri þraut“ voru niðurlagsorð hans. Séra Gísli Brynjólfsson flutti fyrri hluta fróðlegs erindis á kvöldvöku miðvikudagskvölds, sem hann nefnir: „Þegar Klaustr- ið missti kirkju sína“. Nefndi hann þennan hluta: „Hús Drott- ins hrörna og falla“. Greinir hann þar frá því, er kirkja var reist á Bakkavöllum á Síðu laust eftir miðja 19. öld, en áður hafði Kirkjubæjarklaustur verið kirkjustaður. Síðari hluta er- iridisins flytur séra Gísli mið- vikudag 31. marz. Að lokinni föstuiguðsþjónustu í útvarpssal, sem séra Lárus Halldórsson flutti, var þátturinn „Raddir skálda“, helgaður Thor Vilhjálmssyni, á fimmtudags- kvöldið. Einar Bragi bjó þáttinn til flutnings, en lesarar voru Helga Bachmann, Helgi Skúla- son, Hörður Ágústsson, og auk þess höfundur sjálfur. Einar taldi ýmsa helztu kosti Thors sem skálds, eins og andlegt fjör, bar- dagagleði og þá alúð, sem hann hefði lagt við að frjóvga sinn skáldlega anda, m.a. með ferða- gefst kostur á að sækja um í samkeppni við umsækjendur frá öðrum löndum. Loks er boðinn fram styrkur handa norrænum fræðimanni til að leggja stund á finnska tungu, og nemur hann 800 mörkum á mánuði. Umsóknir um framangreinda styrki skulu sendar menntamála ráðuneytinu, Stjórnarraðshúsinu við Lækjartorg, fyrir 25. apríl n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í rá'ðuneytinu. Umsókn fylgi síaðfest afrit prófskírtein, með- mæli tveggja kennara, vottorð um málakunnáttu og heiibrigðis- vottorð. (Frá Menntamálaráðuneytinu). • VONSVIKINN Kunningi riiinn fór í Kópa- vogsbíó á sunnudagskvöldið og bölvaði mikið, þegar hann kom heim. Auglýst var ensk gaman- mynd, en hann sagði, að sýn- ingin hefði hafizt með tuttugu- mínútna langri kommúniskri á- áróðursmynd. Svo sannarlega fara enskt grín og kommúniskur áróður ekki saman og það er illa gert að svindla slíkri leiðindaþvælu inn á fólk, sem fer í bíó til að skemmta sér. A.m.k. ætti að gefa afslátt af aðgöngumiða- verði. • ÍSINN OG AFLINN Mikill var munurinn á veðr áttunni hér syðra annars vegar og fyrir norðan og vestan hins vegar — í gær. Sumir eru farn- ir að óttast að við ætlum ekki að losna við ísinn — og lítið held ég að þá verði úr síldveið- um við Norðurland — þ.e.a.s., ef ísinn hefur sig ekki burt áður en okkar menn komast í síld- veiðihaminn. En samt eru ýmsir bjartsýnir — og spá mikilli síld undan ísn- um. Ekki veitir víst af síldinni — og bjartsýninni. í fyrra öfl- uðum við nær milljón tonna. Það, sem af er vetrarvertíð mun aflinn vera töluvert lakari en í fyrra — og nú treysta allir á páskahrotu. En hún getur víst brugðizt eins og annar afli — og þá mun okkur sjálfsagt ekki veita af að góma síldina. • BIFREIÐATRYGGINGAR Bifreiðaeigendur brugðust illa við fréttunum um hina stór- felldu hækkun, sem boðuð var á bifreiðatrygginigum. Það var ekkert undarlegt, því minna hefði nú mátt gagn gera. — Það er ekkert einkennilegt, finnst mér, þótt samtök bifreiðaeig- enda hugleiði stofnun trygg- ingafélags, þótt fæstir geri sér auðvitað grein fyrir því hve hagnaðurinn af slíkri félags- stofnun yrði mikill, þegar öll kurl kæmu til grafar. En þetta er auðvitað alvarleg hótun, sem tryggingafélögin munu sjálfsagt taka til greina. Vonandi verður hægt að ná samkomulagi um meðalveginn, því það er vafa- samur hagnaður fyrir þjóðar- heildina að hafa tryggingafélög Thor Vilhjálmsson lögum. En sérstaka áherzlu sagð- ist hann sjálfur leggja á það, hve hugumstór rithöfundur Thor Vilhjálmsson væri. Fyrsta bók Thors: „Maður- inn er alltaf einn“ kom út 1950, en síðan hefur hver bók- in rekið aðra með tiltölulega stuttu millibili. Nýjasta bók hans um Jóhannes Kjarval, kom út fyrir síðustu jóL Mörg verk skáldsins hafa verið þýdd á er- lend tungumál. Thor Vilhjálmsson er fæddur árið 1925 og stendur því á fer- tugu. Á hann því vafalaust enn sín beztu verk órituð. Jóhann Hannesson, prófessor, hélt áfram erindaflokknum „Sið- ir og samtíð“ á föstudagskvöldið. Hann benti á 12 ráð til að gera glæpamenn úr ungmennum. Með- al þeirra ráða má nefna að láta allt eftir þeim, banna þeim aldrei neitt, halda þeim ekki til vinnu. gera grín að þeim, ef þau spyrja um mun rétts og rangs. Enn fremur má reyna að kenna þeim að heimta allt af öðrum og kenna þjóðfélaginu um allt illt. Fleira taldi Jóhann koma til greina. Ku vera unnt að gera flest ungmenni siðlaus með bessum hætti. En regla sú er ekki án undan- tekninga taldi Jóhann. Þannig yrðu sumir ein- ungis tauga- veiklaðir aum- ingja, sjálfum sér verstir, en héngju á sið- gæðinu. Það fer þá að vera stutt í myndina, sem Bólu Hjálmar dró upp af sveitungum sínum fyrir hundrað árum: „Eru því flestir aumingjar, en illgjarnir þeir, sem betur mega“. Nema þar virðist undantekn- ingin hafa orðið reglunni yfir- sterkari. Jóhann Hannesson í hverri götu. Yfirleitt dreifum við kröftunum of mikið, gerum okkur ekki grein fyrir þvi hve smáir við erum. íslending- um hættir við að líta á sig sem stórþjóð og hegða sér í sam- ræmi við það. En — sem sagt: Þetta eru ósköp eðlileg viðbrögð af hálfu bifreiðaeigenda. • KLUKKUNNIFLÝTT Mér finnst alltaf ánægjulegt að flýta klukkunni, jafnleiðin- legt og það er að seinka henni á haustin — og taka við vetrar- myrkrinu og skammdegisveðr- áttunni. Vorið er á næstu grös- um vonum við — og það lakasta er í rauninni, að það líður allt of fljótt. Nú eru ekki nema lið- lega tveir og hálfur mánuður þar til sólin fer aftur að lækka á lofti svo að það er eins gott að nota tímann og góða veðrið (þegar það gefst) vel í sumar — og njóta útiverunnar að svo miklu leyti sem það er hægt. B O S C H þurrkumótorar, þurrkuarmar og þurrkublöð. BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesturgötu 3. -— Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.