Morgunblaðið - 01.06.1965, Page 19
Þriðjudagur 1. júní 1985
MORGU N BLAÐIÐ
19
Fimmtugur:
Magnus Þórarinsson
ffrá Hjaltabakka
FIMMTUGUR er í dag Magnús
Þórarinsson frá Hjaltabakka, til
heimilis að Leifsgotu 25 í
Reykjavík.
Varla mun finnast sá Reykvík
ingur, kominn til vits og ára,
að hann þekki ekki fyrir-
greiðslu Magnúsar í Nýju fast-
eignasölunni, öryggi og árvekni
í starfi, en fyrirtækið hefur
hann rekið hátt á annan áratug.
Hitt munu færri vita, að Magn
ús er ekki fyrr kominn heim,
að loknum skyldustörfum, en
hann þrífur litaspjaldið og pens-
ilinn og glæðir strigann lífi og
litum í málverkum, sem munu
halda nafni hans á lofti, löngu
eftir að fyrnd er í minnum sú
etaðreynd, að listamaðurinn út-
vegaði. samtíðarmönnum sínum
íveruhús til kaups.
Systkinin frá Hjaltabakka áttu
ekki við auðsæld að búa í upp-
vexti, en þau fengu í veganesti
verðmæti, sem gulli eru dýrari,
en það eru ágætar gáfur og ráð-
vendni, svo að hvergi skeikar.
Hvorttveggja hefur reynzt Magn
úsi farsælt.
Magnús er vinfastur maður,
og sparar hvergi til, þegar hann
vill gleðja þá, sem harin hefur
bundið tryggðir við, enda er
hann með afbrigðum vinsæll.
Á þessum merku tímamótum
árna ég mannkostamanninum
Magnúsi Þórarinssyni allra
heilla, svo og hinni ágætu eigin-
konu hans Vilborgu Guðbergs-
dóttur, og hinum mörgu mann-
vænlegu börnum þeirra.
Páll S. Pálsson,
Hraunbúar undírbúa
f’ölsótt skátamót
SKÁTAFÉLAGH) Hraunbúar i
Hafnarfirði heldur um hvíta-
sunnuna árlegt vormót sitt í
Krýsuvík, að þessu sinni verður
um merkis atburð að ræða, þar
eða þetta verður 25. vormót fé-
lagsins, auk þess sem fjörutíu ár
eru liðin frá því að skátastarf
hófst í Hafnarfirði.
Að sjálfsögðu verður því sér-
etaklega tilmótsins vandað. Bú-
izt er við- mikilli þátttöku. Sex
til átta hundruð skátar hafa að
jafnaði sótt síðustu mót. Er nú
ekki seinna vænna fyrir skáta,
sem hyggja á þátttöku, að hafa
samband við foringja sína. Öllum
skátafélögum landsins er heimil
þátttaka.
Mótsgjald er krónur 200,00.
Fyrir það fá þátttakendur móts-
merkið, mótsblaðið, mjólk og
fleira, en hvorki matur né ferðir
á mótið er þar innifalið.
Vormótið verður með líku
sniði og verið hefur. Dagurinn
verður notaður til leikja og
starfa. Og á kvöldin á allur hóp-
urinn skemmtilega stund við
varðeld undir rótum Arnarfells.
Guðþjónusta verður á sunnudags
morgun og verður mótssvæðið
Opið gestum þann dag. Þá gefst
foreldrum og velunnurum skáta-
starfs kostur á að sjá.þátt úti-
lífsins í skátastarfinu.
Á mótinu verða fjölskyldubúð-
ir, en slíkar búðir hafa notið sí-
vaxandi vinsælda á undanförn-
um skátamótum.
Skátar annast sjálfir löggæzlu
með aðstoð lögreglunnar í Hafn-
arfirði, en auk þess verður á
mótinu sjúkravarzla og aðrar
þær stofnanir, sem nauðsynlegar
eru.
Nýmæli er það, sem Hraunbú-
ar bjóða nú upp á, að á mótinu
verður barnagæzla fyrir fjöl-
skyldubúðirnar, 5 tíma dag
hvern, meðan mótið stendur.
Mótið verður sett klukkan
21.30 á föstudag. Mótsslit verða
klukkan 14 á mánudag, annan í
hvítasunnu.
Eins og áður er sagt verður
mótið opið gestum á hvítasurmu-
dag frá klukkan 14 og þar til
varðeldi er lokið um kvöldið.
— Dagsbrún
Frh. af bls. 27
Eðvarð gerði lítið úr þeim breyt-
ingum, sem Alþingi samþykkti
í skattamálunum á dögunum, þar
sem hann var þeirrar skoðunar,
að hækkun tekna á síðasta ári
hefði verið það mikil almennt,
að breytingamar kæmu ekki að
haldi. Þá kvað hann húsnæðis-
málin hafa verið rædd við ríkis-
stjórnina, en ræddi þau annars
ekki ítarlega.
Sigurjón Bjamason ræddi ítar-
lega um skattamálin og kaup-
mátt launa. Taldi hann kaupmátt
verkamannalauna hafa mirmkað
þrátt fyrir hækkun á krónutölu
kaups á undanförnum árum. Því
bæri að leggja mikla áherzlu á
ellar aðrar kjarabætur en beina
kauphækkun. sem dæmi um það
nefndi Sigurjón úrbætur í hús-
mæðismálum. Jafnframt sýndi
hann fram á, hversu misjöfn af-
koma manna væri eftir því,
hvort þeir byggju t. d. í eldri
verkamannabústöðum eða væri
tiltölulega nýbúnir að byggja,
þar sem afborganir hinna fyrr-
nefndu af húsum sínum væri
hverfandi í samanburði við þá
eíðarnefndu. í þeim kjarasamn-
ingum, sem nú standa fyrir dyr-
um, sagði Sigurjón að fara ætti
þó leið að hækka laun hinna
lægst launuðu án þess að allar
stéttir þjóðfélagsins kæmu á eftir
og kauphækkunin rynni þannig
út í sandinn.
í lok fundarins voru þessar til-
lögur samþykktar einróma:
„Fundur í Verkamannafélaginu
Dagsbrún, haldinn 30. maí 1065,
samþykktir heilild til handa trún
aðarmannaráði til að boða at-
vinnurekendum vinnustöðvum
þegar það teldi verkfallsboðun
nauðsynlega í kjaradeilu þeirri
er nú stendur yfir“.
„Funöur í Verkamannafélaginu
Dagsbrún, haldinn 30. maí 1965,
telur að með verulegri lækkun
skatta á launafólki hefði nú ver-
ið hægt að greiða götuna fyrir
nýjum samningum við verka-
lýðsfélögin, en í stað þass að
fara þá leið hefúr Alþingi af-
greitt ný skatta- og útsvarslög,
að tillögum ríkisstjórnarinnar,
þar sem meginþungi skattbyrð-
anna er enn lagður á herðar
launþega. Þessi afgreiðsla á
skattamálum nú er því ranglát-
ari þar sem löggjafarvaldið hef-
ur á undanförnum árum lækkað
verulega opinber gjöld af rekstri
fyrirtækja og gróðafélaga og er
því sífellt stærri og stærri hluti
heildarskattteknanna sóttur í
vasa launafólksins.
Þessa stefnu í skattmálum tel-
ur fundurinn rangláta og mót-
mælir henni harðlega.“
■ Fé frá Itölskum
Framh. af bls. 15
kenndi þar síðar. Þau hjónin
eru bæði báttsett hjá ítalska.
kommúnistaflokknum. Hún
er einkaritari Matteo Secdhia,
yfirmaims „utanríkisdeildar-
innar“, sem sagt er a’ð sjái um
leynisjóði, er flokkurinn fær
fiá Sovétríkjunum.
Hér er því allt, sem til þarf
í spennandi James Bond reyf
ara. En niðurstöðurnar, sem
dregnar verða, eru ekki fall-
egar. ítalski kommúnistaflokk
urinn, eins og margir aðrir
kommúnistaflokkar (raunar
sá íslenzki einnig) segist
vinna að friðsamlegri sambúð
og- lögbundnum stjórnarhátt-
um. Á bak við tjöldin veitir
flokkurinn ógnarstarfsemi og
skæruliðahernaði fjárhags-
legan stúðning í landi, þar
sem stefnt er markvisst að
sönnu lýðræði. Sannað hefur
verið að „stríðsmenn frelsis-
ins“ lúta beinni stjórn komm-
únista. Bf til vill er eini ljósi
punktur þess máls sá að 330
þúsund dollararnir, sem gerð
ir voru upptækir, verða nú
'notaðir til styrktar þeim, sem
ofðið hafa fyrir ofbeldisað-
gerðum FALN í Venezuela.
— Gróðrarveður
Framh. af bls. 15
ekki að fara til Mallorca, Gróð-
ur hefur tekið við sér síðustu
tvo dagana, en annars er æði
grátt í fjöllunum og tré ekkert
farin að lifna. — Ásgeir.
★
REYÐARFIRÐI. — Hér er ákaf-
lega hlýtt og hefur verið síðan
fyrir helgi. Þó er þetta bezti dag
urinn, 18:—20 stiga hiti og SV-
gola. Eftir svo hlýja daga sér
strax mun á jörð, en kúldinn var
svo mikill fram að því. Vegir eru
færir orðnir, um Fagradag, til
Eskifjarðar og til Norðfjarðar.
í— Arnþór.
Málflutningsskrifstofa
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11. --Sími 19406.
Benedikt Blöndal
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 3. - Sími 10223.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.
Vöruflutningabifreið
Volvo vöruflutningabifreið með vökvakrana árgerð
1960 til sölu. Bifreiðin er til sýnis við vöruafgreiðslu
vora að Hverfsgötu 54.
Eggert Kristjánsson & Co hf.
Forðist óeðlilegt hjólbarðaslit.
Látið hjólsjána leysa vandann.
— Pantið tíma —
SVEIIMIM EGILSSON H F.
Laugavegi 105. — Sími 22468.