Morgunblaðið - 01.06.1965, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 1. juní 1965
Valur vann ÍBA
4:2 í góðum leik
Glæsileg mörk og af og til
góður samleikur
Sigur Vals 4-2 er hér innsiglaður. Steingrímur Dagbjartsson (i dökkri pt^su t.v.) skorar 4.
mark Vals og Samúel markvörður ekki að gert. (Ljósm. Mibl. Sv. Þ.)
Markháir leikir í
FH vann Breiðablik 8:0
og KS vann Reyni 3:0
VALTTR ©g Akureyringar áttu
skemmtilegan og á köflum ágæt-
an leik í 1. deildarkeppninni á
Laugardalsvellinum á sunnudag-
Inn. Þar mátti sjá tvö gullfalleg
mörk og á köflum einnig falleg-
an samleik. Valur vann með 4-2.
Sú markatala gefur þó ekki rétta
mynd af gangi leiksins, því lang
tímum saman voru Akureyringar
betri aðilinn í leiknum, fljótari
til, ákveðnari og sýndu oft ná-
kvæman og skemmtilegan leik
og skemmtileg skot. En Vals-
menn höfðu heppnina með sér
i byrjun, skoruðu 2 mörk á 10
mín. Og í leikslok voru þeir
ákveðnari og betri, en þá var
eins og úthald Akureyringa væri
þrotið.
• MISMONUR MARKVARÐA
Það sem kannski réði um úr-
6lit leiksins var mismunur á
markvörðum. í marki Vals stóð
Sigurður Dagsson (unglingalands
liðsmaður í handknattleik) stór
og stæðilegur og sýndi afburða
góS grip. Reyndi mjög á hann
á því sviði en vegna leikaðferðar
norðanmanna þurfti hann lítt
eða ekki að grípa til eða sýna
aðra hæfileika. 1 marki Akur-
eyringa var Samúel Jóhannsson
og virtist óöruggur og hræddur.
• TVÖ MÖRK Á 10 MIN.
Samúel verður þó ekki sak-
aður um mörkin tvö sem Vals-
menn fengu á fyrstu 10 mín. Þau
orsökuðust fyrir klaufalegan
varnarleik og voru þannig Vals-
mönnum ódýr. Hið fyrra kom á
6. mín. Óbein aukaspyrna var
dæmd á Akureyri rétt innan víta
teigs. Ingvar gaf til Bergsveins
sem skoraði efst í hægra hom.
Á 10. mín. skoraði Bergsveinn
aftur. Sóttu Valmenn upp hægri
kant og fyrir klaufalega vörn
komst Bergsveinn í dauðafæri og
notaði vel.
• AKUREVRINGAR JAFNA
En smátt og smátt náðu Akur
eyringar undirtökunum í barátt-
imni og náðu oft fallega upp-
byggðum sóknarlotum, sem tóku
að ógna marki Vals ískyggilega.
Á 28. mín kom svo fyrra mark
Akureyringa eftir fallegt upp-
hlaup á hægri kanti og þaðan
góða fyrir sendingu til Skúla Ág.
sem skoraði laglega.
Sjö mín. síðar jafna Akureyr-
ingar leikinn með glæsilegu
marki. Var send há sending fram
vallarmiðju og tók Steingrímúr
við og sendi knöttinn fyrir fætur
Skúla með kollspyrnu. Skúli af-
greiddi viðstöðulaust með glæsi-
legu skoti.
Stóð nú 2-2 og baráttan varð
tvísýn. Akureyringar voru mun
sterkari aðilinn allt til hálfleiks,
þó ekki tækist að skora, og einn-
ig framan af síðari hálfleik. Skall
hurð nærri hælum er Þorsteinn
bakvörður Vals bjargaði skoti
Skúla með skalla á marklínu.
Vörn Vals opnaðist mjög vinstra
megin og brutust Akureyringar
þar í gegn æ ofan í æ. Komust
þeir oft nærri og m.a. átti Skúli
hörkuskot rétt utan'við stöng —
en mest munaði um góða mark-
vörzlu Sigurðar.
• LOKASPRETTUR VALS
En rétt fyrir miðjan siðari hálf
leik snerist leikurinn skyndilega.
Valsmenn ná góðu upphlaupi
vinstra megin og gefið er alveg
yfir til Reynis á vinstri kanti.
Hann lék fallega á bakvörðinn
og skoraði stórfallegt mark.
Við þetta óx Valsmönnum ás-
megin og 5 mín. síðar leikur
Ingvar upp hægri kant, sendir
fyrir markið og Steingrímur Dag
bjartsson skorar auðveldlega, 4-2.
Við þetta dró allan mátt úr
Akureyringum. Nákvæmnin og
dugnaðurinn sem þeir höfðu
sýnt var horfinn og það var
klaufaskap Ingvars að kenna að
leikurinn endaði ekki 5-2 fyrir
Val er hann misnotaði gullvægt
tækifæri sem Reynir skapaði.
• LIDIN
Lið Vais var einkennilega mis-
lynt í þessum leik — stundum
eins og í fýlu, stundum í góðu
skapi. Markvarzlan var góð sem
fyrr segir, en vörnin oft slök,
einkum vinstra megin. Framlín-
an var mjög misjöfn, Reynif lang
beztur og beittasti maður liðsins
og ungu piltarnir Bergsveinn og
Steingrímur vel með, þó enn sýni
þeir ekki það skap og þá ákveðni
sem hefur unga menn upp úr
meðalmennskunni.
Akureyringar komu á óvart
með ákveðni og oft laglegum og
allnákvæmum leik. Báru þar af
Skúli, Valsteinri og Sævar. En
þó skorti mikið á að liðið sé af-
gerandi í upphlaupum sínum.
Jón er klettur í vörninni en
skortir betri hjálparmenn. Fram
verðirnir vinna vel en eru oft
heldur framarlega — einkum
með tilliti til heldur slakrar varn
ar.
Dómari var Maignús V. Péturs-
son og dæmdi mjög vel.
— A.St.
KltIlllllllllllllllVI1111111111011IIIIIVI||||||I|
| Sjólfsmark í j
jheimsmeistara-Í
keppni
É rVEIR leikir í undanrásum \
É heimsmeistarakeppninnar
| fóru fram um ht'lgi'na.
| í Moskvu léku landslið i
| Rússa og Wales. Rússar unnu ;
i með 2-1. Sigurmarkið var i
i sjálfsmark er annar bakvarða |
i Wales skoraði af slysni.
| í Búkarest léku Rúmenía og §
i rékkóslóvakía. Rúmenar unnu 1
i 1-0. Þar með dofnuðú enn |
j líkurnar fyrir því að Tékkar É
I nái að komast í lokakeppnina, É
é sn í síðustu heimsmeistara- \
\ keppni hlutu þeir silfurverð- É
| launin. Tékkar og Tyrkir hafa |
é báðir ekkert stig hlotið enri í i
14. riðli. Þar hefur Portúgal |
É forystu með 6 stigum en Rúm |
| enar hafa 4.
•MIIIMIMIIM*ll>llltMIIIII*lllllllllllllllll*ll*l*l*l***lllllllll*
Á LAUGARDAGINN hófst
keppnin í annarri deild
með leik milli F.H. og Breiða-
bliks. Fyrir fram var talið að
þessi lið væru nokkuð jöfn, en
þettá fór á dálítið annan veg þeg-
ar í leikinn var komið. F.H.-ing-
ar tóku leikinn strax í sínar
hendur og í hólfleik var staðan
4:0 fyrir F.H. 1 seinni hálfleik
var einstefnuakstrinum haldið
áfram og bættu F.H.-ingar þá
öðrum 4 mörkum við, en þau
hefðu getað orðið fleiri. Minnsta
kosti einn bolti var inni, en dóm-
ari og línuverðir sáu það ekki
og Kópavogsmönnum tókst að
hreinsa knöttinn úr markinu.
Á sunnudag léku svo í Sand-
gerði Reynir og K.S. frá Siglu-
M0LAR
BORUSSIA Dommund sigraði í
þýzku bikarkeppninni. í úrslitum
sigraði liðið Alemannia frá Aach-
en með 2—0.
Fram vann
Akranes
FJÓRÐI leikur í keppni 1. delld-
ar fór fram á Akranesi í gær-
kvöldi. Fram sigraði Akurnes-
inga með 3 mörkum gegn 2. —
Leikurinn var fjörugur, en nokk-
uð harður undir lokin.
STJÓRN samtaka enskra deild-
arliða á laugardaginn að í fram-
tíðinnj skyldi það heimilt að
setja einn varamann inná í leik
deildarliða — og jafnframt að
varamaðurinn mætti koma inn á
í stað slasaðs manns hvenær sem
er í leiknum. Samþykkt þessi
var gerð með 3® atkv. gegn 10.
Árum saman hefur samskonar
friði. Leikurinn hófst kl. 12 á há-
degi, og mun hafa gert hátíða-
höld í sambandi við sjómanna-
daginn að þessi tími sólarhrings-
ins var notaður. Siglfirðingar
unnu þennan leik með 3:0, en
þess' skal getið að þetta er í
fyrsta skipti á þessu ári sem þeir
koma allir saman og er því
þeirra fyrsta samæfing. Sigur
þeirra gat orðið stærri, en stór-
skyttur þeirra Siglfirðinga voru
ekki alveg „dús“ við knöttinn og
flaug hann oft á tíðum heldur
hátt.
Þriðji leikurinn í annarri deild
sem fram átti að fara um helg-
ina féll niður vegna þoku í Vest-
mannaeyjum. Fréttamaður blaðs
ins hafði samband við lögreglu-
stöðina á sunnudagskvöld kl. 6,45
og fék-k hann þær upplýsingar að
þoka hefði tafið allt flug til Eyja
í tvo daga. ísfirðingar áttu að
leika við heimamenn, en það
ver§ur að bíða betri tíma.
KR 09 Keflavík
mætast í kvöld
1 KVÖLD er næsti leikur í 1.
deild. Fer hann fram í Njarð-
víkum og milli Keflvíkinga og
KR. Margir telja þetta vera ann-
an af tveim úrslitaleikjum móts-
ins, þó varlegt sé þar um að spá,
því KR t.d. hefur enn engan leik
leikið í Islandsmótinu.
En víst má telja, að þarna
verði hörð barátta og vonandi
góð. Ferðir verða frá RSÍ kl. 7
i kvöld.
tillaiga legið fyrir hjá samtökun-
um en ætíð verið felid.
í samþykktinni, sem nú verður
að hljóta staðfestingu enska
knattspyrnusambandsins, er kveð
ið svo á að dómurinn eigi að
ákveða hvort og hvenær meiðsli
eru það alvarleg að skipta megi
um leikmann.
2. deild
E0P mótið 1. júní
E. Ó. P. - mótið 1965 verður hald
ið á Melavellinum þriðjudaginn
1. júní nk. kl. 20.00. — Keppt
verður í eftirtöldum íþróttagrein
um:
100 m hlaup kvenna, 100 m
hlaup drengja, 110 m grindahL
karla, 200 m hlaup karla, 800 m
hlaup karla, 1500 m hlaup karla,
kúluvarpi, sleggjukasti, stangar
stökki, langstökki og 1000 m boð
hlaupi.
Þátttökutilkynningar sendist
vallarverði 1 síðasta lagi sunnu-
daginn 30. maí nk.
Frjálsíþróttadeild K.R.
Tvö
heimsmet
sett
TVÖ heimsmet í frjálsum
íþróttum voru sett á móti í
Modesto í Kaliforníu á sunnu
daginn. Hinn gamli garpur í
sleggjukasti, Harold Conolly,
sem var Olympíumeistari
1956, bætti sitt fyrra heims-
met úr 70.66 í 71.07 metra.
Langstökkvarinn Ralph
Boston, sá er var Olympíu-
meistari 1960, bætti sitt heims
met í langstökki um 2 senti-
metra, stökk 8.36 m.
Önnur úrslit urðu þau m.a.
»ð Tékkinn Ludwig Danek
sigraði í kringlukasti með
62.56 á undan Silvester með
61.28.
Harry Jerome vann 100
yarda hlaup á 9.4 og Nel
Pender hafði sama tíma.
Ástralíumaðurinn Ron Clarke
náði bezta tíma ársins í 2
mílna hlaupi é 8.32.0
VaramaSur fái aS
koma inn í ieik