Morgunblaðið - 05.05.1965, Side 12

Morgunblaðið - 05.05.1965, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. maí 1965 Evrópuráðið stofnað fyrir 16 áru — Rætt við Pétur Eggerz, ateikssador í DAG er Evrópudagurinn hald- inn hátíðlegur í tilefni af því að 16 ár eru liðin frá því að Evrópu- ráðið var stofnað hinn 5. maí 1949. Morgunblaðið átti í gær stutt símtal við Pétur Eggerz ambassador, sem skipar sæti ís- lands í ráðherranefnd Evrópu- ráðsins og bað hann að skýra frá hinu helzta varðandi stöf ráðs- ins frá stofnun þess. Pétur Egg- erz komst svo að orði: „Nú eru um það bil 20 ár síðan styrjöldinni lauk í Evrópu. Eins og allir vita var Evrópa þá í . rústum. Þá voru uppi margar hugmyndir um það hvernig reyna ætti að sameina þessi sundruðu lönd í Evrópu, og ein þessara hugmynda var stofnun Evrópuráðsins. Meðal þeirra, sem mest og bezt beittu sér fyrir stofnun Evrópuráðsins á sínum tíma, var Winston Churchill. Enda þótt segja megi, að ekki hafi Evrópuráðinu tekizt eins vel að öllu leyti eins og til var ætl- azt, hefur því samt orðið mikið ágengt í því að auka almenn samskipti landanna á milli. Fulltrúar fslands á ráðgjafarþingi Evrópuráðsins, Þorvaldur G. Kristjánsson og Friðjón Skarphéðinsson. Myndirnar voru teknar á fundi í Strasbourg. Hermann Jónasson á einnig sæti á þinginu. Á sviði menntamála hefur Evrópuráðið látið mjög mikið til sín taka. Hefur það m. a. beitt sér fyrir gagnkvæmum kynnis- ferðum háskólamanna, útgáfu-. starfsemi o. fl. Tungumála- kennsla og íþróttamál hafa einn- ig verið mál, sem ráðið hefur látið sig miklu varða. Evrópuráðið hefur mjög beitt sér fyrir því að auka og auð- velda ferðalög milli aðildarríkja sinna m. a. með því að fá felld niður ákvæði um vegabréfaárit- anir og fleiri kvaðir varðandi vegabréf. Á vegum Evrópuráðs er starf- andi lagadeild, sem vinnur að samræmingu löggjafar og að því að gerðir séu Evrópusáttmálar um ýmis lagaleg atriði, en einn slíkur sáttmáli er Evrópusamn- ingurinn um verndun mannrétt- inda og mannfrelsis. Ein af merk- ustu stofnunum ráðsins er Við- reisnarsjóðurinn, sem hefur það hlutverk að aðstoða Evrópulönd- in við lausn vandamála, sem stafa af tilflutningi fólks, með því að veita lán til framkvæmda, sem ætlað er að skapa nýja mögu leika til lífsframfæris, þar sem þess gerist .þörf af þessum. ástæð- um. Nú fyrir skömmu hafa ís- lendingar hlotið aðstoð úr þess- um sjóði. Þá má og nefna, að Evrópu- ráðið styrkir ýmis konar menn- ingar- og félagsmálastarfsemi svo sem námsferðir milli landanna. Á síðasta ári voru 5 íslenzkir lækn’ar og starfsfólk við heil- Aðalstöðvar Evrópuráðsins í Strasbourg. Alþýðnkórinn heldur nímœlis- honserf á 15 órn olmæli sínu í DAG miðvikudag 5. maí kl. 7.15 e.h. heldur Alþýðukórinn sam- söng í Gamla Bíó. Eru þetta 15- ára afmælishljómleikar félagsins. Stjórnandi er dr. Hallgrímur Helgason, einsöngvarar Álfheið- ur L. Guðmundsdóttír, Florence Grindlay og píanóleikari Jórunn Viðar ásamt söngstjóra. Á þessum afmælissamsöng kórsins situr íslands lag í fyrir- rúmi, eða 14 af 23. Þar á Friðrik Bjarnason lag, sem ekki hefur áður verið flutt á konsert. Frum- flutt verða einnig kórlög eftir Sig ursvein D. Kristinsson, Sigurð E. Hjörleifsson, Kristínu Einars dóttur, Ingunni Bjarnadóttur, Guðmund Skúlason bónda á Keld -* * um og þrjú lög eftir Hallgrím Helgason við ljóð Steins Stein- arrs, Hin hljóðu tár, ljóð Kjart- ans Ólafssonar, Borgin mín og vikivakinn Stúlkan í Drangey. Auk þess er veizlukór Björgvins Guðmundssonar úr óratóríunni „Friður á jörðu“ og hið fyrrum landfleyga lag frá Jónasi Helga- syni „í glitfögrum, laufgrænum lundi“. önnur verkefni eru þjóðlög frá íslandi, Ítalíu, Rússlandi og Þýzkalandi, madrígal eftir Moz- art, saminn af honum níu ára gömlum, rammþjóðlegur heiðni- dans eítir norska ' tónskáldið Sparre Olsen og tvær tónsmíðar eftir ítalska tónskáldið Cheru- bini með undirleik Jórunnar Viðar. Minnzt er finnska stór- meistarans, Jean Sibelius, sem á þessu ári á 100-ára afmæli, en Álfheiður L. Guðmundsdóttir syngur gullfallegt lag hans, Svarta rosor, en einn kórfélagi, skozka söngkonan Florence Grindlay syngur sóló í sérkenni- legu ostínató-lagi eftir Siegfried Borris, prófessor í músíkvísind- um við músíkháskólann í Vestur- Berlín. , (Frá Alþýðukórnum). A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunbtaðinu en öðrum biöðum. Happdrætti Hvatar DREGH) var í innanfélags happ- drætti Sjálfstæðiskvennaféiags- ins „HVATAR“ 30. apríl 1965 hjá Borgarfógetanum í Reykjavík. Upp komu þessi númer: 623 Hægindastóll 825 Ritsafn Jóns Trausta 1887 Hnífapör 4721 Svampdýna 3742 Þríhjól 4814 Gufu-straujárn 870 Spilaborð 493 Svefnpoki 5419 Matvörur kr. 1000,00 2845 Hárþurrka 5372 Sindrastóll 2198 Matvörur kr.'500,00 2808 Tertufat 2783 Ryksuga 2234 Ritsafn Gunnars Gunnars sonar 176 Hreinlætisvörur kr. 500,00 1238 Matvörur kr. 500,00 2681 Strásykurspoki 762 Hárþurrka 3567 Hitakanna 1818 Matvörur kr. 500,00 5085 Molasykur, 2 kassar 3215 Matvörur kr. 500,00 Vinninganna sé vitjað í Verzl. Egils Jacobsen, Austurstræti 9 og til Maríu Maaok, Ránargötu 30. Sími 15528. Ferðin út á ArSis gekk vel GLJÁFAXI Flugfélags íslands lenti á laugardag á ísjakanum Arlis með kvikmyndatökumenn frá ITV sjónvarpsfélaginu brezka. Flugstjóri var Jóhannes Snorra- son og lenti hann vélinni á skíð- um, þar sem mikill snjór er á jakanum. Arlis er nú 70 til 80 mílur norð ur af Horni og rekur með 7 til 8 sjómílna hraða til suðurs. Erfitt er að finnna rannsóknarstöðina á ísbreiðunni oig urðu flugmenn- irnir að miða út sendistöð vís- indamannanna. Gekk ferðin mjög vel og tóku Bretarnir mikið af kvikmyndum við hin ákjósan- legustu veðurskilyrðL Til Reykjavíkur komu þeir aftur á laugardagskvöld og fóru þeir heim í gærmorgun. New York, 27. apríl AP. • f MORGUN selðust upp á tveim klukkustundum að göngumiðar að hljómleikum píanóleikarans bandaríska Vladimirs Horowitz, sem verða í Carnegie Hall 9. maí nk. Eru nú liðin tólf ár frá því hann hélt síðast opinbera hljómleika. Pétur Eggerz ambassador, full- trúi íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins. brigðisstofnanir á kynnisferðum í Evrópu á vegum ráðsins. Nú eru einnig 4 málmiðnaðarmenn staddir á Ítalíu til að búa sig undir að gerast kennarar í grein- um sínum, og þar í landi eru einnig 2 veitingamenn í sama til- gangi. Er ákveðið að framhald verði á því, að íslendingar fari utan í slíkar námsferðir á vegum Evrópuráðsins. Eins og kunnugt er, er Evrópa nú klofin í tvær markaðsheiluir, Fríverzlunarbandalag E v r ó p u (EFTA) og Efnahagsbandalag Evrópu (EEC). Fulltrúar þeirra beggja koma saman til skrafs og ráðagerða í Evrópuráðinu og ræða vandamálin á sameiginleg- um fundum þar. Til skamms tíma hafa verið 17 lönd í Evrópuráðinu, en í gær bættist 18. ríkið við, eyjan Maita. Evrópuráðinu er skipt í tvær deildir, ráðgjafarþingið og ráð- herranefndina. Ráðgjafaþin; 13 stendur yfir um þessar munuir, og eru fulltrúar íslands þar þeir Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður og Friðjón Skarp- héðinsson fyrrum ráðherra. —• Þriðji fulltrúinn er Hermann Jónásson, sem ekki gat komið því við að sækja þingið nú. Ég tel ekki líkur á því, að rík- in í Austur-Evrópu gerist aðúar að Evrópuráðinu í bráð. Hins vegar hafa nokkur þeirra átt samstarf við ráðið um ýmis konar mál, einkum menningar- mál. □ • . LJ □------j---------------------□ SVEITAKEPPNI þeirri, er enska bridgesveitin tók þátt í, lauls sl laugardagskvöld. Sveit Benediists Jóhannssonar bar sigur úr býtum eftir harða keppni við ensku sveitina og sveit Steinþórs Ás- geirssonar. Röð efstu sveitanna varð þessi: 1. sv. Benedikts Jóhannss. 39 st. 2. sv. G. Lengyel 38 st. 3. sv. Steinþórs ÁsgeirsS. 37 st. Auk Benedikts eru í sigur- sveitinni: Jóhann Jónsson, Jó- hann Jóhannsson, Jón Arason og Sigurður Helgason, Heimsókn ensku bridgespilar- anna er þar með lokið. Heimsókn þessi var mjög vel heppnuð. Fjöldi áhorfenda fylgdist með keppnunum og íslenzku spilar- arnir stóðu sig mjög vel. Verður að telja, að þeir hafi sýnt, a3 íþeir eru þess verðugir að taka þátt í Evrópukeppninni, en því miður hefur Bridgesamband ís- lands ákveðið að senda ekki keppendur á næsta Evrópumót, sem fram fer í Belgíu. Þótt ensku spilararnir hafi ekki unnið marga sigra var mjög á- nægjulegt að fylgjast með þeim bæði hvað snertir sagnir og úr- spil. Er vonandi að heimsóknir eins og þessi verði framvegis ár- legur viðburður-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.