Morgunblaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 1
S-Vieloam :
Miklir bardagar um helgina
Framsokn Viet Cong hrundið
en mannfall mikið í liði beggja
Saigon, 31. maí, NTB, AP.
. MIKL.IR bardagar hafa geisað
I norðurhéruðum S-Vietnam um
helgina, einkum þó við bæinn
Quang Ngai, sem er um 530 km,
norðaustan við höfuðborgina.
! Veittí stjórnarhernum ver fram-
■ n af, eða allt til þess er handa-
rískar orustuvélar komu á vett-
vang í morgun og létu til skarar
fikríða. Urðu þá skjót umskipti og
*r siðast fréttist voru tvær til
þrjár herdeildir norðan manna á
undanhaldi norður á bóginn.
Cunnanmenn segja yfir 300 fallna
■f andstæðingunum en segjast
Rjálfir hafa misst a.m.k. 400
menn. Sunnanmenn segja að þeir
hafi þarna ekki átt í höggi við
skæruliða Viet Cong eina heldur
hermenn úr liði N-Vietna,m og
segjast hafa fyrir því órækar
sannanir, er sendar hafi verið suð
ur til Saigon til frekari rannsókn
ar. Þá staðfestu sunnanmenn einn
ig fyrri fréttir um að hermenn
frá N-Vietnam hefðu áður verið
teknir höndum í bardögum á
svæðinu milli flugstöðvarinnar í
Da Nang og borgarinnar Hué.
Bandariskar orustuvélar flugu
inn yfir N-Vietnam í dag og í
gær og gerðu mikinn usla. í gær
fóru þær norðar en nokkru sinni I
tfyrr, eða allt að 72 km. sunnan
Hanoi og réðust þar á vopnabúr
eitt, en í dag var rá'ðist á annað
vopnabúr nokkru sunnar og
vestar og á brú eina 112 km.
sunnan Hanoi, sem varð ekki
eyðilögð. Vélarnar sem réðust
á vopnabúrið í morgun sögðust
hafa séð til ferða fjögurra flug-
véla N-Vietnammanná af MIG-
gerð og hefðu þær snúið norður
hi'ð bráðasta og ekki lagt till
orustu. Bandarísku flugvélarnar
voru 24 talsins.
Fréttastofa Nýja Kina segir
eina bandardska orustuvél af gerð
inni F-105-d. hafa verið skotna
niður yfir N-Vietnam í morgun.
Dean Rusk, utanrikismálaráð-
herra Bandaríkjanna, ítrekaði í
Framhald á bls. 27
1
Hvar er IVffao ?
Þráláttir orðrómur
um að
Peking, 31. maL
— AP-NTB —
t UM helgina hefur verið
uppi þrálátur orðrómur
um, að Mao-Tse-tung, leið-
togi kínverskra kommún-
ista, sé veikur og það jafn-
vel alvarlega. í gær neitaði
talsmaður kínverska utan-
ríkisráðuneytisins að svara
nokkrum spurningum þar
að lútandi, á þeirri for-
sendu að þá væri sunnu-
dagur — en í dag var sagt
í ráðuneytinu, að orðrómur
inn ætti ekki við nein rök
að styðjast. Mao væri við
ágæta heil.su. Ekki fékkst
þó upplýst, hvar hann
héldi sig, en hann hefur
ekki sézt opinberlega frá
hann sé
því um miðjan apríl.
Það var sl. laugardag, að
brezka utanríkisráðuneytinu
bárust óstaðfestar fregnir frá
sendiráðsritaranum brezka i
veikur
Peking og sendiherra Bret-
lands í Moskvu, um að Mao
Tse-tung væri veikur, hefði
e.t.v. fengið slag. Flaug þá
þegar fiskisagan, því að áður
höfðu borizt slíkar tilgátur frá
Hong Kong, Formósu og víð-
ar. í Peking þafa sendimenn
ýmjssa þjóða staðfest, að Mao
hafi ekki sézt opinberlega frá
því um miðjan apríl sl. en
enginn þeirra kvaðst vita til
þess, að heilsu hans væri svo
ábótavant.
Lítið hefur verið um Mao
talað í kínverskum blöðum að
undanförnu, og nær ekkert
frá því 20. maí sl., er hann
var sagður hafa sent komm-
únistaflokki Indónesíu heilla-
skeyti vegna tíu ára afmælis
hans, fyrr en í gær, að Mao
og aðrir ráðamenn voru sagð-
ir hafa sent kyeðjur til Mon-
góla í tilefni þess, að fimmtán
Framhald á hls. 27
Emil Jónsson, sjávarútvegsmála
ráðherra, er nú sem kunnugt er
í opinberri heimsókn í Sovétríkj
unum. Mynd þessa tók ljósmynd-
ari frá fréttastofu Tass, er Emil
gekk á fund kollega síns, A.A.
Ishkov, í Moskvu fyrir nokkrum
dögum.
FRAKKAR EKKI
MEÐ í FALLEX
Paris, 31. mai (NTB-AP)
VARNARMÁLARÁÐHERRAR
Atlantshafsbandalagsríkjanna
komu saman til fundar í Paris
í da,g og snerust viðræður þeirra
einkum um það, hversu mæta
skyldi hugsanlegri árás á V-
Evrópu, hvort gripa ætti til kjarn
orkuvopna þegar í stað eða beita
öðrum vopnum í fyrstu lotu.
Frakkar eru ákafir talsmenn
kjarnorkuvopna-gagnárásar en
Bandaríkin vilja fara hægar í
sakimar og eru flest aðildarrík-
in heldur á þeirra bandi.
Fyrir fundinn var frá því
skýrt að Frakkar hygðust sitja
hjá við mikilvægustu heræfing-
ar bandalagsins í ár„ „Fallex“-
æfinguna, vegna þess að heræf-
ingar þessar byggðu ekki á sömu
forsendum og áður um allsherjar
kjarnorkuárás til andsvara hverri
þeirri árás sem gerð kynni að
vera á V-Evrópuríki. Pierre Mes-
mer, varnarmálaráðherra Frakka
skýrði ekki nánar þá ákvörðun
stjórnar sinnar að taka ekki þátt
i heræfingunum, en talsmaður
tfrönsku stjórnarinnar lét þess
getið, að sk^anir Bandaríkja-
manna og Frakka væru mjög ó-
líkar á því, hversu myndi bezt
að snúast við hugsarvlegri árás.
Alexandre Sanguinetti, vara-
formaður hermálanefndar
franska þingsins, var opinskár við
blaðamenn um ágreining Frakka
og Bandaríkjamanna í málinu.
Sagði Sanguinetti að varnarmála
ráðherra Bandaríkjanna, Robert
McNamara, væri þeirrar skoðun-
ar, að ef til styrjaldar kæmi í
Evrópu myndi þess skammt að
bíða að hún breiddist út. Það
væri því skiljanlegt að Banda-
ríkjastjórn væri á báðum áttum
um að nota allan sinn kjarnorku
vopnaforða til varnar Evrópu ef
hún ætti þá á hættu að New
York yrði lögð í eyði, sagði
Framhald á bls. 27
K y nþáttaóeirðir
í IJSA
Bogalusa, Lousiana, 31. maí.
— NTB, AP —
TIL kynþáttaóeirða kom á laug-
erdag í Bogalusa, Lousiana og í
Selma, Alabama, er blökkumenn
mótmæltu misrétti á vinnumark-
eðnum. 1 Bogalusa beitti lögregl-
«n táragasi til að dreifa mann-
tfjöldanum og tók höndum sjö
hvíta menn og tíu blökkumenn.
í Selma í Alabama voru teknir
fcöndum alls 99, mjög margir
kornungir.
í dag voru aftur teknir hönd-
«m 15 menn í Bogalusa, bæði
hvitir, og blakkir, fyrir óspektir
é almannafæri Höfðu blökku-
menn farið um götur eins og á
laugardag með spjöld sín og orð-
ið fyrir aðkasti hvítra manna, en
lögreglan skarst í leikinn.
Peter Hallberg:
Kenningar dr. Lönnroths um áhrif
evrópskra miðaldabókmennta á ísl.
fornbókmenntir ekki á rökum reistar
ÉG tel, að kenningar dr.
Lars Lönnroths um áhrif
evrópskra miðaldabókmennta
á íslenzkar fornbókmenntir
séu ekki á rökum reistar,
sagði Peter Hallberg í við-
tali við Morgunblaðið í gær.
Þau dæmi, sem dr. Lönnroth
benti á máli sínu til stuðn-
ings, mætti vel skýra á ann-
an og nærtækari hátt.
Eins og kunnugt er, varði
Svíinn Lars Lonnroth doktors
ritgerð við háskólann í.Stokk
hólmi, fyrir skömmu, sem
fjallaði um íslenzkar fornbóik
menntir. Voru þar settar fram
skoðanir, sem mjög stangast
á við álit fræðirilanna al-
mennt til þessa. í ritgerð
sinni sem nefnist „European
Sources oí Icelandic Saga
writing“ þeirri skoðun fram,
að í íslenzkum fornbókmennt
un væri að finna miiklu djúp-
tækari áhrif, en hingað til hef
ur verið talið frá evrýpskum
miðaldabókmenntun og þá
einkum latneskum, en latína
var þá ritmál víðast hvar í
Evrópu.
Þá hélt dr. Lönnrotih því
enn fremur fram, að ýmsir
þeir, sem til þessa hefðu verið
taldir höfundar hinna ís-
lenzku fornbókmennta svo
sem Snorri Sturluson og
Sturla Þórðarson, væru ekki
hinir raunverulegu höfundar
þeirra, heldur hefðu þeir látið
aðra skrifa þessar bækur fyr
ir sig og einungis sagt þeim
fyrir um, hvað það væri, sem
þeir vildu, að fært yrði í let-
ur þ.e.a.s. þeir hefði verið
eins konar ritstjórar við samn
ingu ritanna, en ekki skrífað
sjálfir. Þeir, sem væru hinir
Dr. Lars Lönnroth
raunverulegu höfundar forn-
bókmennta íslendinga hefðu
ur þ.e.a.s. þeir hefðu verið
klausturmunkar eða prestar,
því að það væru þeir, sem
fært hefðu þær í letur.
Framh. á bls. 27.