Morgunblaðið - 03.07.1965, Síða 2

Morgunblaðið - 03.07.1965, Síða 2
MORGUNBLAOIÐ LaugorcJagur 3. júlí 1965 Skipulagsuppdrættir kaupstaða ógildir, ef ekki er fylgt út í æsar fyrirmælum skipuiagsstjóra Hæstiréttur hrindir Kéraðsdomí, sem staðfest hafði byggingarétt Boðarleiguhafa Siðasta máli, sem Hæstiréttur ffjallaði um, áður en réttarhlé Ihófst fyrir sumarleyfið, var dæmt í Hæstarétti hinn 28. júní s.l. Málið nefndist Ársæll Sveinsson gegrt Hreggviði Jóns- syni og gagnsök. Málavextir voru í stuttu máli í þá leið, að bæjarstjórn Vest- mannaeyja úthlutaði Hreggviði Jónssyni, bifreiðaverkstæðiseig- anda í Vestmannaeyjum, lóð undir viðbótarbyggingu, sem að nokkru var staðsett á fyrirhug- uðu götustæði, skv. skipulags- uppdrætti fyrir Vestmannaeyja- kaupstað, staðfestum af stjórnar ráðinu hinn 3. nóv. 1932. Þessvegna samþykkti bygg- ingarnefnd og bæjarstjórn Vest- mannaeyja ' að leggja til, að skipulagi kaupstaðarins yrði breytt, á þá lund, að fyrirhugað- ur vegur yrði „lagður niður“. Skipulagsstjóra ríkisins var send ályktunin til umsagnar og svaraði hann bréflega, að hann gæti fallizt á þessa tillgu. Munu mörg dæmi þess, að stjórnir kaupstaða hafi talið þetta full- nægjandi, til breytinga á eldri staðfestum uppdrættL Ársæll Sveinsson, sem auk um fangsmikillar útgerðar og fisk- verkunar í Eyjum, rekur timb- urverzlun þar, átti bráðabirgða- hús sem timburgeymslu, í þessu áður fyrirhugaða götustæði. Hreggviður fékk samþykkta teikningu hjá byggingarnefnd og bæjarstjórn af viðbótarbygg- ingunni og fékk lóðarleigusamn- ing, sem hann lét þinglýsa. Með þessi gögn í höndum krafðist hann þess, að Ársæll hyrfi á brott með timburgeymsluhúsið og þegar því var ekki sinnt, lét hann menn sína hefja niðurrif hússins. Ársæll Sveinsson lagði þá lög- bann gegn niðurrifinu og höfð- aði síðan mál til staðfestingar og skaðabóta. Hreggviður Jónsson svaraði með gagnsök og krafðist að réttur sinn til nýbyggingar yrði viðurkenndur og að Ársæli UM hádegi í gær var hæg- þrýstisvæði, en jafnframt S- viðri og bjartviðri hér á landi átt og rigning á S-Grænlandi. og hiti víðast 10—14 st., mest Má búast við að þykkni nókk ur 17 st. á Hellu. Yfir íslandi uð í lofti í kvöld eða á morg- og Grænlandshafi var há- un. Sveinssyni skyldi gert að fjar- lægja timburgeymsluhúsið að viðlögðúm dagsektum. Einnig krafðist hann skaðabóta. Dómsniðurstaða bæjarþings Vestmannaeyja varð á þá leið, að lögbannið var staðfest og Ársæli Sveinssyni tildæmdar kr. 10.000,00 í skaðabætur vegna viðgerða á húsinu. Hinsvegar var viðurkenndur réttur Hregg- viðs Jónssonar til þess að byggja á viðbótarlóðinni skv. lóðarleigusamningi, og í sam- ræmi við teikningu samþykkta af bæjaryfirvöldum. Ársæli Tengsl íslands eru sterkust við Danmörku Rætf við Bjarne W. Paulsson, sendiherra Dana, sem er á förum héðan til Argenfínu EINS og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu, er danski sendiherrann á Is- landi, Bjarne With Pauls- son, nú að láta af störfum hér. Fer hann og kona hans, frú Agnete, áleiðis til Kaupmannahafnar með ms. Gullfossi hinn 10. þessa mánaðar. Bjarne W. Pauls- son verður nú sendiherra í nokkrum Suður-Ameríku- ríkjum með aðsetri í Bue- nos Aires. Hingað kemur í hans stað Birger Kron- mann, sem nú er sendi- herra Danmerkur í Ankara í Tyrklandi. Bjarne W. Paulsson er is- lenzkur í fööurætt, eins og kunnugt er. Faðir hans var Ólafur A. Paulsson (Ólafur Á. Pálsson), danskur lögfræðing- ur og embættismaður, sonur Páls bónda og dannebrogs- manns á Akri í Þingi Ólafs- sonar. Ólafur A. Paulsson var því bróðir séra Bjarna Páls- sonar, prófasts í Steinnesi. Fréttamaður Mbl. hitti sendi herrann snöggvast að máli í gær og lagði fyrir hann nokkr ar spurningar. Fara svör sendi herrans hér á eftir. — Ég hef alltaf verið tengd- ur íslandi sterkum böndum, eins og skiljanlegt er vegna ætternis míns. Þó hafði ég ekki komið til íslands nema tvisvar sinnum, áður en ég kom hingað sem sendiherra fyrir fimm árum og fimm mánuðum. Fimmtán ára gam- all dvaldist ég hér í þrjár vik- ur ásamt foreldrum mínum, og árið 1954 var ég hér í þrjá daga ásamt H. C. Hansen heitn um. — Hér hef ég umgengizt marga ættingja mína, svo sem Ólaf í Brautarholti, en við er- um bræðrasynir. Ég hef ferð- azt mikið um ísland, komið til flestra staða á öllum lands- hornum, og einnig farið þvert yfir landið. — Á þessum tíma hef ég kynnzt landinu og náttúru þess vel, og einnig kynnzt fjölda fóíks. íslenzkan hugsun arhátt og íslenzkt þjóðareðli þekkti ég, enda er ég hálfur íslendingur. — Ég var mjög eftirvænt- ingarfullur, þegar ég kom hingað árið 1960, og allar von- ir mínar hafa rætzt. Mér finnst sérstaklega ánægjulegt, hvernig handritamálið hefur ' Dönsku sendiherrahjónin í garðinum fyrir utan sendiherrabú- staðinn og sendiráðið á Hverfisgötu 29. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) leystst. Ég hef alltaf trúað því, að málið færi vel, og það gleður mig afar mikið, að nú skuli hafa verið undirritaður samningur um afhendingu á hluta handritanna, svo að nú ætti að Vera skammt að bíða eftir endanlegri lausn málsins. Ég átti von á því, að sam- komulag tækist á þeim tíma, sem ég yrði hér, en aðalatriðið er, að þessar tvær. þjóðir, Dan ir og íslendingar, eru sam- mála, þótt afhending handrit- anna kunni eitthvað að drag- ast. — Ég hef ekki kynnzt nein- um hér, sem ber kala til Dan- merkur eða dönsku þjóðar- innar. Það var eðlilegt, að Dani og íslendinga greindi á í stjórnmálalegum efnum á sínum tíma, en mitt álit er, að nú þekkist ekki betra sam- band milli tveggja þjóða. Eig- inlega kom mér á óvart, hve náið samband er milli íslands og Danmerkur. íslendingar búa yfir mikilli þekkingu á dönskum högum og hafa mikil tengsl við Dani. Ég held, að íslendingar séu ekki tengdir neinni annarri þjóð sterkari böndum. Ætla hefði mátt, að ísland fjarlægðist Danmörku eftir sambandsslitin, ef svo má að orði komast, en mér finnst langt frá því, að svo hafi orð- ið. — — Já, við hjónin höfum ver- ið hamingjusöm hér, og ég hef haft ánægju af starfinu. Við höfum eignazt marga íslenzka vini, og við munum eiga þá áfram, þótt við hverfum héð- an. — Okkur fannst gaman, að sonur okkar, Olaf, skyldi kvongast íslenzkri stúlku, með an við dvöldumst hér. Hún heitir Elísabet Ólafsdóttir, dóttir Ólafs læknis Geirssonar á Vífilsstöðum. Olaf er nú 25 ára og leggur stund á læknis- fræði í Kaupmannahöfn, en hann hefur fengið hluta af menntun sinni hér á landi. Brita, dóttir okkar, leggur stund á frönsku í Kaupmanna- höfn. Hún hefur komið hingað tvisvar á ári og er cand. philos. við Háskóla íslands. — Nú förum við til Buenos Aires, þar sem ég verð sendi- herra Danmerkur í Argentínu, Chile, Paraguay og Uruguay. Ég hverf sem sagt úr norðlæg- ustu sendiherrastöðu danska ríkisins til hinnar suðlægustu. > Sveinssyni var gert skylt að fjarlægja timburhúsið af lóðinni innan 15 daga frá lögbirtingu dómsins, að viðlögðum 2000 kr. dagsektum til Hreggvíðs Jóns- sonar. Skyldi Ársæll Sveinsson og greiða Hreggviði Jónssyni kr. 6.000.00 upp í málskostnað.- I Hæstarétti fór málið á nokk- uð á annan veg. Lögbannið Var að vísu staðiest, og bótafjárhæð- in til Ársæ's Sveinssonar fyrir níðurrifið, kr. 10.000,00. En þýðingarmest fyrir skipu- lagsmál kaupstaða og sem „þrinc ipmál“ verður það atriði dóms- ins, að héraðsdómi um gagnsök- ina var hrundið og Ársæll Sveinsson sýknaður af kröfum Hreggviðs Jónssonar. Málkostnaðarákvæði Hæsta- réttardómsins var í samræmi við efnisniðurstöðuna þannig, að Hreggviður Jónsson skyldi greiða Ársæli Sveinssyni kr. 10.000.00 í málskostnað. Segir svo um þetta í dómsfor- sendum Hæstaréttar: „Tillögur stjórnvalda Vest- mannaeyjakaupstaðar um breyt- ingu á skipulagi kaupstaðarina voru eigi lagðar fyrir skipulags- nefnd ríkisins og Félagsmála- ráðuneytið tii úrlasunar skv. 19. og 20. gr. laga nr. 55/1921, sbr. 14. gr. sömu laga og 4. gr. laga nr. 64/1938. Málið hefur eigi heldur verið tekið til meðferð- ar skv. V. kafla laga nr. 19/1964* eftir að þau lög tóku gildi. Hef- ur því engin lögleg breyting orðið á skipulagi Vestmannaeyja til samræmis við lóðarsamning gagnáfrýj anda frá 14 febr. 1964. Gagnáfrýjandi getur því ekki byggt kröfur sínar á hendur að- aláfrýjanda, sem hagmuna hefur að gæta um skipulag á um- ræddu svæði, á greindum samn- ingi, þar sem hann brýtur í bága við gildandt skipulagsuppdrátt.“ Fyrir hönd aðaláfrýjanda, Ár- sæl Sveinsson, flutti málið Páll S. Pálsson, hrl., en fyrir hönd gagnáfrýjanda, Hreggvið Jóns- son, flutti málið Árni Guðjóns- son, hrl.. Velddu % ton~s of laxi í Blöndu Akranesi, 2. júlí. EKKI þrýtur björg í Blöndu. Þetta vissu upp á sína tíu fingur fjórmenningarnir, sem þangað fóru til laxveiða s.l. sunnudag 27. júní. Þá um morguninn söng ein húsfreyjan svo fagurlega: „Skín við sólu Skagafjörður" að maður hennar stóðst ekki mátið og bauð henni með. Og endirinn var sá, að allir fóru þeir með konurnar norður í Skagafjörð. Þær voru fljótar að festa aug- un á Tindastóli, Drangey, Þórðar höfða og Mælifellshnjúki, en fjór menningarnir vendu vestur um að Blöndu. Þeir voru tveir um eina stöng og veiddu í tvo daga, 28. o.g 29. júní, og fengu alls 46 laxa. Afl- inn vó hvorki meira né minna en kvart-tonn, þ.e. 250 kg., og frúrnar höfðu fengið tveggja daga sumarfrí í fegursta um- hverfi og bezta yfirlæti. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.