Morgunblaðið - 04.06.1965, Side 15

Morgunblaðið - 04.06.1965, Side 15
r Föstudagur 4. júní 19(W MORCUNBLAÐID 15 EINS OG frá er skýrt annars staðar hér í blaðinu, hófu Bandaríkjamenn í gær erfið- ustu og lengstu geimferð, sem þeir hafa framkvæmt til þessa. í fyrsta sinn hefur bandarískur geimfari yfirgef- ið geimfar sitt og svifið um út í geimnum með svipuðum hætti og rússneski geimfar- inn Alexej I.eonov hinn 18. marz sl., en helmingi lengri tíma. THraun Bandaríkjamanna skyldi hins vegar ganga enn lengra en tilraun Rússa fyrir tveimur og hálfum mánuði. Aðstoðarflugmaðurinn í bandaríska geimfarinu átti ekki einungis að yfirgefa geimfar sitt, heldur svífa út James McDivitt flugstjóri geimfarsins. að hlnu útbrunna öðru þrepi Titan 2 eldflaugarinnar, sem flutti geimfar hans, sem nefn ist Gemini IV, á sporbraut umhverfis jörðu, og snerta það. X< Það er hins vegar Ijóst af gangi tilraunarinnar, að sá hluti hennar að snerta eld- flaugarþrepið hefur ekki tek- izt. Hins vegar tókst öðrum geimfaranum Edward White að fara klakklaust út úr geim- farinu og var hann síðan í 20 mínútur úti í geimnum áður en hann fór inn í geimfar sitt aftur. Hefur enginn maður verið honum lengur svífandi í túminu. Báðir geimfararnir, James McDavitt flugstjóri geim- skipsins og Edward White, að stoðarfíugstjórinn, sem nú þegar hafa byrjað geimferð sína, þar sem farið verður 62 sinnum í kringum jörðina á 98 klukkustundum, gengu und ir nákvæma læknisskoðun um síðustu helgi og þá var tekin svofelld ákvörðun: Ef ekk- ert óvænt kæmi fyrir skyldi Gémini IV hefja ferð síha út í geiminn kl. 2 e.h. (ísl. tími) næsta fimmtudag hinn-3. júní. Bandaríska geimferðastofn- unin (NASA) hafði skýrt frá eftirfarandi áætlun geimferð- arinnar: Sex mínútum eftir Edward White, aðstoðarflug- maður í geimfarinu og sá þeirra félaga, sem var 20 mín. fyrir utan geimfarið út í geimnum, geimskotið, þegar geimfarið hefur losað sig við 2. þrep eld- flaugarinnar, sem bar það á loft, mun flugstjóri geimfars- ins, McDivitt, stýra geimfar- inu í um 90 m fjarlægð frá hinum útbrunna þrepi. í ann arri hringferðinni umhverfis jörðu mun McDivitt, er geim- farið er yfir Hawaii, stýra því í um 7,5 metra fjarlægð frá eldflaugarþrepinu. Yfir Mexico á hinn geimfar inn, Edward White að opna hurð geimfarsins og yfirgefa það bundinn línu um 7,6 m langri. Með þrýstiloftsbyssu, sem hann stýrir með hendinni á hann að hreyfa sig hægt að eldflaugarþrepinu. Á meðan White er fyrir utan geimfar- ið, mun hann taka ljósmyndir af jörðinni, stjörnunum, geim farinu og eldflaugarþrepinu. Einnig á McDivitt að taka myndir af White, þar sem hann svífur fyrir utan geim- farið. Tíu mínú.tum síðar, þeg ar þeir félagar eru yfir Flor- ida, mun White fara aftur inn í geimfarið. Að svo búnu mun McDivitt, með því að setja af stað hreyfla geimfarsins, stýra því í um 25 km fjarlægð frá eld flaugarþrepinu og síðar eða um þremur klukkustundum seinna, á meðan geimfarið er í fimmtu hringferð sinni um- hverfis jörðu, stýra því aftur í um það bil þriggja metra fjarlægð frá eldflaugarþrep inu. Efíir þetta mun Gemini IV halda áfram hinni fjögurra sólarhringa geimferð sinni einn. _ * Eins og sjá má voru þetta hinar upphaflegu áætlanir bandarískra vísindamanna, en þær röskuðust nokkuð eft ir að ferðin var hafin, eins og sagt er frá í forsíðufrétt blaðs ins. Ráðgert er, að geimfarið lendi á Atlantshafinu um 640 km fyrir sunnan Bermuda. Hefur þegar verið sendur þang að fjöldi skipa, sem munu dreifa sér um þetta hafsvæði í því skyni að leita uppi geim farana, þar sem þeir munu þá vera á reki í geimfarinu, og taka þá um borð. Nafn sitt, Gemini IV, dregur geimfarið af hinu enska heiti stjörnumerkis tvíburanna, en ástæðan til þess er að geim- fafið er tveggja manna far. Geimferð þessi fer fram úr fyrri áætlun Bandaríkja- manna, en þar var áætlað, að fyrsta ferð Bandaríkjamanns, þar sem hann hreyfði sig út í geimnum, yrði ekloi fram- kvæmd fyrr en síðar á þessu ári og þá með Gemini V. Ef þessi geimferð, tækist, eru hann útskrifaðist sem B. S. (Bachelor of Science) áríð 1959. McDivitt er kvæntur og á þrjú börn. X- Edward White er 35 ára gamall og útskrifaðist frá West Point herskólanum í New York 1952. Hann gekk í flugherinn og starfaði síðan í þrjú ár í Vestur-Þýzkalandi í Geímfarinn Edward White (yzt t.v.) fer út úr samskonar tæki og Gemini IV á æfingu á Mexico-flóa við æfingu til undirbúnings geimferðinni. Á floti í sjónum rétt hjá eru McDivitt og tveir froskmenn úr bandaríska sjóhernum. 'i I þeir, sem þekkingu hafa á geimferðum, yfirleitt sam- mála um eitt: Bandaríkin munu þá hafa komizt fram úr Sovétríkjunum í þessum þætti geimferðanna. X- James A. McDavitt er 36 ára að aldri. Hann var valinn í hóp geimferðaflugmanna í september 1962 og hafði þá að baki sér langan feril sem flug maður í flugher Bandaríkj- anna, en í flugherinn gekk hann 1951. Menntun sína i flugverkfræði hlaut hann við Michigan háskóla, en þar hlaut hann hæstu einkun, er þotuflugdeild. Hann nam síð- an við Michigan háskóla, þar sem hann lauk B. S. prófi í flugvélatækni 1952. Edward White er kvæntur og á tvö börn. Báðir eru þeir McDavitt og White majorar í bandaríska flughernum. i Á þessari mynd sést, hvernig | ráðgert var, að geimfarið, I neðra tækið á myndinni, og 2. | þrep eldflaugarinnar, efra tæk | ið, ferðuðust á hringferð sinni | umhverfis jörðu, unz geimfar- | ið hefði, eins og sést síðast á [ myndinni, reynt að komast [ eins nærri eldflaugarþrepinu [ og unnt væri. Eins og þegar | hefur verið greint frá, tókst j þessi þáttur tilraunarinnar I ekki fullkomlega. ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.