Morgunblaðið - 29.07.1965, Side 2
MOKCUNQÍAÐIÐ
PifWmtuda^ir 59. 'júfí I9€I5
r 2
Einar Sveinbjörnsson fiðluleikari
hlýtur frábærar viðtökur í Danmörku
UM HÁDEGI í gær var veður
mjög stillt um allt land, þurrt
og víða léttskýjað. Hiti var
víðast 10—12 stig. Fyrir sunn
an land er lægð, sem þokast
austur eftir í stefnu á N-Skot
land. Um 60 brgr. eða 300 km
suður af Vestmannaeyjum er
vindur allhvass austan og
rigning, en úr því kemur suð-
ur á 57. brgr. er vestan strekk-
ingur og þokuloft.
Hinn 7. júlí sl. hélt Sinfóniu-
hljómsveit Álaborgar sumartón-
leika. Á efnisskránni var m. a.
fiðlukonsert í d-moll eftir Jean
Sibelius. Einleikari með hljóm-
sveitinni, sem Jens Schröder
stjórnaði var íslendingurinn Ein-
ar Grétar Sveinbjörnsson fiðlu-
leikari, en hann er nú konsert-
meistari við sinfóníuhljómsveit-
ina í Malmö í Svíþjóð. Hlaut Ein
ar frábærar viðtökur áheyrenda
og tónlistargagnrýnenda, svo sem
umsagnir tveggja danskra blaða,
sem hér fara á eftir bera gleggst
vitni.
Aalborg Amtstidende:
„Einleikari kvöldsins í hinum
erfiða fiðlukonsert í d-moll eftir
Sibelius var íslendingurinn Ein-
ar Grétar Sveinbjörnsson, sem
sýndi leiftrandi tækni, er bæði
kom fram í öðrum þætti verks-
ins, sem er hægur og þriðja þætti
„allegro, en ekki um of“, en
undirleikinn annast þar hinar
þrumandi knéfiðlur. Hin spengi-
lega og glæsilega framkoma han*
bar keim af sænskum andsvala
— hann er konsertmeistari í
Malmö og þeim, sem hlustað hafa
á t. d. Emil Telmanyi leika sama
2.2 VII 1945- kt.12.
OlQ
t GÓÐA veðrinu í gær voru bekkir i skrúðgörðum borgarinnar
þéttsetnir. Ljósmyndarinn tók þessa mynd fyrir sunnan gamla
fcirkjugarðinn, þar sem börn og fullorðnir sátu og nutu sólar í
angan blóma. (Ljósm Mbl. Sv .Þ.).
Afvopnunarráistefnan
í Genf hafin á ný -
USA og USSR sammáia um markmið, en
stórveldin greinir á um leiðir
Genf, 28. júlí — AP.
UMRÆÐUR á fyrsta degi af-
vopnunarráðstefnunnar í Genf
gefa ekki ástæðu til bjartsýni.
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að greinilegt sé, að bæði So-
vétríkin og Bandaríkin hafi af
því áhyggjur, að ýmsar þjóðir
hafa nú í hyggju að eignast
kjarnorkuvopn. Hins vegar
virðast stórveldin tvö hafa
ólík sjónarmið, á hvern
hátt hindra skuli slíka þró-
un.
Formaður sovézku sendi-
nefndarinnar, Semyon Tsjara
pkin, hefur lýst þvi yfir, að
allt útlit sé nú fyrir stór-
styrjöld í SA-ASÍU, og beri
Vesturveldin ein allra ábyrgð
á því.
Þá lýsti Tsjarapkin því yfir,
að áætlanir um sameiginleg-
an kjarnorkuher Atlantshafs-
bandalagsríkjanna geti á eng
an hátt samræmzt hugmynd-
um um bann við dreifingu
kjarnorkuvopna til þjóða, sem
ekki hafa slík vopn undir
höndum nú.
Þótt um 10 mánuðir sé nú
liðnir frá því, að afvopnunar-
ráðstefnan gerði hlé á störf-
um sínum, virðist lítit breyt-
ing hafa orði’ð á meginsjónar-
miðum stórveldanna, sem þar
eiga fulltrúa. Þannig hafa
sovézku fulltrúarnir hafnað á
ný hugmyndinni um alþjóð-
legt eftirlit, vegna heildar-
banns við kjarnorkutilraun-
um, sem myndi ná til tilrauna
neðanjarðar jafnframt. Þær
einar eru nú leyfðar.
í fyrstu ræðu sinni nú lýsti
Tsjarapkin allri sök á hendur
Bandaríkjunum fyrir atburði
þá sem nú eiga sér sta'ð í Vi-
etnam. Aðalfulltrúi Banda-
ríkjanna, William Foster,
taldi, að þessi hluti ræðu so-
vézka aðalfulltrúans fjallaði
um mál, sem ekki heyrði und-
ir afvopnunarráðstefnuna, og
væri hún því ekki til þess
fallin að auka á .samkonmlags
líkur.
Sérfræðingar Vesturlanda
hafa unnið að endurskoðun á
eldri, brezkri tillögu um bann
við útbreiðslu kjarnorku-
vopna. Tillagan, í nokkuð
breyttri mynd, var lög’ð fyrir
NATO-ráðið í París í fyrri
viku, og verður nú enn tekin
til athugunar, áður en hún
verður opinberlega borin fram
í Genf, á nýjan leik.
Annar bandarískur fulltrúi,
Stephen Young, vék að því í
ræðu, að Bandaríkin ættu að
reyna að koma á samkomu-
lagsumræðum við Peking-
stjórnina, til að reyna áð
hindra frekari úfebreiðslu
kjarnorkuvopna. Sagði Young
að slíku marki yrði best náð
með fundi æðstu manna. Kín-
verjar hafa áður hafnað hug-
mynd um þess háttar fund.
560 laxar
komnir á land
VALDASTÖÐUM Kjós 25. júlí.
Þann 24. júlí var veiðin í Laxá
sem hér segir: 1. svæði í Laxá
450 laxar, 2. svæði 20, 3. svæði
50, Bugða 40, samtals 560 laxar.
Mest hefur veiðzt á einum degi
á 1. svæði 37 laxar.
Allgóður þurrkur var hér í
fyrradag. Annars hefur verið
óþurrkur um tíma undanfarið og
því lítið náðst inn af heyjum.
— St. G.
ÍSótt um stóðurj
|hjá sjónvarpinu!
EINS og kunnugt er voru ný-1
lega auglýstar 26 nýjar stöður,
hjá íslenzka sjónvarpinu. —’
Voru þær bæði hjá dagskrár-
deild og tæknideild sjónvarps-|
ins. Umsóknarfrestur er til 5.(
ágúst.
Blaðinu er kunnugt um, að I
15 umsóknir hafa þegar borizt(
og. ennfremur hefur margt 1
fólk leitað upplýsinga um
fyrrgreind störf. Enn sem kom '
ið er munu fleiri’hafa sótt um|
tæknistöður en stöður viðj
dagskrá.
Teikningar munu nú sennj
fullgerðar af hinu nýja hús-l
næði sjónvarpsins við Lauga-
' veg. Annar undirbúningur 1
sjónvarpsins er í fullum'
gangi.
Frá framkvæmdum við Lárós.
Búa til stööuvatn til laxaeldis
VEIÐIFÉLAGIÐ Lárvík heitir
veiðifélag er hóf hinn 23. júní
sl. framkvæmdir um að stífla
Lárós fyrir botni Látravíkur á
Snæfellsnesi. Það eru þeir Jón
Sveinsson, rafvirkjameistari, Óð-
insgötu 9 og Ingólfur Bjarnasoh,
verzlunarsfjóri, Silfurteig 2, sem i
fyrir þessum framkværhdum j
standa. Þeir hafa keypt fjórar
jarðir, sem land eiga að ósnum 1
og ætla að stífla, svo að stöðu-
vatn myndist. Stíflan er gerð
samkvæmt teikningu Guðmund-
ar Gunnarssonar verkfræðings.
Víkurrifið verður hækkað um
2% metra á tveggja kílómetra
löngum kafla og mun þá mynd-
ast stöðuvatn, sem verða mun
um 160 hektarar að stáérð. 1
stíflunni munu verða steinsteypt
arr flóðgáttir og yfirföll. Tengi-
garðar munu verða 50 metrar að
lengd, en öll verður stíflan 300
metrar. Þeir félagar búast við að
stíflugerðinni verði lokið innan
tveggja vikna. Þeir munu svo
rækta upp í þessu vatni lax, sjó-
birting og bleikju. Þeir eiga þeg-
ar í eldi lax- og silungsseiði.
Vatnið innan stíflunnar mun
verða ferskt, en sjóblandað að
rmlflfni til
Einar Grétar Svelnbjörnsson.
verk mun sjálfsagt finnast túlk.
un Einars ekki eins hlý. Áheyr-
endur fögnuðu einleikaranunr
innilega og honum bárust blóm-
vendir í dönsku fánalitunum.“
Aalborg Stiftstidende:
„Einleikari kvöldsins var fs-
lendingurinn Einar Grétar Sveir
björnsson, fcem sýndi rósemi o(
stórkostlegt vald á hinum erfiðr
gripum, sem Sibelius hefur gæt
fiðlukonsertinn. En enda þót
hann vitandi vits hefði taumhalc
á leiktækni sinni, skaðaði þa?
ekki hina listrænu framsetningu
Tónninn var sérstaklega hlýr o(
sterkur og leikurinn persónuleg
ur og lifandi. Hin sterka róman
tiska tiífinningasemi ýmíst inni-
leg eða leikræn kom þess vegm
skýrt fram.“