Morgunblaðið - 11.06.1965, Side 12
12
MORGUNBLAÐID
Föstudagur 11. maí 1965
Magnús Þorláksson
Símamaður — IVIinning
Fæddur 7. nóv. 1895
Dáinn 4. júní 1965
VIÐ, sem svo að segja höfðumdag
lega umgengni við Magnús Þor-
láksson, vissum, að um mörg ár
hafði hann verið í varnarstöðu
gegn aðsteðjandi sjúkleika, er
aldrei lét af sókn sinni.
Magnúsi var búið að vera það
fullljóst um langt tímaskeið, að
fyrir þessari heljarsókn hlyti
vörn hans að bresta, kannski í
nótt eða á morgun eða---------?
Og nú er svo komið, að Magn-
ús þraut vörnin aðfaranórtt 4.
júní sl.
Af sjónarsviði okkar, sem eft-
ir stöndum og áttum með Magn-
úsi langa samleið, er .horfinn
minnisstæður og mætur félagi, er
með hugró og hetjulund stóð með
•n stætt var.
Magnús var fæddur í Brokey á
Breiðafirði 7. nóv. 1895, elztur
fjögurra systkina. Foreldrar hans
voru Þóranna Ólafsdóttir og Þor-
lákur Magnússon, sæmdarhjón af
traUstu og þrekmiklu bændakyni.
Voru þau hjón gædd ' góðri
greind og afburða líkams-
hreysti. Hvort tveggja erfði
Magnús í ríkum mæli.
Þó að eftirlætis tómstundaiðja
Magnúsar væri bundin ættfræði
og öðrum þjóðlegum fræðum,
sleppi ég mér ekki út á þá braut
að~rekja ætt hans, því að ekki
væri það minningu hans sgm-
boðið, að halla hársrbeidd frá því
sem réttast værL
í bernsku fluttist Magnús með
foreldrum sínum upp í Reykhóla-
sveit, þar sem þau bjuggu um
nokkurra ára skeið á Brandsstöð
um og Hofstöðum. Síðan lá leið-
in á ný út í eyjar. Fyrst í Rauðs-
íbúðir til sölu
/
2 fjögurra herbergja íbúðir í sama húsi í Kópavogi
til sölu.
4ra herbergja íbúð
til sölu, 120 ferm. í Laugarnesi í kjallara,
lítið niðurgrafin.
2ja herbergja íbúð
til sölu á 1. hæð við Hátún.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12 — Sími 21735
Eftir lokun 36329
Sölumaður
Eitt af stærri iðnaðarfyrirtækjum bæjarins óskar
eftir sölumanni. Nauðsynlegt er, að viðkomandi geti
unnið sjáifstætt og geti hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist afgr. Mbl. fyrir 14. þ. m. merkt: —
Sölumaður — 7864“.
NÝ SENDING ENSKAR
Sumarkópur og drugtii
EINNIG HOLLENZKAR
rússkinnskúpur
Kápu- og dömubúðin
Laugavegi 46.
Ódýrt — Ódýrt
Drengjaskyrtur hvítar frá kr. 39,— til kr. 59.—
Drengjaskyrtur flunel frá kr. 75—
Drengjaskyrtur, straufríar frá kr. 99.—
Herraskyrtur flunel frá kr. 125.—
Herrasportskyrtur, straufríar frá kr. 198.—
Leðurlíkisjakkar drengja frá kr. 430.— til kr. 495.—
Teipnaúipur kr. 298.—
Telpnaúlpur, nælon frá kr. 450.—
Stretchbuxur barna frá kr. 325_
Stretchbuxur dömu frá kr. 485—
Dömu vinnubuxur frá kr. 198.—
Drengja terylenebuxur nr. 4—8 kr. 285.—
Drengja terylenebuxur nr. 10—16 kr. 300.—
Nælonsokkar á kr. 20.—
auk margra annarra ódýrra hluta og fatnaðar á
börn og fullorðna.
Notið tækifærið tfl góðra innkaupa
meðan þessi sala stendur.
VERZLUNIN, Njálsgötu 49.
Heklubuxur
Heklupeysur Heklusokkar í SVEITINA
merkid tryggir
vandada vöru á
hagstædu verdi
eyjar, þar sem Magnús kynntist
sjóferðum á straumhörðum og
hættulegum leiðum fjarðarins,
undir stjórn harðduglegra og
djarfra sjófarenda.
Einhver gömul kynfylgja breið
firzkra sjómanna átti rætur í eðli
Magnúsar, því að eftir fárra ára
dvöl í Rauðseyjum, er hann flutt-
ist með foreldrum sínum til Flat-
eyjar, þá á tvítugsaldri, gerðist
hann fiskiveiðasjómaður, fyrst á
opnum bátum, síðan á þilskipum.
Mun hann hafa óskað þess að
leita frama í þeirri atvinnugrein.
En sú von Magnúsar brást. Eftir
nokkurra ára sjómennsku var
hann dæmdur úr leik við Ægi og
aflabrögð vegna ofnæmissjúk-
dóms, er læknar töldu stafa frá
sjóvinnu og seltu.
Þetta urðu Magnúsi mikil von-
brigði, en um leið þau þáttaskil,
sem tengdu hann lífsstarfi, er
entist honum til æviloka.
Árið 1921 fór Magnús að heim-
an til að leita sér lækninga í
Reykjavík, svo og nýrrar at-
vinnu. Sama ár auglýsti bæjar-
síminn 1 Reykjavík eftir karl-
manni til næturþjónustu á mið-
stöð bæjarsímans. Magnús sótti
um stöðuna og hlaut hana.
Það mátti ætla, að skútukarli
vestan af landi væri annað sýnna
en að setjast á símabekk með
hlustunartæki fyrir eyrum og
sinna þörfum allavega fyrirkall-
aðra símanotenda, að næturlagi.
En það fór á ánnan veg. Magn-
ús náði skjótt föstum tökum á
starfi sínu og ávann sér vinsæld-
ir fyrir lipurð og trausta þjón-
ustu.
Ég minnist þess, frá þeim tíma
er ég hóf störf, sem snertu alla
símanotendur í Reykjavík á mis-
munandi þægilegan eða óþægi-
legan hátt, hversu margoft síma-
notendur vitnuðu í Magnús til
góðrar fyrirmyndar, þegar eitt-
hvað þótti skorta á fullkomna
þjónustu hjá okkur eða skjótar
og vafalausar upplýsingar.
Ég öfundaði Magnús ekki af
trausti því sem hann hafði áunn-
ið sér að verðleikum og sætti
mig við rýrari hlut.
Minnisgáfa Magnúsar var frá-
bær. Upplýsingar hafði hann því
ávalt á hraðbergi. Spyrði t.d.
einhver, sem ekki nennti að fletta
upp í símaskrá sinni um síma-
númer eða heimilisföng vissra
símánotenda, stóð ekki á svari.
Magnús þurfti ekki að leita í
símaskránni, hann kunni hana.
Þegar sjálfvirka bæjarsíma-
stöðin í Reykjavík tók til starfa,
fluttist Magnús til næturþjón-
ustu á langlínumiðstöð landssím-
ans og naut þar einnig óskoraðs
trausts samstarfsfólks síns úti á
landsbyggðinni.
Af miklum fjölda símameyja,
er Magnús átti samstarf með, hef
ég enga talað við, sem ekki virti
og dáði hann fyrir drengskap,
lipurð og hjálpfýsi. Hann sjálfur
miðlaði bróðurlegri umhyggju og
hlýhug til þessa vænlega hóps
starfssystra sinna.
Öll störf Magnúsar voru til
sóma fyrir íslenzka símaþjónustu
þau 32 ár, sem hann vann, með-
an aðrir sváfu.
Fyrir 12 árum fór Magnús að
kenna hjartasjúkdóms. Var hann
þá leystur frá næturþjónustunni
og settur til skrifstofustarfa á
verkstæði bæjarsímans.
Þar vann Magnús með sömu
trúmennsku til hinzta dags æv-
innar.
Magnús var hraustmenni á
yngri árum. Hann var rólyndur,
íhugull og skapfastur, vinsæll og
trygglyndur. Greindur var hanu
og bókhneigður. Hagyrðingur
góður, en fór dult með þá gáfu.
Ættfræð i og saga þjóðarinnar
voru eftirlætis viðfangsefni hana
í öllum frístundum.
Magnús kvæntist 1. des. 1956,
eftirlifandi konu sinni, Maríu
Helgadóttur frá Klettstíu í Norð-
urárdal. Áttu þau hjón einkar
snotra íbúð í Meðalholti 2.
María var hollur og ástúðleg-
ur förunautur manns. síns, þau
fáu ár, sem þeim voru gefin í sam
búð. Magnúsi var það lán og ó-
metanlegur styrkur að njóta
umönnunar og fórnarlundar konu
sinnar, þegar heilsubilun hanj
ágerðist.
Hún bjó honum hlýtt og frið-
sælt heimili, sem þó stóð ávallt
opið gestum og vinum hjónanna.
Á heimili þeirra ríkti einlæg
gestrisni og á öllu var myndar-
bragur.
Við félagar og vinir Magnúsar
þökkum honum samfylgdina
hérna megin tjaldsins og geym-
um minningu um góðan dreng.
Konu hans vottum við samúð
okkar.
G. Jóh.