Morgunblaðið - 25.06.1965, Qupperneq 17
Föstudagtir 215. }finí 1965
MORGU N BLAÐIÐ
17
Landkynningar-
starfsemi F.í.
SAMTALS 28 ferðaskrifstofu-
menn frá hinum Norðurlöndun-
um hafa dvalizt hér um nokkurra
da/ía skeið síðastliðna viku í
boði Flugfélags Islands, • ferðazt
um og skoðað bæði náttúru, kaup
staði og hótel.
Ellefu menn frá stærstu ferða-
skrifstofunum í Bergen og Osló
Ihéldu heimleiðis í gær kl. 2. Þeir
höfðu verið á íslandi frá því á
Itugardag. Þeir skoðuðu Reykja-
vík og nágrenni þann dag, en
héldu síðan til Þingvalla og gistu
í Valhöll. Þar sáu þeir sögustaði
Oig héldu síðan að Gullfossi,
Geysi, Laugarvatni og Hvera-
gerði á sunnudag og litu loks á
skemmtistaði Reykjavíkur um
kvöldið. Þeir gistu að Hótel
Holti. •
Á mánudagsmorgun árla var
flogið norður til Akureyrar og
ekið þaðan til Mývatns, þar sem
ferðaskrifstofumennirnir skoð-
uðuð gististaði og helztu náttúru-
undur, svo sem Námaskarð,
Grjótagjá, Dimmuborgir ag
Höfða, að ógleymdum Goðafossi
á heimleiðinni. JHaldið var aftur
til Reykjavíkur um kvöldið. 1
gær snæddu Norðmennirnir há-
degisverð með islenzkum ferða-
skrifstofumönnum, einnig í boði
Flugfélagsins, en héldu síðan til
Noregs kl. 2.
Hinn hópurinn, sem í voru
17 menn frá Svíþjóð, Finnlandi
og Danmörku. kom hingað síðast
liðinn miðvikudag, ferðaðist um
sömu slóðir og Norðmennirnir og
flautg heimleiðis á sunnudag.
Úr verzluninni „Persíu“
Ný verzlun-Persía
i húsi Marteins Einarssonar & Co
SÍÐASTLIDINN laugardag var
opnuð hér í Reykjavík ný verzl
uin með gólfteppi og dregla, Verzl
uinin FBRSÍA, á II hæð að Lauga
veg 31, í húsi Marteins Einars-
sonar & Co. Síðar mun verzlun
þessi einnig selja gluggatjalda-
efni.
BLaðamönnuim var í þessu til
efni bo'ðið af forráðamönnum
fyrirtækisins að skoða hina nýju
verzlun. Viðstaddur var einnig
hr. Book verzliunarfulltrúi við
iókkneska sendiráðið hér. í
verzluninni eru á boðstólunum
irua rgskonar tegundir af gólf-
teppum frá Tékkóslóvaíkíu, en
þaðan hefir undanfarin ár verið
flutt inn mikið a.f gólfteppum og
dreiglum, sem síðastliði'ð ár nam
um 70% af heildarinnflutningi
á þessairi vörutegund til landsins.
Þessi iðngrein stendur á göml-
um merg í Tékkóslóvakíu, að því
er hr. Booek tjóði blaðamönnum
og er mikil útflutningsvera rneð-
al annars til Norðurlanda, sem
eru stórir kaupendur að tékk-
neskum teppum.
Þá vekja athygli í verzlun
þóssari sænsk rya teppi frá
Wahlbecks verksmiðjum í Lin-
köbing, en munstrin í þessum
teppum eru gerð af Marianne
Richter, sem er þekkt listakona
í þessari grein. Eitt af hennar
fræigustu verkum er stórt gobelin
veggtjaild í fundarsal Sameinuðu
þjó'ðanna í NY.
Verzlunin PER9ÍA mun leit-
ast við að hafa sem mest úrval
af górlfteppum og síðar glugga-
tjöldum, að því er forráðamenn
verzlunarinnar sögðu. Sölustjóri
er Einar Bjarnason.
U ndirbúmngsdeild
Tækniskóla á
Akureyri
Akureyri, 22. júní.
MEÐ lögum um Tækniskóla ís-
iands var svo ákveðið, að undir-
búningsdeild skyldi starfa á Ak-
ureyri og hugsanlega mætti
stofna fullgildan tækniskóla hér,
þegar ástæður leyfðu.
Undirbúningsdeildin hefir nú
etarfað tvo vetur við.ágætan orð-
stír og með prýðilegum árangri,
og fóru skólaslit fram 24. maí.
Jón Sigurgeirsson, skólastjóri
Iðnskólans, veitir deildinni for-
Btöðu, en fastakennari er Aðal-
geir Pálsson, rafmagnsverkfræð-
ingur. Nokkrir stundakennarar
kenndu og við deildina, mest Að-
alsteinn Jónsson, verkfræðingur.
Deildina sóttu í vetur 9 nem-
endur, og stóðust þeir allir próf.
Prófkröfur eru strangar. Til þess
að standast það þarf meðaleink-
unnina 6,0, en gefið er frá 1,0 til
10,0. Þar að auki verða nemend-
ur að ná 6,0 í meðaleinkunn í
stærðfræði, eðlisfræði og efna-
fræði, og engin einkunn má vera
lægri en 3,0. Hæstu einkunnir á
prófinu hlutu Karl Þorleifsson,
Ólafsfirði, I. ág. 9,3; og Þórður
Um 400.000 áhorfendur fylgdust með þegar keppnin hófst í Le Mans.
FJÚRTÁN AF 51LUKU KEPPNI
Le Hflans kappakstrinum lauk
með sigri Ferrari
EIN mesta þolraun, sem lögð
er á bíla og ökumenn, er hin
árlega aksturkeppni í borg- *
inni Le Mans, fyrir suðvest-
an París. Þar er ekið eftir
13,46 kílómetra langri hring-
leið, um hlykkjóttar götur,
viðstöðulaust í 24 tíma.
Keppnin í ár hófst s.l. laug
ardag klukkan 15 og töldu
allir að hún yrði einvígi milli
Ford og Ferrari 'bílasmiðj-
anna. En Ferrari bílar höfðu
sigrað í fimm undanfarandi
keppnum. Sendu Ford smiðj-
urnar nýja gerð kappaksturs-
bíla til keppninnar, sem mikl
ar vonir voru bundnar við.
Alls mættu til keppni 51 bif-
reið, þar af ellefu Ferrari,
sex Ford og fimm Ford
Cobra. Fjórtán luku keppn-
inni, og voru Ferrari bílar í
fyrsta, öðru, þriðja og
sjötta og sjöunda sæti. Pors-
ohe bílar voru í fjórða og
fimmta sæti, Ford Cobra
númer átta, ítalskur Iso Grifo
með Chevrolet vél númer
níu, Rover BRM með túrbínu
vél númer tíu, MGB númer
11, Austin Healey 12., Tri-
umph Spitfire númer 13 og
14. Allir stóru Fordarnir og
sex Ferrari urðu að gefast
upp. En Ferrari bílasmiðjurn
ar máttu vel við una, því
sigurinn varð glæsilegur.
Fyrir keppnina hafði
Bandaríkjamaður sett braut-
armet í einni Ford bifreið-
inni. ók hann hringinn, 13,46
kílómetra, á 3 mínútum 33
sekúndum, eða með að með-
altali 227,5 km. hraða. Fyrra
metið átti Bretinn John
Surtees í Ferrari á 3:35,1.
Kom fljótlega í ljós eftir að
keppnin hófst að Ford bíl-
arnir voru mun fljótari á
beinu köflunum en Ferrari,
enda knúnir öflugri vélum.
Eru vélarnar í Ford með
6.982 rúmsentimetra sprengi-
rúmi á móti 3.286 og 4.390
í Ferrari. En hestöflin komu
ekki að tilætluðum notum
þegar líða tók á keppnina.
Áður en keppnin hófst var
kappakstursbílunum stillt
upp öðru megin á akbraut-
inni, en ökumennirnir stóðu
viðbúnir hinum megin. Þeg-
ar svo Maurice Herzog,
íþróttamálaráðherra Frakk-
lands, gaf merki, hlupu öku-
mennirnir til og óku af stað.
Var Phil Hill fyrstur frá
marki, og hélt forustunni
fyrst framan af, en John Sur-
tees annar. En Surtees tókst
’ekki að halda öðru sæti lengi
því Fordamir nutu yfirburða
sinna í byrjun
Þegar kvöldaði tóku Ford-
arnir að heltast úr lestinni ■
vegna yfirhitunar eða bilaðra
kúplínga, og tók Surtees þá
forustuna. Svo varð bilun í
bíl Surtees, og tók þá annar
Ferrari forustuna. En þegar
svo sprakk á framhjóli hjá
Ihonum, tók þriðji Ferrari bíll
inn við. Þeim tííl óku Banda-
ríkjamaðurinn Masten Greg-
ory og Þjóðverjinn Joohen
Rindt. Héldu þeir forustunni
til keppnisloka.
Gregory tók fyrst þátt í Le
Mans keppninni fyrir tólf ár-
um, en hefur búið í Evrópu
síðan og alls tekið þátt í átta
Le Mans keppnum. Bezti á-
rangur hans þar til nú var að
ná fjórða sæti. Að lokinni
keppni á sunnudag sagði
Gregory við fréttamenn: „Við
ókum hratt, en ekki það hratt
að við eyðileggðum bílinn.
Við töldum að orkumeiri bíl-
arnir fengju ekki notið hest-
aflanna til lengdar né heldur
ekið lengi á fullri ferð. Við
gátum hinsvegar ekið allan
tímann á hámarkshraða."
Þetta reyndist rétt hjá Greg-
ory, en bíll hans var af minini
gerð Ferrari.
Aðspurður hvort honum
hafi ekki brugðið illa við
þegar Ford bílamir geystust
áfram á beinu köflunum
sagði Gregory: „Ég ók Ford
bifreið í keppninni í fyrra og
gírkassinn bilaði. Þeir hund-
skömmuðu mig fyrir það.
Þessvegna ætlaði ég mér að
hefna mín núna. Og sannast
að segja hafði ég ekki trú á
því að þeim tækist að ljúka
keppninni."
■r
■
Sigurvegararnir Maisten Gre gory (t.v.) og Jochen Rindt.
Jónsson, Akureyri, I. 8,9.
Undirbúningsdeildin er eins
vetrar skóli, og er námstíminn
frá 1. október og fram í maí, en
gera má ráð fyrir, að hann verði
eitthvað lengdur, enda er sú
stefna uppi hvarvetna um Norð-
urlönd. Inntökuskilyrði eru, að
nemandi hafi lokið iðnnámi eða
gagnfræðaprófi og hlotið verk-
lega þjálfun í 12 mánuði og jafn-
vel lengur í sumum greinum. —
Vikulegur stundafjöldi er 42. —
Námsgreinar eru: íslenzka,
enska, danska, þýzka, almennur
reikningur, algebra, flatarmáls-
fræði, þríhyrningafræði, eðlis-
fræði og efnafræði. Próf eru bæði
munnleg og skrifleg. Hverju
skólaári er skipt í 2 misseri, og
er próf haldið um miðjan vetur
að loknu fyrra misserinu. Til
þess að standast það þarf eink-
unnina 5,0.
Þau tvö ár, sem undirbúnings-
deildin hefir starfað á Akureyri,
hafa burtfararprófsverkefnin ver
ið fengin frá Danmörku, hin
sömu og eru í undirbúningsdeild-
um tækniskólana þar. Hefir
samvinna um það verið höfð við
Tækniskóla íslands í Reykjavík.
Framvegis munu prófverkefnl
verða fengin frá Reykjavík og
skólarnir hafa nána samvinnu i
þeim efnum. Prófið veitir rétt-
indi til inngöngu í Tækniskóla ís-
lands og tækniskóla í Danmörku
og Noregi.
Gert er ráð fyrir, að deildin
taki til starfa á ný 1. okt. í haust,
ef næg þátttaka fæst. Upplýsing-
ar gefa Sigurður Óli Brynjólfs-
son, skólanefndarmaður og skóla-
stjórinn, Jón Sigurgeirsson.
— Sv. P.