Morgunblaðið - 03.07.1965, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.07.1965, Blaðsíða 17
Laugardagur 3. júlí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 SIGLUFJARDARFLUG FLUGSÝNAR h.f. HÖFUM STAÐSETT 4 SÆTA FLUGVÉL Á SIGLUFIRÐI FARÞEGAFLUG VARAHLUTAFLUG SJ Ú KRAFLUG Gestur Fanndal, kaupmaður SIGLUFIRÐI Sumarlcyfisferð til Alorbrlaná 17. júlí — 5. ágúst. Farið um fegurstu héruð ná- grannalandanna, dvalizt á fjallahótelum, höfuð- borgirnar heimsóttar og helztu merkisstaðir. — Srglt út með Heklunni, — heim með Gulifossi með viðkomu í Edinborg. Fararstjóri: Friðfinnur Ólafsson. FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS. m W/Sl FLJÓTAPRAIWMAR STÖÐVAÐIR Bonn, 2. júlí (NTB) Vestur þýzkir landamæra- verðir stöðvuðu í dag tvo austur þýzka flutninga- pramma á leið eftir skipa- skurði inn í Vestur Þýzka- land. Höfðu stjórnendur ekki tilskilin gögn til ferða um skipaskurðinn, vegna þess að yfirvöldin í Austur Berlín hafa mælt svo fyrir að hér eftir þurfi ekki heimild fjór- veldanna í Berlín til siglinga, aðeins leyfi austur þýzkra yfirvalda. Fulltrúar Vestur- veldanna þriggja í Berlín hafa mótmælt þesuari ráð- stöfun. Sendum gegn kröfu. H.i. Egill Vilhjálmsson Laugaveg 118 - Símí 2-22-40 verður farið í málið og ekki rasað að neinu. • ÞEIR FÁTÆKU INNFLYTJENDUR Ég hafði orð á því við einn ferðaskrifstofumanninn hve fátt fólk ég hefði séð mjög fá tæklega til fara, en vitað er að í Austurlöndum er víða mikil fátækt. „Fátæklingai1 eru ekki margir hér,“ sagði hann, „eitthvað 50-60 þúsund, geri ég ráð fyrir, en það eru ekki innfæddir Líbanonmenn heldur innflytjendur frá hin- um Arabalöndunum, mest frá Sýrlandi og Jórdaní-u. Ef þú sérð t.d. menn í vegavinnu, geturðu gengið út frá því sem vísu, að þeir eru innflytjend- ur nema verkstjórinn, hann er Libani.“ Annar sagði að nær ómögulegt væri t.d. að fá innlendar vinnukonur- á heimili, flestar þeirra værú frá Sýrlandi. „Langflestar ungar stúlkur hér fara í skóla og ganga menntaveginn." • BRIDGESPILARINN 1 BEIRUT Maður nokkuð við aldur kom stormandi til mín og sagði: „Segið mér eitt, eruð þér skyldir bridigespilaranum Guðmundsson?“ Mér vafðist tunga um tönn, sagði honum að margir „Guðmundsson“ væru á íslandi og eflaust spilaði fjöldi þeirra bridge. En hann lét ekki slá sig út af laginu, átti ekki við nein-n venjulegan Guðmundsson. „Ma-kker hans er Þorfinnsson" hélt hann áfram, „og ötefáns- son var líka í sveitinni, sem við spiluðum við í 'Evrópu- meistarakeppninni." Nú skildi ég að hann átti við Gunnar Guðmundsson, Einar Þorfinns son og Stefán Stefánsson. „Fyrstá klassa bridgespilar- ar,“ sagði hann, „og fínir ná- ungar. Skilið kveðju til þeirra frá Fady G. Bustros frá Beir- ut.“ Og hér með er þeirri kveðju komið á framfæri. I ipi i kvæmdastjórum líbönsku ferðaskrifstofunnar. • LAKLOUK I LÍBANONSFJÖLLUM Hátt upp í Líbanons-fjöllum gengur afdalur inn í fjallgarð inn. Þessi dalur var bænd- unum í - hlíðunum fyrir neðan lítils virði enda hrjóstrugur. En bóndasonur einn úr nágrenninu, M. Saab að nafni, sem nú var orðinn bankastjóri í Beirut, sá að þótt gróðurmoldin í dalnum væri hvorki mikil né frjó hafði hann upp á sína náttúru töfrá að bjóða. Ha-nn keypti landið, sem var falt fyrir lít- inn pening. Loftið var þar tært og svalt á sumrin borið saman við hita molluna niður við ströndina og á veturna setti þarna niður þó nokkurn snjó. Staðurinn heitir Laklouk og Sáab byrjaði á því að leggja þangað veg og reisa hótel með tilheyrandi veitingasölum og næturklúbbi. Síðan hefur hann bætt við ellefu vistleg- um og smekklegum einbýlis- húsum, sem leigð eru út, sund laug og nú loks reist annað stórt hótel, þar sem það fyr-ra var orðið of lítið. Einnig er þarna skíðalyfta og aðstaða til ýmiskonar íþróttaiðkana. Á veturna snjóar venjulega 4-5 daga í einu, en síðan er sól og blíðviðri, en nógu kalt þarna uppi til þess að snjór inn helzt lengi. ' Allar framkvæmdirnar í Laklouk lýsa stórhug eigand- ans og þeirri bjargföstu trú hans að Líbanon verði eitt eftirsóttasta ferðamannaland heims. „Hér eru stórkostlegir möguleikar,“ segir Saab og áhuginn leyni-r sér ekki, „ef rétt er á málum haldið.“ Hug- mynd hans er sú að tengja Laklouk við Byblos með svif foraut. Það yrði að sjálfsögðu risamannvirki, en Saafo er eng inn meðalmaður svo ekkert- er líklegra en að hann hrindi þessu í framkvæmd. í Laklouk hefur verið plant- að út 40 þús. sedrus-viðar- plöntum, þeim fyrstu 1951 — og eru stærstu trén nú um metri á hæð. Það er furðulegt að einn maður í jafn litlu landi og Líbanon skuli þess megnugur að byggja og rækta upp stað eins og Laklouk — en hér er sýnilega á ferð auðugur hug sjónamaður, sem trúir : land sitt og vill láta það njóta góðs að verkum sínum Sigurbur Jónsson Hfónmng F: 1. ágúst 1921. — D: 12. júní’65 Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka, oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þótt dauðinn oss megi ei saka. E.B. ÞANN 12. júní síðastliðinn • andaðist móðurbróðir minn Sig- urður Jónsson af slysförum, að- eins 43 ára gamall. Ég var nokkru áður búinn að fá hug- boð um að við mundum ekki hittast framar á hinu jarðneska tilverustigi, og svo fór. Það mun hafa verið einn sólríkan vor- morgun í aprílmánuði 1964, að við gengum saman frá heimili hans suður á Öskjuhlíð, en það- an er fagurt útsýni yfir Skerja- fjörðinn og Grímsstaðaholtið, þar sem ^ ðáttum báðir hug- ljúfan dag u rnskunnar og glað- ar stundir hin friðsælu ár, og það verður mér nú til hugarlétt- is að viðsKilnaður okkar varð á þennan veg, og bundinn þeim stað. Eins verður með bréf, sem hann skrifaði mér, en það mun ég geyma sem fagran vitnis- burð um sarnan drengskap og góðvild hans i minn garð. Hann bjó yfir þeim dýrmæta eigin- leika, þó hann gæti stundum verið dálítið fljótfær, að halda ekki í við rangan málstað, en viðurkenna heldur það sem rétt- ara var í hvert sinn. Hvað ævidögum frænda míns viðkemur að öðru leyti, get ég það sagt, að hann gekk sína braut sem b.ver annar alþýðu- maður, ekki í néinum tengslum við þann auð og þá upphefð, sem margir dýrka svo mjög. Hann lifði í líðandi stund, laus við alla ágirnd og hræsni. Ásamt góðu hugarfari bjó hann einnig við sæmilega heilsu, en það er tvennt af því, sem forsjónin gef- ur ekki öllum, og eftir því sem ég get bezt dæmt um, virtist hann vera ánægður með lífið. Hann var miklu oftar glaður og hress í viðmóti en daufur eða skapþungur. Og það var líkt með hann eins . og flesta aðra, að sumir dagar voru honum létt- ir og bjartir, en aðrir kannski íómlegri og dekkri. Þar sem líf- ið. er allt breytingum háð og ekkert er varanlegt verður eng- in stund eins og ekkert kvöld eða morgun ber hinn sama blæ. Þai nig er vort jarðneska tímabil frá bernskunnar morgni til síð- asta kvelds. Um leið og ég enda nú þessi fáu minningarófð, verð ur mér hugsað til eftirlifandi konu hans og barna, sem nú hafa séð á bak sínum föður, og einnig þeirra, sem honum voru tengdir og áttu hann sem vin og félaga. Ég votta þeim öllum ein- læga samúð og hluttekningu mína. Blessuð sé minning hans. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir, vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér, mót öllum oss faðminn breiðir. E.B. Þorgeir Kr. Magnúsuon Frá Laklouk. Fyrsta hótelið, sem þar var reist. NÝKÖMIÐ f AMERÍSKA BÍLA. Stýrisendar Spindilboltar Slitboltar Gormar o. fl. Einnig stýrisendar í evrópska bila. Daglega nýjar vörur. ALLT Á SAMA STAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.